Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Síða 6
Þ að er kunnara en frá þurfi að segja að netið er mörgum þyrnir í augum enda er það bæði uppspretta góðs og ills. Það er síðan mismunandi hvað það er sem menn telja gott og hvað illt og breytilegt milli landa. Þannig fylgjast kínversk stjórnvöld ræki- lega með allri netnotkun í Kína, greina allt það sem hver notandi sendir frá sér og sækir til sín til að koma í veg fyrir að menn skiptist á skoð- unum, og sama hyggjast stjórnvöld í Frakk- landi gera, þ.e. koma í veg fyrir að menn skiptist á tónlist og kvikmyndum. Reyndar hyggjast frönsk stjórnvöld beita öðrum fyrir sig, enda var það samþykkt í frönsku öldungadeildinni í vikubyrjun að net- þjónustur (fyrirtæki sem selja aðgang að net- inu) skuli framvegis fylgjast með netnotkun notenda sinna og grípa inn í ef þeir skiptast á höfundarréttarvörðu efni, til að mynda tónlist, kvikmyndum eða hugbúnaði. Fyrir fyrsta brot fá menn skammir í tölvu- pósti, við annað brot er lokað á þá tímabundið en síðan verður lokað fyrir netaðgang þeirra fyrir fullt og fast við þriðja brot. Þetta hefur eðlilega í för með sér aukinn kostnað hjá netfyrirtækjum því þau þurfa að greina hvern gagnapakka sem sendur er um netið sem kostar talsverðan vélbúnað og einnig að geta lagt mat á hvort um sé að ræða ólöglegt efni eða löglegt (milljónir ókeypis laga eru fáan- legar á netinu á lögmætan hátt og eins þúsundir kvikmynda). Einnig þurfa fyrirtækin eðlilega að bæta við sig starfsmönnum. Þessi kostnaður lendir síðan á netnotendum og því verður dýr- ara að kaupa netaðgang í Frakklandi fyrir vikið. Þessi hugmynd hefur verið á kreiki í Frakk- landi frá því Nicolas Sarkozy var kjörinn forseti og er meðal annars afrakstur starfs nefndar sem hann skipaði. Formaður þeirrar nefndar var góðkunningi Sarkozys og stjórnarformaður frönsku verslunarkeðjunnar FNAC, sem hefur eðlilega mikilla hagsmuna að gæta. Hann fann leiðina að hjarta öldungadeildarþingmannanna (og Sarkozys) meðal annars með því að leggja áherslu á það í skýrslu um efnið að fyrst og fremst skaðaði ólögmæt dreifing á tónlist og kvikmyndum franska menningu – þeir sem dreifa efni um jafningjanet eru að gera út af við franska menningu sagði hann og það dugði. Ekki er gott að segja hvaða örlög bíða þess- arar tillögu í franska þinginu, enda eru ýmsir andsnúnir henni í Frakklandi og víðar. Meðal þess sem menn hafa sett fyrir sig er að það að takmarka aðgengi fólks að netinu sé skerðing á persónufrelsi og mannréttindum, enda sé svo komið að fjölmargar opinberar stofnanir og einkafyrirtæki byggi þjónustu sína að miklu eða mestu leyti á netsambandi við um- bjóðendur sína, sífellt færist í aukana að kosið sé á netinu og svo megi áfram telja. Gekk svo langt að það var samþykkt á Evr- ópuþinginu í vor að það brjóti beinlínis í bága við manréttindastefnu Evrópusambandsins að svipta menn netaðgangi. Það er líka rétt að varpa fram þeirri spurn- ingu hvort það samrýmist persónuvernd og frið- helgi einkalífs að fyrirtækjum sé gert skylt fylgjast með allri netnotkun viðskiptavina sinna. Hver mun svo gæta gæslumannanna? arnim@mbl.is Hver gætir gæslumannanna? Frönsk stjórnvöld vilja njósna um netnotendur NETIÐ ÁRNI MATTHÍASSON Harður Nicolas Sarkozy og tónlistarmaðurinn Carla Bruni eiginkona hans. Reuters H ver man ekki eftir Ewan McGregor á harðahlaupum niður Princess-götu í Edinborg í upphafi Trainspotting, með Iggy Pop og Lust for Life í botni á hljóðrásinni? Þetta er sígilt andartak, eitt ef kennimerkjum tíunda áratugarins í bíómenn- ingunni, rétt eins og atriðið í Pulp Fiction þegar Travolta og Uma Thurman tvista við gamlan Chuck Berry slagara. Það eru því dálítið blendnar tilfinningar sem gera vart við sig snemma í Slumdog Millionaire (Ríkur ræs- ishundur), nýjustu mynd Danny Boyle, leik- stjóra Trainspotting, þegar aðalhetjurnar, bræðurnir Jamal og Salim, hlaupa eins og fætur toga eftir