Fréttablaðið - 17.04.2009, Qupperneq 4
4 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
Í verðkönnun sem birtist í blaðinu í
gær kom fram rangt verð á umfelg-
un á jeppa með 29“ dekk hjá Vöku.
Verðið á slíkri þjónustu er 6.500
krónur en ekki 8.800 krónur.
LEIÐRÉTTING
VIÐSKIPTI Skuldir Straums-
Burðaráss fjárfestingarbanka
umfram eignir nema 365,1 millj-
ón evra, eða rúmlega 61,1 millj-
arði króna, samkvæmt óendur-
skoðuðuðu uppgjöri sem bankinn
kynnir nú kröfuhöfum.
Samkvæmt uppgjörinu námu
heildareignir bankans 1.865,3
milljónum evra 31. mars síðast-
liðinn, eða sem nemur rúmlega
312,3 milljörðum króna. Á móti
koma skuldir upp á 2.230,4 millj-
ónir evra, eða tæplega 373,5
milljarða króna.
Forgangskröfur nema 16,2
milljónum evra, eða rúmlega 2,7
milljörðum króna. - óká
Kröfuhöfum kynnt staðan:
Halli Straums
61,1 milljarður
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður, Frans Friðriksson, hefur
verið ákærður fyrir tilraun til
manndráps á horni Smiðjustígs
og Hverfisgötu í desember síð-
astliðnum. Frans er gefið að sök
að hafa stungið átján ára pilt í
brjóstholið og skorið á úlnlið tví-
tugs manns sem reyndi að forða
hinum frá árásinni.
Sá sem fékk hnífinn í brjóstið
hlaut lífshættulega áverka, loft-
brjóst og blóð í vinstra brjóst-
hol, að því er segir í ákæru. Hinn
hlaut opið sár á úlnlið.
Ákæran var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Frans er
sem áður segir ákærður fyrir að
reyna að ráða annan manninn af
dögum, en til vara fyrir sérstak-
lega hættulega líkamsárás. Þá er
hann ákærður fyrir sérstaklega
hættulega árás á hinn manninn.
Frans neitaði sök. Verjandi
hans hefur mánuð til að skila
greinargerð þar sem afstaðan til
sakarefnisins er útskýrð nánar.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst hefur maðurinn ekki neitað
því við skýrslutökur hjá lögreglu
að hafa verið á staðnum og átt þar
í átökum.
Sá sem stunginn var krefst
þriggja milljóna króna í miska-
bætur og sá skorni þrjú hundruð
þúsund króna. - sh
Ungur maður ákærður fyrir að stinga mann í brjóstholið og skera úlnlið annars:
Neitar að hafa reynt að drepa mann
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
20°
14°
16°
17°
14°
10°
15°
16°
15°
15°
22°
15°
19°
25°
10°
15°
21°
11°
4
10
10
5
10
6
8
6
10
9
7
3
1
1
2
2
2
2
8
5
3
4
14
Á MORGUN
3-8 m/s.
SUNNUDAGUR
8-15 m/s sunnan og
vestan til, annars hægari.
HLÝINDAKAFLI
Í dag næstu daga
verður milt á öllu
landinu. Reyndar
er himinn nokkuð
opinn þessa dagana
og því víða hætt
við að fryst geti að
næturlagi og þá niðri
við jarðar yfi rborð.
Líkur á úrkomu aukast
sunnan og vestan
til á laugardag og á
laugardagskvöld fer
að rigna. Á sunnudag
verður skúraveður
sunnan og vestan til,
annars þurrt en alls
staðar milt.
8 10
8
89
9 13
12
810
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
FRAKKLAND, AP Franskir fiskimenn
opnuðu í gær aftur fyrir umferð
um hafnir Calais og Dunkirk en
héldu áfram að hindra umferð
um þá þriðju, þriðja daginn í
röð. Með aðgerðunum vilja þeir
þrýsta á um að aflaheimildir til
veiða í Norðursjó verði auknir.
Ferjuumferð yfir Ermarsund
til og frá Calais og Dunkirk hófst
á ný í gærmorgun, á meðan fiski-
mennirnir skutu á fundi til að
ákveða hvernig bregðast skyldi
við tilboði frá frönsku ríkisstjórn-
inni um fjórar milljónir evra í við-
bótaraðstoð við útgerðina.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins, sem annast fram-
kvæmd sameiginlegrar fiskveiði-
stefnu ESB, kvaðst myndu halda
fast við áður ákveðna kvóta til að
hlífa ofveiddum fiskistofnum. - aa
Franskir fiskimenn ósáttir:
Krefjast aukins
fiskveiðikvóta
KREFJAST KVÓTA Áhafnir togara í mót-
mælaham í innsiglingunni í Boulogne-
sur-mer í N-Frakklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL „Verði þetta niður-
staðan sannast það sem ég og
fleiri hafa sagt, að Alþingi virð-
ist ekki fært um að breyta stjórn-
arskránni. Ég dreg í efa að með
sama vinnulagi verði stjórnar-
skránni breytt í náinni framtíð,“
segir Eiríkur Tómasson, prófess-
or í lögum við Háskólann í Reykja-
vík. „Mér finnst þetta slæm nið-
urstaða. Okkar stjórnskipan er
verulega gölluð og þetta er frek-
ar dapurleg niðurstaða.“
Breytingarákvæði stjórnar-
skrárinnar verður ekki breytt
fyrir kosningar og því gildir það
sama um breytingar á stjórnar-
skrá og áður; rjúfa þarf þing og
boða til kosninga að lokinni sam-
þykkt breytinga. Nýtt þing þarf
síðan einnig að samþykkja breyt-
inguna til að hún fái staðfest-
ingu.
