Fréttablaðið - 17.04.2009, Page 18

Fréttablaðið - 17.04.2009, Page 18
18 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 39 Velta: 115 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 223 -0,39% 655 -0,69% MESTA HÆKKUN MAREL FOOD SYST. 2,40% ATLANTIC AIRWAYS 1,46% MESTA LÆKKUN BAKKAVÖR 3,39% ÖSSUR 1,72% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic Airways 173,50 +1,46% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ... Bakkavör 1,14 -3,39% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 124,50 +0,00% ... Icelandair Group 5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 51,30 +2,40% ... Össur 91,60 -1,72% Fullnaðarútgáfa úttektar á verð- mati eigna sem fluttar voru úr gömlu bönkunum í þá nýju og úttekt á framkvæmd á vinnslu verðmats eigna bankanna liggur væntanlega fyrir í næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá Fjár- málaeftirlitinu (FME). „Deloitte LLP hefur lokið bráða- birgðaverðmati þeirra eigna sem fluttar voru út úr gömlu bönkun- um til að mynda efnahag Nýja Kaupþings banka, NBI og Íslands- banka. Samhliða vinnslu verð- matsins hefur Oliver Wyman yfirfarið framkvæmd þess fyrir hvern banka,“ segir í tilkynningu FME, en skýrslurnar skiptast í tvo hluta. „Í fyrri hluta er lýst aðferða- fræði og forsendum og birtar nið- urstöður sem lúta að því að verð- mæti eignanna sem fluttar voru úr bönkunum liggi á tilteknu verðbili. Í síðari hluta er að finna mat á ein- stökum eignum. Þessi hluti hefur að geyma viðkvæmar upplýsingar og er bundinn ríkum trúnaði.“ FME hefur jafnframt birt áætl- un um kynningu á skýrslunum og segir nauðsynlegt að upplýsing- ar um verðmat séu fyrst birtar samningsaðilum og þeim gefinn kostur á að taka afstöðu til þeirra. „Þegar samningar hafa náðst verð- ur samantekt á efni skýrslnanna gerð opinber. Í skýrslunum er meðal annars að finna viðkvæm- ar og verðmyndandi upplýsingar og því er ekki unnt að birta þær opinberlega að svo stöddu,“ segir á vef FME. - óká BANKARNIR Í apríllok funda samnings- aðilar vegna eignaskipta gömlu og nýju bankanna um tæknilega þætti í nýjum skýrslum. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND Lokið við bráðabirgðaverðmat eignaHagnaður Nokia á fyrsta fjórð-ungi þessa árs nemur ekki nema tíunda parti hagnaðar á sama tíma í fyrra. Félagið kynnti upp- gjör í gær, en tölurnar eru sagð- ar endurspegla minnkandi eftir- spurn eftir farsímum. Samkvæmt upplýsingum Nokia nemur hagnaður eftir skatta ekki nema 122 milljónum evra (um 20,6 milljörðum króna) samanborið við 1,2 milljarða evra (tæpa 203 millj- arða króna) á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Sala féll um 27 pró- sent; fór úr 12,7 milljörðum evra í fyrra í tæplega 9,3 milljarða evra nú. Á uppgjörskynningu Nokia í gær kom fram að farsímasala hefði dregist saman um 33 pró- sent milli ára. Í tilkynningu Nokia um upp- gjörið er haft eftir Olli-Pekka Kallasvuo, forstjóra félagsins, að rekstarumhverfið síðustu misseri hafi verið með eindæmum erfitt. „Við einbeitum okkur áfram að hvers kyns netþjónustu sem í boði verður á þeim fjölda þráðlausra tækja sem við höfum að bjóða, en þessar lausnir eru stoðirnar sem framtíðarvöxtur byggir á,“ segir hann. Félaginu hefur þó farnast betur en sumum samkeppnisfyrirtækj- um í heimskreppunni að því er fram kemur í frétt AP-frétta- stofunnar, þótt Nokia hafi einnig þurft að bregðast við minnkandi eftirspurn. Í mars tilkynnti félag- ið til dæmis um að 1.700 manns hefði verið sagt upp á starfsstöðv- um þess víða um heim. - óká Hagnaður Nokia hrynur Landic Property hf. hefur sótt um greiðslustöðvun fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur. Þá hafa nokkur dótturfélög Landic í Danmörku sótt um tímabundna greiðslustöðvun í Kaupmannahöfn. Félagið tilkynnti jafnframt í gær að sölu á dótturfé- lögum þess í Finnlandi væri lokið og skrifað hefði verið undir sam- komulag um sölu á dótturfélögum í Danmörku og Svíþjóð. Kaupandi er Trackside Holdings. Landic Property hf. var áður að mestu í eigu Stoða. Tekið er fram í tilkynningu á vef Landic Property í gær að rekst- ur dótturfélaga haldi áfram þrátt fyrir greiðslustöðvunina og að hún hafi ekki áhrif á leigutaka félags- ins á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. „Sótt er um greiðslu- stöðvun til þess að vernda hagsmuni allra kröfuhafa Landic Property á meðan lokið er við endurskipulagn- ingu félagsins og gengið frá sölu á eignum félagsins í Danmörku og Svíþjóð,“ segir í tilkynningunni. Að sölu lokinni einskorðast eignar- hlutur félagsins á fasteignamarkaði nær eingöngu við Ísland. Fram kemur að hér á landi gildi greiðslustöðvunin einungis fyrir móðurfélagið, Landic Property, en ekki dótturfélög. Í Danmörku hafa Landic Property A/S, Keops Devel- opment A/S, Landic Investment A/S og Keops Bolig A/S, auk nokkurra félaga sem stofnuð voru um einstök þróunarverkefni, sótt um greiðslu- stöðvun. - óká Selja eignir og sækja um greiðslustöðvun HÖFUÐSTÖÐVAR KEOPS Keops Develop- ment er meðal félaga sem sótt hafa um greiðslustöðvun í Danmörku. MYND/KEOPS Erlendis hafa tölvuþrjótar komist í aðgangsupplýsingar netbanka- notenda með notkun njósnaforrits að nafni Nadebanker. Í tilkynn- ingu Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) segir að ekki sé vitað til þess að hér á landi hafi orðið fjárhags- tjón vegna þessa. „En reynslan frá nágrannaríkjum Íslands kenn- ir að mikilvægt er að gæta fyllsta öryggis við netnotkun til að koma í veg fyrir slíkt,“ segir í tilkynn- ingunni. Nadebanker-forritið er í flokki svokallaðra Trójuhesta-forrita, en þau eru í flokki spilliforrita sem lauma sér gjarnan með öðrum hugbúnaði á netinu, stund- um sakleysislegum. . - óká SFF vara við NadebankerHverju hefði önnur mynt breytt? Spurningunni hér að ofan er kastað fram í nýjasta hefti Vísbendingar, vikurits um viðskipti og efnahagsmál. Þar er bent á staðreynd sem hefur viljað gleymast í umræðu um hrunið hér og hvernig það er hluti af alþjóðlegu fjármála- kreppunni. Nefnilega að kreppan sé dýpri hér og komi verr við almenning vegna þess að hér hrundi ekki bara fjármálakerfið, heldur krónan líka. „Íslendingar hafa árum saman keppst við að halda uppi sérstökum gjaldmiðli. Ekki er ljóst hvers vegna þetta er mörgum kappsmál en líklegast er þetta fyrst og fremst af þjóðernis- kennd,“ segir í Vísbendingu. Bent er á að tjónið af hruni krónunnar sé af öðrum ástæðum og mun meira en vegna falls bankanna. „Tjónið vegna þess að gjaldmiðillinn hrapaði er líklega nálægt þremur þúsundum milljarða fyrir heimili og fyrirtæki á árinu 2008.“ Samanburður við Finna Spurningunni um hverju önnur mynt hefði breytt segir Vísbending best svarað með því að bera saman tjón Íslendinga og Finna. „Báðar þjóðir verða fyrir áhrifum kreppunnar en tjón almenn- ings á Íslandi vegna gjaldmiðilsins er líklega á milli 70 og 80 prósent af heildartjóninu. Það kemur ofan á tapið af hlutabréfaverðfalli, tapi peningamarkaðssjóða, verðfalli á fasteignum og lækkun lífeyrisréttinda.“ Í töflu er bent á að í Finnlandi sé gengistjón ekkert en um 1.700 milljarðar króna hjá íslenskum fyrirtækjum og 350 milljarðar hjá heimilum landsins. Þá sé vísitölutjón finnskra heimila og fyrir- tækja ekkert á móti tjóni upp á 700 milljarða hér. Er þá ótalinn munur á stýrivöxt- um, 0,5 prósent þar, en 15,5 prósent hér, auk fleiri þátta. Peningaskápurinn ... KXF 250 2009 · Endurhannað stell, léttara og mjórra sem gerir akstur mun betri fyrir ökumann · Showa framdemparar með titanium-húðun · Endurbættur afturgaffall · Breiðari fótpedalar · Stór hlífðarpanna undir mótor KXF 450 2009 · Endurhannað stell, léttara og mjórra sem gerir akstur mun betri fyrir ökumann · 450cc mótor með beinni innspýtingu · Nýir og endurbættir framdemparar með demantshúðun · Endurbættur afturgaffall · Endurbættur afturdempari með 50mm stimpli · Breiðari fótpedalar · Stór hlífðarpanna undir mótorKROSSARARNIR ERU KOMNIR ÁRGER Ð 200 9 FRUM SÝND Í DAG Í NÍTRÓ REYKJ AVÍK OG N1 AKUR EYRI VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 REYKJAVÍK SÍMI 440 1220 WWW.NITRO.IS Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi, Akranesi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum og Höfn í Hornafirði. F í t o n / S Í A Dræm eftirspurn eftir áli hefur orðið til þess að birgð- ir hlaðast upp í heiminum. Álfyrirtæki bregðast við með því að draga úr fram- leiðslu. Flest álver eru rekin með tapi. Álbirgðir aukast enn í heiminum, að því er fram kemur í nýrri grein- ingu IFG Greiningar sem út kom í gær. „Birgðir hjá London Metal Exchange hafa aukist um nærri 50 prósent bara á þessu ári. Það skýrist af mjög dræmri eftir- spurn,“ segir í skýrslu greining- arfyrirtækisins. Ekki er útlit fyrir að eftirspurnin aukist fyrr en í fyrsta lagi undir lok þessa árs, segir þar jafnframt. „Til að birgða- söfnun minnki er því ljóst að fram- leiðendur þurfa enn að draga úr framleiðslu en talið er að álfram- leiðendur hafi dregið framleiðslu saman um 15 prósent.“ Áætlað er að í heiminum séu til birgðir af áli sem nægi til tveggja mánaða framleiðslu. Líkur eru taldar á að þetta sé varlegt mat því birgðir endist lengur þegar eftir- spurn er jafnlítil og nú. „Erlend- ir greinendur hafa nefnt að allt að 100 daga birgðir séu nú til, en við teljum að sú áætlun sé í hærri kantinum,“ segir í greiningunni. Þá er bent á að kínversk stjórn- völd hafi undanfarið keypt ál frá innlendum framleiðendum langt yfir markaðsverði og haldið þar með framleiðslu uppi, en mikl- ar birgðir muni hins vegar halda aftur af mögulegum verðhækkun- um á næstu mánuðum. Vitnað er til talna frá ráðgjafa- fyrirtækinu CRU um að meðal- framleiðslukostnaður áls sé um 1.450 Bandaríkjadalir hvert tonn og því ljóst að stór hluti álvera sé rekinn með tapi. „Reyndar hafa erlendir greinendur talað um að allt að 75 prósent álvera í heimin- um séu rekin með tapi miðað við núverandi verð.“ IFS Greining segir álverð nú undir verðinu um aldamótin, en verð á hráolíu hafi aftur á móti tvöfaldast. olikr@markadurinn .is Álbirgðir heimsins í sögulegu hámarki Í ÁLVERI ALCOA FJARÐAÁLS Á þessu ári er útlit fyrir fimm til tíu prósenta samdrátt eftirspurnar eftir áli í heiminum sam- kvæmt nýrri umfjöllun IFS Greiningar. MYND/HREINN MAGNÚSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.