Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Blaðsíða 8
Eftir Aðalstein Ingólfsson adalart@mmedia.is Þ að kæmi mér ekki á óvart þó annað hver Íslendingur hefði óafvitandi notað eða keypt vöru sem gengið hefði í gegn- um hreinsunareld hönn- unarstofu í Mílanó sem nefnist Design Group Italia, til dæmis stóla frá fyrirtækinu Magis, tannbursta frá Unilver, ungbarnavörur frá Chicco, reiðhjólahjálma frá Etto, lyftur frá Kone, skrúfjárn og tangir frá Beta, vörur frá Scotch og Post-It að ógleymdum brauð- stöngum frá Barilla. Raunar má bæta við þennan lista framleiðslu tveggja fyrirtækja hér á Íslandi, 66° Norður og Bláa lónsins. Ástæða þess að við Íslendingar erum hér á blaði er einvörðungu því að þakka að einn af fimm eigendum DGI til margra ára heitir Sig- urður Þorsteinsson, en ferill hans innan hönn- unargeirans er ævintýri líkastur. Sigurður er Reykvíkingur að ætt, hafði upprunalega áhuga á sagnfræði og landafræði, en ákvað síðan að leggja fyrir sig iðnhönnun. Að loknu stúdentsprófi frá MR 1986 hélt hann til Míl- anó. Hann lauk þar námi 1992 á föstudegi og var strax á mánudegi kominn í læri á hönn- unarstofunni Design Group Italia. Árið 1993-4 hannaði hann meðal annars barstólinn Lyra fyrir Magis, sem allar götur síðan hefur verið ein af vinsælustu vörum fyrirtækisins. Stuttu síðar fengu Sigurður og tveir félagar hans tækifæri til að kaupa stofuna þegar stofnand- inn dró sig í hlé. Til þessa hefur DGI hlotið hátt í fimmtíu viðurkenningar á alþjóðlegum vettvangi fyrir úrlausnir sínar, þar á meðal ítalska Gullsirk- ilinn (Compasso d́Oro) og þýska „rauða punkt- inn“ (red dot) svokallaða, hvort tveggja í sex skipti. Í dag vinna um þrjátíu hönnuðir og ímyndarfræðingar á vegum Design Group Italia við yfirhalningu á ýmiss konar fram- leiðsluvöru, í því augnamiði að „auka á sér- stakt og frumlegt svipmót hennar eða vöru- merkisins (brand) og virkja til fullnustu og með sannfærandi hætti þá kosti sem hún býr yfir,“ svo vitnað sé í vefsíðu stofunnar (www.designgroupitalia.it) . Segir þar einnig að markmið DGI sé umfram allt að tryggja að „framleiðsluvörur og vörumerki (brönd) fái að tala eigin máli“. Á undanförnum árum hafa Sigurður og kona hans, bandarísk-ítalski hönnuðurinn Ca- rol Tayar, varið æ meiri tíma til vettvangs- rannsókna og ímyndarmótunar fyrir íslenska aðila, og má m.a. sjá árangur þeirrar vinnu í þeim breytingum sem urðu á framleiðsluvör- um og ímynd 66° Norður á árunum 1998 til 2004 og síðan Bláa lóninu. Þær breytingar hafa haft mikil áhrif, því bæði þessi fyrirtæki eða „brönd“ hafa í framhaldinu aukið mark- aðshlutdeild sína stórlega, sérstaklega erlend- is. Á allra síðustu misserum hefur Sigurður unnið með söngkonunni Björk og fleirum að mótun nýrrar framtíðarsýnar fyrir Ísland. Um leið hefur hann fylgst náið með vexti og við- Sigurður Þorsteinsson er vöru- og ímyndar- hönnuður í Mílanó. Sennilega þekkja hann fáir en nánast allir hafa keypt vörur sem hann hefur átt þátt í að hanna. Sigurður telur að mögu- leikar Íslands liggi ekki síst í hönnun. Andinn, landið og bra S igurður Þorsteinsson hefur unnið með Björk Guðm framtíðarmöguleika í atvinnumálum Íslendinga. „Þetta er hugsjónavinna fyrir áhugafólk um „n og ráðagerða,“ segir Sigurður, „fólk sem trúir því að hæ sem margir aðhyllast og finna lausnir, einhvers konar gu er ég í tveimur vinnuhópum, ann og framtíð, en sumt af því sem Í hnotskurn ganga tillögur h víða um land, efla samsta og samvinnu allra þessar um heilsulandið Ísland ú verkefni hvað markmið s með mikla reynslu, kr Þar fyrir utan hef íslenska hönnunarg stofnana um framþ Nýsköpunarmiðs byggja brú yf lendis. Við h þjálfa íslen framarleg arfræði. skotgraf þarf á s Hönnun framtíðarl Samstarf við Björk MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 8 LesbókHÖNNUN

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.