Fréttablaðið - 17.04.2009, Page 59
FÖSTUDAGUR 17. apríl 2009 43
KÖRFUBOLTI Brenton Birmingham
náði ekki því takmarki sínu að
vinna loksins KR í úrslitaeinvígi
um Íslandsmeistaratitilinn en
hann varð hins vegar stigahæsti
leikmaður lokaúrslita úrslita-
keppninnar frá upphafi. Brenton
komst upp fyrir Guðjón Skúlason
og Teit Örlygsson í oddaleiknum
magnaða sem fram fór á annan í
páskum.
Brenton Birmingham hefur nú
skorað 625 stig í 29 leikjum eða 21,6
stig að meðaltali í leik. Þetta var
í sjöunda skiptið á ferlinum sem
hann spilaði til úrslita um titilinn
og í fjórða skiptið sem hann verð-
ur að sætta sig við silfrið. Brenton
varð Íslandsmeistari með Njarðvík
2001, 2002 og 2006 en hefur tvisv-
ar lent í 2. sæti með bæði Njarðvík
(1999 og 2007) og Grindavík (2000
og 2009). Þrjú af þessum fjórum
silfurverðlaunum hafa komið eftir
einvígi á móti KR.
Brenton Birmingham bætti
stigamet Guðjóns Skúlasonar
þegar hann skoraði sitt tíunda
stig í leiknum en það gerði hann
úr vítaskoti sem hann fékk eftir
að brotið var á honum um leið og
hann minnkaði muninn í 73-71.
Guðjón Skúlason hafði náð met-
inu af Teiti Örlygssyni vorið 2003
þegar hann fór alla leið með Kefla-
víkurliðinu í síðasta sinn á ferlin-
um. Það munaði þó ekki miklu á
félögunum því Guðjón hefur skor-
að einu stigi meira.
Nick Bradford er þegar kominn
í 8. sæti listans þrátt fyrir að hafa
aðeins spilað þrettán leiki í úrslita-
einvígum en hann hefur skorað
23,2 stig að meðaltali í lokaúrslit-
um sem er aðeins minna en Damon
Johnson gerði í sínum fjórtán leikj-
um. Tveir til viðbótar fyrir utan
Brenton, Nick og Damon hafa náð
að skora yfir 20 stig að meðaltali
í lokaúrslitum af þeim leikmönn-
um sem hafa náð að spila tíu leiki
í úrslitaeinvígi: Rodney Robinson
skoraði 23,6 stig að meðaltali í sex-
tán leikjum með Njarðvík og Jón-
atan Bow skoraði 20,1 stig að með-
altali í tólf leikjum fyrir Keflavík
og KR. - óój
Brenton Birmingham fór upp fyrir Guðjón Skúlason og Teit Örlygsson í oddaleiknum á móti KR á mánudag:
Brenton sló stigametið í lokaúrslitunum
625 STIG Brenton Birmingham hefur
skorað 21,6 stig að meðaltali í úrslitaein-
vígum um Íslandsmeistaratitilinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FLEST STIG Í LOKAÚRSLITUM UM
ÍSLANDSMEISTARATITILINN:
Brenton Birmingham 625 stig (21,6)
Guðjón Skúlason 622 (13,8)
Teitur Örlygsson 621 (15,5)
Valur Ingimundarson 400 (19,0)
Rondey Robinson 378 (23,6)
Falur Harðarson 360 (11,6)
Damon Johnson 349 (24,9)
Nick Bradford 302 (23,2)
Nökkvi Már Jónsson 269 (9,6)
Friðrik Ragnarsson 255 (8,2)
Gunnar Einarsson 254 (8,8)
Helgi Jónas Guðfinnsson 248 (12,4)
Marel Guðlaugsson 247 (10,7)
Jón Kr Gíslason 245 (9,8)
STIG BRENTONS Í LOKAÚRSLITUM:
1999 Njarðvík 5 leikir/143 stig (28,6)
2000 Grindavík 4/95 (23,8 í leik)
2001 Njarðvík 4/93 (23,3)
2002 Njarðvík 3/58 (19,3)
2006 Njarðvík 4/84 (21,0)
2007 Njarðvík 4/69 (17,3)
2009 Grindavík 5/83 (16,6)
KÖRFUBOLTI Ágúst Björgvinsson
ætlar ekki að þjálfa áfram lið
Hamars sem vann sér sæti í Ice-
land Express-deildinni undir
hans stjórn í vetur.
Ágúst tók við félaginu af Pétri
Ingvarssyni á síðasta tímabili en
liðið féll þá úr deildinni. Hamar
fór hins vegar beint upp aftur
eftir að hafa unnið 15 af 18 leikj-
um sínum í 1. deildinni í vetur.
Ágúst er ekki búinn að ákveða
hvar hann þjálfar næsta vetur
en hann hefur fengið tilboð frá
nokkrum félögum sem vilja nýta
krafta hans. -óój
Karlalið Hamars án þjálfara:
Ágúst hættir
með Hamar
SENDI HAMAR AFTUR UPP Ágúst
Björgvinsson stýrði Hamars-mönnum til
sigurs í 1. deildinni í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
HANDBOLTI Í kvöld hefst umspil
um eitt laust sæti í N1-deild karla
á næstu leiktíð. Um er að ræða
fyrirkomulag sem svipar til
úrslitakeppninnar nema að liðin
sem þarna taka þátt eru Stjarn-
an, sem varð í 7. sæti N1-deildar
karla, og svo liðin sem urðu í 2.-4.
sæti í 1. deildinni.
Stjarnan mætir ÍR á heimavelli
sínum í kvöld klukkan 19.30 en
ÍR varð í fjórða sæti 1. deildar-
innar. Í hinum leiknum mætast
Selfoss og Afturelding.
Þau tvö lið sem verða fyrst til
að vinna tvo leiki eigast svo við
í úrslitarimmunni þar sem einn-
ig þarf tvo sigurleiki til þess að
tryggja sér þátttökurétt í N1-
deild karla á næsta tímabili. - esá
Umspil um laust sæti:
Stjarnan mætir
ÍR í kvöld
PATREKUR JÓHANNESSON Tímabilið hjá
Stjörnunni er ekki búið enn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR