Morgunblaðið - 17.10.2008, Síða 19
Morgunblaðið |19
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
H
elga Rún Pálsdóttir
var 13 ára gömul þeg-
ar hún ákvað að verða
fatahönnuður og reka
sitt eigið fyrirtæki.
Draumurinn rættist því í dag rekur
Helga Rún fyrirtækið Prem ehf. og
tekur að sér ýmiss konar verkefni.
Á réttri hillu
„Til að ég myndi einn daginn
kunna að reka fyrirtæki ákvað ég að
fara í Menntaskólann við Sund á
hagfræðibraut. Eftir stúdentspróf lá
leiðin í Iðnskólann þar sem ég vildi
hafa saumaskapinn á hreinu og það-
an lauk ég fjögurra ára námi í klæð-
skurði. Að því loknu hélt ég til náms
í fatahönnun í Kaupmannahöfn. Á
meðan á því stóð fann ég að ég hafði
meiri áhuga á búningahönnun, en ég
hafði áður starfað við búningagerð
hjá Íslensku óperunni. Að loknu
námi í Kaupmannahöfn sótti ég því
um í Wimbledon School of art í leik-
mynda- og búningahönnun. Ég var
ein af aðeins átta sem komust inn og
þá hugsaði ég með mér að ég hlyti að
vera á réttri hillu,“ segir Helga Rún.
Að loknu námi í London hafði hún
hugsað sér að snúa aftur til starfa
hjá Konunglegu óperunni í Kaup-
mannahöfn, þar sem hún hafði unnið
meðfram námi, en var þá boðið starf
við Íslensku óperuna við bún-
ingahönnun og sneri því aftur heim.
Rifin og brennd föt
Helga Rún hefur starfað við ýmiss
konar sérverkefni erlendis, bæði
auglýsingar og heimildamyndir, til
að mynda um Jónas Hallgrímsson
sem tekin var upp að hluta í Kaup-
mannahöfn. Í slíkri vinnu segir
Helga Rún að fötin þurfi að líta út
fyrir að vera raunsæislega notuð og
hún hafi rifið og jafnvel brennt föt til
að ná fram réttu útliti. Þá sé nauð-
synlegt að eiga svokallað skítasett
sem hún taki ætíð með sér á milli
staða. Í því má meðal annars finna
efni til að ná fram raunsæislegum
blettum og grasgrænu í fötum. Ný-
verið tók Helga Rún að sér að hanna
og sauma kjóla og hárskraut á dans-
arana í Singing Bee-þáttunum og
velja og breyta fötum á hljómsveit
þáttarins. Hún sér einnig um bún-
inga í Spaugstofuna auk þess að leið-
beina í fatasaumi einu sinni í viku
hjá Ljósinu. Þá er hún mamma
flestra lukkudýra landsins sem
koma reglulega í læknisskoðun til að
láta snyrta sig og hreinsa.
Konur áttu jarðarfarahatt
Á vinnustofunni hefur Helga Rún
varla undan að sauma hatta og hár-
skraut sem er mjög vinsælt í dag, en
hún er eina starfandi hattadaman á
landinu. „Áður fyrr voru konur hér á
landi gjarnan með hatta og áttu sér-
stakan jarðarfarahatt. Þetta hefur
breyst en spangir með skrauti og
áberandi hárskraut með perlum,
fjöðrum og slöri er mjög vinsælt hjá
mér í dag. Það lífgar mikið upp á
einfaldan fatnað að setja á sig fína
spöng og þannig sparar maður að
láta greiða sér og blása. Það varð
aukin eftirspurn eftir höttum hjá
mér þegar Íslendingar fóru að
stunda viðskipti erlendis og sækja
fínar veislur þar sem ákveðins
klæðnaðar er krafist. Ég hef til
dæmis saumað hatta fyrir konur
sem voru á leið á Ascot-veðreiðarnar
en þangað fer enginn nema með sér-
saumaðan hatt,“ segir Helga Rún.
Útrás á sýningum
Þegar kemur að fötum tekur
Helga Rún einna helst að sér breyt-
ingar á þeim og segir að hagsýna
húsmóðirin í sér sjái gjarnan úr-
lausnir til að breyta og skreyta flík-
ur þannig að þær fái nýtt líf. Þá
hannar hún og saumar einnig mikið
af búningum og sérklæðnaði og seg-
ir að þó svo að það sé skemmtilegt
fylgi því líka að öðru hverju verði
hún að fá útrás fyrir sköpunargleð-
ina. Því haldi hún stundum sýningar
á skringilegum höttum eða öðru
slíku, eiginlega bara sér til skemmt-
unar. Þá fer hún mikið með hönnun
sína á handverkssýningar og verður
til að mynda með bás á sýningunni
Handverki og hönnun sem haldin
verður í Ráðhúsinu í lok mánaðar-
ins.
Dömulegar spangir
og hárskraut vinsælast
Rómantískt Helga hannar dömulegt
hárskraut úr perlum og fjöðrum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Alhliða hönnuður Helga hefur margþætt nám að baki en hún var 13 ára þegar hún ákvað að verða fatahönnuður.
Litríkt Hatthúfurnar eru fallegar og henta vel í íslensku veðurfari.
t í s k u h ú s
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15
Vandaður
fatnaður
á góðu
verði
www.xena.is
SÉRVERSLUN
GLÆSIBÆ S: 553 7060
SNYRTISKÓLI - naglaskóli - förðunarskóli - fótaaðgerðaskóli
S N Y R T I -AKADEMÍAN
Velkomin í Snyrti-Akademíuna
Hjallabrekku 1
Snyrtiskólinn
Með alþjóðleg CIDESCO réttindi
Naglaskólinn
Professionails
Förðunarskólinn
Förðunarkennsla fyrir alla
Fótaaðgerðaskólinn
Nýtt á Íslandi
Heildverslunin Hjölur ehf
www.hjolur.is
Verslun
Mb
l
95
02
56
Sími 553 7900 og 588-8300 www.snyrtiakademian.is
Tekið er við umsóknum í alla skólana núna
@