Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 30
4 föstudagur 17. apríl núna ✽ alltaf á brettinu HVAR ER BEST AÐ FÁ SÉR MORG- UNMAT? Við Bondi Beach eru fjöldi kaffihúsa og veitingastaða sem opna snemma og loka seint. Klár- lega einn besti staðurinn til að dást að ströndinni og fylgjast með mann- lífinu. UPPÁHALDSVERSLUNIN? Oxford Street í Paddington-hverfinu er ein helsta verslunargata í borginni. Þá er Paddington-markað- urinn í sama hverfi en hann er alltaf á laugardög- um. Á Oxford Street eru líka margir skemmti- staðir og barir þar sem tilvalið er að gæða sér á bjór eða kokteil að verslunarleiðangri loknum. FÍNT ÚT AÐ BORÐA? Víða má finna góða veitingastaði í borginni. Þeir sem þora ættu að gæða sér á krókódílapitsu sem er alveg merki- lega góð. Slíka pitsu er meðal ann- ars hægt að fá á Australian Herit- age Hotel. BEST VIÐ BORGINA? Borgin er ótrúlega falleg og víða eru göngu- stígar og almenningsgarðar sem er gaman að sækja á góðviðrisdögum og þeir eru nú margir í borginni. Óp- eruhúsið og Sydney-brúin eru helstu kennileiti borgarinnar og hægt er að dást að þeim frá mörg- um stöðum. BEST AÐ EYÐA DEGINUM? Það er góð dagsferð að keyra upp til Blue Mountains sem er þjóðgarður utan borg- arinnar. Þá er tilvalið að kíkja í útibíó um kvöldið í St. George- útíbíóið en þaðan sést vel í átt að Óperuhús- inu og Sydney-brúnni. Bíóið er í Fleet Steps, Mrs Macquaries Point. Munið eftir teppi og veitingum. SYDNEY Brynja Dögg Friðriksdóttir blaðamaður Getur þú lýst þínum stíl? Minn stíll er hefðbundinn og stíl- hreinn en ég er mikið í dökkum fötum. Hvað dreymir þig um að eignast í sumar? Ég þarf að eignast fína strigaskó og þunnar ljósar kvart- buxur. Mér er alltaf heitt svo ég get ekki verið í svörtu í sólinni. Hvað keyptir þú þér síð- ast? Svartan Volcom-leður- jakka í New York. Annars fer ég ekki mikið til útlanda til að kaupa mér föt. Ég læt mömmu frekar um það þegar hún skellir sér í sína árlegu verslunarferð til Glasgow. Gamla er með þetta. Uppáhaldsverslun? Svenni vinur minn er verslunarstjóri í Dressmann svo ég versla mikið þar. Eins versla ég í Herragarð- inum og Jack&Jones og alls staðar svo lengi sem flíkin er flott. Uppáhaldsfata- merki? Ég á mér ekki eitthvert eitt uppáhalds. Ef fötin eru flott, fara mér og ég á pening þá kaupi ég þau. En merkin skipta máli ef spáð er í gæði. Eru einhver tískuslys í fatasa- kápnum þínum? Ekki lengur því ég var að henda afskaplega ljótum, hvítum Gap-jakka. Í hvað myndir þú aldrei fara? Spandexgalla. Notarðu skart? Eina skartið sem ég er með er Diesel-úr sem ég fékk í jólagjöf. Ég er með göt í báðum eyrum og var með mikið bling bling en ekki lengur. Eina skartið í framtíðinni verður líklega giftingarhringur- inn. Af hvaða líkamsparti ertu stoltastur og hvernig undir- strikar þú það með klæða- burði? Þá erum við aftur komin að spandexgallanum. Hvert er skuggalegasta fatatímabilið þitt? Í tíunda bekk í Árbæjarskóla þegar ég og Árni vinur minn tókum KISS- æði. Ég safnaði hári, var í rifn- um gallabuxum, hettupeysu og gallavesti yfir og geystist um Árbæinn á hlaupahjóli. 1 „Amma mín á Selfossi, Guðmunda Ólafsdóttir, prjónaði þessa eðalpeysu handa mér.“ 2 „Ég var staddur á Flórida þar sem þessi Armani-skyrta æpti á mig.“ 3 „Kúrekastígvélin hafa fylgt mér síðan árið 2003 og hafa ávallt staðið fyrir sínu, enda alltaf í tísku. Keypti þau ódýrt en þau hafa reynst hin besta fjárfest- ing.“ 4 „Ég nota belti við öll betri tækifæri.“ 5 „Diesel-úrið fékk ég í jólagjöf frá Friðriki Ómari og Ármanni og hefur það verið fast við mig síðan. Armani-úrið fékk ég frá foreldrum mínum fyrir að vera yndislegur sonur og Guess-úrið keypti ég af götusala í New York.“ 6 „Ég hringi inn jólin með bindinu. Ég set það upp á aðfangadag og tek það ekki niður fyrr en á þrettándanum.“ 7 „Ég vildi endilega fermast með glitrandi hanska eins og Michael Jackson gekk með en mamma þver- tók fyrir það. Ég keypti mér því þennan búning og lét á sama tíma aflita á mér hárið.“ 21 3 5 7 4 Arnar Jónsson söngvari: Færi ekki í spandexgalla 6 TÓNLEIKAR Á GRAND ROKKI Sprengjuhöllin er nýkomin úr ferðalagi um Norður-Ameríku þar sem hljómsveitin vakti mikla athygli. Hún kemur nú fram á tón- leikum ásamt hljómsveitinni Sin Fang Bous á Grand Rokki í kvöld. Tónleikarnir eru haldnir undir merkjum Grapevine og Gogoyoko og hefjast kl. 22.00. „Það er mjög mikið að gera hjá okkur og ég les það þannig að fólk er farið að meta og rækta heilsuna meira,“ segir Hafdís Jóns- dóttir eða Dísa í World Class eins og hún er oftast kölluð. Dísa telur að fólk spari heldur við sig í helgarferðum til útlanda og leyfi sér frekar að láta dekra við sig hér heima. „Viðskiptin eru að færast hingað heim og það er mjög mikið að gera hvort sem það er í einkaþjálfun, heilsurækt eða hvers kyns dekri. Fólk er að forgangsraða upp á nýtt og í staðinn fyrir að eyða pening- um í hluti hugsa nú fleiri um sjálfan sig og heilsuna enda mikilvæg á þessum tímum.” -iáh Hafdís Jónsdóttir í World Class: Líkamsræktaræði í kreppunni Mikið að gera „Ég les það þannig að fólk er farið að meta og rækta heilsuna meira,“ segir Dísa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.