Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 B réf til föðurins er magnað skáldævi- sögulegt verk úr smiðju Franz Kafka. Um er að ræða bréf sem Kafka skrifaði til föður síns og átti að vera uppgjör þeirra feðga. Vissulega er um krassandi reiknisskil að ræða en bréfið komst hins vegar aldrei í hendur þess sem það er stílað á. Til allrar hamingju komst þó bréf- ið í hendur okkar lesenda: hugs- anlega hefur það átt að verða eldsmatur, að ósk Kafka, en bjargast vegna „svika“ Max Brod sem átti að farga dagbókum, skáldskap og fleiru. Bréfið er mögnuð heimild um hinn „veikburða“ og „veiklundaða höf- und“ (eða mýtuna um hann) sem átti í stöðugri baráttu við sjálfan sig og aðra – og ekki síst skrifin. Í Bréfinu er ef til vill að finna skýringu á meintu veik- lyndi Kafka og þeirri afmáningu eigin sjálfs sem kemur fram í verkum hans. Kafka gerir býsna góða grein fyrir sambandi þeirra feðga en auðvitað er bréfið skrifað frá hans sjónarhorni. Í stuttu máli þykir Kafka fað- ir sinn vera alltof sterkur og strangur. Þeir ná aldrei saman og Kafka segir að faðir hans átelji hann fyrir „kaldlyndi, fáleika, vanþakklæti“. Þeir eru að því er virðist algerar andstæður, faðirinn sterklegur og ruddalegur mathákur sem stærir sig af því að skófla í sig matnum og ekkert hangs! Þú varst svo risavaxinn í öllu til- liti, segir Kafka. „Drottnandi skaphöfn“ föðurins hafði, að sögn Kafka, varanleg áhrif á hann: Að eigin sögn hættir hann að geta talað: „… þú bannaðir mér snemma að taka til máls, hótun þín: „engin mótmæli, ekki orð!“ og hin upplyfta hönd til áherslu, þær fylgja mér æ síðan.“ „Þegar ég var barn var allt sem þú hrópaðir til mín beinlínis boðorð af himnum …“ (19) Eitt sterkasta atriðið í þessum dúr er þegar kornungur Kafka vaknar kjökrandi í rúminu sínu og kallar endurtekið eftir vatni. Eftir nokkrar árangurslausar hótanir kemur faðirinn æðandi, ber hann út á svalir og lætur hann dúsa þar „einan í náttserknum utan við luktar dyr“. Þarna er kannski kominn „atburðurinn“ sem skilgreinir samband þeirra feðga. Enda þjáðist Kafka „[á]rum saman […] af þeirri hugsun að þessi risastóri maður, faðir minn, æðsta vald, gæti komið að næturlagi, tekið mig úr rúminu og borið mig svo að segja að ástæðu- lausu úr á svalirnar, og að ég væri honum semsagt einskis virði“. Þessi tilfinning, um að vera einskis virði, fylgir svo Kafka alla tíð. Ýmislegt annað kemur auðvitað fram í Bréf- inu: sambönd Kafka við konur og tilraunir hans til að kvænast (sem hann bendlar við föður sinn), sambandið við „algóða“ móður, systkini, o.fl. En er eitthvað gaman að svona væli og ásökunum? Bréfið er í stuttu máli eins og spennandi nóvella þar sem höfundurinn tekst á við Föðurinn og Súper-egóið – það er að segja, við sjálfan sig. Á einhverju plani er Kafka í hlutverki Don Kíkóti í hamslausri baráttu við vindmillur, enda bréfið í raun stílað á hann sjálfan. Í lok Bréfsins gefur Kafka föður sínum orðið og skrifar „andsvar“ á þriðju blaðsíðu fyrir hans hönd. En tilgangurinn er væntanlega til að gæta „jafnræðis“ og til að fullkomna bók- menntaverkið, nóvelluna. Bréfið minnir óneitanlega á sjúkdómstilfelli eða sjúkdómsskýrslur Freuds (svo sem um Dóru og Hans litla) sem eru í sjálfu sér frábær bókmenntaverk. Í Bréfinu liggur beint við að skoða samband feðganna og (þeirra mæðgina), út frá ödipusarduldinni, eins