Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Blaðsíða 6
S umar kvikmyndir eru einfaldlega engu líkar, með öðrum orðum einstakar. Franska kvikmyndin Entre les murs (Bekkurinn), eftir Laur- ent Cantet, er gullmolinn sem vann Gull- pálmann á Cannes í ár en franski titillinn þýðir einfaldlega milli veggjanna. Titillinn lýsir vel grunnhugmynd kvikmyndarinnar, þar er fylgst með lífinu innan veggja gagnfræðaskóla í einu af fjölmenningarlegum en fátækum úthverfum Parísarborgar. Aðalsögupersónur eru kenn- arinn François og bekkur hans í frönsku og bókmenntum eina skólaönn. Þannig er söguefn- ið ofurhversdagslegt en útkoman er heillandi sneið úr hversdagsleikanum, sem hverfist um samskipti kennara og nemenda á unglingsaldri og síðast en ekki síst samband einstaklingsins við skólakerfið sem um leið segir mikið um fransk samfélag. Myndin og söguhugmyndin eru byggðar á bók eftir gagnfræðaskólakenn- arann og rithöfundinn François Bégaudeau, þar sem hann lýsir lífinu í skólastofunni og sinni af- stöðu til heimspeki kennslunnar. Bégaudeau fer með hlutverk kennarans og leikarar eru ólærðir nemendur úr gagnfræðaskóla, ekki ósvipuðum þeim sem myndin fjallar um. Samspilið og dýnamíkin sem myndast milli leikara er gríð- arvel heppnuð, en samskiptin einkennast í senn af jarðbundu raunsæi og fínstilltu drama. Þá hefði líklega enginn annar en reyndur kennari getað farið með hlutverk François en hann heldur í senn uppi athygli, alúð, aga og áhuga nemenda (sem og bíógesta) í hinum fjölmörgu atriðum myndarinnar sem gerast í kennslutíma. Þá skynja áhorfendur vel hinar krefjandi hliðar kennslustarfsins, ekki síst meðal illa launaðra kennara á borð við François, sem berst fyrir því að sinna kennslunni sem best í fjársveltum skóla og virkja nemendur sína þrátt fyrir að framtíðin sem blasi við mörgum þeirra sé ekki endilega björt. Í kennslustofunni Þegar myndin var sýnd á Kvikmyndahátíðinni í London (London Film Festival) nú í október kom margt fram í kynningu aðstandenda henn- ar um það hvernig verkið var unnið. Leikstjórinn Laurent Cantet fékk áhuga á að gera kvikmynd sem gerðist innan veggja kennslustofu þegar hann var að ljúka við mynd- ina Vers le sud (Suður á bóginn). Þegar hann las bók Bégaudeau sem þá var nýkomin út vissi hann þegar í stað að hér væri komið tilvalið samvinnuverkefni. Hann segist hafa heillast af því hvernig bókinni tókst að segja svo margt um franskt samfélag og bregða upp mynd af kennslustofunni sem nokkurs konar smáheimi þar sem spurningar um jöfnuð, vald, menning- arlega aðlögun og útskúfun, eiga ekki síður við en utan veggja skólans. Bókin varð síðan grunn- urinn að þeirri innsýn í raunverulegt skólalíf sem myndin hefur til að bera og þeirri marg- þættu persónu sem kennarinn François er. „Ég hreifst af persónuleika François, af því hrein- skiptna sambandi sem hann myndaði við nem- endur sína. Einhvern veginn fannst mér hann hafa til að bera alla þá kosti og togstreitu sem kennslustarfið felur í sér,“ segir leikstjórinn. Bégaudeau segir að bókin sín hafi verið hugs- uð sem nokkurs konar annáll, þar sem hvers- dagurinn er í forgrunni. Bókin hverfðist frekar um röð atvika og uppákoma en hefðbundinn söguþráð. Þennan efnivið unnu þeir Cantet og samhandritshöfundur hans, Robin Campillo með og drógu út það sem vakti athygli þeirra, og notuðu bæði persónur og atvik sem grunn að handriti sem hefur áþekkar áherslur og bók Bé- gaudeau. Myndin virðist fyrst og fremst fylgja hversdeginum, og bekknum sem heild, en smám saman koma ólíkir persónuleikar nem- endanna í ljós, og átök, jafnvel veikleikar í fari kennarans. Slíkir veikleikar kalla fram ögrun nemendanna og bresti í jafnaðargeði kenn- arans. Vinnustofa með unglingum Stór hluti undirbúningtímans fyrir myndina og í kringum tökur fór fram í gegnum vinnustofu sem sett var upp með krökkunum sem fara með