Fréttablaðið - 17.04.2009, Qupperneq 58
42 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Dwyane Wade, leik-
maður Miami Heat, varð stiga-
hæsti leikmaður NBA-deildar-
innar í vetur en hann skoraði 30,2
stig að meðaltali í 79 leikjum á
tímabilinu. Miami leyfði sér að
hvíla Wade í lokaleikjunum en
hann gulltryggði sér titilinn með
því að skora 55 stig í sínum síð-
asta leik á tímabilinu.
Stigakóngar síðustu tveggja
tímabila, LeBron James (30,0
- 2007-08) og Kobe Bryant (31,6
- 2006-07), komu í næstu sætum
á eftir Wade. James skoraði núna
28,4 stig í leik og Kobe var með
26,8 stig en í 4. sæti kom síðan
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki. - óój
NBA-deildarkeppnin í vetur:
Wade varð
stigakóngur
FRÁBÆRT TÍMABIL Dwyane Wade fékk
að hvíla sig í lokaleikjunum eftir að
hann var öruggur. NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Kevin Garnett verður
líklega ekki með NBA-meisturum
Boston Celtics í titilvörninni í
úrslitakeppni NBA sem hefst um
helgina. Það er að minnsta kosti
ljóst að hann verður ekki með í
fyrstu leikjunum.
„Hann verður ekki klár það
sá ég eftir að hafa horft á hann
á æfingu,“ sagði Doc Rivers,
þjálfari Boston í gær. Garnett
var einn aðalmaðurinn á bak við
sigur Boston í fyrra enda sann-
kallaður andlegur leiðtogi liðsins.
Hann er með 15,8 stig og 8,5 frá-
köst á leik með Boston í vetur.
Garnett meiddist á hægra hné
19. febrúar síðastliðinn og missti
af næstu þrettán leikjum. Hann
kom aftur til leiks og spilaði í
fjórum leikjum en aldrei í meira
en 18 mínútur. Rivers ákvað þá að
hvíla hann fyrir lokabaráttuna en
Garnett hefur lítið lagast.
„Ef hann getur ekki hjólað eða
hreyft sig án þess að bólgna upp
þá sé ég ekki hvernig hann á að
geta verið með í úrslitakeppn-
inni,“ sagði Rivers. -óój
Áfall fyrir meistara Boston:
Garnett úr leik
HNÉÐ BÓLGNAR ALLTAF UPP Kevin Gar-
nett er líklega úr leik. NORDICPHOTOS/GETTY
Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18
VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR
Sími: 561-4114
Frá 9. apríl til 3. maí
G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M T Ó N L I S TA R
R O K K - P O P P - K L A S S Í K - B L Ú S - K Á N T R Ý - S LÖ K U N A R T Ó N L I S T- Þ Ý S K , S K A N D I N AV Í S K O G Í R S K T Ó N L I S T
O G A Ð S J Á L F S Ö G Ð U A L L I R N Ý J U S T U T I T L A R N I R Á B ET R A V E R Ð I E N Þ Ú ÁT T A Ð V E N J A S T
KÖRFUBOLTI Deildarkeppni NBA
lauk í fyrrinótt og fyrir lokaum-
ferðina var ljóst hvaða sextán lið
kæmust í úrslitakeppnina en ekki
hver myndu mætast.
Lokaumferðin bauð upp á svipt-
ingar og engar meiri en fyrir lið
San Antonio, New Orleans og
Houston. Öll þessu lið áttu mögu-
leika á að vinna Suðvesturdeild-
ina og tryggja sér heimavallarrétt
í fyrstu umferð og þau tvö síðar-
nefndu voru bæði í góðum málum
þegar skammt var til leiksloka.
Það voru hins vegar gömlu refirnir
í San Antonio sem stóðu uppi sem
sigurvegarar.
