Morgunblaðið - 30.06.2008, Page 40
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 182. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Fyrsti stóri titill
Spánverja í 44 ár
Spánverjar urðu Evrópumeist-
arar í knattspyrnu í gærkvöldi eftir
1-0 sigur á Þjóðverjum í úrslitaleik í
Vínarborg. »Íþróttir
Ljósmæður ósáttar
Ljósmæður skrifuðu ekki undir
kjarasamning við ríkið um helgina
eins og önnur félög BHM. Formaður
Ljósmæðrafélags Íslands segir að
44% starfandi ljósmæðra fari á eft-
irlaun innan tíu ára og ekki verði
staðið undir brottfallinu nema allar
ljósmæður fáist til starfa. Eins og
staðan sé nú fái ljósmæður hærri
laun með því að vinna áfram sem
hjúkrunarfræðingar. »Forsíða, 2
Hættuástand í Grímsey
Maður, sem sérsveitarmenn hand-
tóku í Grímsey um helgina, hafði
haft í hótunum við fólk á staðnum og
gert misheppnaða tilraun til að
stinga mann með hnífi. »6
Tvö alvarleg slys
Tveir menn slösuðust alvarlega í
umferðarslysum á landsbyggðinni
um helgina og er öðrum þeirra hald-
ið sofandi í öndunarvél. »2
Deilt um Lýðheilsustöð
Þórólfur Þórlindsson, forstjóri
Lýðheilsustöðvar, segir ekki væn-
legt til árangurs að dreifa starfi
hennar. Herdís Storgaard, for-
stöðumaður Sjóvár Forvarnahúss,
segir hins vegar að einkafyrirtæki
geti unnið verkefni Lýðheilsustöðv-
ar betur en hún geri og á ódýrari
hátt fyrir skattgreiðendur. »6
SKOÐANIR»
Stakst.: Atvinnuleysi í krafti krónu
Forystugreinar: Áfram ráðherra |
Eins og allir hinir
Ljósvaki: Ástríðan og skipulagningin
UMRÆÐAN»
Álhöfðunum lamið við steininn
Bjargarlaus Össur
Fagra Ísland – fagurt mannlíf
Svanfríður og spægipylsan
Litadýrð á heimsmælikvarða
Leonardo da Vinci-brúin í Noregi
Gæði sem gleymast í barlómi
Plöntur sem brjóta steina
FASTEIGNIR»
Heitast 15 °C | Kaldast 5 °C
NA 5-13 m/s. Dálítil
rigning A-lands en
skýjað með köflum og
þurrt að mestu vestan
til. Hlýjast á Suðurlandi. » 10
Hvað fær Ítali til að
misþyrma hinum
fagra leik með þess-
um hætti? Spark-
spegill Orra Páls
Ormarssonar. » 34
KNATTSPYRNA»
Verðugir
meistarar
TÓNLIST»
KK segir Ferðaplöturnar
standa fyrir sínu. » 35
Eins og oft áður er
sumarhasarinn
byggður á teikni-
myndasögum.
McAvoy er duglegur
í Wanted. » 39
KVIKMYNDIR»
Útgangs-
punkturinn
FÓLK»
Vegfarendum skemmt af
Jafningjafræðslu. » 39
FÓLK»
Náttúruvernd og Sam-
tökin: Fluga á ferð. » 32
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Slasaðist alvarlega
2. Féll af níundu hæð og lést
3. Barnaafmæli veldur uppnámi
4. Alvarlegt slys á Siglufjarðarvegi
Sífellt fleiri nýta
sér þann mögu-
leika að fara á
netið í farsím-
anum sínum.
Margir veigra
sér við mikilli
notkun því hún
getur verið
kostnaðarsöm,
en símafyrirtækin gjaldfæra net-
notkun eftir gagnamagni.
Sem dæmi má nefna að hjá
Vodafone kostar hvert megabæt
190 krónur, en hjá Símanum 200
krónur. Með því kostar rúmar
hundrað krónur að skoða ýmsa
fréttavefi, til dæmis mbl.is, og hátt
í 700 krónur að skoða gmail-
pósthólfið sitt.
Ýmis áskriftartilboð eru þó í
boði, ef greitt er fyrir fasta
mánaðarnotkun með innifalið
gagnamagn. Nokkur munur er á
milli stærstu keppinautanna. Fyrir
stórnotendur fást hjá Símanum 600
MB fyrir 2.500 krónur á mánuði,
en Vodafone býður betur, 2.600
krónur fyrir 1,3 GB á mánuði.
halldorath@mbl.is
Auratal
MENN og dýr fjölmenntu á fjölskyldudag Ferðafélags Íslands og SPRON
sem haldinn var hátíðlegur við Esjurætur á laugardaginn, tíunda árið í
röð. Talið er að um 2.000 manns hafi tekið þátt í dagskránni, en m.a. var
boðið upp á skipulagðar gönguferðir og kapphlaup upp á Þverfellshorn.
Fjölskyldufjör í blíðviðri á Esjunni
Rífandi stemning á höfuðborgarsvæðinu um helgina
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
„HÉR stirnir á gæðingana í sólinni.
Þar sem hestamenn koma saman,
þar er sól – ef ekki á lofti þá í sinni,“
segir Telma Tómasson, upplýsinga-
fulltrúi Landsmóts hestamanna
2008, en mótið hefst í dag og stendur
fram á sunnudag. Telma segir að
þegar sé komin gríðarleg stemning,
allt sé klappað og klárt á mótssvæð-
inu og tjaldborgir risnar upp.
Sjálfur Orri mætir
Rúmlega þúsund hestar verða
sýndir á Hellu, í gæðinga- og kyn-
bótakeppni, og segir Telma mikinn
hug í keppendum og mótshöldurum
enda stefnt að glæsilegasta lands-
móti sem haldið hafi verið. Þegar á
laugardag voru komnir um þúsund
manns á svæðið en búist er við allt að
15 þúsundum. Stífar æfingar knapa
fóru fram um helgina á völlunum.
Mikið verður um dýrðir á Gadd-
staðaflötum. Hægt verður að berja
augum besta hestakost landsins og
auk þess kemur hinn kunni stóðhest-
ur Orri frá Þúfu í heimsókn í svo-
nefnt Hestatorg ásamt einu af-
kvæma sinna, Þorra. Fyrstu dagana
fara fram dómar kynbótahrossa og
forkeppni í gæðingaflokkum. Móts-
setning verður á fimmtudaginn og
fer þá að draga verulega til tíðinda.
Allt klárt fyrir klára
Landsmót hestamanna hefst af fullum krafti á Hellu í dag
Um eitt þúsund manns eru mættir á Gaddstaðaflatir
Ljósmynd/Telma Tómasson
Eftirvænting Mikill fjöldi var mættur á upplýsingafund knapa í gærkvöldi.
Yfir þúsund hestar verða sýndir á Gaddstaðaflötum og knapar eru um 500.