Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Side 10
Aumkið okkur sem aldrei höfum aumkað ykkur né nokkurn annan. Aumkið þá sem greina skilsmun góðs og ills og hins óþekkta. Aumkið þá sem unna náunga sínum í stað þess að urða þá í fjöldagröf. Aumkið þá sem finna sér málsvörn fyrir því að helga líf sitt hatrinu. Aumkið okkur sem höfum svo lengi verið tígrisdýr áður en við verðum að maðkaveitu. Aumkið okkur sem erum svo lémagna gagnvart sólinni, fjallinu, fljótinu, dögginni og himninum að við fundum upp Guð, verndara og einvald. Aumkið okkur sem undirbúum hreinsunareld þeirra hluta sem við tignum án þess að dirfast að viðurkenna það: grískan marmara, plötu með Mozart, runna sem hljóðar í garðinum, síðu sem kynni að vera frá Pushkin. Aumkið okkur því að við vitum ei hvert við höldum og teljum að við séum sek um að vera gædd skynsemi og glata henni, vera gædd einhvers konar hugsæi sem við fundum aldrei not fyrir. Aumkið okkur því sérhvert okkar er með of margar höfuðkúpur, á hverjum morgni fjórar eða fimm, með kvöldinu að minnsta kosti tíu; of mikið af hnjám, of mikið af upphandleggsvöðvum, of mikið af nöglum, of margar klær og í djúpum brjóstsins of lítið af hjarta. Aumkið okkur sem krabbinn kvelur: tvíklofna samvisku okkar – þá sem gerir okkur fært að segja að þessi sandur þarna sé sandur hér sé aldinbori, hérna sé flet þar sem við getum flatmagað – og þá sem umlykur okkur: það er okkar vegna að himinninn er svo lágt yfir okkur, það er okkar vegna (án vafa) að allar bækurnar eru rotnar, að allir veggirnir hrynja í svaðið. Aumkið okkur sem sagt höfum af okkur tigninni: óðjurtin ríkir nú á jörðunni, með salti sem á slær rauðu bliki, vindurinn með tíu þúsund kjöftum, fólkið áfast blóðsugunum. Aumkið þann sem myndi ekki lengur vilja vera til og þann sem það er ekki þann sem kann ekki að skilgreina sig. Aumkið tungumál okkar sem neitar því sem það tjáir og verður að tjá það sem verður ekki tjáð. Aumkið orð okkar, þessar flíkur sem eru of stuttar til að hylja holdið, þessar flíkur sem eru of síðar til að hylja andann. Aumkið atlot okkar sem sýnd eru skuggum okkar einum þarna úti, utan við Baobatrén. Aumkið andvörp okkar sem opna í okkur svo marga und. Aumkið kláða okkar: ó hve meinskæð tilvera okkar er! Aumkið ást okkar sem er ekki nema hatur. Aumkið hatur okkar sem lærði aldrei hvernig það ætti að hata. Alain Bosquet Í þýðingu Thors Vilhjálmssonar Miserere nobis Þessa ljóðaþýðingu flutti Thor Vilhjálmsson á vegum European Academy of Poetry við afhjúpun minnisvarða um franska skáldið Alain Bosquet (1919-1998) í Búlgaríu í sumar, ásamt fleiri skáldaþýðendum á þessu ljóði. Alain Bosquet Hann var af rúss- neskum ættum. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 10 LesbókBÆKUR Þ að er sannarlega fátt sem getur komið á óvart lengur, ekki síst þegar ljóð eru ann- ars vegar. Eiríkur Örn Norðdahl hefur á undanförnum ár- um þróað ljóðmál sitt út í ýmiss konar form- tilraunir. Í fyrra kom út ljóðabókin Þjónn, það er fönix í öskubakkanum mínum! Hún er sam- sett úr ljóðatilraunum af ótrúlegri fjölbreytni, allt frá jóðlljóði og öðrum hljóðljóðum til sextíu síðna prósaljóðabálks með spennuívafi. Einnig er að finna í bókinni ljóð með ýmsum