Morgunblaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er mánudagur 30. júní, 182. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji dagsins hefur síðustumánuðina reynt að fara í göngu-
ferðir hvenær sem færi gefst sér til
heilsubótar, sálargagns og hugsvöl-
unar. Hann er reyndar svo heppinn
að eiga unnustu, sem drífur hann
áfram með seiðandi eldmóði og harð-
fylgi eins og sannri vestfirskri
galdrakonu sæmir. Skötuhjúin
ákváðu í vor að skrifa niður nöfn
fjalla sem þau einsettu sér að klífa í
sumar og nú er svo komið að aðeins
eru þrjú óklifin fjöll á listanum –
Hengill og tvö fjöll fyrir austan: Dyr-
fjöll og Hvítserkur.
Víkverji hvetur menn eindregið til
þess að gera slíkan lista yfir það sem
þeir ætla að gera í sumarfríinu því
það heldur þeim við efnið. Sumarið er
svo stutt að margir hafa brennt sig á
því að sofa það af sér að mestu og
vakna síðan fullir iðrunar yfir því að
hafa ekki nýtt íslensku sumarblíðuna
til hins ýtrasta.
Reyndar sér Víkverji fram á að
geta bætt nokkrum fjöllum á listann
og hann hlakkar til að ganga um
Borgarfjörð eystra og Fljótsdals-
hérað í sumarfríinu, auk Dyrfjalla og
Hvítserks. Síðarnefnda fjallið er við
Húsavík, milli Borgarfjarðar og Loð-
mundarfjarðar. Hvítserkur er úr ljós-
grýti, svokölluðu flikrubergi, og
myndaðist við gífurlegt sprengigos.
Dökkir berggangar, sem skera sig í
gegnum líparítið, setja sérkennilegan
svip á fjallið.
x x x
Austfirðir eru sannkölluð paradísfyrir göngufólk. Seyðisfjörður
er ein af fegurstu perlunum og þar
eru margar áhugaverðar gönguleiðir
við allra hæfi. Tilvalið er t.a.m. að
ganga um bæinn, verða sér úti um
kort af gamla bænum til að kynna sér
sögu húsanna og þróun byggðarinnar
frá 1850-1940. Síðan er hægt að skoða
fossana í Fjarðará eða fuglabjargið á
Skálanesi, í mynni fjarðarins.
Þeir sem vilja erfiðari göngur geta
klifið fjöllin, sem girða fjörðinn, eða
gengið til Loðmundarfjarðar og
Mjóafjarðar. Sumar leiðirnar eru
ekki fyrir lofthrædda.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 festing,
8 duttu, 9 svana, 10 stór-
fljót, 11 undirnar,
13 konur, 15 uxann,
18 vísa, 21 bókstafur,
22 iðja, 23 ásýnd, 24 fasi.
Lóðrétt | 2 vondur,
3 gyðja, 4 höfuðhlíf,
5 torveld, 6 eldstæðis,
7 skordýr, 12 greinir,
14 kyn, 15 þyngdarein-
ing, 16 óhreinkaði,
17 minnast á, 18 stags,
19 mátturinn, 20 sigaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rigsa, 4 skott, 7 forði, 8 ólmur, 9 nöf, 11 ansa,
13 hrun, 14 polli, 15 gapa, 17 kunn, 20 agg, 22 lipur,
23 Urður, 24 apana, 25 lærða.
Lóðrétt: 1 rifna, 2 garms, 3 alin, 4 skóf, 5 ormur, 6 tíran,
10 örlög, 12 apa, 13 hik, 15 gúlpa, 16 pipra, 18 urðar,
19 narta, 20 arga, 21 gull.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6
5. d3 a6 6. Bb3 Ba7 7. h3 h6 8. Rbd2 d6
9. Rf1 Be6 10. Rg3 O–O 11. Rh2 d5 12.
Df3 Ra5 13. Bc2 dxe4 14. dxe4 Rc4 15.