og Freud skil- greindi hana. Þýðendur Bréfsins, feðgarnir (annað hefði ekki verið við hæði) Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson, skrifa ágætan eftirmála og skýringar sem þeir kalla „Hin ljósfælna vera“. Bréf til föðurins er ómissandi bók- menntaverk. BÆKUR GEIR SVANSSON BRÉF | Bréf til föðurins Eftir Franz Kafka. Forlagið 2008, 105 bls. bbbbb Bréfið er mögn- uð heimild um hinn „veik- burða“ og „veiklund- aða höfund“. Eysteinn Þorvaldsson 12 LesbókGAGNRÝNI Kafka „Drottnandi skaphöfn“ föð- urins hafði, að sögn Kafka, varanleg áhrif á hann. Risavaxinn í öllu tilliti Ástráður Eysteinsson Fyrir gráglettni örlaganna flækist króatískur leigu- morðingi til Íslands – held- ur af stað út á flugvöll á flótta undan bandarísku al- ríkislögreglunni og bregður sér í búning heittrúaðs sjónvarpsprests. Af verður mikið uppistand. Á pappírnum var þetta fín hug- mynd, spennandi jafnvel; gamansamur spennutryllir fyrir hugsandi fólk. Svo gerðist eitthvað. Útkoman er nefnilega ekki spennandi og ekki fyndin. Farsinn bara fars. Froskafars. BÆKUR Farsinn froskafars SKÁLDSAGA | 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp Ertir Hallgrímur Helgason bbnnn Árni Matthíasson Á kápu þessarar ljúfsáru bókar segir að um „sanna lygasögu“ sé að ræða. Höf- undur kemur fram undir réttu nafni þar sem fylgst er með fyrstu árum hans og basli fjölskyld- unnar vestur í bæ. Frásögnir af því hvernig drengurinn upplifir heiminn; lýsingar á for- eldrum, vinum og óvinum, drykkfeldum ná- grönnum, krökkum í braggahverfinu og upp- hafi skólagöngunar, eru hrífandi. Dramatískar og einlægar. Ætíð er stutt í húmorinn og höf- undi tekst að spegla stærri heim í nærheim- inum, þar sem sakleysi bernskunnar lýkur með dauða „Gluggahestsins“. Birtast aftur þessir horfnu dagar SKÁLDÆVISAGA | Fluga á vegg Eftir Ólaf Hauk Símonarson. Skrudda 2008. bbbbn Einar Falur Ingólfsson Það er eitthvað voðalega sætt við það að tveir lang- tíma vinir, annar bakari en hinn með ballreynslu, ákveði að slá til og gera plötu úr þeim lögum er þeir hafa átt á lager eftir áralangt fikt. Eða, alveg þar til að platan er komin í tækið og hlustandinn kemst að því að öll lögin eru eitt af eftirfarandi; a) stuttar skeytlur sem eru endurteknar til þess að ná upp í hefðbundna lagalengd, b) mislukkaðar tilraunir í textagerð við að framkalla svipaðar tilfinningar og Hótel Jörð gerði fyrir um 30 ár- um eða c) allt of væmnar píanóballöður um eig- inkonur þeirra félaga er hefðu aldrei átt að yf- irgefa hjónasængina. PLÖTUR Haldist sem einkamál POPP | Guðmundur Guðfinns- son og Tómas Malmberg – Trúnaðarmál bnnnn Birgir Örn Steinarsson Baggalútur hefur um árabil verið einhver skemmtileg- asti hópur manna á landinu, en auk þess að starfrækja hljómsveit hefur hann haldið úti óborganlegri síðu á netinu. Það sem Baggalúti hefur tekist umfram flestar aðrar íslenskar hljómsveitir er að höfða til gríðarlega breiðs hóps fólks, fólks á öllum aldri og alls staðar á landinu. Nýjasta nýtt hvikar hvergi frá þessari stefnu, enda stórskemmtileg plata. Tónlistin er einstaklega grípandi og mel- ódísk, sérstaklega fyrstu tvö lögin, „Kósíkvöld í kvöld“ og „Stúlkurnar á Internetinu“. Þá eru textarnir sérlega frumlegir og nafnorðið „ást“ og sögnin „að elska“ koma skemmtilega sjald- an fyrir. Þéttur hljóðfæraleikur og flottar