Morgunblaðið - 22.10.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.10.2008, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 Nei, nú er ég búinn að fá migfullsaddan á þessu enda-lausa tali um að „krúttin“ séu dauð. Þetta er hreint út sagt al- gjör endemis vitleysa og ég bara líð það ekki lengur að það sé ráðist á þetta eðla og sannferðuga fólk af misvitrum, sjálfskipuðum popp- og menningarrýnum. Því að fyrir það fyrsta er þetta safnheiti yfir nokkra þá mikilvirkustu og fram- bærilegustu tónlistarmenn sem starfandi eru hérlendis í dag allt of loðið og víðfeðmt og heldur í raun ekki sem skilgreining á tónlistar- stefnu. Og í annan stað þá eru þeir ólíku listamenn sem slengt hefur verið undir þennan hatt; t.a.m. múm, Sigur Rós, Björk, Aniima, Seabear, Emilíana Torrini, Skak- kamanage, Benni Hemm Hemm og Ólöf Arnalds einmitt þeir tónlistar- armenn sem eru einna mest „lif- andi“ í dag; allir eru þeir starfandi af kappi, gefandi út plötur, hald- andi tónleika og já… virk í allra handa þjóðfélagsumræðu. Þetta fólk er auk þess höfundar að mörgu af því allra besta sem út hef- ur komið í íslenskri dægurtónlist undanfarin tíu ár og hefur upp- skorið viðurkenningu og virðingu fyrir það bæði hér heima og að heiman. Talandi um að ein umræða sé á villigötum!    Steininn tók úr, hvað mig varðar,er ég las grein hins annars ágæta rýnis Vals Gunnarssonar í síðustu Lesbók. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki hvert Valur er að fara í grein sinni. Hann talar um að á tímum kreppu muni fólk snúa sér í ríkari mæli að „alvarlegri“ listum (gæsa- lappir mínar), jaðarlistirnar verði róttækari. Hann kemst að því að jaðarinn muni breytast og segir orðrétt: „Líklegt er að krúttkynslóðin svokallaða hafi sungið sitt síðasta. Þeim sem eru á einhvern hátt á skjön við meginstraumana mun ekki lengur finnast það nóg að vera bara krútt. Krafa verður um að listamenn hafi meira fram að færa en það.“ Þessi síðasta setning felur í sér meinlega þversögn. Ef einhver mun hafa eitthvað fram að færa á komandi misserum þá eru það ein- mitt „krúttin“. Og svo hefur reynd- ar verið um síðustu misseri. Ef ein- hverjir íslenskir tónlistarmenn hafa sýnt róttækni í verki þá eru það „krúttin“. Valur og Goddur tókust á um þessi efni í Kastljósinu í fyrradag og virtist Valur sjálfur hafa litla hugmynd um hvað hann var að meina nákvæmlega með um- sögn sinni um „krúttin“, þrátt fyrir að hafa verið þráspurður. Hins veg- ar sagði hann að „enginn tæki mark á „krúttinu“ og því væri ein- faldlega klappað á kollinn“. Goddur talaði hins vegar um að þessi kynslóð (og vísaði þá í „krútt- in“) hefði sýnt að undanförnu í verki hvernig ætti að lifa á kreppu- tímum, hún bæri með sér náttúru- lega andstöðu við glys og glamúr og endurvinnsla, „buy nothing“ -dagurinn og fleiri hugsjónabundn- ir hlutir sem vísa í annars konar lífsstíl og -hætti væru hennar. Ég er sammála Goddi.    Þá má ekki gleyma magnaðrigreiningu kollega míns, Atla Bollasonar, á „krúttunum“ í grein sem birtist í nóvember 2007 í Les- bókinni og vakti mikla athygli. Þar lýsir hann yfir dauða „krúttanna“ og talar um að ný kynslóð tónlistar- manna sé búin að taka við. „Krútt- in“ séu fyrst og fremst firrt frá því ástandi sem er: „Það stoðar ekki að flýja út á land og upp í vita og hlusta bara á þögnina,“ segir á einum stað. Ný bylgja íslensks popps er leidd af Sprengjuhöllinni, Retro Stefson og Hjaltalín samkvæmt Atla, sveitir sem bera með sér „áberandi meiri léttleika, stuð og fleiri liti“ og „virðist ekki taka sig jafnalvarlega sem listamenn og kemur frekar fram í hlutverki skemmtikrafta“. Og þá segir: „Þessar hljómsveitir sjá ekkert athugavert við það að hljóta spilun á útvarpsstöðum eins og Bylgjunni og FM 957 eða að semja við risafyritæki eins og Senu um útgáfu … Því virðist sem nýja kynslóðin sjái ekkert athugavert við að daðra við kerfið sem kyn- slóðin á undan rembdist við að loka á.