Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 16
16 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR Tvö ný stjórnmálaöfl bjóða fram til alþingiskosning- anna 25. apríl næstkom- andi; O-listi Borgarahreyf- ingarinnar – þjóðin á þing, og P-listi Lýðræðishreyf- ingarinnar. Þótt gjörólík séu stefna bæði framboðin að því að færa ákvörðunar- valdið, í víðasta skilningi, nær fólkinu í landinu. Þegar spurt er um tilurð Borgara- hreyfingarinnar er stutta svarið: hreyfingin er sprottin upp úr bús- áhaldabyltingunni. Framboðið gefur sig út fyrir að vilja hreinsa út spillingu, koma á virkara lýð- ræði og skýrri þrískiptingu valds- ins. Einnig vill hreyfingin per- sónukjör, ekki flokkskjör. Eins er hægt að segja að for- svarsmenn hreyfingarinnar hafi verið að svara útbreiddum mis- skilningi, eins og það er orðað við blaðamann, að þrátt fyrir ástand- ið í samfélaginu væri ekkert hægt að gera. Þessu hafnaði hópur fólks sem á sjö vikum hefur lagt nótt við dag, drifið áfram af þeirri hug- sjón að aðgerðaleysi komi ekki til greina, og sett saman stjórnmála- afl sem eftir er tekið. Borgarahreyfingin er stjórn- málaafl sem sinnir hagsmuna- vörslu fyrir einn hóp – þjóðina – og hefur eina meginreglu að leiðar- ljósi: að færa völdin frá flokksræði til lýðræðis sem er róttæk skyn- semi, eins og má lesa í stefnu- skrá. Skýr markmið Við lestur stefnuskrár Borgara- hreyfingarinnar, sem sett er fram undir yfirskriftinni réttlæti – sið- ferði – jafnrétti, dylst engum hver áherslan er: Grípa skal til neyðar- ráðstafana í þágu heimila og fyrir- tækja. Megináhersla er lög á að alvar- leg staða fjölmargra heimila verði tafarlaust lagfærð með margvís- legum aðgerðum; vísitala verð- tryggingar verði færð handvirkt aftur og hækkanir á höfuðstól lána og afborganir verði líkt og þær voru fyrir hrun hagkerfisins. Í peningamálum þarf að leita samstarfs við aðrar þjóðir í mynt- bandalagi. Sé sá kostur ekki fyrir hendi skuli taka upp annan gjald- miðil einhliða. Hallarekstri ríkis- sjóðs vill Borgarahreyfingin mæta með endurskoðun skattkerfisins, meðal annars með fjölgun skatt- þrepa, hátekjuskatti og breyting- um á virðisaukaskatti. Þessi leið verði farin í stað þess að mæta vandanum með niðurskurði í heil- brigðis- og velferðarþjónustu. Það er líka skýrt í stefnu hreyfingar- innar að Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn hafi ekki of mikil áhrif á hvernig staða ríkissjóðs verður bætt. Skuldir þjóðarinnar þarf að meta af nákvæmni, og í framhald- inu skal gert upp við lánardrottna, en aðeins eftir bestu getu. Rannsókn STRAX Borgarahreyfingin leggur mikla áherslu á að rannsókn á efnahags- hruninu verði hleypt af stokkun- um. Til þessa verks verði fengn- ir erlendir sérfræðingar, óháðir. Slík rannsókn verði unnin fyrir opnum tjöldum og á meðan verði eignir grunaðra auðmanna fryst- ar. Samhliða verði sett aftur- virk lög sem leyfa ógildingu allra fjármálagerninga undanfarinna tveggja ára. Krafist er lögfestingar á fag- legri, gegnsærri og réttlátri stjórnsýslu. Í því markmiði má nefna hugmynd um að tiltekinn minnihluti þingmanna geti boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt. Eins að hæfismat umsækjenda um störf hæstarétt- ar- og héraðsdómara verði metin af hlutlausri fagnefnd skipaðri af Alþingi og eftir tilnefningu hæsta- réttar. Borgarahreyfingin vill að fastanefndir þingsins verði efld- ar, settar verði siðareglur fyrir þingmenn, ráðherra og æðstu embættismenn framkvæmda- valdsins. Pólitísk ábyrgð Borgarahreyfingin vill innleiða hugtakið „pólitísk ábyrgð“, og hyggst leggja sjálfa sig niður þegar markmiðum framboðsins hefur verið náð; eða þegar augljóst þykir að þeim verður ekki náð. LÝÐRÆÐISHREYFINGIN Lýðræðishreyfingin er ellefu ára gömul samtök. Fólk tók að draga sig saman í kjölfar forsetafram- boðs Ástþórs Magnússonar árið 1996, sem hafði sett fram hug- mynd um beint og milliliðalaust lýðræði. Úr þessum jarðvegi spratt Lýðræðishreyfingin, og var horft til framboðs til alþingiskosn- inganna árið 1999. Ekkert varð úr þeim áætlunum, en þá taldi hreyf- ingin ólíklegt að það væri hljóm- grunnur fyrir róttækar hugmynd- ir eins og beint lýðræði. Fram hefur komið að tilurð framboðs Lýðræðishreyfingar- innar nú er sú að grundvallar- breytingar hafa orðið á aðstæðum í samfélaginu og fólk því móttæki- legra fyrir grunnhugmynd fram- boðsins, að mati hreyfingarinnar. Sá hópur sem starfaði saman fyrir rúmum áratug er að mestu kom- inn saman aftur og skipar fram- boðslistana sex. Margt af því fólki hefur verið virkt á vettvangi stjórnmálanna, en fundið kröftum sínum farveg í öðrum stjórnmála- hreyfingum til þessa. Beint og milliliðalaust lýðræði Málflutningur Lýðræðishreyfing- arinnar hefur verið að málefnatil- búningur stjórnmálaflokkanna sem fyrir eru á þingi sé marklaus loforð, sem í fæstum tilfellum séu efnd. Þau benda á að við mála- miðlun stjórnarmyndunar sé ekki óalgengt að helmingur kosninga- mála flokkanna sé strax settur til hliðar. Fólk viti því í raun aldrei hvað raunverulega er í boði og hafi engin tök á því að hafa áhrif þar á. Aðstæður á starfstíma stjórn- ar séu einnig þannig í eðli sínu, að önnur stefnumál víkja fyrir aðkallandi málum líðandi stund- ar. Hér kemur til hugmynd Lýð- ræðishreyfingarinnar um beint og milliliðalaust lýðræði. Í stuttu máli gengur hún út á að íslenskir ríkisborgarar geti sótt rafrænt almannaþing. Þar gæti fólk tekið þátt í að móta einstök mál, jafnvel lagt fram lagafrum- vörp og haft áhrif á forgangsröð- un á ákvörðunartöku alþingis- manna. Dæmi hefur verið tekið. Ef Lýðræðishreyfingin kæmi fulltrúa eða fulltrúum inn á þing þá yrðu það raddir fólksins. Þing- menn Lýðræðishreyfingarinnar myndu í raun vera framlenging á vilja fólksins; hver sem áhuga hefur greiðir atkvæði á rafræna þinginu og meirihlutavilji þeirra stjórnar hvernig þingmaður Lýð- ræðishreyfingarinnar beitir sér á þinginu. Þetta sér hreyfingin sem fyrsta skrefið að beinu lýð- ræði. Framtíðarsýnin er róttæk, þar sem kosningar framtíðarinnar um einstök mál fara fram í gegn- um hraðbanka. Markaðsskrifstofa Íslands Lýðræðishreyfingin leggur mikla áherslu á eina sértæka lausn til að leysa grunnvandann sem glímt er við. Markaðsskrifstofa fyrir Ísland er hugmynd þar sem 200 manna hópur yrði settur saman, til dæmis með að leita uppi hæfa einstaklinga sem nú eru á atvinnu- leysisskrá, til að vinna að mark- aðssetningu Íslands