út- setningar með strengjum og fleiri hljóðfærum hjálpa svo til við að gera Nýjasta nýtt að skemmtilegustu plötu ársins. Frábær skemmtun POPP | Baggalútur – Nýjasta nýtt bbbbm Jóhann Bjarni Kolbeinsson Lesandi Steindýranna gengur inn í æv- intýraheim sem lofar strax góðu. Slegist er í för með þremur krökkum en einn þeirra er sögumaðurinn, nafni höfundarins. Dýrin í þorpi krakkanna taka að steingerast og um leið gleymir fullorðna fólkið þeim. Söguhetj- urnar taka til sinna ráða, halda inn í Dimma- helli, kynnast huldufólki og leggja upp í sann- kallaða ævintýraferð, til að sleppa skrímsli úr prísund og um leið bjarga jörðinni. Söguheimurinn er frumlega byggður og vís- ar á forvitnilegan hátt í sagnaarfinn. Í senn tengist hann þjóðlegum ævintýraheimi, með huldufólkssögum, og drekaævintýrum. Höf- undur spinnur frásögnina af snerpu, hún er spennandi og tengist jafnframt á áhugaverðan hátt mikilvægum samtímamálefnum, eins og mengun og misnotkun á náttúrunni. Einn helsti galli sögunnar felst í frásagn- arhættinum. Eitt barnanna segir frá og les- andinn sér ekki mikið meira en hann upplifir, og er það miður, ekki síst þar sem frásögnin verður á köflum full hröð, og trosnar þá nokk- uð. Sagan kann að virka betur í upplestri því sá sem les vill á stundum fá heiminn dreginn skýrari dráttum; það hefði því mátt hægja á á köflum og huga betur að undirstöðum frásagn- arinnar og víðari útlínum söguheimsins. Þótt frásögnin hafi verið heldur brokkgeng- ari en upphafið lofaði, er þetta engu að síður afar efnilegt fyrsta verk höfundar. Ég veit um unga lesendur sem bíða spenntir eftir að sjá hvað hann skrifar næst. BÆKUR EINAR FALUR INGÓLFSSON BARNABÓK | Steindýrin Eftir Gunnar Theodór Eggertsson. Vaka-Helgafell, 2008. bbbnn Þjóðlegur ævintýraheimur Nú er komin út fjórða bókin um Fíusól, „hugmyndaflugmann og flækjuhaus“ eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Fíasól er frumleg, sjálfstæð og skemmtileg stelpa sem hefur sigrað hjörtu íslenskra barna. Hún býr í Grænalundi í Grasabæ, glímir við heima- lærdóminn, meiðir sig í sundi og dreymir skrýtna drauma um sjóræningja. Hún fer líka stundum í sveitina til ömmu og afa í Poka með systrum sínum, Biddu og Pippu. Sögurnar í bókinni eru á léttum nótum, fullar af húmor sem bæði börn og foreldrar skilja. Boðskapur bókarinnar er bæði um- hverfis- og fjölskylduvænn og ljóst að krakk- ar geta haft á réttu að standa og vita meira að segja sumt betur en fullorðnir. Í kafla sem heitir Tækjalausi dagurinn ákveður Fía- sól t.d. að nota engin tæki sem ganga fyrir annarri orku en þeirri sem hún getur fram- leitt sjálf. Og það er erfitt fyrir litla stýrið, sérstaklega þegar foreldrarnir nenna helst ekki að standa í því með henni. Vel er leyst úr erfiðum málum eins og fráfalli heimilisvin- arins Hansínu og spurningunni um tilvist jólasveina. Myndskreytingar Halldórs Bald- urssonar eru frábærar og falla að efninu eins og flís við rass. Aðdáendur Fíusólar hafa beðið spenntir eftir framhaldi á ævintýrum hennar og verða ekki fyrir vonbrigðum, enda er Fiasól bara flottust! Langflottust BÆKUR STEINUNN INGA ÓTTARSDÓTTIR BARNABÓK | Fíasól er flottust Eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Myndskreytingar eftir Halldór Baldursson. Mál og menning 2008, 146 bls. bbbmn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.