hlutverk nemendanna í Bekknum. Fyrsta skrefið var að finna leikara fyrir myndina, og ákváðu Cantet og félagar að heimsækja nokkra gagnfræðaskóla í París til að leita að þeim rétta. Fyrsti skólinn sem þeir bönkuðu upp á var Dolto-gagnfræðaskólinn í tuttugasta hverfinu og þar með voru samstarfsaðilarnir fundnir. Allir nemendurnir sem leika í myndinni eru úr Dolto og kennarar sem fara með aukahlutverk sömuleiðis. Þá eru þeir foreldrar sem koma fyr- ir í myndinni raunverulegir foreldrar krakk- anna. Vinnan með nemendunum hófst í nóv- ember 2006 og stóð út það skólaár. Haldnar voru opnar vinnustofur á miðvikudagseft- irmiðdögum og þeir nemendur sem áhuga höfðu gátu mætt. Smám saman myndaðist sá hópur sem átti eftir að fara með hlutverk í myndinni, og segir Cantet það fyrst og fremst hafa ráðist af því hvaða nemendur höfðu nægi- legan áhuga til að halda vinnunni áfram og fundu sig í þeim persónum sem þeir voru að þróa. Cantet og Bégaudeau segja suma nem- endur vinna með persónuleika áþekka þeirra eigin, á meðan aðrar persónur, einkum innflytj- andinn Souleymane séu uppdiktaðar frá grunni, en sú síðastnefnda er eina persónan í myndinni sem ekki ber sama nafn og leikarinn. Útkoman af spunavinnunni með krökkunum úr Dolto-skólanum er ótrúleg, og er erfitt að ímynda sér að allir nemendurnir séu í raun óreyndir leikarar. heida@mbl.is Bekkurinn (Entre les murs) | Laurent Cantet MYNDIR VIKUNNAR EFTIR HEIÐU JÓHANNSDÓTTUR Innan veggja skólans MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 6 LesbókKVIKMYNDIR E ins og frægt er orðið sagðist Richard Nixon „ekki vera krimmi“ þegar hann hrökklaðist úr embætti, en ekki voru allir sammála honum um það. Margir álitu að eina leiðin til að kveða niður þá tortryggni í garð stjórnvalda sem hegðun forsetans hafði skapað væru réttarhöld. Í kvikmyndinni Frost/Nixon eftir Ron Howard er langt og ítarlegt sjónvarpsviðtal Davids Frosts við forsetann árið 1977 framsett sem síðbúið tækifæri til að halda slík réttarhöld og knýja fram játningu um sekt. Myndin er byggð á leik- riti eftir Peter Morgan, þann sama og skrifaði The Queen, og kunna ein- hverjir að sjá hliðstæður milli spillingarmála áttunda áratug- arins og þeirra sem dunið hafa háttsettum bandarískum embættismönnum síðustu árin. Drifkrafturinn hér er þó ísköld keppni mannanna tveggja, og viðtalið verður eins konar vígvöllur þar sem stríðandi fylkingar mætast, en bæði Nix- on og Frost hafa her aðstoðarmanna að baki sér. Frost hættir ferli sínum fyrir von um heimsfrægð en Nixon lítur á viðtalið sem tækifæri til pólitískr- ar endurlausnar, fyrsta skrefið í átt endurkomu til Washington. Frank Langella á stórleik í hlut- verki Nixons og Michael Sheen er sömuleiðis fínn sem Frost. Frost/ Nixon var opnunarmynd Kvik- myndahátíðarinnar í London og verður tekin til almennra sýninga í Evrópu í upphafi næsta árs. Frost/Nixon | Ron Howard Pólitísk endurlausn Þ að er ekki laust við að vefurinn opensec- rets.org hafi haldið fyrir mér vöku að undanförnu. Leyndarmálin sem þar liggja á lausu eru svo sem ekkert til að smjatta á og sökkva sér í, aðalatriðið er að þau eru þarna, og ég get kíkt á þau þegar mér þykir þurfa. Opensectrets.org er vefur, þar sem hver sem er, getur skoðað allt um opinber fjármál í Bandaríkjunum. Og hvað þýðir það? Jú, það er að sjálfsögðu hægt að skoða fjárhag stjórn- málaflokka, hvernig þeir eru fjármagnaðir, hverjir greiða í sjóði þeirra og í hvað þeir eyða. Þarna eru líka allar upplýsingar um fjárhag stjórnmálamanna. Það er með öðrum orðum hægt að komast að því hvað stjórmálamaður á mikla peninga, hvaðan hann fær tekjur, og hvernig hann ver opinberu fé. Tökum sem dæmi Nancy Pelosi, forseta full- trúadeildar Bandaríkjaþings. Hún á sæti í PAC-nefnd, PAC-stendur fyrir Political Action committee, og slík nefnd hefur það hlutverk að styrkja kosningasjóði frambjóð- enda. Á