Rg4 Rd7 16. O–O Dh4 17. Rf5 Bxf5 18.
exf5 Rd6 19. f6 Rxf6 20. Rxf6+ gxf6
21. Kh2 f5 22. g3 Df6 23. Dh5 Kg7 24.
g4 f4
Staðan kom upp á öflugu atskákmóti
sem lauk fyrir skömmu í Yerevan í
Armeníu. Rússinn Alexander Moroze-
vich (2774) hafði hvítt gegn Englend-
ingnum Michael Adams (2729). 25. g5!
De6 26. Bxf4! Hh8 svartur hefði orðið
varnarlaus eftir 26… exf4 27. Hae1.
27. Hae1 hxg5 28. Dxg5+ Kf8 29. Dg2
f6 30. Bb3 Df5 31. Be3 Dh7 32. Hg1
Bxe3 33. Hxe3 Hd8 34. Dd5 hvítur
hefur nú unnið tafl. 34…Df5? 35. Hf3
Hxh3+ 36. Hxh3 Dxf2+ 37. Kh1 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ítalskur glæsileiki.
Norður
♠G874
♥8
♦ÁK63
♣K1087
Vestur Austur
♠5 ♠KD10963
♥KD74 ♥10
♦10975 ♦DG842
♣ÁD63 ♣5
Suður
♠Á2
♥ÁG96532
♦--
♣G942
Suður spilar 4♥ dobluð.
Eitt glæsilegasta spil Evrópumóts-
ins kom upp í leik Ítala og Dana í
riðlakeppninni. Í hlutverki hetjunnar í
suður var Ítalinn gamalreyndi, Lo-
renzo Lauria, sem var sagnhafi í 4♥
dobluðum af vestri. Austur hafði sagt
spaða og vestur kom þar út með ein-
spilið.
Lauria drap á ♠Á og lagði niður
♥Á. Vestur sýnist hljóta að fá fjóra
slagi – ♣Á og þrjá slagi á tromp, því
♥7 er sterk. En Lauria sá langt inn í
framtíðina. Hann spilaði laufi, sem
vestur tók og skipti yfir í tígul. Lauria
henti spaða og laufgosa niður í ♦ÁK,
trompaði svo tígul. Hann svínaði næst
♣8 og trompaði aftur tígul. Enn kom
lauf á blindan og nú var fjórða laufið
trompað. Í endastöðunni átti Lauria
♥G96 og vestur ♥KD7 – Lauria spilaði
gosanum og fékk slag á níuna í lokin!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur oft verið varaður við því
að sóa ekki dýrmætum tíma þínum, en í
dag rennur tíminn þér úr greipum. Þú
ættir að skipuleggja þig betur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Allt mun taka lengri tíma en þú ger-
ir ráð fyrir, jafnvel þó þú takir mið af
þessari stjörnuspá. Til að halda þér á floti
er best að eyða deginum í félagsskap tví-
bura.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú stundar hrekki þér til gam-
ans, elskar að leika þér. Það hefur góð
áhrif á þá sem þú umgengst, léttleiki þinn
er smitandi. Haltu áfram á sömu braut.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það mun reyna á samband þitt og
sérstaks vinar. Það verður jafnmikilvægt
fyrir þig að standa við allt smátt sem
stórt. Það á einnig við um vin þinn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt ótrúlegt megi virðast hjálpa
furðulegheit þín til við að leysa vandamál.
Þú ert hugmyndaríkur en fellur samt í
hópinn og ert mikilvægur fyrir heildina.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú gefur heiminum frí og færð
greiðann launaðan. Með öðrum orðum
muntu ekki gera miklar kröfur til fólks í
dag og það svarar í sömu mynt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er svo mikið að gerast hjá þér að
þú nærð varla að segja þínum nánustu frá
því öllu. Þú getur rétt tæpt á mikilvæg-
ustu málunum. Vinna núna, tala seinna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það sem hefur verið að gerj-
ast í langan tíma er nú að verða tilbúið.
Þú þarft að biðja um stuðning, bæði and-
legan og líkamlegan, svo það gangi upp.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Af hverju ættir þú að flýta þér
þegar þú veist ekki hvert þú ert að fara?