troðfullum götum hlykkjóttrar kofa- byggðar í ónefndu fátækrahverfi í Indlandi; þeir eru á flótta undan löggunni rétt eins og Renton tæpum tíu árum fyrr. Umhverfið er vissulega annað, dópgreni og undirheimar Edinborgar kunna að vera slæmir en fátæktin og eymdin sem hér blasir við tilheyrir allt öðrum heimi. Sjálfsvísandi vídd senunnar er þó sláandi og áhorfandi spyr hvort hér sé um að ræða glað- hlakkalega skírskotun eða eilítið örvænting- arfulla tilraun til að endurheimta ljóma fortíðar, hvort þetta sé úrvinnsla eða uppgjöf. Þannig er nefnilega mál með vexti að Trainspotting mark- ar ákveðinn hápunkt á ferli leikstjórans og leið- in hefur að sumu leyti legið niður á við síðan, þótt ágætar myndir á borð við 28 Days Later og Sunrise sýni að töggur er í honum. Hér er reyndar rétt að taka fram að málið snýst ekki um frumleikahugtakið sem slíkt, og engin ástæða er til að ætla að leikstjórar á borð við Boyle, sem er afar meðvitaður um ímynda- samfélagið, hiki við að kinka kolli til sjálfs sín. En jafnvel Tarantino hefur forðast endur- vinnslu á íkonískustu andartökum eigin kvik- mynda, þótt hann eigi erfitt með að láta flott at- riði í myndum annarra í friði. Þetta er spurning um hvert menn sæki sér kraftvaka og inn- blástur, og hvort reynt sé að lifa á fornri frægð eða horft sé fram á veginn. Af þessum og öðrum ástæðum fannst mér Boyle tefla á tæpasta vað þegar hann endurskapar sitt frægasta atriði í nýju myndinni. Nokkrum mínútum síðar, þegar eltingarleikurinn í fátækrahverfinu er end- urtekinn, en undir öðrum og miklu grimmari formerkjum, verður hins vegar ljóst að Boyle er langt í frá að gerast sekur um glöp í starfi; hann notar meðvitund áhorfenda um fyrri myndina til að skapa ákveðin skil milli menningarheima, eiginlega til að draga landamæralínu milli vest- urs og austurs. Vísunin í eldri myndina er til staðar en hún býr yfir þunga og tilgangi sem út- skýrir og réttlætir hana. Rammafrásögn Slumdog Millionaire er snið- ug. Hún hefst á því að ungur, fátækur og ómenntaður karlmaður, Jamal, sögupersóna myndarinnar, hefur náð þeim ótrúlega árangri að komast alla leið að síðustu spurningunni í indversku útgáfunni af sjónvarpsþættinum Viltu vinna milljón? Þetta er vitanlega spennu- þrungið andartak fyrir þátttakendur, gríð- arlegir fjármunir eru í húfi og Jamal tekur mikla áhættu, og því veldur það nokkrum von- brigðum þegar klukkurnar glymja og í ljós kemur að tíminn er á þrotum. Það sem gerist næst kemur á óvart, Jamal er handtekinn um leið og slökkt er á upptökuvélunum og færður á lögreglustöð þar sem hann er yfirheyrður og pyntaður næturlangt. Yfirvöld og þáttastjórn- endur eru sannfærð um að hann sé að svindla – að ómögulegt sé að ræsishundur eins og hann, þ.e.a.s einstaklingur sem kemur úr einu af mörgum fátækrahverfum landsins, hafi haft öll svörin reiðum höndum. Framvindan er svo á þá leið að Jamal útskýrir hvernig hann gat svarað spurningunum meðan löggurnar fara yfir þátt- inn af myndbandsspólu. Hver spurning í þætt- inum og hver skýring leiða til endurlits þar sem sýnt er hvernig vitneskju um svarið er að finna í fortíðarreynslu hetjunnar. Svo heppilega vill til að þáttaspurningarnar kalla fram lífssögu Ja- mals í línulegri röð, svörin við fyrstu spurning- unum lærði hann ungur að árum í fátækra- hverfinu en svörin við spurningum seinni hluta þáttarins tengjast unglingsárunum og samtím- anum. Frásagnaraðferðin ber með öðrum orð- um nokkurn keim af brellum og tilgerð, en hún virkar samt ágætlega. Eins og við er búast reynist gatan harður skóli og kraftmestu hlutar myndarinnar eru þeir sem lýsa æskuárunum. Jamal og bróðir hans, Salim, þurfa að sjá um sig sjálfir, móðir þeirra er myrt meðan þeir eru börn, og í hönd fer erfið lífsbarátta þar sem kaldlyndi, miskunnarleysi og útsjónarsemi halda þeim á lífi. Í hópinn bætist stúlka, Latíka, og saman reyna þremenningarnir að þreyja þorrann í erfiðum