Michael Finley var hetja San
Antonio Spurs, sem var á góðri leið
að byrja úrslitakeppnina á útivelli
í fyrsta sinn síðan á nýliðatímabili
Tim Duncan árið 1998. San An-
tonio mætti New Orleans, sem var
fimm stigum yfir þegar aðeins 47,6
sekúndur voru eftir. Spurs náði að
minnka muninn í þrjú stig og Fin-
ley tryggði Spurs framlengingu
með þriggja stiga körfu um leið
og klukkan rann út. Tim Duncan
fór síðan mikinn í framlenging-
unni og San Antonio vann 105-98
og tryggði sér sigur í Suðvestur-
deildinni og 3. sætið inn í úrslita-
keppnina. New Orleans datt hins
vegar alla leið niður í 7. sætið og
mætir Denver í fyrstu umferð.
Houston Rockets var með 14
stiga forskot á móti Dallas í upp-
hafi seinni hálfleiks en sigur hefði
skilað liðinu fyrsta deildartitlinum
í fimmtán ár og möguleika á að
koma í 2. sæti inn í úrslitakeppn-
ina. Dallas náði hins vegar að snúa
leiknum sér í vil og vinna 95-84,
ekki síst þökk sé þrefaldri tvennu
frá Jason Kidd.
Portland tryggði sér 4. sætið
með sigri á Denver, sem hefði
misst annað sætið til Houston ef
Dallas hefði ekki sigrað. Dallas
komst aftur á móti upp í 6. sætið
(úr 8. sæti) og mætir San Antonio
í fyrstu umferð en Portland mætir
Houston. Lokaeinvígi vesturdeild-
arinnar er síðan á milli Los Ang-
eles Lakers og Utah Jazz en hið
síðarnefnda datt niður í neðsta
sætið.
Minna var um dramatík í Aust-
urdeildinni en slæmt tap Chicago
Bulls á móti Toronto og sigur
Philadelphia í Cleveland þýddi að
liðin höfðu sætaskipti og leikmenn
Bulls-liðsins mæta Boston í fyrstu
umferð á meðan Philadelphia spil-
ar við Orlando.
Cleveland Cavaliers leyfði sér að
hvíla lykilmenn sína (þar á meðal
LeBron James) í lokaleiknum og
varð fyrir vikið að horfa á eftir
því að jafna met Boston frá 1985-
86 yfir bestan árangur á heima-
velli. Cleveland átti möguleika á
að enda tímabilið 40-1 á heima-
velli en tapaði lokaleiknum á móti
Philadelphia eftir framlengingu.
Cleveland mætir Detroit Pistons í
fyrstu umferð en lokaviðureignin
er síðan á milli Atlanta og Miami.
Miami var öruggt með fimmta
sætið og leyfði sér að hvíla Dwya-
ne Wade í síðustu tveimur leikjum
sínum.
Úrslitakeppnin hefst á laugar-
daginn þegar fjögur af átta ein-
vígunum fara af stað. Fyrsti leik-
urinn verður á milli NBA-meistara
Boston og Chicago. - óój
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta fer af stað um næstu helgi og bíða margir spenntir.
Finley kom San Antonio liðinu til bjargar
HETJA SAN ANTONIO SPURS Michael Finley hleypur á bekkinn eftir að hafa tryggt San
Antonio framlengingu. NORDICPHOTOS/GETTY
ÚRSLITAKEPPNI NBA
VESTURDEILD:
LA Lakers (65-17)-Utah (48-34)
Innbyrðis í vetur: Lakers 2-1
Denver (54-28)-New Orleans (49-33)
Innbyrðis í vetur: Jafnt, 2-2
San Antonio (54-28)-Dallas (50-32)
Innbyrðis í vetur: Jafnt, 2-2
Portland (54-28)-Houston (53-29)
Innbyrðis í vetur: Houston 2-1
AUSTURDEILD:
Cleveland (66-16)-Detroit (39-43)
Innbyrðis í vetur: Cleveland 3-1
Boston(62-20)-Chicago (41-41)
Innbyrðis í vetur: Boston 2-1
Orlando (59-23)-Philadelphia (41-41)
Innbyrðis í vetur: Orlando 3-0
Atlanta (47-35)-Miami (43-39)
Innbyrðis í vetur: Atlanta 3-1