Þetta þýðir að Ísland getur ekki
orðið aðili að Evrópusambandinu
næstu fjögur árin, nema þing
verði rofið og boðað til kosninga.
Hið sama gildir um stjórnlaga-
þing, en stjórnarskrárbreytingu
þarf til eigi það að hafa vald til
breytinga.
Ragnhildur Helgadóttir, próf-
essor í lögum við Háskólann í
Reykjavík, segist syrgja það að
breytingarákvæðinu hafi ekki
verið breytt. Þörf hafi verið á því.
Með því hefði meðal annars verið
hægt að setja inn opnunarákvæði
um aðild að Evrópusambandinu á
miðju kjörtímabili sem og stofnun
stjórnlagaþings.
„Ég hef minni áhyggjur af Evr-
ópumálum; þau eru svo mikið
stórmál að menn væru frekar
tilbúnir til að rjúfa þing og boða
til kosninga vegna þeirra. En
almennt varðandi breytingar á
stjórnarskránni sýnist mér þetta
þýða að þær verði tæpast næstu
fjögur árin.“ Ragnhildur segir
reynslu sína að núverandi breyt-
ingarákvæði sé hamlandi fyrir
breytingar á stjórnarskránni.
Eiríkur segir þetta gjörbreyta
málum hvað varðar Evrópusam-
bandið. „Þetta þýðir að við verð-
um ekki aðilar að Evrópusamband-
inu næstu fjögur árin, nema menn
rjúfi þing og stytti kjörtímabilið.“
Hið sama gildi um stjórnlagaþing.
Ef það eigi að hafa það vald sem
því var ætlað í upprunalegu frum-
varpi þýði það að rjúfa þurfi þing
og stytta kjörtímabilið.
„Auðvitað er hægt að setja slíkt
stjórnlagaþing með lögum frá
Alþingi, en það verður bara ráð-
gefandi. Alþingi mun þá þurfa að
samþykkja tillögur þess til breyt-
ingar á stjórnarskrá.“
kolbeinn@frettabladid.is
Alþingi ræður ekki
við stjórnarskrána
Lagaprófessor segir samkomulag um stjórnarskrármálið sýna að Alþingi sé
ófært um að breyta stjórnarskránni. ESB aðild gæti tafist vegna málsins. Eigi
stjórnlagaþing að hafa vald til breytinga þurfi að stytta næsta kjörtímabil.
FÓLK „Salan gengur ljómandi vel.
Við verðum alltaf vör við mik-
inn kipp í kringum sumardag-
inn fyrsta, og viðskiptavinirnir
eru greinilega á þeirri skoðun að
sumarið sé komið,“ segir Brynjar
Bragason, starfsmaður reiðhjóla-
verslunarinnar Marksins.
Veðurblíða var á landinu í gær,
enda innan við vika í sumardag-
inn fyrsta. „Það er snúnings-
punkturinn hjá mörgum í þess-
um bransa. Þá fyllist allt, bæði
í versluninni og á verkstæðinu.
Líklega þurfum við að bæta við
okkur starfsfólki nú þegar allt er
farið á fullt,“ segir Brynjar. - kg
Kippur í reiðhjólaverslun:
Hjólavertíðin
hafin í ár
ÚTIVIST Nóg er að gera í reiðhjólaversl-
unum og -verkstæðum þessa dagana.
ÁRBORG Bæjarráð Árborgar hyggst
kaupa þriggja milljóna króna
búnað til að takmarka notkun á
netinu í tölvum sveitarfélagsins.
„Tilgangurinn er meðal annars að
sía frá óæskilegar síður, svo semt
klámsíður, og auka þannig öryggi
barna og ungmenna sem nota
tölvur sveitarfélagsins. Einnig að
draga úr umferð á netinu vegna
meðal annars „Facebook“ og
„msn“ og verður aðgangur að þeim
síðum lokaður nema þar sem um
er að ræða starfstengda notkun,“
segir í greinargerð bæjarstjóra.
Fulltrúi minnihluta Sjálfstæðis-
flokks greiddi atkvæði á móti. - gar
Klámsíður í tölvum Árborgar:
Netaðgangur
verður heftur
EIRÍKUR
TÓMASSON
RAGNHILDUR
HELGADÓTTIR
ALÞINGI Eiríkur Tómasson segir Alþingi ófært um að breyta stjórnarskránni og henni
verði varla breytt í náinni framtíð. Ragnhildur Helgadóttir segir niðurstöðu varðandi
stjórnarskrána þýða að almennar breytingar á stjórnarskrá verði tæpast næstu fjögur
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MIÐBORGIN Árásin átti sér stað á horni
Smiðjustígs og Hverfisgötu í desember
síðastliðnum. Ákærði neitaði sök fyrir
dómi í gær. Myndin er úr safni og teng-
ist ekki efni fréttarinnar beint.
GENGIÐ 16.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,4618
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,83 127,43
188,69 189,61
166,97 167,91
22,414 22,546
18,889 19,001
15,291 15,381
1,2815 1,2889
189,17 190,29
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR