Morgunblaðið - 29.06.2008, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er sunnudagur 29. júní, 181. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú, lang-
lyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.)
Einn kunningi Víkverja er sér-lega vel skrifandi og greind-
ur maður sem reynt hefur fyrir
sér með góðum árangri á ritvell-
inum. Sá galli er á ráði þessa hæfi-
leikaríka kunningja að hann er
orðinn bloggfangi. Hann við-
urkennir að eyða allt að þremur
tímum á dag í að leita uppi skrif á
bloggheimum. Skýring hans er sú
að hann vilji vita hvað sé að gerast.
Víkverji gefur lítið fyrir skýr-
+ingar sem þessar. Ef Víkverji
þyrfti að eyða þremur tímum á
dag á netinu til að komast að hvað
sé að gerast í umheiminum þá get-
ur varla verið mikið á seyði.
x x x
Víkverji sér ansi oft vitnaði íblogg í fjölmiðlum. Hann get-
ur ekki séð að menn hafi þar ýkja
mikið fram að færa. Mest eru
þetta skammir eða raus á fremur
illa skrifaðri íslensku. Það er eitt-
hvað sérlega dapurlegt við það að
fólk sé farið að eyða mörgum tím-
um á dag í að kynna sér þessi
ómerkilegu skrif. Fólk ætti að
taka sér góða bók í hönd eða horfa
á fugla himinsins, fremur að eyða
þeim í leit að vitleysislegum og síst
mannbætandi skrifum á netinu.
x x x
Talandi um bækur þá er Vík-verji ansi ánægður með líf-
lega kiljuútgáfu hér á landi. Um
daginn keypti hann sér Glæp og
refsingu eftir Dostójevskí á litlar
2.000 krónur og er nú staddur í
miðri bók þar sem Raskolnikov er
kvalinn vegna morðanna sem hann
framdi. Víkverji á ekki í neinum
vandræðum með að lifa sig inn í
þessa sögu. Þetta er bók sem mun
rata upp í hillu en það verður ekki
sagt um allar bækur sem Víkverji
les. Hann hefur hent ófáum bók-
um í ruslið eftir lestur. Víkverji er
snyrtipinni og safnar ekki drasli.
Hann telur sumar bækur best
geymdar á ruslahaugum þar sem
flestar ónýtar vörur lenda að lok-
um. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skálma, 4 rófa,
7 vistir, 8 trylltur, 9
bjargbrún, 11 svara, 13
fall, 14 snáði,15 gína við,
17 þekkt, 20 nöldur, 22
fim, 23 örlagagyðja, 24
dýrin, 25 skólagengna.
Lóðrétt | 1 bresta, 2 ræf-
ils, 3 lengdareining, 4
flasa, 5 snákur, 6 ljósið,
10 forsjón,12 herma eft-
ir, 13 töf, 15 þenjast út,
16 giftast aldrei, 18 hyl-
ur grjóti, 19 kroppa,20
reiða, 21 málmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 notadrjúg, 8 gætna, 9 fífan, 10 nót, 11 raupa,
13 aumur, 15 basla,18 halar, 21 far, 22 ólæst, 23 æstar,
24 nafnkunna.
Lóðrétt: 2 ostru, 3 afana, 4 rifta, 5 úlfum, 6 Ægir, 7
knár, 12 pól, 14 una,15 brók, 16 skæla, 17 aftan, 18
hræðu, 19 látin, 20 rýrt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Db3 dxc4
5. Dxc4 Bg4 6. Rc3 Rbd7 7. e4 Bxf3 8.
gxf3 e5 9. Be3 exd4 10. Bxd4 Bd6 11.
O–O–O Dc7 12. h4 O–O 13. Re2 Had8
14. Dc2 Rh5 15. Bh3 Rdf6 16. Dc3 c5
17. Be3 Be5 18. Dc2 Rf4 19. Rxf4 Bxf4
20. Hdg1 c4 21. Kb1 b5 22. Dc1 Rh5 23.
Hg4 Bxe3 24. Dxe3 Hd3 25. Dg5 c3 26.
