Fréttablaðið - 17.04.2009, Page 34
8 föstudagur 17. apríl
✽ sæt í sumar
útlit
V innandi kona í kreppunni þarf ekki að hafa mikið fyrir hár-
inu í vor og sumar,“ svarar Herdís
Sigurðardóttir hárgreiðslumeist-
ari spurð um hártískuna í vor og
sumar. Herdís starfaði í Sassoon-
hárakademíunni um árabil, en á
og rekur nú hárgreiðslustofuna
Sprey í Mosfellsbæ.
„Kærulaust viðmót er einkenn-
andi fyrir vor- og sumarlínu Sass-
oon sem kom út í febrúar og heitir
Blithe. Það er svolítið eins og þeir
hafi séð hrunið fyrir langt á undan
fólkinu í bönkunum því þeir hönn-
uðu línuna síðasta sumar og útlit-
ið á að virka fyrirhafnarlítið,“ út-
skýrir Herdís sem mun sjá um hár
og förðun fyrir Grease í Loftkast-
alanum í sumar, en fer til Parísar
í haust þar sem henni hefur verið
boðið að vinna á tískuvikunni þar
í borg.
„Sassoon leitaði mikið í klass-
ík eins og hönnuðina Calvin Klein
og Donnu Karan fyrir sumarlín-
una, en litir verða ekki
áberandi heldur fal-
legir og hreinir og allar
línur mjög hefðbundn-
ar, hvort sem hárið er
sítt eða stutt,“. - ag
V ið erum sex manna hópur sem höfum saman þróað þessa hug-
mynd í nokkurn tíma. Hugmyndin
kviknaði hjá Einari Thor þegar hann
velti fyrir sér hvað þyrfti til að ís-
lenskir hönnuðir ættu auðveldara
með að koma sér á framfæri á er-
lendum vettvangi, en Einar Thor er
hönnuður og starfrækir fyrirtæk-
ið Thors Hammer wristbands,“ segir
Supriya Sunneva Kolandavelu, al-
mannatengill Icelandic-Collection.
com.
„Markmið Icelandic-collection.
com er að safna saman íslenskum
hönnuðum og listamönnum og búa
til kraftmikla sölusíðu fyrir erlend-
an markað. Í stað þess að kaupa
vörur inn í heildsölu og eiga það á
hættu að sitja uppi með stóran lager
af vörum, þá höfum ákveðið að taka 15 prósent fyrir hverja
selda vöru og er sú upphæð notuð til frekari markaðssetningar
á vörum viðkomandi,“ segir Supriya. Hópur út-
skriftarnema í margmiðlunarhönnun við Cop-
enhagen Technical Academy í Kaupmanna-
höfn vinnur nú að síðunni sem lokaverkefni
og gefa allir vinnu sína. „Síðan verður opnuð
formlega í maí og við erum komin með góðan
hóp af hönnuðum, svo sem Emami, Volcano
Design, Lykkjufall og Heba-clothing, en á síð-
unni verða bæði föt, skart og alls konar
aukahlutir. Sölusíðan er ekki hugs-
uð sem gróðamaskína fyrir eig-
endur hennar heldur er mark-
mið okkar að kynna íslenska
hönnun fyrir heiminum
og gera Ísland best í heimi
enn og aftur. Við látum ekki
kreppuna stoppa okkur í því og
erum ákveðin í að gera síðuna að
stærstu sölusíðu sinnar tegundar sem
hefur komið frá Íslandi,“ segir Supriya.
„Allar ábendingar um efnilega hönn-
uði sem hafa áhuga á að taka þátt í
þessu spennandi verkefni með okkur
eru vel þegnar á sales@icelandic-coll-
ection.com,“
Alternative care línan frá Sea Of Spa er byggð á vísindalegri blöndu náttúrulegra
steinefna, A og B vítamína, jurta „extract“ og ilmolía. Þessi blanda skapar fullkomið
jafnvægi, verndar húðina gegn hverskyns umhverfisáhrifum og gefur hraustlegt útlit.
Black Pearl vörurnar sporna við öldrun húðarinnar og viðhalda teygjanleika hennar,
en þær innihalda meðal annars steinefni og sjávarþang úr Dauðahafinu sem eru lykil-
atriði.
Alternative care og Black Pearl kremin og húðvörurnar henta öllum, ekki síst þeim
sem fást við þurrk, exem eða önnur húðvandamál. Andlitskremin gefa mjög góðan
raka og því er gott að nota þau undir farða. Kremin hafa verið ófáanleg um þó nokk-
urt skeið, en eru nýkomin aftur svo nú er um að gera að prófa gæðakrem á góðu verði
í Pier.
Snyrtivörur úr Dauðahafinu í Pier
NEGLURNAR Í LAG Ef þér leiðist hvað naglalakkið endist illa og flagnar fljótt af nöglunum
er Chip Skip frá OPI lausnin. Berðu eina umferð á áður en þú lakkar neglurnar með þínum uppá-
haldslit og naglalakkið mun endast miklu lengur. Maintenance Nail Envy er önnur sniðug for-
múla frá OPI sem hentar þeim vel sem vilja viðhalda styrkleika naglanna svo þær brotni ekki við
minnsta álag.
Það nýjasta í hártískunni í vor og sumar:
FYRIRHAFNA RLÍTIÐ
OG KÆRULEYSISLEGT
Kæruleysislegt Her-
dís segir kæruleysislegt
útlit einkenna hártísk-
una í vor og sumar.
Koma íslenskri hönnun á framfæri erlendis:
Stofna sölusíðu
Hefðbundið Allar línur
verða mjög hefðbundnar í
vor og sumar að sögn Her-
dísar.
Stutt Herdís segir hefð-
bundnar línur og hreina liti
verða vinsælt í vor og haust.
Flott Vörur frá Volcano Design
munu fást á sölusíðunni.
Fjölbreytt Hönn-
un Emami mun meðal
annars fást á iceland-
ic-collection.com
Rökkvið Hönnun Söru Berndsen verður
meðal annars til sölu á síðunni.
- ag