Morgunblaðið - 22.10.2008, Side 14

Morgunblaðið - 22.10.2008, Side 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 UNGT fólk notar yfirdráttarlán bankanna í miklum mæli en vextir á slíkum lánum eru nú í kringum 22%. Tæplega 53% ungs fólks á aldr- inum 18-35 ára eru með slíkan yfirdrátt og eru þar karlar í meirihluta. Þetta kemur fram í könnun sem Alþýðusamband Íslands lét gera í tilefni af ársfundi sambandsins sem hefst næst- komandi fimmtudag, en þar verður sjónum sér- staklega beint að málefnum ungs fólks. Það vekur athygli að samkvæmt könnuninni eru 12% þeirra sem eru með yfirdrátt á annað borð með heimild upp á 900 þúsund krónur eða meira á slíkum reikningi. Tæplega 5% eru með meira en milljón í yfirdrátt. Yfirdráttur tíðari á höfuðborgarsvæðinu Þá er barnafólk iðulega með hærri yfirdrátt- arheimildir en barnlaust fólk. Þannig reyndust hlutfallslega fleiri þeirra sem áttu barn á grunn- skólaaldri vera með samtals milljón og meira í yfirdráttarheimild en þeir sem ekki voru með barn á þeim aldri. Samkvæmt könnuninni er notkun yfirdráttar tíðari meðal fólks á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og notkunin eykst með aldr- inum. Þá kemur fram að ríflega 84% ungs fólks eru í stéttarfélögum og mikill meirihluti þess telur að stéttarfélög séu nauðsynleg til að gæta hags- muna fólks. jmv@mbl.is Yfirdráttarlán tíð hjá ungu fólki Í HNOTSKURN »Tveir þriðju hlutar þeirrasem svöruðu könnuninni eru með laun undir 300 þús- und krónum á mánuði. »Rúmlega 9% nemendaeru með 900 þúsund til einnar milljónar króna yf- irdráttarheimild samtals. »96,5% ungs fólks teljastéttarfélög nauðsynleg til að gæta hagsmuna launa- fólks. »Ársfundur ASÍ hefst ámorgun og ber hann yf- irskriftina Áfram Ísland – fyrir ungt fólk og framtíðina. Morgunblaðið/Sverrir Framtíðin Alþýðusambandið mun beina sjónum sínum að málefnum ungs fólks á næsta ársþingi.  Könnun ASÍ sýnir að 12% ungs fólks, sem er með yfirdrátt, eru með 900.000 kr. heimild eða meira  Yfirdráttarlán eru tíðari meðal ungs fólks á höfuðborgarsvæðinu en úti á landsbyggðinni DÓTTURFÉLAG Icelandair Group, SmartLinx, ætlar að ráða að minnsta kosti 7 flug- menn og flugstjóra sem eru í vetraruppsögn hjá Icelandair. Þetta kemur fram á heima- síðu Félags íslenskra atvinnu- flugmanna. Þar kemur fram að FÍA hafi lengi leitað leiða til að fá Icelandair Group til að samþykkja að flugmenn Icelandair ehf. nytu forgangs til annarra starfa dótt- urfélaga innan samstæð- unnar, án mikilla undirtekta. FÍA hafi enga milligöngu haft um þessar ráðningar en lýsir þó yfir ánægju með að félagið skuli sýna þessa viðleitni. Þá kemur fram að 5 flugmenn hafa fengið vinnu hjá flyLAL, sem gerir út Boeing 757-flugvél frá Vilnius í Litháen. Aðrir 3 flugmenn hafa fengið vinnu hjá AirNiugini og fljúga Boeing 757-vél Icelandair frá Port Moresby í Papúa Nýju Gíneu. Sú flugvél hefur verið þurrleigð til AirNiugini, sem þýðir að vélin er leigð án áhafna og eru þessir flugmenn því nú starfsmenn AirNiugini. Loks er þess getið að nokkrir flugmenn hafi fengið vinnu hjá öðrum félögum í Evrópu. sisi@mbl.is SmartLinx ræður íslenska flugmenn VÍKURSKARÐ, á milli Eyjafjarðar og Fnjóska- dals, var lokað fram eftir degi í gær vegna þess að nokkrir bílar sátu þar fastir. Veður var mjög slæmt í skarðinu í fyrrinótt og gærmorgun og þegar fulltrúar Vegagerðarinnar hugðust moka veginn í bítið kom í ljós að við Hrossadal, í miðju skarðinu vestan megin, voru fastir tveir stórir flutningabílar og síðar kom í ljós að fimm fólks- bílar að auki voru fastir aðeins ofar. Það tók nokkrar klukkustundir að losa alla bílana og ryðja veginn en hægt var að aka yfir skarðið síð- degis. Bílarnir á myndinni, sem biðu snemma í gærmorgun vestan megin við skarðið, komust austur um með því að aka norður með ströndinni og síðan inn Fnjóskadal um Dalsmynni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Bílar fastir klukkutímum saman í Víkurskarði FIMMTUDAGINN 23. október verða liðin 50 ár frá stofnun Banda- lags háskólamanna. Í tilefni tíma- mótanna verður ný og endurbætt heimasíða opnuð (www.bhm.is), saga BHM eftir Friðrik Olgeirsson kemur út, BHM tíðindi koma út í rafrænni mynd og haldið verður málþing um menntun með yfir- skriftinni „Farseðill til framtíðar“. Málþingið verður á Grand hóteli Reykjavík, gyllta sal, og hefst kl. 13. Það er öllum opið og ókeypis. Á dagskrá eru erindi þar sem gildi menntunar er umfjöllunarefnið. Sigríður Snævarr stýrir pallborðs- umræðum en faðir hennar, Ármann Snævarr, var einmitt einn stofn- enda BHM og fyrsti formaður. 50 ár liðin frá stofnun BHM BROT 118 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá fimmtu- degi til mánudags eða á tæplega 96 klukkustundum. Vöktuð voru 10.009 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,2%, of hratt eða yfir afskipta- hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst. en þarna er 70 km há- markshraði. Fjórir óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107. Óku of hratt í göngunum STJÓRN Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga (FÍH) fagnar mark- miðum viljayfirlýsingar heilbrigð- isráðherra og borgarstjórans í Reykjavík um þriggja ára þjón- ustusamning um sameiginlega stjórnun heimahjúkrunar og fé- lagslegrar heimaþjónustu Reykja- víkurborgar. Í ályktun FÍH segir m.a. að grundvöllur þess að aldr- aðir og sjúkir geti dvalið sem lengst á eigin heimili sé að fagleg þjónusta standi þeim ávallt til boða heima fyrir. FÍH fagnar þeirri hugmyndafræði að sam- þætta þjónustuna þannig að hún nýtist sem best hverjum ein- staklingi. Stjórn FÍH leggur áherslu á að við þessar breytingar verði þess sérstaklega gætt að hugmynda- fræði hjúkrunar verði leiðarljós þjónustunnar og henni stýrt af hjúkrunarfræðingum, enda heima- hjúkrun grundvöllur starfsins. FÍH er fúst til samstarfs um þær breytingar sem framundan eru. Hjúkrun verði leiðarljósið Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is „ÞETTA gengur út á að sýna fram á fáránleika þess að beita Íslendinga hryðjuverkalögum,“ segir Þorkell Þorkelsson ljós- myndari en Ís- lendingum verður í dag boðið að koma í húsnæði Sönglistar í Borg- artúni 1 og mynda sig með „vopnin“ sín sem geta verið verkfæri, fartölv- ur eða annað sem fólk notar við vinnu. Ætlar Þorkell að setja mynd- irnar á sýningu eins fljótt og hægt er. „Þetta er gert til að hæða og benda á fáránleikann en jafnframt er þetta grafalvarlegur undirtónn. Það er búið að gera þarna mjög alvarlega aðför að okkur þó að nafninu til sé þetta gert gegn bönkunum. Við verðum bara að svara þessu og þetta er mitt pínulitla sandkorn í því. Ég er ekki lögfræðingur eða stjórnmálamaður heldur beiti ég því sem ég kann og það er myndavélin,“ segir Þorkell. Stór orð gegn lítilli þjóð „Þessi hryðjuverkalög beinast gegn öllum Íslendingum og þá hljóta menn að álykta sem svo að Íslend- ingar séu hryðjuverkamenn og þá langar mig að sjá framan í þá og vopnin þeirra,“ segir Þorkell en hann fékk hugmyndina eitt kvöldið þegar hann var svo reiður að hann festi ekki svefn. „Mér fannst svo illa vegið að okkur. Það á enginn með það að slá sig til riddara eins og Gordon Brown gerði með að nota stór orð gegn lítilli þjóð sem allir vita að er friðsöm.“ Myndar Íslendinga og „vopn“ þeirra Þorkell Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.