Morgunblaðið - 22.10.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 22.10.2008, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is VEL gengur að manna leikskóla Reykjavíkur þessa dagana og er staðan nú betri en hún hef- ur verið á sama tíma undanfarin ár. Hefur þannig verið ráðið í 20 stöðugildi á síðast- liðnum tveimur vikum. „Staðan eins og hún var í síðustu viku hafði tekið miklum breytingum frá því hún var tekin 1. október,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadótt- ir, sviðsstjóri leikskólasviðs Reykjavíkur- borgar. 60 starfsmenn hafi vantað inn á deildir leikskóla 1. október og tíu starfsmenn í önnur störf á leikskólunum. Í síðustu viku voru stöð- urnar á deildunum 40. „Þetta er mikill viðsnún- ingur á tveimur vikum og ef við berum þetta saman við stöðuna undanfarin ár, þá sjáum við að þetta er betri staða en við höfum séð í nokk- uð mörg ár.“ Töluvert vantaði af starfsfólki á leikskóla í Vesturbænum í september og segir Ragnhildur þá stöðu hafa lagast mikið. „Þegar horft er á heildina má segja að það sé ekki mikið að 40 stöðugildi vanti í tæplega áttatíu leikskóla. Það þýðir samt að um 160 börn fá kannski ekki pláss.“ Í vetur telur hún þó fullvíst að takist að full- manna leikskólana, en það hafi ekki tekist síð- asta vetur. „Ég tel að þetta sé spurning um vik- ur, ekki mánuði og það kæmi mér á óvart ef ekki næðist að manna leikskólana, miðað við þær umsóknir sem við fáum. Bæði vel menntað og reynslumikið fólk virðist þannig vera að skila sér þetta haustið inn í leikskólana, sem eru margir orðnir fullmannaðir.“ Morgunblaðið/Valdís Thor Leikskólabörn Búast má við að leikskólar borgarinnar verði fullmannaðir. Vel gengur að manna  Ráðið í 20 stöðugildi á leikskólum á tveimur vikum  Reynslumikið og menntað fólk sækir um Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is EKKI er sanngjarnt að þeir laun- þegar sem greiða í almenna lífeyr- issjóði taki á sig skerðingu lífeyris um leið og þeir greiða álögur til að standa undir ríkisábyrgð lífeyr- issjóða opinberra starfsmanna. Þetta er skoðun Gylfa Arnbjörns- sonar, framkvæmdastjóra Alþýðu- sambandsins. Gylfi bendir á að lífeyr- issjóðakerfið sé í raun tvískipt. Annars vegar sé um að ræða al- menna lífeyrissjóði, sem nú sjá fram á að þurfa að skerða lífeyri til sinna sjóðsfélaga vegna að- gerða ríkisins í bankakreppunni undanfarið. Hins vegar séu Líf- eyrissjóður starfsmanna ríkisins og lífeyrissjóðir starfsmannafélaga sveitarfélaga, en ríkið ábyrgist greiðslur úr þeim til sjóðsfélaga. „Meðal þeirra sem tilheyra þess- um ríkistryggðu sjóðum eru al- þingismenn og ráðherrarnir sjálf- ir,“ segir Gylfi. Hann segir að í krafti neyð- arlaganna sem Alþingi setti á dög- unum hafi ríkissjóður tekið yfir þær skuldbindingar bankanna sem ríkisábyrgð er á, s.s. innistæð- urnar sparifjáreigenda. „Þær fylgdu með yfir í nýju bankana en allar kröfur lífeyrissjóðanna voru skildar eftir í gömlu bönkunum. Eitt er það að tapa eigin fé en þarna er einnig um að ræða öll önnur form af bankaverðbréfum, s.s. bankabréf, víxla og skulda- bréf, sem væntanlega verða af- skrifuð. Það veldur því að lífeyr- iskerfið tapar hundruðum milljarða og eina leiðin sem það getur farið til að mæta því er að skerða lífeyrisréttindi, sem útlit er fyrir að verði á bilinu 10-25%. Á sama tíma þurfa þessir sömu ein- staklingar og þola þessi skertu réttindi, að standa að baki iðgjaldi til ráðherranna og þingmannanna og tiltekinna opinberra starfs- manna í formi skattgreiðslna.“ Réttindin verði jöfnuð Gylfi tekur fram að ekki sé rík- isábyrgð á lífeyri allra opinberra starfsmanna. „Starfsmenn okkar hjá ríkinu og sveitarfélögunum, sem eru æði margir, njóta all- flestir ekki sömu ábyrgðar og ef þeir væru í samtökum opinberra starfsmanna. Hið sama gildir um langstærsta hluta vinnumarkaðar- ins því hann greiðir í almenna líf- eyrissjóðskerfið og er þ.a.l. líka langstærsti hluti þeirra sem borga skatta.