Morgunblaðið - 21.06.2008, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er laugardagur 21. júní, 173. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Framkvæmdastjóri Ikea á mikiðhrós skilið fyrir skjót viðbrögð.
Þannig er að á dögunum átti Vík-
verji dagsins erindi í Ikea í Garða-
bæ, keypti stóra skápa og greiddi
fyrir heimsendingu. Níðþungir
pakkarnir komu á tilsettum tíma en
þegar bílstjórinn frá Flytjanda hafði
komið brettinu á gangstéttina fram-
an við húsið í Vesturbæ Reykjavíkur
sagði hann að hlutverki sínu væri
lokið. Víkverji var ekki heima en
kona hans og dóttir horfðu í for-
undran á manninn og spurðu hvort
hann ætlaði ekki að aðstoða þær við
að bera vörurnar inn því ekki gætu
þær það. Hann hélt nú ekki og lét sig
hverfa.
x x x
Mæðgurnar létu Víkverja vita.Hann hringdi þegar í fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, sagði
honum hvað hafði gerst . Fram-
kvæmdastjórinn sagði augljóst að
þarna hefði bílstjórinn ekki farið að
vinnureglum Ikea og framkoman
væri óviðunandi. Hann þakkaði kær-
lega fyrir að láta sig vita og sagðist
sjá til þess að menn kæmu til að bera
vörurnar inn. Ekki þarf að orðlengja
það að tveir menn komu innan
stundar og báru vörurnar upp stiga
og inn í íbúðina. Vel að verki staðið
og viðbrögð framkvæmdastjórans,
sem voru með hraða ljóssins, til fyr-
irmyndar.
x x x
Um svipað leyti ætlaði Víkverji aðkaupa myndaramma í verslun
Hans Petersen í Kringlunni. Rétta
stærðin var ekki til en Víkverji var
með ramma og spurði hvort hægt
væri að laga kartonið þannig að
mynd, sem var einnig í farteskinu,
kæmist í rammann. Unga af-
greiðslustúlkan var ekkert nema
kurteisin uppmáluð, sagði það
minnsta mál og kom myndinni fyrir í
rammanum. Þegar veskið var tekið
upp brosti stúlkan sínu blíðasta og
sagði að þetta kostaði ekki neitt.
Auðvitað var þetta ekki dýr fram-
kvæmd en það er alltaf ánægjulegt
að fá góða þjónustu.
Víkverjiskrifar
Reykjavík Stefán Örn Sæv-
arsson fæddist 17. apríl kl.
01.33. Hann vó 3.335 g og var
51 cm langur. Foreldrar hans
eru Sævar Örn Gunnlaugsson
og Sigurbjörg Jakobsdóttir.
Reykjavík Hlynur Þorri
fæddist 13. mars kl. 9.53.
Hann vó 3.310 g og var 50 cm
langur. Móðir hans er Helga
Guðrún Loftsdóttir.
Reykjavík Guðlaug Nóa
fæddist 6. febrúar kl. 16.53.
Hún vó 3.875 g og var 52 cm.
Foreldrar hennar eru Sigríð-
ur Hafdís Benediktsdóttir og
Einar Þór Einarsson.
Reykjavík Heiðrún Lóa
Jónsdóttir fæddist 23. apríl
kl. 17.27. Hún vó 4.180 g og
var 53 cm. Foreldrar hennar
eru Jón Brynjar Birgisson og
Bryndís Rut Jónsdóttir.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 halda í skefj-
um, 4 fulltingi, 7 girnd, 8
kvæði, 9 hef gagn af, 11
einkenni, 13 hlífa, 14
gestagangur, 15 lof, 17
dreitill, 20 stefna, 22
mergð, 23 gjafmild, 24
veiða, 25 tígrisdýr.
Lóðrétt | 1 vígja, 2 guðs-
hús, 3 lengdareining, 4 til
sölu, 5 birtu, 6 líkams-
hlutann, 10 jöfnum hönd-
um, 12 tíni, 13 bókstafur,
15 kona, 16 hamslaus, 18
sterk, 19 hljóðfæri, 20
huldumanna, 21 gangur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kotroskin, 8 fólks, 9 ylinn, 10 ker, 11 tafla, 13
asnar, 15 summu, 18 úlpan, 21 nær, 22 kýrin, 23 askan,
24 griðastað.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 röska, 4 seyra, 5 iðinn, 6 eflt, 7 gnýr,
12 lóm, 14 sæl, 15 sókn, 16 mærir, 17 unnið, 18 úrans,
19 pakka, 20 nánd.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rf3 d6 4. Rc3 a6 5.
