Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 56
40 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Úrslitakeppni N1-deildar Valur-HK 25-19 (10-7) Mörk Vals (skot): Fannar Þór Friðgeirsson 11/2 (16/3), Arnór Þór Gunnarsson 7/3 (11/3), Sigurður Eggertsson 3 (8), Ingvar Árnason 2 (5), Orri Freyr Gíslason 1 (1), Heimir Örn Árnason 1 (4), Elvar Friðriksson 0 (3), Sigfús Páll Sigfússon 0 (2). Varin skot: Ólafur Haukur Gíslason 14/2 (32/5, 44%), Pálmar Pétursson 0 (1/1) Hraðaupphlaup: 2 (Fannar 2). Utan vallar: 6 mínútur Mörk HK (skot): Valdimar Fannar Þórsson 5/2 (15/3), Gunnar Steinn Jónsson 3/3 (7/4), Ólafur Bjarki Ragnarsson 3 (7), Ragnar Snær Njálsson 3 (4), Már Þórarinsson 2 (2), Ragnar Hjaltested 1 (3), Einar Ingi Hrafnsson 1 (1), Sigurgeir Árni Ægisson 1 (2), Ásbjörn Stefánsson 0 (2), Brynjar Hreggviðsson 0 (1). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 3 (12/2, 30%), Björn Ingi Friðþjófsson 6 (22/2, 27%) Hraðaupphlaup: 2 (Ragnar, Ólafur) Utan vallar: 6 mínútur Staðan er 1-0 fyrir Val og þeir komast í lokaúrslitin með því að vinna leik tvö í Digranesi á mánudaginn. Úrslitakeppni N1-deildar Haukar – Fram 28-32 (16-11) Mörk Hauka: Andri Stefan 8 (17), Kári Kristján Kristjánsson 5 (6), Sigurbergur Sveinsson 5 (14/2), Elías Már Halldórsson 4 (6), Einar Örn Jónsson 3 (3), Freyr Brynjarsson 2 (5), Gunnar Berg Viktorsson 1 (4) Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 17 (44/4 38,6%), Gísli Guðmundsson (5/1 0%) Hraðaupphlaup: 9 (Andri 4, Elías 2, Freyr, Sigur bergur, Einar) Fiskuð víti: 2 (Kári, Einar). Utan vallar: 8 mínútur Mörk Fram: Rúnar Kárason 9/5 (14/5), Magnús Stefánsson 6 (14), Jóhann Gunnar Einarsson 4 (4), Haraldur Þorvarðarson 3 (3), Stefán Baldvin Stefánsson 3 (4), Andri Berg Haraldsson 3 (7), Guðjón Finnur Drengsson 2 (4), Brjánn Guðni Bjarnason 1 (1), Jóhann Karl Reynisson 1 (1), Guðmundur Hermannsson (1) Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 5 (18 27,8%), Davíð Svansson 16 (31 51,6%) Hraðaupphlaup: 5 (Stefán 2, Brjánn, Jóhann Gunnar, Rúnar) Fiskuð víti: 5 (Brjánn 2, Andri, Stefán, Magnús) Utan vallar: 6 mínútur Staðan er 1-0 fyrir Fram og þeir komast í lokaúrslitin með því að vinna leik tvö í Safamýri á mánudaginn. UEFA-bikarkeppnin Dynamo Kiev - PSG 3-0 Udinese - Werder Bremen 3-3 1-0 Gokhan Inler (15.), 1-1 Diego (28.), 2-1 Fabio Quagliarella (30.), 3-1 Fabio Quagliarella (38.), 3-2 Diego (60.), 3-3 Claudio Pizarro (73.) Marseille - Shakhtar Donetsk 1-2 Manchester City - Hamburger SV 2-1 0-1 Paolo Guerrero (12.), 1-1 Elano (17.), 2-1 Felipe Caicedo (50.). Undanúrslitin eru klár annars vegar mætast þýsku liðin Werder Bremen og Hamburger SV og hins vegar úkraínsku liðin Dynamo Kiev og Shakhtar Donetsk Sænska úrvalsdeildin Helsingborg - Hammarby 1-0 Trelleborg - GAIS 3-0 Eyjólfur Héðinsson (74. mín) og Guðmundur Reynir Gunnarsson (57. mín) komu báðir inn á sem varamenn, Guðjón Baldvinsson sat á bekkn um og Hallgrímur Jónasson var ekki í hópnum. Elfsborg - Kalmar 1-1 Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn aftarlega á miðjunni hjá Elfsborg ÚRSLIT > Þórir tekur við besta liði heims Þórir Hergeirsson, 45 ára Íslendingur, tók í gær við norska kvennalandsliðinu í handbolta af hinni sigursælu Marit Breivik sem var búin að vera með liðið í fimmtán ár. Þórir var búinn að vera aðstoðarmaður hennar frá árinu 2001. Norska kvennalandsliðið vann Ólympíugull og Evrópumeistaratitil á síðasta ári og er besta hand- boltalandslið heims þessa dagana. Fram undan er HM í Kína í árslok. Það er mikil viðurkenning fyrir Þóri að fá starfið en hann hefur verið orðaður við það í langan tíma. Þórir hefur verið duglegur að bæta við sig menntun og er nú lærðasti handboltaþjálfarinn í Noregi, þar sem hann hefur verið búsettur frá árinu 1986. HANDBOLTI Heimavöllurinn hefur reynst Valsmönnum vel í N1 deild- inni í vetur og á því varð engin breyting í gær þegar liðið tók á móti HK í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni. Valsmenn unnu öruggan 25-19 sigur og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í næsta leik. Stemningin var góð í Vodafon- ehöllinni í gær þar sem ríflega 700 áhorfendur voru mættir til að hvetja sína menn og þar voru Kópavogsbúar heimamönnum engir eftirbátar. Jafnræði var með liðunum framan af leik, en í stöð- unni 3-3 sigu Valsmenn fram úr og litu ekki til baka eftir það. Ólafur Haukur góður í markinu Það var ekki síst að þakka mark- verðinum Ólafi Hauki Gíslasyni, sem varði eins og berserkur allan leikinn. Valur hafði yfir í hálfleik 10-7 og eins og sjá má á