rit- vinnsluútfærslum, umbrotstil- færslum, myndljóð, myndagátu- ljóð, konkretljóð, googleljóð að ógleymdum fjölmörgum vísunum í kveðskap Steins Steinars, umskrif- unum á honum og stælingum. Nú sendir Eiríkur frá sér ljóðabókina Ú á fasismann – og fleiri ljóð sem er beint fram- hald af myndljóðunum og ritvinnsluútfærslunum í Fönixinum. Vafalaust þykir mörgum erfitt að líta á þessar tilraunir sem ljóð enda ansi djúpt á flestum hefðbundnum eigindum þeirrar listar í bókinni. En þeir sem hafa dágóðan skerf af þolinmæði og fagurfræðileg- um tilslökunum ættu að kíkja á þessa bók. Umfjöllunarefni bókarinnar er fasisminn, eins og nafnið bendir til, en ekki aðeins pólitískur fas- ismi heldur og menningarlegur. Helsti styrkur bókarinnar er til- raun til pólitískrar ögrunar en veikleiki er að formið og fram- setningin flækjast nokkuð fyr- ir róttækum skilaboðunum. Með myndljóðunum fylgja hljóðaljóð á diski. Ú á fasismann | Eiríkur Örn Norðdahl Myndljóðagerð U ndanfarin ár hafa komið út margar bækur sem fjalla um vanda matvælaframleiðslu í heiminum. Um eina þeirra, The End of Food eftir Paul Roberts, var fjallað í Lesbók fyr- ir tveimur vikum. Í þeirri bók var bent á að eitt helsta vandamálið sem steðjaði að væri ofát þeirra sem á annað borð fá að borða í heiminum. Þeir sem vilja kynna sér ofátið frekar ættu að lesa bókina Fat: A Cultural History of Obesity (Fita: Menningarsaga offitunnar) eftir Sander L. Gilman (2008). Þar er saga fitunnar rakin allt aftur á miðja nítjándu öld. Sérstaklega er fjallað um offitu barna, mat- vælaframleiðslu, fjölmiðlaumfjöllun um mat og matarneyslu og vaxandi ofát í Kína, en í fyrrnefndri bók Roberts var sífellt aukinn áhugi Kínverja á vest- rænum matarvenjum talinn geta sett mat- vælaiðnað heimsins á hliðina. Í þessari bók má raunar finna ýmislegt sem styður niðurstöður Roberts og útvíkkar þær. Bókin er menningarsaga sem þýðir að höfundurinn skoðar menningar- legar birtingarmyndir offitunnar í gegnum tíðina og merkingu þeirra í samfélagslegu samhengi. Höfundur skoðar því ekkert síður táknmyndir ofáts í óperum nítjándu aldar en í dellukenndri megrunaráráttu vestrænna kvenna og karla á síð- ustu áratugum. Ef marka má Gilman, Roberts og fleiri höfunda bóka um mat- armenningu Vesturlanda verður hún meðal helstu við- fangsefna stjórnmálamanna á næstu árum. Menningarsaga fitunnar E f ekki væri fyrir getnaðinn og fæðinguna væri ekkert líf og ef ekki væri fyrir ást- ina þætti fáum lífið skemmtilegt nema kannski golfurum.“ Þetta er auðvitað hverju orði sannara eins og svo margt í bók Jóns Björnssonar sálfræðings og grúskara sem nýlega kom út hjá Bjarti og heitir því undurfurðulega nafni Föðurlaus sonur níu mæðra en undirfyrirsögnin skýrir hvað hér er á ferðinni: Og fleiri furður hversdagslegra fyrirbæra. Í bókinni fjallar Jón um hlutina sem nefndir eru í tilfærðri málsgrein hér að ofan, ástina, getnaðinn og fæðinguna og lífið auðvitað, en reyndar ekki golfið – og það er sennilega það eina sem hægt er að setja út á bókina. Mannlegt og ómannlegt Þeir sem eru svo ljónheppnir að geta hlustað á Ríkisútvarpið eftir há- degi á föstudögum hafa vafalaust heyrt í Jóni tala um furður hvunn- dagsins. Þeir pistlar hafa margir ratað inn í