Be2 b5 6. a4 b4 7. Rd5 a5 8. O–O c6 9.
Re3 Rd7 10. c3 bxc3 11. bxc3 Dc7 12.
Hb1 Rgf6 13. Dc2 O–O 14. Ba3 Ba6 15.
Bxa6 Hxa6 16. Rd2 Hb6 17. Hxb6 Rxb6
18. Hb1 Rfd7 19. Rdc4 Rxc4 20. Rxc4
Hb8 21. Hxb8+ Rxb8 22. Db3 Rd7 23.
Bc1 d5 24. exd5 cxd5 25. Ra3
Staðan kom upp í A-flokki alþjóð-
legrar skákhátíðar í Myzliborz í Pól-
landi sem lauk fyrir skömmu. Íslenski
stórmeistarinn Henrik Danielsen
(2510) hafði svart gegn serbneska Fide-
meistaranum Jovica Radovanovic
(2349). 25… Bxd4! 26. Bd2 Bc5 27. c4
Db6 28. Rb5 Bxf2+ 29. Kf1 dxc4 30.
Dxc4 Bc5 svartur er nú tveimur peðum
yfir og með léttunnið tafl. 31. Dc3 De6
32. Dxa5 Dc4+ 33. Ke1 Re5 34. Dd8+
Kg7 35. Bc3 De4+ 36. Kd1 Dxa4+ 37.
Kd2 Df4+ 38. Kc2 De4+ 39. Kb3 Dc4+
40. Kc2 Dxb5 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Eins og Garozzo.
Norður
♠ÁK
♥G1076
♦Á1097
♣Á74
Vestur Austur
♠G109876 ♠32
♥D42 ♥K9
♦G3 ♦K52
♣KG ♣D9832
Suður
♠D4
♥Á853
♦D864
♣1065
Suður spilar 4♥.
„Þú spilar eins og Garozzo,“ er
stundum sagt í viðurkenningarskyni
þegar sagnhafa tekst vel upp. Grikkinn
Karamensis átti hrósið skilið í leiknum
við Ísland í 3ju umferð EM. Aðalsteinn
Jörgensen vakti á multi 2♦ í vestur,
sem norður doblaði og nokkru síðar
varð Karamensis sagnhafi í vonlitlum
4♥. Útspilið var ♠G. Karamensis spil-
aði ♥G í öðrum slag – kóngur og ás.
Svo hjarta að blindum, sem Aðalsteinn
dúkkaði hiklaust, en upp fór tían. Næst
kom ♦Á og meiri tígull. Nú dúkkaði
Sverrir Ármannsson, en Karamensis
lét drottninguna. Loks var laufi spilað
á ásinn og Aðalsteinn gerði sitt besta
með því að henda kóngnum undir. En
það dugði skammt vegna ♣10 suðurs;
Sverrir hafði ekki efni á að yfirdrepa
♣G og Aðalsteinn varð að spila út í tvö-
falda eyðu í lokin.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fólk veit ekki hvernig það á að
taka þér núna svo þú getur alveg eins
komið með tvíræð skilaboð. Notaðu tæki-
færið og stuðaðu allan heiminn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér getur liðið ósköp vel án pen-
inga, og þú ert jafnríkur og þú ert ánægð-
ur. Ef keppni væri í gangi, værir þú rík-
asti maður í heimi. Eða sá
hamingjusamasti.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ef þolinmæði er dyggð, er óþol-
inmæði löstur – og þú munt láta undan
honum núna. Þegar þú bíður í biðröð
heyrist hið þögla öskur þitt um allan
heim.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert í góðu og skrítnu skapi.
Sköpunargáfa vekur athygli á fólki. Viltu
hana? Bara ef þú hefur eitthvað að selja.
Ef þú finnur það, geturðu grætt vel.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú getur ekki valið rangt. Þú getur
valið á milli gleðskapar og lærdómsríkrar
reynslu. Mjög vitur manneskja gæti ekki
sagt hvort væri meira virði.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert ekki viss hvort þú eigir að
efast um vissa hugmynd eða styðja hana.
Til að gera ákvörðunina áhugaverðari, er
gráa svæðið risastórt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér finnst þú heppinn að vera meðal
áhugverðs fólks. En það er ekki heppni.
Þú sendir frá þér réttu bylgjurnar sem
laða fólkið að sem þú vilt vera með.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ástarböndin hafa ekki slitn-
að, bara teygst á þeim. Reyndu að koma
þeim í samt horf með því að skilja góðan
ásetning hins aðilans. Það segir mikið.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér tekst yfirleitt að laða að
þér hluti, í stað þess að eltast við þá.
Fyrri aðferðin er erfið og krefst snilli-
gáfu. Sú seinni er skemmtileg en er alltof
mikil vinna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í raun að bíða eftir að
hlutirnir komi í ljós á eigin hraða. Ekki
ýta á eftir þeim og alls ekki skipta þér af.
Ekki gefast upp – láttu þig fljóta með.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Settu alla þína orku í að borga
útistandandi skuldir, ekki búa til nýjar.
Það krefst aga og þú hefur hann. Í kvöld
stríðir þú ástvini sem kann að meta það.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú grunar einhvern um að plokka í
hjartastrengina þína. En þegar þú elskar
sjálfur fær það strengi hjartans til titra.
Þú hefur mikið innsæi í kvöld.
Stjörnuspá
Holiday MathisHoliday Mathis
21. júní 1856
Dufferin lávarður kom til
landsins og ferðaðist víða.
Þjóðólfur sagði að hann væri
stórauðugur, „kurteis, ljúfur
öðlingur og hinn ríklundaðasti
höfðingi.“ Tveimur áratugum
síðar reyndist hann Vestur-
Íslendingum vel, þá var hann
orðinn landstjóri í Kanada.
21. júní 1959
Sigurbjörn Einarsson, 47 ára
prófessor í guðfræði, var vígð-
ur sem biskup yfir Íslandi. Í
biskupskjöri hlaut hann 69 at-
kvæði, Einar Guðnason hlaut
47 atkvæði og Jakob Jónsson
22 atkvæði. Sigurbjörn gegndi
embættinu til 1981.
21. júní 1973
Þjóðgarðurinn í Jökulsár-
gljúfrum í Öxarfirði var stofn-
aður. Hann nær frá Dettifossi
og niður fyrir Ásbyrgi og er
um 150 ferkílómetrar.
21. júní 1991
Perlan, útsýnishús Hitaveitu
Reykjavíkur á Öskjuhlíð, var
formlega tekin í notkun.
21. júní 2000
Síðari Suðurlandsskjálftinn
reið yfir kl. 0.51. Hann mæld-
ist 6,6 stig og átti upptök við
Hestfjall í Árnessýslu. Tjón í
þessum skjálfta og þeim fyrri,
sem varð 17. júní, er talið hafa
numið á annan milljarð króna,
m.a. eyðilögðust 34 hús.
Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá…
Valgerður
Bílddal er áttræð
í dag, 21. júní.
Hún tekur á móti
gestum í safn-
aðarheimili KE-
FAS kirkjunnar
að Fagraþingi 2a
í Kópavogi milli
kl. 15 og 17 í dag.
80 ára
SVO MIKILL var lífskrafturinn í Sævari Helgasyni,
afmælisbarni dagsins, að blaðamaður hafði á til-
finningunni að hann væri á tali við tvítugan ung-
ling. Áhugamál Sævars eru mörg, meðal annars
stundar hann sjókajakróður, sjóstangaveiði, skíða-
mennsku og fjallgöngur í frítíma sínum, auk þess
sem hann heldur úti bloggsíðunni saevarh.blog.is.
„Þannig að sjötugum er allt fært,“ útskýrir hann
kátur eftir þessa löngu upptalningu, „menn geta
haldið sér í góðu formi með því að hafa áhuga á til-
verunni.“
Í yfir sjö ár hefur Sævar stundað sjókajakróður,
og á bloggsíðu hans getur að líta fallegar myndir af Langasjó frá ferð
sem hann fór í sem fararstjóri í fyrrasumar. „Það er fyrirhuguð ferð í
Breiðafjörðinn, frá Reykhólum yfir í Skáleyjar, í byrjun ágúst,“ sagði
hann aðspurður hvert hann stefndi í sumar, og leyndi eftirvæntingin í
röddinni sér ekki.
„Ég stunda sjóstangaveiði frá lok janúar fram á jólaföstu,“ sagði af-
mælisbarnið, sem var einmitt á leið í slíka ferð þegar blaðamaður trufl-
aði hann. „Það er bara myrkrið sem stoppar,“ bætir Sævar við, en hann
á lítinn bát. Hann starfaði lengi sem verkefnastjóri hjá Íslenska álfélag-
inu í Straumsvík og hefur mikinn áhuga á nýtingu orkunnar í sátt við
náttúruna. Afmælisdeginum ætlar hann að eyða í faðmi fjölskyldunnar.
| andresth@mbl.is
Sævar Helgason, fyrrv. verkefnastjóri, 70 ára
Allt er sjötugum fært
;)
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd,
og nafn foreldra,
á netfangið barn@mbl.is