Fréttablaðið - 17.04.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 17.04.2009, Síða 8
8 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR 1. Hversu margir voru hand- teknir í aðgerðum lögreglu gegn hústökufólki á miðvikudag? 2. Hvað heitir forseti Úkraínu? 3. Hvaða íslenski sjónvarps- þáttur fer aftur í loftið í sumar eftir nokkurra ára hlé? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 46 Auglýsingasími – Mest lesið 4 10 4 0 0 0 | l an d sb an ki nn .is L AU S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð Við vinnum með þér að lausnum fyrir heimilið. Greiðslujöfnun lána er ein af þeim. Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is, í útibúinu þínu eða í síma 410 4000 Landsbankinn býður upp á nokkur úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir. STJÓRNMÁL Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, segir það ekki rétt sem kom fram í tilkynningu Vinstri grænna að Creditinfo byggði athugun á stjórnarsetu þingmanna í hlutafé- lögum á „úreltum lista“. Rakel segir að byggt hafi verið á hlutafélagaskrá Ríkisskattstjóra. „Skylt er að tilkynna breytingar til hlutafélagaskrár, að jafnaði innan mánaðar frá því að þær eiga sér stað og hvílir sú skylda meðal ann- ars á stjórnarmönnum, að viðlögðum sektum. Creditinfo getur ekki gefið skýringu á því hvers vegna þetta hefur ekki verið gert í tilviki þeirra þingmanna sem svar Vinstri hreyf- ingarinnar græns framboðs vísaði til en áréttar að allar upplýsingar í skýrslu Creditinfo eru réttar,“ segir í yfirlýsingu Rakelar, sem kveður Creditinfo hafa haft samband við skrifstofu VG þegar athugasemd- ir Vinstri grænna birtust í frétt í Fréttablaðinu og á vef flokksins. Rakel segist meðal annars hafa bent Vinstri grænum á að ummæli varðandi „úreltan lista“ væru röng og til þess fallin að varpa rýrð á störf Creditinfo. „VG hét að leið- rétta þetta á vef sínum. Það hefur hins vegar ekki enn verið gert og er þess því óskað að Fréttablaðið birti þessa leiðréttingu,“ segir í yfirlýs- ingu. - gar Viðbrögð Vinstri grænna við upplýsingum úr hlutafélagaskrá gagnrýnd: Segja VG varpa rýrð á Creditinfo RAKEL SVEINSDÓTTIR Framkvæmdastjóri Creditinfo segir Vinstra græn ekki hafa staðið við fyrirheit um leiðréttingu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN INDLAND, AP Tugmilljónir Ind- verja gengu að kjörborðinu í gær, í fyrsta áfanga þingkosninga sem fram fara í fjölmennasta lýðræðis- ríki heims næstu vikurnar. Um 714 milljónir manna eru á kjörskrá á Indlandi, en í þeim hluta landsins þar sem kjörstað- ir voru opnaðir í gær voru rúm- lega 140 milljónir með rétt til að kjósa. Íbúar Indlands eru alls um 1,2 milljarðar. Það fréttist af fáeinum ofbeldis- aðgerðum af hálfu maóískra upp- reisnarmanna í Jarkhand-ríki á Austur-Indlandi. Sex hermenn voru sagðir hafa fallið í þeim átökum og þrír kosningastarfs- menn kváðu hafa verið teknir í gíslingu. „Fólkið vill að lýðræðið sigri,“ sagði Tarun Gogoi, einn hæst setti kjörni fulltrúi Assam-ríkis í norð- austurhorni Indlands, en það er það ríki hins risavaxna sambands- ríkis þar sem ófriðlegast hefur verið á síðustu misserum. Aðal- ástæðuna fyrir því er að rekja til baráttu herskárrar aðskilnaðar- hreyfingar Assama. Fyrstu úrslita úr kosningunum, sem fara fram á 828.804 kjörstöð- um vítt og breitt um landið, er að vænta 16. maí næstkomandi. - aa GENGIÐ AÐ KJÖRBORÐI Punavasi Devi, níræður kjósandi í Mirsapur-sýslu í Uttar Pradesh-ríki á Norður-Indlandi, greiðir atkvæði á kosningavél á kjörstað í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kosningar hafnar í fjölmennasta lýðræðisríki heims: 714 milljónir manna eru á kjörskránni KÓREA, AP Eftirlitsmenn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar yfirgáfu Norður-Kóreu í gær, í kjölfar þess að þarlend stjórnvöld vísuðu þeim úr landi. Þar með er bundinn endi á alþjóðlegt eftirlit með kjarnorkuvinnslu í landinu. Deilan um kjarnorkumál Norð- ur-Kóreumanna hefur harðn- að til muna eftir að þeir sendu langdræga eldflaug á loft fyrr í mánuðinum. Ráðamenn í Pyongy- ang hafa viljað sýna að þeir væru færir um að senda kjarnorku- sprengjur um langan veg með slíkri eldflaug. Brottrekstur eftir- litsmannanna var fordæmdur af öryggisráði SÞ. - aa Kjarnorkumál N-Kóreu: Eftirlitsmenn yfirgefa landið VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.