þessa bók, en þeir sem heyrt hafa vita að af þeim má fræðast um ólíkleg- ustu hliðar mannlegs lífs – og ómannlegs. Jón leitar fanga í bókum og sögum, jafnt sem sögusögnum og goðsögnum og meira að segja í fréttum fjölmiðla um svo- kallaðan veruleika. Þaðan koma kannski skrýtnustu sögurnar þegar öllu er á botninn hvolft, svo sem af pilti í Kanada sem hafði fengið sér hnetusmjör áður en hann kyssti kærustuna sína en ekki áttað sig á því að hún hafði bráðaof- næmi fyrir hnetusmjöri og dó eftir kossinn. Einnig er úr fjölmiðlum furðuleg saga af svört- um svani sem verður ástfanginn af hjólabát. Drýgsta sagnauppspretta bókarinnar er þó sennilega goðsagnaarfur heimsins og skáld- skapur frá ýmsum tímum. Fundvísi Eins og Jón gerir skilmerkilega grein fyrir í inngangi um sannfræði og aðferðafræði endursegir hann, þýðir og styttir frá- sagnir annarra manna. Eins og hann gerir sömuleiðis skilmerkilega grein fyrir er þessi aðferð ekki auðveld, en hér skal tekið af skarið með að Jóni tekst vel upp. Frásagnir hans eru skorinortar, lifandi, léttar og oftast bráðfyndnar. Þó að frumtextarnir séu í flestum tilfellum ágætlega þekktir þá tekst Jóni að sauma við þá þannig að þeir birtast lesanda með nýjum hætti. Í raun má segja að bókin sé mikið vefnaðarverk þar sem sögum og sögu er fléttað saman en rauði þráðurinn er alltaf ísmeygileg kímni höf- undar. Fundvísi Jóns er með ólíkindum og sömuleið- is smekkvísi hans við að tengja fjarskylda og stundum alveg óskylda hluti. Íhaldssöm afstaða miðaldakirkjunnar til kyn- lífs, sem hún sagði að 99% leyti þjóna fjand- anum, fær þannig óvænta stoð í orðum mexí- kóska málarans Diegos Rivera þegar hann reyndi að útskýra taumlaust framhjáhald sitt fyrir konunni sinni Fridu Kahlo: „Kynlíf er lík- ast þvagláti og stórkostlega ofmetið.“ Frásögn af því hvað Seifur var fjölþreifinn til kvenna verður Jóni líka tilefni til að rifja upp sögu af manni nefndum Barna-Daníel en sá „fékk viðurnefni sitt af því að eitt sinn barnaði hann fimm konur í einni og sömu ferðinni norð- an úr Árneshreppi og inn að Brú í Hrútafirði“. Telur Jón þessa ferð Barna-Daníels „ólíkt ris- meiri en þegar Þórbergur Þórðarson löngu seinna rolaðist þessa sömu leið og hafði það uppburðarleysi til kvenna sem frægast hefur orðið í íslensku bókmenntasögunni“. Undrun og fáfræði Það er rétt sem Jón segir í inngangi bókarinnar um „hinstu markmið“ hennar og „dýpsta til- gang“ að það er búið að útskýra eiginlega allt í heiminum, flest er orðið skiljanlegt og tækifær- um til að verða hissa fækkar sífellt, „undrun er núorðið fyrst og fremst merki um fáfræði og lé- legar einkunnir á samræmdum prófum“. Tilgangur bókarinnar er því, eftir því sem Jón segir, „að varðveita það litla sem enn er eft- ir af undrun og furðum“. Bókin er sannarlega gott framlag til þess málstaðar. Og bókin sýnir raunar fram á að undrum og furðum í þessum heimi eru fá takmörk sett. throstur@mbl.is Föðurlaus sonur níu mæðra | Jón Björnsson Undrun og furður BÆKUR VIKUNNAR ÞRÖSTUR HELGASON Fundvís Fundvísi Jóns Björnssonar er með ólíkindum og sömuleiðis smekk- vísi hans við að tengja fjarskylda og stundum alveg óskylda hluti. Fat | Sander L. Gilman

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.