Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Blaðsíða 2
E ins og sakir standa er Ísland eins og land sem háir stríð á fjarlægri grundu. Á yfirborðinu virðist allt með felldu, og raunar virðist höf- uðverkefni allra, frá leikskólakennurum til forsætisráðherra, að láta sem allt sé með felldu, en allir vita að ósigurinn er algjör. Þetta sést vel úr fjarlægð. Þjóðargjald- þrotið sem vart er nefnt á nafn hér mitt í hringiðunni er beinhörð staðreynd þegar horft er á málið með augum erlendra fjöl- miðla. Smám saman er þó eins og endalaus niðurlægingin á vígstöðvunum í austri og vestri síist inn. Okkar hersveitir fara ekki bara halloka. Stórkostlegt stórtap þeirra er staðreynd, þrátt fyrir fréttir um skipulagt undanhald. Þótt hugmyndafræði, þrjóska og vani haldi þjóðfélaginu enn á réttum kili gefa stoðirnar sig. Í síðasta mánuði voru 4000 manns hið minnsta reknir úr störfum sínum. Ég hef hitt nokkra úr þeirra röðum. Þeim líður eins og ókunnir kraftar hafi kippt sundur sporbaug lífs þeirra og þeir þjóti nú út í tómið. Ég veit ekki hvort starf- andi er ráðgjafarhópur um almenna já- kvæðniuppbyggingu í samfélaginu, en ef marka má fréttir af því að aðstoðarmenn þriggja ráðherra hafi boðað ritstjóra og yf- irmenn fjölmiðla á sinn fund til að fara yfir málin, virðist svo vera. Ekkert almennings- tengslastarf heldur hins vegar aftur af manninum á götunni sem upplifir á svolítið ruglingslegan hátt reiði, vanmátt, skilnings- leysi og sjálfsásökun í bland við vonleysi þess sem sér enga möguleika á eðlilegu lífi í náinni framtíð. Ef stjórnvöld eru ofan í afneitunarkaupið að reyna að koma böndum á „uppgjafartal“ með fjölmiðlaleiðbeiningum, þá er sá starfi ærinn. Hvorki þau né aðrir fá að fullu ham- ið þá vaxandi ólgu, óánægju og reiði sem hver einasta bensínskvetta frá burtreknum bankamönnum magnar. Fyrst les maður „fréttirnar“ á bloggsíðum. Síðan eru þessar sömu bloggsíður sendar í tölvupóstum. Síð- an eru tölvupóstarnir afritaðir og end- ursendir uns að endingu „fréttin“ kemst upp úr sínu stafræna kafi, upp á yfirborðið. Inni á vefnum sást fyrst sagt frá skuld- þvegnum Kaupþingsmönnum. Inni á vefn- um rís nú alda alvarlegrar gagnrýni á hvernig nýi aðallinn í bönkunum virðist svo samofinn fyrra þrotakerfi að ómögulegt er að koma auga á umskiptin. Sagt er að bankastjórar gömlu bankanna stjórni nýju bönkunum á laun. Krafan um alger um- skipti verður háværari. Að gefið verði upp á nýtt. Um tíma hélt maður nefnilega að hið mikla Hrun þýddi í raun byltingu. Að Ís- land væri að upplifa atburð á borð við sið- breytinguna þegar heilli valdastétt og nán- ast öllu efnahags- og félagskerfi hennar var sópað út af borðinu og stærsta eigna- tilfærsla íslenskrar sögu fór fram. Svo er þó ekki. Sama fólkið og setti Ísland á haus- inn stjórnar enn fjármálum þjóðarinnar. Hið mikla Hrun var þrátt fyrir allt ekki hrun fjármálastéttarinnar. Það var fyrst og síðast hrun allra þeirra sem fóru í laut- arferð í góðærinu með myntkörfuna fulla af gulleggjum. En eins og í vondu Grimms- ævintýri breyttust eggin í myllusteina sem hanga þeim um háls. Í Hruninu missti þetta fólk tök á hinni efnislegu tilveru, en það missti líka tök á trúnni á framtíðina. Drifkraftur íslensks samfélags á und- anförnum árum byggðist á trúnni á að við öll, þjóðin, værum gædd sérstökum eig- inleikum sem tryggðu stöðugt áframhald- andi velsæld. Þessi hugmynd dó á einni nóttu. Nú berjast menn við að byggja upp traust á komandi tímum, snúa kreppunni í jákvæðan byr og von um að hægur vöxtur, útsjónarsemi og aðrar góðar dyggðir komi okkur til bjargar. Það er þörf á því að hlusta á allt það góða fólk sem sér mögu- leikana í ástandinu, en vandamálið er að það eru jarðsprengjur í rústunum. Ef þær verða ekki aftengdar allar strax er öll já- kvæðni og framtíðartrú til einskis. Hin reiða myntkörfukynslóð verður að fá upp- gjör við valdamenn gömlu bankanna og allt þeirra mikla umbununarsýstem. Annars verður komandi tíð ein skelfingargryfja reiði, tortryggni og óréttlætis. kbjonasson@gmail.com Myllusteinar í myntkörfum Hrunið „Það var fyrst og síðast hrun allra þeirra sem fóru í lautarferð í góðærinu með myntkörfuna fulla af gulleggjum.“ FJÖLMIÐLAR KRISTJÁN B. JÓNASSON Hin reiða myntkörfukyn- slóð verður að fá uppgjör við valdamenn gömlu bankanna og allt þeirra mikla umbununarsýstem. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 2 LesbókSKOÐANIR Ó nafngreindir heimildarmenn“ komu þeim skilaboðum til fjölmiðla að háttsettir starfs- menn Kaupþings hefðu með samþykki stjórnar verið leystir undan ábyrgðum á lánum sem þeir tóku til hlutabréfa- kaupa áður en bankinn var einkavæddur. Fyrst komst þetta á kreik í tölvupóstum og bloggsíðum, síðan var sagan sögð í sjónvarpsfréttum og dagblöðum, enn með tilvísun til „ónafngreinda heimildarmannsins“. Í gang fór hin illa séða en vel smurða afneit- unarvél þeirra sem hugsanlega gætu vitað til þessara mála. Aðrir létu ekki ná í sig. Loks tókst skjaldborg gamla fjármálavaldsins að hrinda tveimur fram fyrir spjótin, menntamálaráðherra og formanni VR, Gunnari Páli Pálssyni. Þótt fjöl- miðlar og almenningur hafi náð einhvers konar tangarhaldi á þessu máli stendur eftir sú tilfinn- ing að þetta sé aðeins hurðarhringurinn á risa- vaxinni ormagryfju. Fyrir einhvers konar mistök hafi almenningi verið leyft að frétta eitthvað sem allir þartilbærir aðilar, ekki síst ríkisstjórnin og stjórnarþingmenn, vissu, en töldu ekki rétt að gera opinbert af ótta við … almenning. Allt við þetta mál vekur þær áleitnu grunsemdir að end- uruppbygging íslensks þjóðfélags á grundvelli sannleika, réttlætis og djörfungar muni aldrei fara fram. Við sitjum uppi með byrðar sem aðrir stofnuðu til og sem þeir munu nú sjálfir sjá um að velta yfir á þjóðina. ÞETTA HELST Hvað leynist í ormagryfjunni? Ríkisstjórnin Er hún hrædd við okkur? R étt er að benda lesendum á frábæra dagskrá Ríkisútvarpsins á laugar- dögum en þar má finna þætti sem eru með því besta sem hægt er að finna í íslenskum ljósvaka. Kvika hefst kl. 10.15 og er þáttur um kvikmyndir í umsjón Sigríðar Pétursdóttur. Í kjölfarið koma Vikulokin sem Hallgrímur Thorsteinsson hefur gætt nýju lífi síðustu mánuði. Kl. 13 er komið að Krossgötum Hjálmars Sveinssonar, maga- sínþætti af bestu gerð. Í Lostafulla listræn- ingjanum kl. 15.25 er rætt um listir, að þessu sinni verður m.a. fjallað um sýningu Gylfa Gíslasonar í Listasafni ASÍ en um Gylfa er einnig fjallað í Lesbók í dag. Einnig er óhætt að mæla með tveimur kvikmyndum sem sýndar verða í Ríkissjón- varpinu í kvöld. Afbrotavarnir eða Minority Report (2002) eftir Steven Spielberg er bráðskemmtilegur framtíðartryllir sem er sömuleiðis áhugaverður sökum þeirrar sýn- ar sem hún hefur á tæknisamfélag fram- tíðar. Sú sýn byggðist á samstarfi við vís- inda- og uppfinningamenn og er því kannski ekki út í hött. Í myndinni er til dæmis vísbending um það hvernig við mun- um hugsanlega lesa dagblöð í framtíðinni. Fréttirnar eða Die Nachrichten (2005) er einnig mjög fín þýsk mynd um Austur- Þjóðverja sem fluttist vestur yfir eftir fall múrsins. throstur@mbl.is Útvarpið á laugardögum Og bíókvöld á RÚV MEÐMÆLIN Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 PrentunLandsprent Þ að er almennt séð mjög örugg pólitík hjá pistlahöfundi að vera svartsýnn, að vera neikvæður og gagnrýninn, pota í allt og alla. Fyrr eða síðar mun nefni- lega allt fara til andskotans. En nú ber svo við að við erum einmitt þar. Eða um það bil að koma þangað. Niður í það svartasta svarta. Og þá er tími til þess að taka upp léttara hjal. Þið getið kallað mig bjartsýnisbjálfa. Þið get- ið sagt að lífið sé svört skáldsaga. Þið getið meira að segja haldið því fram að ástandið jafn- ist á við móðuharðindin. En mér er sama, því að nú tel ég rétt að taka undir með þeim sem í upphafi þessa svokallaða hruns bentu ítrekað á alla þá kosti og krafta sem Íslendingar byggju yfir. Það er nefnilega meira vit í því en mörgu sem sagt er um þessar mundir að við þurfum að byggja á því sem við höfum enn nóg af, mennt- un, auðlindum, sköpunarkrafti, frumkvæði. Við þurfum í sjálfu sér ekki að tíunda þessa hluti neitt frekar, en það þarf hins vegar að taka til hendinni, núna þarf að koma hlutum á hreyf- ingu og það sem allra fyrst. Og það er allt í lagi að byrja smátt ef sporin eru bara ákveðin og í rétta átt. Nú væri til dæmis gott að taka ákveðið skref í átt að því að stofna til einhvers konar mið- stöðvar fyrir sjálfstæðar rannsóknir, fyrir fólk sem er með hugmyndir, á hvaða sviði sem það nú er. Nú ríður á að hvetja fólk til þess að skapa og elta drauma sína, hrinda hlutum í framkvæmd sem það hefur ekki haft tíma til að huga að sök- um þess hversu mikið var að gera við að telja peninga. Fjölmargir einstaklingar eru nú til dæmis að losna út úr speglasölum bankanna. Veruleikinn verður að taka vel á móti þeim, hlúa að þeim, virkja þá. Þetta er alls konar fólk með alls konar menntun. Það væri slys að missa þetta fólk úr landi. Nú þegar berast fréttir af því að iðn- aðarmenn og tæknifólk streymi til útlanda að freista gæfunnar. Þrjú hundruð manns mæta á fund þar sem kynntar eru reglur um flutning til Norðurlanda. Þrjátíu hafa verið á slíkum fund- um undanfarin misseri. Stjórnvöld verða að bregðast hratt við og þau verða að gera það á jákvæðan hátt – skapa aðstöðu, leggja fram fé, hvatningu og einhverja sýn svo að sprotarnir sem eru vissulega fyrir hendi fái að vaxa og dafna. Léttara hjal Nú ríður á að hvetja fólk til þess að skapa og elta drauma sína VITINN ÞRÖSTUR HELGASON Verðmæti Það væri slys að missa bankafólkið úr landi. Það þarf að virkja það.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.