Hc1g6 27. Dxh5
Staðan kom upp á öflugu atskákmóti
sem lauk fyrir skömmu í Yerevan í
Armeníu. Boris Gelfand (2723) frá Ísr-
ael hafði svart gegn Kínverjanum Xi-
anghzhi Bu (2708). 27… c2+! 28. Ka1
Hd1 29. Dg5 Hfd8 30. Hg1 Dh2! 31.
Hf1 Dxh3 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þræðingur Aðalsteins.
Norður
♠ÁK83
♥DG94
♦KD3
♣D3
Vestur Austur
♠D10976 ♠G42
♥1072 ♥K8
♦107 ♦862
♣K72 ♣G10965
Suður
♠5
♥Á653
♦ÁG954
♣Á94
Suður spilar 6♦.
Sverrir Ármannsson og Aðalsteinn
Jörgensen voru á hraðri siglingu í 6♥
með norður sem sagnhafa þegar Þjóð-
verjinn Smirnov setti strik í reikning-
inn með dobli fyrirstöðusögn suðurs á
4♣. Sverrir breytti þá um stefnu og lét
Aðalstein stýra sókninni í 6♦ úr suð-
ursætinu. En rétt eins og hjarta-
slemman virðast 6♦ ráðast af íferðinni
í hjartað.
Smirnov kom út með ♠10, sem Að-
alsteinn tók á ♠Á og spilaði strax ♥D.
Piekrek í austur gerði vel í því að
dúkka og drottningin átti slaginn. Að-
alsteinn trompaði þá spaða, tók ♦G,
spilaði tígli á drottningu og reyndi að
negla ♥10 með gosanum – kóngur og
ás, en engin tía. Tapað spil? Ekki enn.
Aðalsteinn tók ♦K, henti laufi í ♠K og
trompaði síðasta spaðann. Sendi svo
vestur inn á ♥10 og lét hann spila frá
♣K!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Himintunglin gefa í skyn að þú
sért göfuglyndur. Það kostar fyrirhöfn.
Ef þú gerir eitthvað sem þig langar ekki
til á hverjum degi, verður það að skyldu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Vöggugjöf nautsins frá stjörnukerf-
inu er getan til þess að þekkja gullið tæki-
færi þegar það skýtur upp kollinum. Þú
fagnar líka dýrð hversdagslegrar tilveru.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér fylgir einstök byrj-
endaheppni, þess vegna áttu að byrja upp
á nýtt í stað þess að eyða tímanum í miðju
og endi. Verk þín í dag hafa áhrif á fram-
ann á komandi árum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Rómantískt samband þarfnast
smávegis innspýtingar – vertu hvatvís og
djarfur. Ekki eyða mínútu í áhyggjur af
hvort einhver elskar þig eða ekki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Himintunglin hjálpa þér til að vera
meðvitaðri um áhrifin sem þú hefur á
aðra. Það fer best á því að beita ekki sömu
aðferðum í einkalífinu og í vinnunni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ræður ferðinni í eigin lífi –
auktu hraðann. Það er allt í lagi að gera
mistök annað veifið, svo fremi að maður
læri af þeim. Seinni partinn logarðu
hreinlega.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Smámunir geta af sér viðameiri verk-
efni. Ekki vera hræddur við að skemmta
þér við eitthvað sem virðist ómerkilegt í
upphafi. Gerðu samt bara það sem er
skemmtilegt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Veltirðu vöngum yfir sömu
spurningunni aftur og aftur? Verður allt í
lagi eftir breytingar? Styrktu þig í trúnni.
Náðu sambandi við skapandamátt þinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sumu fólki tekst ævinlega að
ýta þér út á ystu nöf. Það virðist vera því
eiginlegt. Ef einhver fer yfir strikið, áttu
að spyrna við fótum og segja nei, takk!