erlendis. Markmiðið er að fá til landsins nýja atvinnuvegi sem skapa fjöl- mörg ný störf og nýja tekjustofna. Lýðræðishreyfingin segir það ómögulegt að leggja nýja skatta á landsmenn; heimilin séu þrautpínd fyrir. Eins er stefnt að því fölskva- laust að sækja peninga útrásarvík- inganna svokölluðu. Framboðið heldur því fram að þessi yfirlýsta stefna standi þeim fyrir þrifum þar sem þeir sömu menn vinni að því að knésetja framboðið. Það kemur í ljós í dag hvort Lýð- ræðishreyfingin býður fram lista í öllum kjördæmum en landkjör- stjórn tekur þá til umfjöllunar meinta meinbugi á framboðslist- um hreyfingarinnar. FRÉTTASKÝRING: Alþingiskosningar 2009 Harðfiskur er hollur og góður, próteinríkur og fínn, en hann er dýr lúxusvara, enda þarf að þurrka um tíu kíló af fiski til að fá eitt kíló af harðfiski. Algengt kílóverð á harðfiski (ýsu) er um sex þúsund krónur. Þegar harðfiskur er seldur í litlum pakkn- ingum þarf að vera vel með á nótunum, því verð á litlum umbúðum vill rjúka upp. Nýjasta útspil Lata- bæjar í virðingarverðri tilraun til að efla heilsu- samlegt mataræði ungmenna er Latabæjar-harð- fiskurinn. Valborg skrifar: „Okur er eitt af því fyrsta sem mér datt í hug úti í Samkaupum í gær. Við kassann var búið að stilla upp rekka með pokum merktum Latabæ sem ég fór að skoða. Í þessum pokum voru fáeinir harðfiskbitar. Pokinn viktaði 20 grömm og kostaði 219 krónur, já 219 krónur fyrir 20 grömm! Reiknið þið nú út kílóverðið!“ Samkvæmt minni vasatölvu er það 10.950 krónur kíló- ið! Neytendur: Hátt kílóverð Latibær kominn í harðfiskinn ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is Reykjavík norður 1. sæti Þráinn Bertelsson, rithöfundur Reykjavík suður 1. sæti Birgitta Jónsdóttir, skáld Suðvesturkjördæmi 1. sæti Þór Saari, hagfræðingur Suðurkjördæmi 1. sæti Margrét Tryggvadóttir, myndritstjóri Norðvesturkjördæmi 1. sæti Gunnar Sigurðsson, leikstjóri Norðausturkjördæmi 1. sæti Herbert Sveinbjörnsson, kvikmyndagerðarmaður BORGARAHREYFINGIN FRÉTTASKÝRING SVAVAR HÁVARÐSSON svavar@frettabladid.is Milliliðalaust lýðræði Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí ka 2 0 0 8 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI Á STIGAGANGINN Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík - laugardaginn 18. apríl. Kl. 13:00 - Í Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7 • Opnun sýningar í Listasafni Íslands á verkum nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík. Verkin eru unnin í anda Magnúsar Pálssonar. Kl. 14 - 18 Í Myndlistaskólanum í Rvk., Hringbraut 121 • Nemendur skólans, 610 talsins, á aldrinum 3 - 85 ára sýna verk sín. • Nemendur á Myndlista- og hönnunarsviði sýna verkefni úr lokaáfanga. • Fjölmenntarhópur Myndlistaskólans sýnir afrakstur vetrarins. • Gestum boðið: - að búa til arkitektahatta - renna leir - skoða tengsl myndlistar og stærðfræði - og taka ljósmyndir með mörg hundruð ára gamalli aðferð. • 2.tölublað skólans af myndasögublaðinu AAA!!! með sögum eftir nemendur skólans. • Námskynning: Mótun leir og tengd efni, nýtt 2ja ára nám á háskólastigi Vorsýning www.myndlistaskolinn.is Hringbraut 121, (JL-Húsið) Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.