Fréttablaðið - 17.04.2009, Side 33

Fréttablaðið - 17.04.2009, Side 33
17. apríl föstudagur 7 Stjörnumerki: Krabbi. Besti tími dagsins: Morguninn og nóttin. Draumafríið? Indland. Uppáhaldsversl- unin: Í augnablikinu eru það Nakti apinn og Tónastöðin. Áhrifavaldurinn? Náttúran, ástin, og lífið. Líkamsræktin: Jóga og hlaup. Ég lít mest upp til: Mömmu minnar og pabba. Uppáhaldsmat- urinn: Ræstur fiskur og garnatálg. Það er svipað og sig- inn fiskur og hamsatólg, en bragð- sterkara. Geisladiskurinn í spil- aranum: Raising sand, Robert Plant & Alison Krauss. Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara? Ég mundi sleppa fata- kaupum og að fara út að borða dýran mat. ELPA lands og fer í fjögurra vikna tón- leikaferðalag um Kanada. Eivör ferðast þó ekki aðeins um heim- inn í tengslum við tónlistina því hún stundar jóga og í fyrra fór hún til Indlands með íslenskum jógahóp. „Mig langaði að fara í ein- hverja svona ferð því mér finnst svo gott að stunda jóga. Við vorum í rúman mánuð, bjugg- um á hugleiðslusetri í litlum bæ og vorum á námskeiðum allan tímann svo þetta var engin túr- istaferð. Þetta var svona friðar- ferð sem var mjög góð fyrir sál- ina og mig langar mikið að fara aftur,“ segir Eivör sem undirbýr nú sína sjöttu plötu sem kemur út í október. „Ég er komin mjög stutt með plötuna og er að vinna hana með bandinu mínu. Hún er öðruvísi en það sem ég hef verið að gera hingað til, miklu hrárri. Ég vil samt ekki segja of mikið því ég veit að allt getur gerst í stúdíó- inu. Ég er svo dreymin að ég er alltaf að fá fullt af hugmyndum sem breytast svo daginn eftir,“ segir hún og brosir. „Ég ætla að taka upp í Færeyjum því ég hef aldrei tekið upp þar áður og ætla jafnvel að taka upp heima í hús- inu mínu því mig langar að hafa svona „læf-fíling“ í góðu rými og góðri stemningu,“ bætir hún við. Í bandi Eivarar er meðal annars kærasti hennar til tveggja ára, en hann er færeyskur og heitir Benjamin Petersen. „Við búum ekki saman, allavega ekki enn þá, en við kynntumst í gegnum tónlistina og hann spilar á gítar í bandinu mínu,“ útskýrir Eivör og vill lítið segja um framtíðar- áform sín þegar talið berst að fjölskyldu og barneignum. „Ég er mikið fyrir að lifa fyrir einn dag í einu og er rosalega ánægð með það sem ég hef. Ég á mjög erfitt með að plana fram- tíðina eða skipuleggja of langt fram í tímann, en ég get ímynd- að mér að það komi sá tími að maður vilji eignast börn og stofna fjölskyldu. Það er allavega ekki komið yfir mig enn og mér líður mjög vel með líf mitt eins og það er núna,“ segir Eivör og kveður með bros á vör. ✽ b ak v ið tj öl di n Frábært að hægt sé að bæta ástand liðanna með náttúrulegu efni Hvað getur NutriLenk gert fyrir þig? Með árunum rýrnar brjóskvefurinn sem veldur því að liðirnir slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin byrja að núast saman, sérstaklega í stóru liðamótum eins og í mjöðmum, hryggjar-og hnjáliðum. Þess vegna er allt tilvinnandi að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum. Vara ársins! NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki. NutriLenk var valið heilsuvara ársins 2004 í Noregi. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf-upplifðu breytinguna! NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum, Fræinu Fjarðarkaupum og stærri Hagkaupsverslunum. Liður með slitnum brjóskvef Heilbrigður liður Ég þurfti að fara í skurðaðgerð 1991, þar sem ég var með of löng liðbönd og var að smella úr lið í tíma og ótíma. Þannig að farið var að kvarnast upp úr liðbrjóskinu. Eftir aðgerðina minnkuðu verkirnir en hurfu ekki. Að ganga niður stiga og langar stöður ollu sárum verkjum. Starf mitt krefst þess að ég þarf að standa mikið og var það ekki auðvelt. Reyndi margt Ég hef reynt margar leiðir til að minnka verkina án þess að nota verkjalyf sem því miður dugðu ekki. Með árunum jukust verkirnir og útlitið var ekki bjart. NutriLenk til sölu á Íslandi Fyrir tæpu ári frétti ég af nýju bætiefni, NutriLenk, sem er vinsælt efni í Noregi og Svíþjóð, hjá fólki sem er með slitna og auma liði. Satt að segja var ég ekkert sérlega jákvæð á að NutriLenk gæti hjálpað mér frekar en margt annað en sló til, enda allt tilvinnandi. Byrjaðiá að taka inn 6 töflur á dag í tvær vikur samkvæmt ráðleggingum og eftir það 2 töflur á dag. Eftir 2-3 vikur fann ég greinilegan mun Já, það ótrúlega gerðist, ég fann greini- legan mun eftir 2-3 vikur á NutriLenk Nú tæpu ári seinna er ég nánast verkja- laus og einnig eru verkir vegna slits í fingrum horfnir. Ég tek nú inn 2 töflur af NutriLenk á dag og ég get sannarlega sagt að NutriLenk hefur gert kraftaverk fyrir mig. Það að standa við afgreiðslu, ganga niður brekkur og stiga er ekki stórmál lengur ... Ég horfi bjartsýn til framtíðar, NutriLenk er himnasending fyrir mig og frábært að það skuli vera hægt að bæta liðheilsuna með náttúrulegu efni segir Margrét að lokum. Mikilvægt er að annast sig vel allt lífið. Mjög nauðsynlegt er að neyta góðs kalks með D-vítamíni fyrir beinin. KOLOS er t.d. góður kostur, öflugt D-vítamín með kalki. 1 glas af KOLOS inniheldur 180 töflur sem er 6 mánaða skammtur og á góðu verði. Umboðsaðili: Gengur vel ehf., Fann mikinn mun innan 3ja vikna Margrét Óskarsdóttir NÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.