Hægðu á þér, slappaðu af. Láttu þig
dreyma um spennandi áfangastaði.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú átt á hættu að missa stjórn á
þér seinni partinn en mundu að það er
ekki þess virði. Reyndu að slaka á og hafa
húmorinn í lagi. Lestu fyndna bók.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert áhugaverður því þú sýn-
ir áhuga. Þú dregst að vissri manneskju
og verður henni efst í huga. Í kvöld
muntu líklega gera það sem ætlast er til
af þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú veist ekki hvernig þú vilt láta
koma fram við þig og verður sjálfur í
vandræðum með framkomu þína við aðra.
Daginn ættir þú að nota í tilraunastarf-
semi.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
30. júní 1862
Eldgos hófst vestan Vatnajök-
uls. Það stóð í rúm tvö ár en
ekki var vitað fyrr en mörgum
áratugum síðar hvar eldstöðin
var nákvæmlega. Hún er nú
nefnd Toppgígar og hraunið
Tröllahraun.
30. júní 1910
Laufey Valdimarsdóttir út-
skrifaðist sem stúdent frá
Lærða skólanum (Mennta-
skólanum í Reykjavík), fyrst
íslenskra kvenna.
30. júní 1954
Almyrkvi varð á sólu og sást
hann best við suðurströndina.
Myrkur féll yfir landið í
nokkrar mínútur og stjörnur
skinu á himni. Í Morgunblað-
inu var sagt að sólmyrkvinn
hefði verið stórkostlegasta
náttúrufyrirbrigðið síðan
Hekla gaus. Þetta var fyrsti
almyrkvinn hér á landi í 121
ár. Næsta almyrkva má vænta
12. ágúst 2026.
30. júní 1968
Kristján Eldjárn, 51 árs þjóð-
minjavörður, var kjörinn for-
seti Íslands. Hann gegndi
embættinu til 1980.
30. júní 1974
Kvenlögregluþjónar tóku í
fyrsta sinn þátt í löggæslu en
þennan dag var kosið til Al-
þingis.
30. júní 1990
Kvennahlaup ÍSÍ var haldið í
fyrsta sinn. Hlaupið var á sex
stöðum og voru þátttakendur
um tvö þúsund.
Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
„En huggulegt af þér að muna eftir afmælinu
mínu,“ segir Sigríður Sigþórsdóttir afmælisbarn
hlæjandi þegar blaðamaður hefur samband við
hana. „Ég ætla að horfa á forkeppni á Landsmóti
hestamannafélaga og sjá dótturdóttur mína
keppa,“ útskýrir hún aðspurð um afmælisdaginn.
Það liggur ekki á svörum hjá Sigríði þegar hún
er spurð um áhugamál: Hestar og vinnan. Fjöl-
skylda hennar á níu hesta og fer hún hvert sumar í
hestaferð „Það má segja að hestamennskan sé
eina áhugamálið sem fær mig til að gleyma
vinnunni,“ segir hún aðspurð um fleiri áhugamál.
Uppáhaldshestur hennar er hinn átta vetra Kósi frá Varmalæk, en
dótturdóttir hennar keppir einmitt á honum í dag.
Hvað varðar hitt áhugamálið hennar segir hún að öll verkefni séu
spennandi, en það sem henni er mest hugleikið sé það sem hún fæst
við hverju sinni. Nú sé hún að fást við einbýlishús á Vakurstöðum og
sundlaug á Hofsósi, en hún var einmitt aðalhönnuður Bláa lónsins.
„Mér finnst Ísland svo frábært á sumrin,“ segir Sigríður aðspurð
hvort hún hyggist ferðast til útlanda í sumar. Þau hjónin hafa auk
þess nýverið fest kaup á Heyholti í Borgarfirði, þar sem þau byggja
sumarbústað. Sigríður fer þó stundum í borgarferðir með manni sín-
um, Hallmari Sigurðssyni leikstjóra. „Við skoðum arkitektúr á daginn
og förum í leikhús á kvöldin.“ andresth@mbl.is
Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt, 55 ára
Vinnan eitt aðaláhugamálið
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is