“ Að sögn Gylfa er þetta meðal þess sem forysta Alþýðu- sambandsins skoðar þessa dagana. „Ég sé ekki fyrir mér að þjóðfé- lagið fari í gegnum það í neinni sátt að þetta verði niðurstaðan. Þess vegna er mikilvægt að al- þingismenn geri sér grein fyrir því að það verði ekkert undan því vikist núna að jafna þessi lífeyr- isréttindi landsmanna.“ Þola skertan lífeyri en tryggja öðrum fullan Hversu margir sjóðsfélagar eru í lífeyrissjóðum landsins? Samkvæmt ársskýrslu lífeyrissjóð- anna 2007 greiddu 200.791 í lífeyr- issjóði landsmanna í fyrra. Hversu margir eru í lífeyr- issjóðum tryggðum af opinberum aðilum? Samkvæmt skýrslunni greiddu rúmlega 31 þúsund sjóðsfélagar í lífeyrissjóði tryggða af opinberum aðilum í fyrra. Tæplega 170 þúsund félagar greiddu í sjóði án rík- isábyrgðar. Hver er munurinn á mótframlagi atvinnurekenda? Launþegar greiða almennt 4% af launum sínum í lífeyrissjóði. Mót- framlag atvinnurekenda er 8% af launum í almenna lífeyriskerfinu. Í sjóðum tryggðum af opinberum að- ilum er mótframlagið 11,5%. S&S Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÞÓTT margir Íslendingar erlendis sleppi við meinfýsnar athugasemdir eða litla þjónustulund vegna þjóð- ernisins berast reglulega sögur af fólki sem hefur verið neitað um vörur eða þjón- ustu fyrir það eitt að vera born- ir og barnfæddir hér á landi. Aðalheiður Lilja Úlfarsdóttir hefur verið bú- sett í Danmörku í rúm sex ár. Hún segir að sjálf hafi hún átt erfitt með að trúa sögum sem þessum þangað til hún varð aðalsöguhetjan í einni slíkri fyrir skemmstu. Aðalheiður fór inn í símabúð í Kaupmannahöfn til að kaupa þráðlaust ferðanet, eða pung, fyrir tölvuna sína. Þar kom í ljós að fyrirtækið hafði komið upp sérstakri Íslendingareglu. „Af- greiðslumaðurinn spurði hvaðan ég væri og ég sýndi honum íslenskt ökuskírteini. Þá hringdi hann eitt- hvað og sagðist svo því miður ekki getað búið til þennan reikning fyrir mig því þeir gætu ekki verið vissir um að ég gæti borgað,“ segir Að- alheiður. Ótrúleg framkoma Hún segist ekki hafa vitað hvort hún hafi átt að verða reið eða finn- ast þetta fyndið og hallærislegt en farsíminn hennar er skráður hjá sama símafyrirtæki. „Ég spurði hvort ég ætti að sýna honum dönsku launaseðlana mína. Svo sagði ég bara „bless, þá fer ég eitt- hvað annað“.“ Aðalheiður hélt rak- leiðis af stað í annað símafyrirtæki þar sem hún fékk m.a.s. töluvert ódýrari pung. „Þar spurði ég hvort þeir væru með Íslendingareglu og afgreiðslumaðurinn horfði á mig eins og ég væri kjáni,“ segir hún. Hún segist ekki vilja gefa upp nafn símafyrirtækisins þar sem hún vilji ekki fá símtöl frá þjónustu- fulltrúum berist þeim þessi saga til eyrna. Hún segist þó ætla að skipta um fyrirtæki sem fyrst enda þetta ótrúleg framkoma. Hún sé með fasta vinnu í Kaupmannahöfn og ætti ekki að þurfa að sýna launa- samninginn sinn til að geta keypt sér pung. Aðalheiður segir að fyrir skömmu hafi hún lesið í Morg- unblaðinu sögu konu á Strikinu sem var vísað út úr töskubúð fyrir það eitt að vera íslensk. „Mér fannst það svo hallærislegt að þetta gæti ekki gerst. Svo lendir maður í einhverju svona sjálfur. Þetta er alveg fárán- legt.“ „Íslendingaregla“ hjá dönsku símafyrirtæki Aðalheiður Lilja Úlfarsdóttir LANDSLIÐ íslenskra matreiðslumanna hlaut á mánudagskvöld gullverðlaun á Ólympíuleikum mat- reiðslumanna sem nú standa yfir í Erfurt í Þýska- landi. Liðið fékk verðlaun fyrir heitan mat og segir einn liðsmanna, Bjarni Gunnar Kristinsson, mat- reiðslumaður á Grillinu, að þá hafi liðið eldað fyrir 110 manns á fimm klukkutímum. Aðeins var notað íslenskt hráefni og í forrétt var íslensku saltfiskur með tómat, aspas og ætiþistlum. Í aðalrétt var ís- lenskt hreindýrafilé og -lund með blómkálsflani og madeirasósu. Í eftirrétt var svo súkkulaði og mandarínur með rósmaríni. Tíu matreiðslumenn eru í liðinu en með aðstoðarfólki telur hópurinn 22. Lið- ið var við undirbúning í alla nótt fyrir keppni í köldum réttum í dag og er liðsandinn sagður með eindæmum góður. jmv@mbl.is Ljósmynd/Guðjón Steinsson Ólympíuhreindýr í madeirasósu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.