Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Síða 16
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is D ægurtónlist er, hvort sem fólki líkar það eða ekki, menningarlegt fyr- irbæri sem skiptir máli.“ Þessa setningu er að finna í dómi greinarhöfundar um safn- plötuna Svona er sumarið 2000, sem birtist undir fyrirsögninni Poppfárið 2000. Setningin var til komin vegna óþols á því að ekki væri rýnt í popptónlist að gagni eins og með aðra tónlist en þetta árið var og mikil gróska í íslensku poppi, stundum kölluðu sveitaballa- poppi en ég hef kosið að nefna það alíslenskt popp í þessari greiningu. Sveitir eins og Land og synir, Sóldögg og Á móti sól gáfu á þessum tíma út lög og plötur sem báru með sér mikinn metnað og vísvitandi tilraunir voru gerðar til að brjótast út úr ódýrum og hraklega sömdum smellum. Í kjölfarið brast á nokkuð öflug popp- bylgja sem reis hvað hæst um 2002-2003 en þá réð hljómsveitin Írafár algerlega lögum og lof- um. Frá árinu 2004 tók að dofna yfir og viðlíka fár á enn eftir að láta á sér kræla. Hljómsveitirnar sem urðu hvað mest áber- andi í kringum aldamótin voru að fylla upp í skarð það sem SSSól og Sálin hans Jóns míns höfðu skilið eftir í kringum 1997 og voru það Land og synir og Skítamórall sem kepptust um keflið framan af. Atið náði fullum blóma árið 2000 og Írafár og Í svörtum fötum bættust fljót- lega í hóp þeirra sveita sem nefndar voru í upp- hafi. Hvað lagasmíðapælingar á þessum tíma varðaði voru flestar sveitirnar nokkurs konar sporfarar Sálarinnar hans Jóns míns sem öðl- aðist reyndar sjálf nýtt líf um þetta leyti. Ein- stök staða þeirrar sveitar, það að geta fyllt upp í heilt ball einvörðungu með frumsömdu efni er hið endanlega markmið íslenskra sveitaballa- poppara. Það er sama hvern maður spyr. En um leið hangir sú krafa eins og myllusteinn um háls þeirra. Hjá sumum er um raunverulega tog- streitu að ræða; menn spila ábreiður eða „co- ver“ af því að þeir þurfa þess en læða svo inn eigin smellum eins og hægt er á meðan aðrir lifa fullkomlega tvöföldu lífi. Spila lög eftir aðra á böllum meðfram því sem gefnar eru út plötur með frumsömdu efni. Sem er svo sjaldan eða aldrei spilað á böllunum. Þetta tvöfalda líf ís- lenskra poppsveita sem gera út á skemmt- anamarkaðinn er á vissan hátt alveg sér- íslenskt. Erlendis ferðu annaðhvort alla leið með það að vera ábreiðusveit, og einbeitir þér þá gjarnan að einhverju einu tímabili eða heilli hljómsveit, nú, eða þú leikur eigin lög, kastar í mesta lagi inn einu, tveimur tökulögum upp á grínið. Inn í þetta fléttast svo hin sígilda rimma á milli „alvöru“ listamanna og skemmtikrafta og spurningin hvort hægt sé að reka hljómsveit með arði samfara því að hafa listrænan metnað, nokkuð sem hefur raunverulega tekist í tilfelli Sálarinnar. Að standa með sér Í skrifum þessum leitaði ég til fjölmargra máls- metandi manna og kvenna, bæði fólks sem er í sjálfum bransanum og rýna sem standa utan við hann. Viðbrögðin komu mér satt að segja á óvart, mikið var um metralangan tölvupóst, tug- mínútna símtöl og þá frá báðum hópum. Þessi geiri, sem svo margir slá af borðinu sem froðu, kallaði á meiri pælingar og meiri tilfinningar en þær jaðarstefnur sem ég hef fjallað um í síðustu skýrslum (öfgarokk og hipp hopp). Ég átti langt spjall við Hreim Örn Heimisson, söngvara Lands og sona. Eiginlega var ekki hægt að hugsa sér betri kandídat, þar sem hann hefur snert á flestum þeim hliðum sem skipta máli fyrir þessa grein. Hann bjó til gegnheilt og lítt fýsilegt froðupopp í upphafi, reyndi sig svo við metnaðarfyllri gerð popptónlistar og tók meira að segja útrásarslaginn. Og hann kannast vel við þá togstreitu sem fylgt getur hinum alíslenska poppara. „Ég hef staðið sjálfan mig að því að tala niður til þess sem ég gerði í upphafi,“ viðurkennir hann. „Og það er ekkert sniðugt. Það er eitt- hvert skrítið óöryggi í þessum bransa virðist vera. Menn taka gagnrýni of nærri sér sem er samt vel skiljanlegt. Og það var beinlínis sú slæma gagnrýni sem við fengum fyrir fyrstu plötu okkar sem ýtti okkur í að vanda betur til verka á þeirri næstu.“ Það viðhorf gat af sér eina bestu plötu hins al- íslenska poppgeira frá upphafi, Herbergi 313 (1999). „Með tímanum uppgötvuðum við svo að ef maður stæði ekki 100% með því sem maður væri að gera væri eins gott að hætta bara.“ Það hefur nefnilega einkennt umræðuna um alíslenska poppið að henni er einatt stillt upp sem verri tónlist en hinni svokölluðu jað- arbundnu, listrænu tónlist. Mugison er betri en Skítamórall og þannig er það bara. Eða hvað? Er þetta virkilega bundið í hlutarins eðli? Er haganlega samið ofurgrípandi popplag frá sveit suður með sjó sjálfvirkt verra en meðalgóð smíð frá lopapeysuklæddum 101 búa? Þrátt fyrir mikla farsæld popparanna í kringum aldamótin var þessi rimma alltaf undirliggjandi. Sumpart er þetta rifrildi um keisarans skegg. Maður sem mætir á ball og gefur allt sitt í að búa til skemmtun, eftirminnilegan viðburð fyrir þá sem eru mættir, af hverju er hann samt alltaf tveimur skrefum á eftir, „left-wing“ listamann- inum eins og Selfyssingar orða það svo skemmtilega? Og þá meira að segja í þeim til- fellum þar sem slík „alvöru“ list er iðkuð með hangandi hendi? Segir Jóhann Ágúst Jóhannsson gagnrýn- andi: „Eðalpopp er til í hrönnum. Sálin, Ný Dönsk sem og SSSól eiga slíkt efni í bunkum og það efni virkar á böllum. Stundum hefur borið á hroka gagnrýnenda gagnvart poppsveitum – þar sem listrænn metnaður þeirra er ekki álit- inn til staðar á kostnað gróðahyggju og inni- haldsleysis á meðan misgóðum grasrót- arböndum er hampað gríðarlega en eru svo öllum gleymd og grafin. Er tónlist ekki hluti af nokkurs konar upplifunarmenningu? Ball og plata eru hlutir sem skila ánægju og upplifun þess sem neytir og hvort um sig stendur og fell- ur með listrænum metnaði listamannsins. Það að framkalla lýtalausa gleði og ánægju á tón- leikum krefst metnaðar og orku frá listamann- inum – það að hann geti lifað sómasamlegu lífi af því að gefa frá sér á þann hátt er sjálfsagt og mýtan um fátæka snillinginn sem skapar list- arinnar vegna má alveg fá hvíld því innst inni vilja allir meika það, munurinn felst einfaldlega í því hvað fólk er tilbúið að leggja á sig mikla vinnu.“ Engin nýliðun? Ástæðurnar fyrir því að upp spratt svo blómlegt popplíf í kringum aldamótin eru af marg- víslegum toga. Um það leyti myndaðist gat á markaðnum eins og áður er rakið. En af hverju komu flestar sveitirnar utan af landi, og þá lang- flestar frá Selfossi? Það þyrfti reyndar um- fangsmikla samfélagslega rannsókn sem tæki tillit til margra breyta til að finna út úr þessu með Selfoss en líklegasta skýringin á lands- byggðarvinklinum er væntanlega sú að helstu frammámenn þessarar seinni bylgju alíslenska poppsins ólust upp við sveitaballið sem aðalvett- vang skemmtunar og tónlistar. Bubbi og Sálin voru átrúnaðargoð ungra og óharðnaðra ung- linga. „Þetta fólk vildi verða eins og Stefán Hilm- arsson og Bubbi,“ segir Helga Þórey Jónsdóttir gagnrýnandi. „Þetta voru þeirra stjörnur, eðli- lega, en ekki malarbarnanna sem höfðu úr meiru að velja.