Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.04.2009, Qupperneq 53

Fréttablaðið - 17.04.2009, Qupperneq 53
FÖSTUDAGUR 17. apríl 2009 37 Rapparinn Eminem segir að hann hafi verið svo háður eiturlyfjum að það hafi komið niður á tónlistarferli hans. Hann hafi ekki getað samið ný lög í þrjú ár vegna þessa. „Ég var bara ekki í réttu tilfinninga- ástandi. Ég var ekki tilbúinn til að hætta að neyta eiturlyfja. Mér fannst ég ekki eiga við vandamál að stríða,“ segir Eminem, sem kennir misheppnaðri meðferð um hversu langan tíma hann var að átta sig á hlut- unum. „Þetta var ósköp einfald- lega þannig að ég fór inn og kom út aftur,“ segir rapp- arinn um meðferðina. „Þetta versnaði og ég átti í vandræðum með eiturlyfin næstu þrjú ár á eftir. Á þeim tíma- punkti langaði mig að draga mig út úr þessu því eiturlyfjafíknin var svo slæm. Ég fann að ef ég tæki mér pásu þá myndi það hjálpa,“ segir hann. Í viðtali við hiphop-tímaritið XXL talar Eminem um nýja plötu sína. Hann segir jafnframt að dauði vinar síns, rapparans Proofs, hafi ýtt undir eit- urlyfjanotkun sína. „Það var erfitt fyrir mig og ég sá bara svart fram undan. Og eftir því sem ég neytti meiri eitur- lyfja, þeim mun þunglyndari varð ég og ósáttari við sjálfan mig.“ Eminem talar um dópneysluna EMINEM Hefur eytt síðustu þremur árum í dópneyslu og volæði. Hann segist nú vera kominn aftur á réttan kjöl. NORDICPHOTOS/GETTY Breski popparinn Robbie Williams hefur ráðið Murray Chalmers til að hjálpa sér við kynningu á nýrri plötu sinni. Chalmers þessi hefur unnið með stórstjörnum á borð við Radiohead, Lily Allen, Yoko Ono og Pet Shop Boys og þykir snillingur í að láta skjólstæðinga sína koma vel fyrir. Robbie vinnur nú að áttundu plötu sinni og þarf á góðu umtali að halda eftir að síð- asta plata floppaði og honum mistókst að skapa sér nafn í Bandaríkjunum. Hann hefur rekið kynningarteymi sitt til síð- ustu fimm ára. „Hann er ákveðinn í að fá fyrirtæki sem sérhæfir sig í tónlist en ekki í frægðarleik,“ segir heimildar maður The Sun. Robbie bætir ímynd sína NÝR MAÐUR Robbie Williams reynir að bæta ímynd sína. Nú vill hann ekki vera skemmtana- glaður piparsveinn heldur tónlistarmaður sem taka skal alvarlega. NORDICPHOTOS/GETTY Pabbi leikkonunnar Jessicu Biel hefur nú tjáð sig um samband dóttur sinnar og tónlistarmanns- ins Justins Timberlake. Pabbi gamli, Stephen Collins, segist reyndar ekki vita mikið um ásta- mál dóttur sinnar, en sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um að þau Timberlake muni gifta sig í sumar. „Ég hafði ekki heyrt af því, en það þarf ekki að koma á óvart, ekki vissi ég þegar þau byrjuðu að vera saman fyrir tveimur árum,“ segir Collins. Pabbi gamli segist hafa hitt Jessicu fyrir nokkrum vikum og hún hafi virst afar ánægð. „Það myndi því ekki koma mér á óvart ef þau væru trúlofuð, Justin virðist vera hinn vænsti drengur.“ Sterkur orðrómur um brúðkaup Meðlimir sænsku poppsveitar- innar Roxette eiga nú í viðræðum um að snúa aftur. Roxette, sem sendi frá sér ódauðlega smelli á borð við Listen to Your Heart, hætti störfum árið 2002 eftir að söngkonan Marie Fredriksson greindist með heilaæxli. Fred- riksson sneri stuttlega aftur árið 2004 með félaga sínum Per Gessle til að fagna 25 ára afmæli Roxette. Nú er aftur á móti útlit fyrir að sveitin snúi aftur með látum. „Ég held að það verði af þessu, með einum eða öðrum hætti. Ég veit ekki hvort við förum í tón- leikaferðalag en við munum gera eitthvað saman. Við eigum bara eftir að sjá hvað Marie treystir sér í,“ segir Per Gessle. Roxette hyggur á endurkomu ROXETTE SNÝR AFTUR Marie Fredriksson og Per Gessle ætla að trylla poppheim- inn að nýju. NORDICPHOTOS/GETTY ÁSTFANGIN Leik- konan Jessica Biel er yfir sig ástfangin af Justin Timber- lake. Sterkur orðrómur er á kreiki um að þau muni ganga í hjónaband í sumar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.