Morgunblaðið - 09.05.2008, Qupperneq 15
Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur
Þjálfari liðsins, Gareth O’Sullivan
frá Írlandi, er ánægður með að
vera meðal hinna bestu. „Það er
frábært að vera í efstu deild. Okkar
markmið er að vera samkeppnis-
hæfar og halda sæti okkar í deild-
inni. Við eigum von á því að fá
dyggan stuðning frá íbúum Mos-
fellsbæjar og þeir verða okkar 12.
maður. Hjá okkur ríkir því bæði
spenna og eftirvænting,“ sagði Ga-
reth O’Sullivan en hann kom til fé-
lagsins fyrir rúmu ári síðan eftir að
hafa þjálfað skólalið í Bandaríkj-
unum.
Það var athyglisvert að fylgjast
með liði Aftureldingar síðasta sum-
ar og greinilegt að metnaðurinn er
til staðar í Mosfellsbænum. Að
sögn forráðamanna liðsins er byggt
upp til framtíðar og sagan frá 1996
á ekki að endurtaka sig en þá lék
Afturelding í efstu deild, í fyrsta og
eina skiptið til þessa, og hafnaði í
neðsta sæti með aðeins þrjú stig.
Meistaraflokkur Aftureldingar
var síðan lagður niður eftir keppn-
istímabilið 1997 og var ekki stofn-
aður aftur fyrr en tæpum áratug
síðar. Það var því splunkunýtt lið
sem var sent til keppni í 1. deildinni
í fyrra og það fór í gegnum hana
með glæsibrag og hafnaði í öðru
sæti.
Þjálfari liðsins, Gareth O’Sulliv-
an, er snjall að finna öfluga erlenda
leikmenn og var með tvo af bestu
erlendu leikmönnum kvennadeild-
anna hjá Aftureldingu sl. sumar.
Önnur þeirra, Sophia Mundy, mun
leika áfram með Aftureldingu í
sumar og verður forvitnilegt að sjá
þennan öfluga leikmann kljást við
nokkrar af bestu knattspyrnukon-
um Íslands.
Fimm erlendir leikmenn
Alls munu fimm erlendir leik-
menn leika með Aftureldingu í
sumar, þrír frá Bandaríkjunum,
Sophia Mundy, Christa Mann og
Brett Maron, Vicky Charnley frá
Englandi og Maria Sönnerborg frá
Svíþjóð. Einnig eru hjá liðinu
nokkrir efnilegir ungir leikmenn,
m.a. Sigríður Þóra Birgisdóttir,
sem skoraði 10 mörk í 12 deilda-
leikjum á síðasta tímabili, og María
Rannveig Guðmundsdóttir, sem var
kjörin íþróttakona Aftureldingar á
síðasta ári. Þær eru báðar aðeins 17
ára gamlar og leikmenn með
stúlknalandsliði Íslands.
Gareth O’Sullivan, þjálfari Aftureldingar
Spenna
og eftir-
vænting
AFTURELDING vann sér sæti í
Landsbankadeildinni eftir harða
baráttu við HK/Víking og Þrótt sl.
sumar. Liðið lék skemmtilega
knattspyrnu í 1. deildinni og ljóst
að uppbyggingarstarf í Mosfells-
bænum undanfarin ár er að skila
góðum árangri.
Ljósmynd/Ingibjörg Hinriksdóttir
* % '
&
% <
"!
/#
(
$
F#
!
% %
&
& ,+$
+/
* /
1226
1226
1249
1227
1221
1244
1245
1227
124:
1227
1221
1233
6
6
6
6
6
6
6
6
87
6
6
72
6
6
6
6
6
6
6
6
:
6
6
7
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
1
17
18
;(
,' ./0
,-0>
G
<% 0
;
2
78
1 '-
,.
16
11
15
13
14
12
76
77
75
73
,0/23-
,.
7
:
5
9
3
4
1:
19
71
7:
79
74
''-
,.
?)
1249
1234
1242
6
73
6
6
6
6
6
6
6
OF
N# H
& @ $
(,+$
#
&
, '
+
,+$
,(A
0
N#
1227
1247
1243
1244
1221
1226
1249
124:
1228
1227
1227
1245
6
6
6
6
6
6
6
:4
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
7
6
6
6
6
4
B
%
C
D
Við Varmá Gareth O’Sullivan, þjálfari Aftureldingar, ásamt Sigríði Þóru Birgisdóttur og Maríu Rannveigu Guð-
mundsdóttur, leikmönnum liðsins, sem báðar spila með stúlknalandsliði Íslands.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 15
'
Stofnað: 1909.
Heimavöllur: Varmárvöllur.
Aðsetur félags: Íþróttamiðstöðin
Varmá, 270 Mosfellsbær.
Sími: 566-7089.
Fax: 564-6032.
Netfang: umfa@simnet.is
Heimasíða: www.afturelding.is.
Framkvæmdastjóri: Hallur Birgis-
son.
Þjálfari: Gareth O’Sullivan.
Aðstoðarþjálfari: John Andrews.
Sjúkraþjálfari: Sólveig Þórarins-
dóttir.
Formaður kvennaráðs: Hallur
Birgisson.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Deildabikarmeistari: Aldrei.
Ungmennafélagið
Afturelding
KVENNALIÐ Aftureldingar leikur með Bleiku slaufuna framan á
búningum sínum í Landsbankadeildinni í sumar. „Hugmyndin kvikn-
aði út frá búningi Barcelona en tvö síðustu ár hefur félagið auglýst
UNICEF á búningi sínum og styrkt samtökin um leið. Eftir að við fór-
um að velta þessu fyrir okkur vaknaði hugmyndin að kjörið væri að
vekja athygli á Bleiku slaufunni, árveknisátaki um brjóstakrabbamein,
á keppnisbúningi meistaraflokks liðs Aftureldingar í Landsbankadeild
kvenna í sumar. Tengja þannig átakið gegn brjóstakrabbameini við
íþróttir kvenna og heilbrigðan lífsstíl,“ segir Gústav Gústavsson,
stjórnarmaður í meistaraflokksráði kvenna hjá Aftureldingu þegar
þessi ákvörðun var kynnt.
„Forsvarsmönnum Krabbameinsfélagsins leist strax vel á hugmynd-
ina og samþykktu hana um leið,“ segir Gústav ennfremur. Samningur
Aftureldingar og Krabbameinsfélags Íslands felur í sér að keppn-
istreyjur kvennaliðs Aftureldingar í knattspyrnu verða merktar
bleiku slaufunni. Samhliða mun meistaraflokkur kvenna safna áheit-
um hjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir hvert mark sem liðið skor-
ar í Landsbankadeildinni og VISA-bikarkeppninni á þessu ári. Rennur
ágóðinn af áheitunum jafnt til Bleiku slaufunnar og til eflingar knatt-
spyrnu kvenna hjá Aftureldingu.
Afturelding með
Bleiku slaufuna
Morgunblaðið/Golli
Bleika slaufan Hallur Birgisson, formaður meistaraflokksráðs kvenna
hjá Aftureldingu, og Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags
Íslands, fyrir miðju, ásamt leikmönnum og þjálfara Aftureldingar.
Brett Maron frá Bandaríkjunum
Christa Mann frá Bandaríkjunum
Gréta Rún Árnadóttir frá ÍR
Maria Sönnerborg frá Svíþjóð
Valdís María Einarsdóttir frá BÍ
Vicky Charnley frá Englandi
Alicia Milyak til Bandaríkjanna
Danielle T. Guempel til
Bandaríkjanna
Kirsty Marr til Skotlands
Samanta Robinson til Bandaríkj-
anna
*+