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert fullur af rausnarskap,
hvatvísi og hreinskilni þessa dagana, sem
gæti endað í bræðikasti. Skrifaðu það á
reikning skapgerðarlistamannsins í þér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ástin er það síðasta sem þú
veltir fyrir þér núna. Rómantíkin þarfn-
ast bæði svigrúms og umönnunar. Of mik-
ið af öðru hvoru raskar jafnvæginu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Í dag væri gaman að leika lausum
hala þar sem reglurnar eru frjálslegar,
jafnvel óskilgreindar. Þú getur búið til
þínar eigin viðmiðunarreglur.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
29. júní 1198
Páll Jónsson biskup lýsti því
yfir á Alþingi að landsmönnum
væri leyfilegt að heita á Þor-
lák biskup Þórhallsson sem
helgur maður væri. Þremur
vikum síðar voru jarðneskar
leifar hans teknar upp.
29. júní 1941
Þýski kafbáturinn U-564
sökkti flutningaskipinu Heklu
suður af Grænlandi en skipið
var á leið frá Íslandi til Banda-
ríkjanna. 13 fórust en sjö var
bjargað af fleka eftir rúma tíu
sólarhringa.
29. júní 1951
Ríkarður Jónsson skoraði
fjögur mörk í landsleik gegn
Svíum. Íslendingar munu
„sjaldan eða aldrei hafa sýnt
betri leik“, að mati Morg-
unblaðsins, og unnu með fjór-
um mörkum gegn þremur.
Slík markaskorun var ekki
leikin eftir fyrr en 40 árum
síðar.
29. júní 1952
Ásgeir Ásgeirsson, 58 ára
bankastjóri, var kjörinn for-
seti Íslands. Ásgeir gegndi
embættinu í 16 ár.
29. júní 1980
Vigdís Finnbogadóttir, 50 ára
leikhússtjóri, var kjörin for-
seti Íslands. Hún var fyrsta
konan í heiminum sem kosin
var þjóðhöfðingi í lýðræð-
islegum kosningum. Hún var
forseti í 16 ár.
Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
Frú Guðrún
Stefánsdóttir frá
Skuld í Vest-
mannaeyjum
verður 100 ára á
morgun, 30. júní.
Í tilefni þess
verður móttaka í
sal á jarðhæð
elli- og hjúkr-
unarheimilisins Eirar í Reykjavík
mánudaginn 30. júní frá kl. 16 til 18.
100 ára
„Ég mun halda veislu lengst upp í sveit og bjóða
þar góðum vinum upp á gómsætt heilgrillað
lamb,“ segir Hermann Hermannsson, slökkviliðs-
maður og afmælisbarn, glaður í bragði þegar
hann er inntur eftir því hvernig hann mun eyða
deginum. Hermann er búsettur á Ísafirði með
eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Hann er
fertugur í dag.
Hermann segir afmælisdaga alltaf eft-
irminnilega og stórskemmtilega daga og segir
að dagurinn í dag mun eflaust skilja eftir sig
ljúfar minningar.
Í sumar ætlar Hermann að skoða Vestfirði. „Ég er í sumarfríi
þessa daganna og ætla að njóta þess hér heima. Ég mun fara norð-
ur á Hornstrandir og inn í djúp svo eitthvað sé nefnt. Hér er svo
fallegt og nóg af stöðum til að skoða,“ segir Hermann sem hefur
engan áhuga á utanlandsferðum í sumar. „Það er alltaf best að
vera heima. Maður uppgötvar alltaf eitthvað nýtt við heimahag-
anna.“
Hermann segir veiðir af ýmsu tagi vera sín aðaláhugamál. „Ég
stunda bæði stangveiði og skotveiði, skýt gæs og ýmsan sjófugl.“
Hermann skýtur þó enga ísbirni. gudrunhulda@mbl.is
Hermann Hermannsson er fertugur í dag
Heima er best
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is