þessum dásamlega vef má skoða ná- kvæmlega hvaða frambjóðendur hún styrkir og með hve háum upphæðum. Sjálf þiggur hún auðvitað líka fé frá PAC-nefndum til að tryggja eigið sæti á þingi og það er hreint ekkert laun- ungamál hverjir leggja það fé til. Það er að sjálf- sögðu hægt að sjá hverjir aðrir greiða í kosn- ingasjóði hennar og úr hvaða greinum atvinnulífsins hún fær mest. Ef við höldum áfram með Pelosi, þá er líka hægt sjá á opensecrets.org hvað hún á sjálf mikla peninga, hvað hún á af eignum og hvað hún skuldar mikið – og hverjum hún skuldar, hvað af því eru veðskuldir, hvað eru banka- skuldir, og hvað eru aðrar skuldir. Þá er ekki síður forvitnilegt að skoða eignir þessarar konu, í hverju hún fjárfestir – aha, Nancy Pelosi er þá hluthafi í Alcoa. Gott að vita það. Á sama hátt er hægt að skoða flokka, fyr- irtæki og stofnanir á þessum undursamlega vef, félagasamtök, t.d. stéttarfélög og ekki síst fyr- irgreiðslufólkið, svokallaða lobbýista, og upp- flettimöguleikarnir eru gríðarmargir. Á bak við vefinn stendur Center for Respon- sive Politics, sem ég held að best væri að kalla Miðstöð gagnsærra stjórnmála, og það eru eins konar neytendasamtök stjórnmálanna með það eitt að markmiði að safna þessum upplýsingum og viðhalda gagnsæju stjórnkerfi. En hverjum kemur þetta við og hvaðan kemur leyfið til að hnýsast í fjármál annarra? Jú, á sama vef er lagabálkurinn sem gerir Miðstöð gagnsærra stjórnmála þetta kleift. Öfugt við það sem líðst í íslenskum stjórn- málum er þingmömmum, starfsmönnum þings- ins, forsvarsmönnum ríkisstofnana og öllum þeim sem hyggja á forsetastóla stórfyrirtækja, forseta, varaforseta, hæstaréttardómurum og fleirum SKYLT, að hafa fjárreiður sínar op- inberar, samkvæmt siðalögum þingsins frá 1978. Þeir sem lögin ná til verða að skila árs- skýrslu þar að lútandi, rétt eins og fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök þurfa að gera. Siða- nefnd þingsins fer yfir allar skýrslur nema for- stjóraskýrslurnar, þær sér siðanefnd rík- isstjórnarinnar um. Allt skal upp talið, skuldir, eignir, fjárhagur, gjafir, styrkir, ferðalög – bæði einstaklingsins, maka og barna undir lögaldri. Allt tal um gagnsæi í íslenskum stjórnmálum er hjóm í þessum samanburði. Þetta er ekki hnýsni, heldur forsenda trausts sem stjórn- málin á Íslandi sárvantar. begga@mbl.is Hvernig Nancy Pelosi tengist Reyðarfirði Fjármál stjórnmála, stjórnmálamanna, stjórnsýslu og dómskerfis eiga að vera öllum opin og aðgengileg NETIÐ BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR Engin leynd Opensecrets.org hefur það eitt að mark- miði að gera fjármál stjórnkerfisins aðgengileg. M ark Hartley hefur gert ljómandi skemmtilega heimildarmynd um svo- kallað „ozploitation“, ástralskar svínarísmyndir sem lögðu til beinnar atlögu við góðan smekk og siðgæði. Not Quite Holly- wood: The Wild, Untold Story of Ozploitation! fjallar um hvernig afnám rit- skoðunarlaga í Ástralíu á önd- verðum áttunda áratugnum hleypti nýju blóði í kynslóð kvikmyndagerðarmanna sem voru með kynlíf og ofbeldi á heilanum, og reyndar líka húmor, svo úr varð kvikmyndateg- und sem lengi vel þótti smánarblettur á þjóðinni. „Ozploitation“ hefur hins vegar gengið í endurnýjun lífdaga og tengist það að sumu leyti áköfum talsmönnum á borð við Quentin Tarantino, en hann er í raun eins konar sögumaður myndar Hartleys, svo oft og ítarlega er spjallað við hann í framrás verks- ins. Enda getur Tarantino ekki hamið fögnuð sinn og hrifningu á þessari kvikmyndaframleiðslu Ástr- ala, og staldrar þá ekki bara við þekktustu dæmi tegundarinnar, líkt og Mad Max, heldur kaf- ar í undirdjúpin. Þetta er vel gerð og sniðug mynd og villta og tryllta kvikmynda- hefð. Not Quite Hollywood | Mark Hartley Ekki alveg Hollywood Spuni Útkoman úr spuna- vinnunni er ótrúleg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.