Fréttablaðið - 17.04.2009, Page 43

Fréttablaðið - 17.04.2009, Page 43
FÖSTUDAGUR 17. apríl 2009 27 UMRÆÐAN Stefán Benediktsson skrifar um Evrópumál Kynþokki krónunnar er orðinn álíka mik- ill og ósoðins sláturs og því fær ekkert breytt. Samfélag okkar á ekki að þurfa að færa þær fórnir sem það kostar að vera með eigin mynt. Þessar fórnir munu verða enn meiri nú eftir að krónan hefur misst mannorðið. Afturbatapíku- krónur eiga aldrei eftir að freista nokkurs manns. Undanfarið hefur bergmálað í eyrum okkar að innganga í Evr- ópusambandið og myntbandalag Evrópu sé engin lausn af því að hún geti ekki virkað nógu hratt, sé „ekki skyndilausn“. Ekki veit ég hvernig fólk sem talar svona lifir lífinu eða hefur samskipti. Hafnar það öllum lausnum, nema skyndilausnum? Pantar það aldrei flugmiða, leikhúsmiða eða steypu? Hefur það aldrei skap- að nýja framtíð, verið á leiðinni í leikhús, ferða- lag eða steypuvinnu, í stað þess að gera ekki neitt? Skyndilausnir eiga við í matargerð en ekki til að reka samfélag. „Viltu krónu, manni?“ eða „viltu evru, manni?“ Menn eiga ekki erfitt að velja í dag og mér segir svo hugur að fáir sjái fram á að þeir velji einhvern tíma krónu fram yfir evru. Kannski finn- ast svo þjóðhollir menn í dag að þeir taki frekar krónuna en jafn- vel þeir hljóta að gera sér grein fyrir því að öngvir munu vilja skipta á henni og evru nema á undirmálsverði því það er krón- an orðin; undirmálsgjald miðill. Við munum aldrei aftur geta sagt „viltu jöklabréf manni“ því krón- an mun aldrei öðlast traust aftur í alþjóðaviðskiptum. Hún getur styrkst en hún verður alltaf lögð í einelti á einn veg eða annan. Hún verður alltaf veikburða leik- soppur, keypt eða seld eftir því hvernig gengið er þennan eða hinn daginn. Hún mun bara við- halda óstöðugleika. Viljum við ekki búa við lægra verðlag, hærri laun, lægri skatta, lægri vexti og hærra þjónustustig en við búum við núna? Að ég tali nú ekki um líf án verðbólgu. Á fjölskylda okkar það ekki skilið að geta notað laun sín án þess að verðbólga skerði þau um 25%? Þá er ég ekki farinn að minnast á verðtrygginguna. Innan fárra daga kjósum við milli flokka sem vilja krónu með háum vöxtum og verðlagi ásamt lágum launum, lágu þjónustustigi, verðbólgu, gjaldeyrishöftum og þeirri afsiðun sem því fylgir eða þeirra sem vilja vera aðili Evr- ópusambandinu, nota evru, búa á einu verðlags- og þjónustusvæði án hafta í samstarfi við ríki sem hafa gert það að markmiði sínu að auka jöfnuð í sínum heimshluta í þágu friðar. Það gleymist of oft að ESB eru 500 milljón manna friðarsamtök. Kæru stjórnmála- menn! Ekki eyða tímanum í að telja okkur trú um að krónan sé okkar framtíðargjaldmiðill. Ekki eyða tímanum í að telja okkur trú um að Seðlabanki Íslands sé betri vörn gegn sveiflum á pen- ingamarkaði en Seðlabanki Evr- ópu. Ekki eyða tímanum í að telja okkur trú um að íslenskt lýðræði sé betra en evrópskt lýðræði. Fréttirnar segja okkur allt annað. Ekki gera ekki neitt. Höfundur er arkitekt. Viltu krónu, manni? STEFÁN BENEDIKTSSON www.eirberg.is • 569 3100 Stórhöfða 25 Í Prisma sameinast skólarnir um fjölbreytt nám sem byggir á skapandi og gagnrýninni hugsun og nýtir sér aðferðafræði lista og heimspeki. Prisma er nýtt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna.Hjálpaðu umhverfinu með Blaðberanum Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn...

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.