Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 38
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
2
5
17. APRÍL 2009
Get leyft mér að
sleppa næstum því
öllum fréttum þann
daginn, sem er
afar hollt á þessum
tímum.
FRÁBÆR
FÖSTUDAGUR
Kolbrún Björnsdóttir
útvarpskona
„Heiðrún Lind Marteinsdóttir lög-
fræðingur ef fædd 03.07.1979
sem hefur útkomuna 36 sem
gera níu. Talan níu er ein besta
talan að mínu mati í talnaspek-
inni og ef ég ætti að óska mér að
vera einhver sérstök tala yrði níu fyrir valinu. Þeir sem
eru það heppnir að hafa þessa tölu í kortinu sínu hafa
þann hæfileika að geta lagað sig að öllum aðstæðum
sem koma upp hverju sinni.
Níurnar eru sérstaklega val fallnar til þess að hugsa
um, vernda og bjarga fólki og þar fer Heiðrún Lind
fremst í flokki. Heiðrún er ábyrgðarfull par excellence
og vinnuþjarkur mikill. Sá sem er undir hennar umsjón
getur andað rólega og hver sá sem ræður hana í vinnu
getur hvílt sig. Heiðrún er að fara á árstöluna 3 sem
segir að hún á að taka meiri áhættu og vera eins sýni-
leg og mögulegt er því þá munu ótrúlegustu hlutir ger-
ast í hennar lífi.
Ég get ekki betur séð en að næstu sautján mánuðir
breyti gjörsamlega lífi Heiðarúnar en hún á eftir að
vera mikið í umræðunni og taka afgerandi afstöðu til
mikilvægra mála. Heiðrún hefur allt til að bera og er
kvenljómi Íslands og langfærasti kvenlögfræðingur
þessa lands. Karlmenn eiga eftir að dansa í kring-
um hana en mér sýnist að Heiðrún verði dálít-
ið vandlát þetta árið svo það verða ekki margir
sem smjúga inn um nálaraugað og að hjartastað
heimasætunnar. Í framtíðinni sé ég Heiðrúnu búa
á fallegum stað í Vesturbænum með tvö hress og
kát börn og ljúfan, skemmtilegan og listfengan
mann sér við hlið. Til hamingju Heiðrún Lind, þetta
er hamingjulíf.
KLINGENBERG SPÁIR
Heiðrún Lind Marteinsdóttir lögfræðingur
Ég fæ yfirleitt uppáhalds-
pitsuna mína á föstudögum,
gerða í eldhúsinu af Árna
mínum.
Ég fer yfirleitt skellihlæjandi
úr útsendingu á föstudags-
morgnum eftir fíflaskap með
strákunum. Það er magnað
hvað það að hlæja kallar fram
góðar tilfinningar.
1
Vissan um það að ég geti
sofið út daginn eftir. Ofboðs-
lega notalegt að vakna ekki
við vekjaraklukkuna þó svo ég
sofi aldrei lengi.
4
3Vissan um að geta farið seint að sofa án samviskubits. Sam-viskubitið gerir það að verkum að ég er lengur að sofna.