Morgunblaðið - 17.10.2008, Síða 20
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Golli
Kósí Halldór Gylfason kann vel við heimabuxurnar sínar.
Hvernig eru
heimafötin þín?
Flest eigum við þægileg föt sem við smeygjum okkur í
þegar heim kemur úr vinnu eða skóla.
Hér sýna nokkrir þjóðþekktir einstaklingar sín heimaföt.
20|Morgunblaðið
Hárið er eitt það fyrsta sem fólk sér
og því margir sem eru óöruggir
með hárið á sér. Lykillinn að því að
vera sáttur við hárið á sér og þar
með sjálfan sig er að sættast við út-
lit sitt. Á hárgreiðslustofum má
breyta ýmsu til betri vegar og þar
getur hárgreiðslufólk gefið góðar
ráðleggingar. Umfram það er best
að sætta sig við útlit sitt enda lítur
hár betur út ef eigandi þess ber það
með stolti í stað þess að hirða það
illa og fela það undir höfuðfati.
Með hárið í lagi
Ekki á nátt-
buxunum
út í sjoppu
„Þegar ég vil vera í þægilegum
fötum smelli ég mér í rauðköfl-
óttu náttbuxurnar mínar sem
bróðir minn gaf mér í jólagjöf
en þær vöktu hjá mér mikla
lukku. Ég hef þó ekki lagt í
vana minn að hlaupa í þeim út í
sjoppu. Mér finnst best að vera
berfætt heima og láta lofta um
tærnar. Síðan á ég nokkrar
svona hettupeysur sem mér
finnst afar gott að smella mér í.
Þegar ég slaka á finnst mér
gott að fá mér kaffibolla, hlusta
á góða tónlist og lesa blöðin í
rólegheitunum,“ segir Erna
Hrönn Ólafsdóttir söngkona.
Í uppáhaldi Rauðu buxurnar góðu
voru jólagjöf sem slógu í gegn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kulvís Elmu Lísu finnst gott að vera í lopapeysunni heima.
Besta sem ég veit Björgvin Franz
í Scarface-buxunum sínum.
„Þessi mynd er nú kannski ekki alveg sönn þar sem ég byrja yfirleitt að
lesa eitthvað en skipti síðan yfir í sjónvarpið. Þó kaupi ég alltaf Lifandi
vísindi í hverjum mánuði. Ég er í öðrum af tvennum buxum sem foreldar
mínir gáfu mér í jólagjöf frá Bandaríkjunum. Þessar eru með Al Pacino-
myndum úr Scarface en hinar með dollurum. Það besta sem ég veit eftir
að hafa verið að skemmta á kvöldin í jakkafötunum er að koma heim og
smella mér beint í þennan galla,“ segir Björgvin Franz Gíslason leikari.
Kósíheit með Al Pacino
„Skemmtilegast finnst mér að taka vídeóspólur til að slappa af og
geri það gjarnan. Á myndinni er ég í heimabuxunum mínum sem ég
fékk frá konunni minni fyrir einum 12 árum en ég fer gjarnan í þær
þegar ég er lasinn og á jólunum. Ég á líka inniskó en nota þá mest til
að fara út með ruslið eða þegar ég grilla. Annars hringja viðvör-
unarbjöllur um að maður sé að fitna ef maður er of mikið í svona
heimabuxum og jogginggalla,“ segir Halldór Gylfason leikari.
Endingargóðar heimabuxur
„Mér finnst alltaf gott að grípa í bók þegar maður vill tæma hugann
og slappa af. Ég geng mikið í lopapeysum þar sem ég er frekar kulvís
og skipti alltaf um föt þegar ég kem heim. Þá fer ég í eitthvað kósí og
hlýtt en náttbuxur og lopapeysa með notalegum bómullarbol undir
eru minn hefðbundni heimagalli. Síðan er ég líka alltaf í klossum
heima við,“ segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona.
Hlý og góð lopapeysa
Litun og plokkun 2.900
Andlitsbað 5.500
Fótsnyrting og
handsnyrting 5.900
Hringdu núna
Laugavegur 66, 2 .h . S ími 552 2460
Október-tilboð
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Verslunin Belladonna
er 4 ára
Fimmtudag 16. okt. til laugardags 18. okt.
20% afsláttur
af öllum vörum í versluninni
30-50% afsláttur
af völdum vörum