Fréttablaðið - 17.04.2009, Síða 10
10 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
HERMAÐUR FÆR SÉR BLUND Hann
mátti til að halla sér aðeins, með riffil í
faðmi, þessi indverski heimavarnarliði
í borginni Gaya á Indlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skoðaðu
Mín borg
ferðablað
Icelandair á
www.icelandair.is
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir út apríl 2009
15% afsláttur
VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 100 g.
15% afsláttur
NICOTINELL tyggjó, Classic og Fruit.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
58
28
0
4
/0
9
ÞÝSKALAND, AP Bandarískur her-
réttur í Þýskalandi hefur dæmt
bandaríska hermanninn John
Hatley í ævilangt fangelsi fyrir
morð á fjórum Írökum árið 2007.
Hatley var yfirmaður her-
deildar í Írak sem lenti í átökum
við hóp Íraka vorið 2007. Banda-
ríkjamennirnir náðu Írökunum
fjórum á sitt vald. Írakarnir voru
fjötraðir og með bundið fyrir
augu þegar þeir voru skotnir til
bana.
Hatley sagði sér til afsökunar
að sér þætti svo vænt um undir-
menn sína í bandaríska hernum.
Hann er fertugur og gæti losnað
úr fangelsi eftir tuttugu ár. - gb
Bandarískur hermaður:
Dæmdur fyrir
morð í Írak
DÓMSMÁL Karlmaður á sjötugs-
aldri, Þorsteinn H. Jónsson, hefur
verið dæmdur í fimmtán mánaða
fangelsi fyrir alvarlegt kynferðis-
brot gegn fjórtán ára þroskaheftri
stúlku í febrúar í fyrra. Þorsteinn
og félagi hans voru hins vegar
sýknaðir af því að hafa sýnt stúlk-
unni klámmynd og haft við hana
samræði, þrátt fyrir staðfastan
framburð stúlkunnar þess efnis.
Þorsteinn villti á sér heimildir á
samskiptaforritinu MSN og taldi
stúlkuna á að hitta sig við bens-
ínstöð í nágrenni heimilis henn-
ar. Þangað sótti Þorsteinn hana og
ók með hana heim til sín þar sem
hann lét hana hafa við sig munn-
mök, fitlaði við kynfæri hennar og
sleikti þau. Hann sendi hana því
næst út á strætóbiðstöð.
Félagi Þorsteins á svipuðum
aldri hafði skömmu síðar samband
og fékk að vita hvað gerst hafði.
Sá sótti þá stúlkuna út á biðstöð
og kom aftur með hana heim til
Þorsteins í því skyni að þeir gætu
saman átt við hana kynmök.
Stúlkan fullyrðir að þeir hafi
sýnt henni klámmynd og síðan
báðir haft við hana samræði.
Mennirnir neituðu því hins vegar
staðfastlega. Segir í dómi að þótt
„framburðir ákærðu séu að sumu
leyti á reiki og með innbyrðis mis-
ræmi [dugi] það eitt og sér ekki til
að telja sök á þá sannaða.“ Foreldr-
ar stúlkunnar gerðu skipulega leit
að dóttur sinni þær fimm klukku-
stundir sem hún var í burtu. Hún
fannst á bensínstöð þar sem hún
hafði verið skilin eftir.
Þorsteinn bar fyrir dómi að
hann hafi haldið að stúlkan væri
eldri og hafi enn fremur ekki vitað
að stúlkan væri þroskaheft. Segir
í dómnum að það standist ekki.
Engum dyljist sem við stúlkuna
ræðir að hún sé skert í þroska og
greind. Þar að auki sé hún allt að
því dvergvaxin. Þorsteinn var
dæmdur til að greiða stúlkunni
700 þúsund krónur í miskabætur.
- sh
Fjölskipaður héraðsdómur dæmir eldri mann í fangelsi fyrir að misnota barn sem hann kynntist á Netinu:
Misnotaði fjórtán ára þroskahefta stúlku
Mennirnir sögðust báðir fyrir dómi hafa sýnt stúlkunni klámmynd eins og
þeim er gefið að sök í ákæru. Þeir eru hins vegar ekki dæmdir fyrir það
vegna þess að myndbandið sem fyrir liggur að stúlkunni var sýnt lá ekki fyrir
í gögnum málsins og ekki heldur rannsókn lögreglu á myndbandinu sem
leiðir í ljós hvort raunverulega hafi verið um myndefni að ræða sem fellur
undir lögfræðilega skilgreiningu á klámi.
KLÁMMYNDIN EKKI RANNSÖKUÐ
Áskorun um skjálftaeftirlit
Skipulags- og byggingafulltrúar í
Hveragerði, Árborg og Ölfusi skora á
bæjarstjórnirnar í sveitarfélögunum
að stuðla að því með öllum ráðum að
verkefni varðandi jarðskjálftaskemmd-
irnar á Suðurlandi á síðasta ári á
vegum Rannsóknarmiðstöðvar Háskóla
Íslands fái brautargengi. Það muni
koma öllum til góða í náinni framtíð.
SUÐURLAND
SJÁVARÚTVEGUR Rússneskir togar-
ar eru nú búnir undir að leggja
úr Hafnarfjarðarhöfn til veiða á
Reykjaneshrygg.
„Við erum búin að vera með
fimm rússnesk skip í vetrarsetu
hjá okkur sem voru geymd milli
vertíða. Svo eru tvö önnur skip
komin til að ná í veiðarfæri og
annað. Þeir eru að undirbúa sig á
Reykjaneshrygginn og ég reikna
með að þeir fari að tínast þang-
að í næstu viku. Karfavertíðin er
að fara að stað,“ segir Már Svein-
björnsson hafnarstjóri og upplýsir
að sem betur fer hafi verið nóg að
gera í Hafnarfjarðahöfn í vor. - gar
Annir í Hafnarfjarðarhöfn:
Rússatogarar á
Reykjaneshrygg
HAFNARFJARÐARHÖFN Þar er nú verið
að búa rússneska togara til karfaveiða.
ÍSRAEL, AP Verulegur ágreiningur
virðist vera milli Ísraela og Banda-
ríkjamanna um deilur Ísraela við
Palestínumenn. Þetta kom greini-
lega fram þegar George Mitchell,
erindreki Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta, ræddi við ísraelska
ráðamenn.
Mitchell ítrekaði þá afstöðu
Bandaríkjamanna, að þeir telji enn
að stofnun sjálfstæðs ríkis Palest-
ínumanna sé lykillinn að friði.
Avigdor Lieberman, nýr utanríkis-
ráðherra Ísraels, segir hins vegar
að fara þurfi aðrar leiðir en hingað
til í friðarsamningum. Miklar eftir-
gjafir Ísraela hafi ekki dugað til.
„Fyrri forsætisráðherrar hafa
verið reiðubúnir til að veita víð-
tækar eftirgjafir en árangurinn
af ríkisstjórn Olmerts og Livni var
annað stríð í Líbanon, hernaðurinn
í Gaza, slit stjórnmálatengsla við
Katar og Máritaníu, Gilad Schalit
enn í haldi og friðarferlið í molum,“
sagði Lieberman.
Lieberman hóf feril sinn sem
utanríkisráðherra í síðasta mán-
uði í nýrri ríkisstjórn Benjamins
Netanjahús með yfirlýsingum um
að fyrri samningaviðræður, sem
Bandaríkjamenn hafa haft forystu
um, skipti ekki lengur máli og eftir-
gjafir leiði ekki annað en stríð af
sér.
Saeb Erekat, samningafulltrúi
Palestínumanna, segir greini-
legt að nýja hægristjórnin í Ísrael
vilji ekki neinar friðarviðræður.
„Það er augljóst að þessi stjórn
hafnar tveggja ríkja lausn,“ segir
Erekat.
Mitchell átti að hitta Netanjahú
í gærkvöld, en sá síðarnefndi
hafði ekki gert grein fyrir stefnu
stjórnar sinnar gagnvart Palestínu-
mönnum.
Mitchell hitti einnig í gær Shimon
Peres forseta, sem vildi gera sem
minnst úr ágreiningi Ísraela við
Bandaríkjamenn.
„Stefna Obama og starf hans
í þágu friðar í þessum heims-
hluta er í engu frábrugðið stefnu
Ísraels,“ sagði Peres á fundi þeirra
Mitchells.
Peres reyndi jafnframt að draga
úr áhyggjum Írana af hugsan-
legum sprengjuárásum Ísraela á
kjarnorkubúnað í Íran. Íranar hafa
undan farið sagt hótanir Ísraela í
þessa veru ólíðandi.
„Tal um hugsanlegar árásir Ísra-
els á Íran á ekki við rök að styðj-
ast,“ sagði Peres við Mitchell.
gudsteinn@frettabladid.is
Lieberman hafnar
fyrri friðarleiðum
Ágreiningur Ísraels og Bandaríkjanna var áberandi á fundi utanríkisráðherra Ís-
raels við erindreka Bandaríkjastjórnar. Avigdor Lieberman segir eftirgjafir Ísraela
engum árangri hafa skilað. Forseti Ísraels reynir að gera lítið úr ágreiningnum.
FÆR EKKI AÐ FARA INN Í MOSKUNA Palestínskur unglingspiltur deilir við ísraelskan landamæravörð sem meinar honum inn-
göngu í Al Aksa moskuna í Jerúsalem. FRÉTTABLAÐIÐ/AP