heimi. Sambandið milli La- tíku og Jamals, og afbrýðisemi Samals reynast þeir efnisþættir sem sagan snýst um, en myndin verður öðrum þræði mikil ástarsaga þar sem ör- lög þessara ræsishunda fléttast saman við þær gríðarlegu samfélagslegu umbreytingar sem eiga sér stað þegar hið nýja, kapítalíska Indland fæðist. Vestræn áhrif eru táknuð með sjónvarps- þættinum Villtu vinna milljón? og segja má að samsláttur og misgengi menningarheima sé einmitt eitt af því sem myndin fjallar um. Boyle hefur skapað rómantíska spennumynd þar sem hefðbundin frásagnarstef vestrænnar afþrey- ingarmenningar eru færð yfir í fjarlægt og ókunnugt umhverfi, og að einhverju leyti er þetta gert í von um að breytingin á sviðs- umhverfi og raunsæistáknum blási ferskum vindum um frásögnina. Það tekst að sumu leyti, en myndin er þó langt í frá gallalaus og missir flugið eftir því sem á líður. Boyle hefur þó fram- reitt lifandi og skemmtilega mynd, sem byggist á snjallri grunnhugmynd. Hollywood fer í heim- sókn til Bollywood, en heldur þó sínum skap- gerðareinkennum. Slumdog Millionaire var lokamynd Kvikmyndahátíðarinnar í London. vilhjalmsson@wisc.edu Slumdog Millionaire | Danny Boyle MYNDIR VIKUNNAR BJÖRN ÞÓR VILHJÁLMSSON Viltu vinna milljón rúpíur? MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 6 LesbókKVIKMYNDIR E in allra skemmtilegasta myndin sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni í London þetta árið er rokkmyndin 1 2 3 4 eftir Giles Borg; lauflétt og leikandi skemmtimynd með alvar- legum undirtón sem fjallar um óháðu tónlist- arsenuna í London. Og þegar ég segi óháðu þá meina ég óháðu – um er að ræða senuna þar sem bönd spila fyrir tíu manns og borga með sér. Segja má að 1 2 3 4 fari ekki alveg ótroðnar slóðir hvað umfjöllunarefni varðar en það sem gerir hana eftirtekt- arverða er það að draumar um stóra meikið eru ekki það sem knýr persónurnar áfram. Þegar öllu er á botnin hvolft er það ástríðan fyrir tónlistinni sjálfri sem útskýrir þrótt tónlistarmannanna ungu, og það er smit- andi tilfinning. Eitt af því sem Borg tekst að miðla er hið frjálsa andrúmsloft listsköpunar sem á sér stað svo langt frá meginstraumnum að niðurinn frá honum heyrist ekki einu sinni. Leikstjóri myndarinnar segist hafa varið stærstum hluta ævinnar í óþekktum hljóm- sveitum í neðanjarðarsenunni, og sú reynsla skilar sér svo sann- arlega. Mynd þessi er fersk, frum- leg, vel skrifuð og gerð af slíkum ljómandi skýrleika að hún heillar mann frá fyrstu stund. Smartasta mynd sem ég hef lengi séð um bóhemíuna. 1 2 3 4 | Giles Borg Óháða senan W altz with Bashir hefur ýft fjaðrir í heimalandinu Ísrael en hér er á ferð- inni teiknimynd sem fjallar um innrás Ísraels í Líbanon á öndverðum níunda ára- tugnum, og beinir myndin þá einkum sjónum að því þegar varaher á vegum kristilegs stjórnmálaflokks í landinu gekk berserksgang í palestínskum flóttamannabúðum. Þúsundir óbreyttra borgara voru myrt- ar meðan ísraelski herinn horfði aðgerðalaus á. Leið- togi Kristilega stjórn- málaflokksins í Líbanon og væntanlegt forsetaefni, Bas- hir Joomayyeel, hafði verið ráðinn af dögum nokkru áður en fjöldamorðin í flótta- mannabúðunum hófust, og myndin gefur í skyn að launmorðið hafi verið kveikjan að at- burðarásinni. Leikstjórinn Ari Folman var sjálfur meðlimur í ísraelska hernum á þessum tíma og myndin er eftirtektarverð sem sér- stök blanda af skáldskap, endurminningum og heimildarmyndarforminu. Hér er um að ræða rannsókn á eftirköstum atburða sem hugurinn getur ekki sætt sig við og ferðalag um völundarhús bældra og hálf-gleymdra minninga. Útlit myndarinnar og grafísk hönnun er sláandi og óhætt er að segja að hún hafi verið ólík öllu öðru sem sýnt var á Kvikmyndahátíð- inni í London þetta árið. Waltz with Bashir | Ari Folman Völundarhús minninganna Slumdog Millionaire „Hollywood fer í heimsókn til Bollywood.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.