“ Ægivald popparanna um þetta leyti hafði þó slík áhrif í höfuðborginni að þar risu upp ball- sveitir, eins og t.a.m. Í svörtum fötum og hljóm- sveit eins og Sóldögg, sem hafði verið í gangi í nokkur ár, fékk frekari vind í seglin. Tónlist hennar þokaðist fram á við en hún, eins og Skítamórall og Land og synir höfðu fram að því verið í fremur jólasveinalegu grallarapoppi. En svipað fár virðist ekki í gangi í dag. Og hvað veldur? Jóhann Ágúst Jóhannsson segir nýliðunina ekki hafa verið eins öfluga og í kringum 2000. „Margar af þessum sveitum áttu rætur sínar að rekja til landsbyggðarinnar en í dag er ann- ars konar bylgja í gangi út á landi, galgopasveit- ir eins og Ljótu hálfvitarnir og Hvanndals- bræður gera það gott í stað ballsveitanna sálugu. Þetta gæti líka verið vegna breyttra neysluvenja hlustenda. Tónleikastöðum hefur fækkað og þessi tegund útgerðar á undir högg að sækja, þ.e. þegar ballmarkaðurinn var plægður í rútu með ærnum tilkostnaði.“ Fleiri álitsgjafar nefndu þetta, að kostir af- þreyingar væru meiri og fjölbreyttari í dag og umfram allt auðveldari aðgengis. Hreimur nefndi að í gamla daga hefði þetta verið mjög einfalt. Menn bókuðu böll grimmt um helgar úti á landi, ja nema þegar einhver vinsæl mynd kom út. Ef von var á Die Hard 2 á leigurnar um einhverja helgina var bókununum breytt! Helga Þórey bendir þá á nokkuð athyglisverðan punkt hvað þetta varðar, að möguleg endurnýjun sem hefði skilað sér í nýjum sveitum hafi að mestu farið í gegnum Idol og viðlíka sjónvarpsefni. Það næsta stóra … Ballmenningin lifir auðvitað enn þó að tími risa- stórra sveitaballa sé mestanpart liðinn, a.m.k. eru mun færri um hituna í dag. En það er ekk- ert æði í gangi, eins og þegar Birgittudúkkur fylltu hillur verslana og fjórar til fimm breið- skífur hinna alíslensku poppara komu út um hver jól – og seldust svo í tugum þúsunda. Ein sveit var þá nefnd fremur en aðrar þegar spurningunni um líklegasta kyndilbera næstu bylgju hins alíslenska popps var velt upp. Það er hljómsveitin Ingó og Veðurguðirnir. Og með- limir koma flestallir frá … jú þú giskaðir rétt … Selfossi! Alíslenskt popp: skýrsla Upp úr aldamótum skall á landinu nokkuð öflug poppbylgja. Einkenni hennar voru metnaður til nýsköpunar og mark- miðsbundnar tilraunir voru gerðar til að slá saman listrænum metn- aði og þeirri list að skemmta. En hversu vel gengur þetta tvennt saman? Og hver er staðan í hinu alíslenska poppi í dag? Menn bókuðu böll grimmt um helgar úti á landi, ja nema þegar einhver vinsæl mynd kom út. Ef von var á Die Hard 2 á leigurnar um einhverja helgina var bókununum breytt! Hugheilar þakkir fá eftirfarandi fyrir veitta aðstoð: Heimir Eyvindarson, Hreimur Heimisson, Gunnar Reynir Þor- steinsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Dr. Gunni, Einar Bárðarson, Birgir Nielsen, Haukur S. Magnússon, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Hildur Maral og Helga Þórey Jónsdóttir. Í alvöru Á móti sól, 2004. Er hægt að samtvinna listrænan metnað og galgopaleg sveitaböll? Alíslenskt popp: skýrsla VEFVARP mbl.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 16 LesbókTÓNLIST O ft hefur greinarhöfundur haft á tilfinn- ingunni að þeir aðilar sem tilheyra hinu svokallaða alíslenska poppi séu óþarflega mikið í vörn og jafnvel haldnir minnimáttarkennd. Blýföst trú hans er að fyrst og síðast snúist þetta um að standa með sér; og þá standa með því fagi og þeim áherslum sem menn hafa valið sér, veri það argasta popp eða argasta pönk. Rígur á milli jaðar- tónlistarmanna og popp- ara er í raun fárán- legur, eitthvað sem í mesta lagi er hægt að skemmta sér yfir. Einar Bárðarson, umboðsmaður Ís- lands, átti sann- arlega sinn þátt í poppsprengingunni um aldamótin. Hann segir um þennan þátt: „Ef fólk skammast sín fyrir vinsældir laga sinna þá er fólk í meiriháttar tilvist- arkreppu sem verður ekki löguð á dægursíðum Morgunblaðsins. Þegar menn eru dáðir af 95% þjóðarinnar en elta ólar við álit fá- menns hóps „sér- fræðinga“ þá eru menn ekki að for- gangsraða rétt hjá sér. Daginn sem ég verð kallaður til skrafs og ráða- gerða á X-inu er dagurinn sem ég skila titlinum umboðsmaður Íslands.“ Einar hefur orðið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.