marka- skoruninni, var hér ekki um neinn sirkusleik að ræða. „Þetta var ekta leikur í úrslita- keppni með góðar varnir á báðum endum vallarins,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals við Fréttablaðið eftir leikinn. Valsliðið hafði áfram undirtök- in allan síðari hálfleikinn og var þremur til fimm mörkum yfir allt til loka. HK hefði með smá heppni geta komist inn í leikinn, en liðið kastaði boltanum á stund- um klaufalega frá sér og of marg- ar sóknir HK staðnæmdust á Ólafi í marki Vals. Mistökin voru dýr „Það sem mér fannst skilja að í dag var að þeir voru með betri markvörslu. Óli átti auðvitað stór- leik í dag, en svo vorum við að gera fimm eða sex klaufamistök þar sem við köstuðum boltanum frá okkur. Það er bara svo dýrt í svona leik. Þeir voru bara með hausinn í lagi, en ekki við. Þetta var bara ein orusta en stríðið er ekki búið. Við vinnum næsta leik á heimavelli og komum svo hing- að og klárum þetta,“ sagði Sverre Jakobsson, leikmaður HK. Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals var að vonum ánægður með sína menn. „Ólafur var að verja mjög vel hjá okkur og Fannar var mjög góður í sókninni. Fannar var hjartað í liðinu hjá okkur, hann vann mikilvæga bolta og er mikill stríðsmaður,“ sagði Óskar Bjarni sem taldi sigurinn aldrei hafa verið í hættu. Alltaf skrefi á undan þeim „Mér fannst við alltaf vera hálfu skrefi á undan þeim og fannst við alltaf eiga auðveldara með að koma okkur í gegn. Við eigum líka leik- menn inni,“ sagði Óskar Bjarni. Valsmenn geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu með því að vinna næsta leik í Digranesi á mánudags- kvöldið. „Nú er bara líf og dauði aftur í Digranesinu í næsta leik. Maður verður alltaf að taka leik á útivelli ef maður ætlar að verða meist- ari og nú er það næsta verkefni á dagskrá hjá okkur,” sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. baldur@365.is Öruggt hjá Val Valsmenn tóku 1-0 forystu gegn HK í einvígi liðanna í úrslitakeppni N1 deildarinnar sem hófst í gær. FRÁBÆR Í GÆR Fannar Þór Friðgeirsson átti mjög góðan leik með Val gegn HK í gær og hér hefur hann sloppið framhjá Sverre Jakobssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÓSIGRAÐIR Valsliðið hefur ekki tapað leik á heimavelli undir stjórn Óskars Bjarna Óskarssonar í allan vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fram gerði sér lítið fyrir og lagði Íslands- og deildarmeistara Hauka í fyrsta leik í undanúrslitum N1 úrslitakeppninnar, 32- 28, eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik, 16-11. Fram hóf leikinn vel og komst í 3-0 en missti dampinn þegar tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum og Haukar gengu á lagið og náðu öruggri forystu. Það voru ekki margir sem bjuggust við því að Fram kæmist inn í leikinn á ný. „Við dettum allt of oft svona niður og það er eitthvað sem við þurfum að hætta að gera. En það var frábært að rífa sig svona upp eftir að lenda undir í hálfleik gegn Haukum. Það vinna ekki hverjir sem er hálfleik með níu mörkum gegn Haukum,“ sagði Davíð Svansson sem var frábær eftir að hann kom inn á undir lok fyrri hálfleiks en hann sá til þess að forskot Hauka væri ekki enn meira í hálfleik. Síðari hálfleikur var eign Fram sem var sterkara á öllum svið- um leiksins. Vörn liðsins var gríðarsterk og liðið átti greiðan aðgang í gegnum vörn Hauka sem hefur verið mjög sterk síðustu mánuði en ljóst að Framarar unnu heimavinnuna sína vel því liðið átti aldrei í vandræðum í sóknarleiknum í síðari hálfleik og vann að lokum sanngjarnan og nokkuð öruggan sigur. „Seinni hálfleikur var frábær. Við spiluðum frábæra vörn á kafla í síðari hálfleik og það var oft auðvelt að vera í mark- inu fyrir aftan þessa vörn,“ sagði Davíð. Viggó Sigurðsson þjálfari Fram tók út leikbann en Davíð hældi þjálfara sínum fyrir frábæran undirbúning. „Hann var búinn að undirbúa okkur vel. Við höfum æft stíft fyrir þessa leiki. Þeir eru þvílíkt góðir, sterkir og grófir.“ Davíð varði yfir helming skota Hauka sem rötuðu á markið og mörg þeirra úr dauða- færum. „Ég er sáttur. Hef æft vel og upp- sker eftir því. Við markverðirnir höfum legið yfir skotunum hjá Haukum og vitum hvar þeir skjóta helst. Við skiluðum okkar í dag.“„Ég kom aðeins inná í fyrri hálfeik og hitaði svo vel upp í hálfleiknum og var klár í seinni hálfleikinn. Það gerði gæfumuninn,“ sagði kátur Davíð Svansson í leikslok. -gmi FRAMARINN DAVÍÐ SVANSSON: KOM Í MARK FRAM OG GJÖRBREYTTI LEIKNUM Á MÓTI HAUKUM Í GÆR: Viggó var búinn að undirbúa okkur vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.