“ Ég er að sjálfsögðu hjartanlega ósammála mínum góða kollega Atla í þessari greiningu, sem var NB skrifuð í blússandi góðæri. En þar sem kerfið sem þessar nýju sveitir hafa verið að daðra við er hrunið með stórkostlegum tilþrif- um, er þá þessi nýja bylgja ekki í frekari útrýmingarhættu en bless- uð „krúttin“?    Allt tal um að „þetta sé dautt oghitt sé dautt“ virðist þó fyrst og fremst stafa af hégómlegri þörf til að stíga fram með einhverja beitta poppfræðilega yfirlýsingu fremur en að það hafi einhverja stoð í raunveruleikanum. Enginn er hafinn yfir gagnrýni. En í guðanna bænum, einhver fótur þarf nú að vera fyrir henni. Mönn- um er frjálst að segja að múm og Sigur Rós séu tilgerðarlegar og leiðinlegar sýnist þeim svo. En dauð? Nei. Því að þannig er málum einfaldlega ekki háttað. arnart@mbl.is Krúttin og kreppan AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen »Ef einhver mun hafaeitthvað fram að færa á komandi miss- erum þá eru það einmitt „krúttin“. Og svo hefur reyndar verið um síð- ustu misseri. Ef ein- hverjir íslenskir tónlist- armenn hafa sýnt róttækni í verki þá eru það „krúttin“. múm Tákngervingur hinna svokölluðu „krútta“, sem hafa uppskorið viðurkenningu og virðingu. SÝND Í KRINGLUNNI SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 LÚXUS VIP MAX PAYNE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ TROPIC THUNDER kl. 10:20 B.i. 16 ára SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ / ÁLFABAKKA VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI! MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR SHREK ÍSLENSKT TAL SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI „VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OG SKEMMTILEG GRÍNMYND. KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI RÆMUMÁRSINS. TÉKKIÐ Á HENNI!” -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS TOPP GRÍNMYND / KRINGLUNNI SEX DRIVE kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 8:10 LEYFÐ QUEEN RAQUELA kl. 10:20D B.i. 12 ára DIGITAL HAPPY GO LUCKY kl. 8 B.i. 12 ára DEATH RACE kl. 10:20 B.i. 16 ára JOURNEY TO THE C... kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL WILD CHILD kl. 5:50 LEYFÐ SÝND Í SELFOSSI SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE Á 100 KM HRAÐA! SÝND Í KRINGLUNNI NÝJASTA kvikmyndin um ofur- njósnarann James Bond, Quantum of Solace, hefur fengið ljómandi dóma í Bretlandi. Hafa sumir blaða- menn jafnvel getið sér þess til að nýjasti Bondinn, Daniel Craig, kunni að verða sá langlífasti í hlutverkinu. Þótt Bond sé frægur fyrir pipar- sveinalíferni og fjölþreifni, segir Craig að þótt hann leiki Bond komi það ekki í veg fyrir að hann gangi að eiga unnustu sína til margra ára, Satsuki Mitchell. Leikarinn segist njóta þess að leika spæjarann, en þegar hann var í sjónvarpsþættinum Extra spurður að því hvort Bond spillti ekki fyrir áformum um hjónaband, sagðist hann ekki sjá það fyrir sér. „Og hvort ég kvænist, það er mitt mál og konunnar,“ bætti hann við. Craig hefur sagt að það hafi verið fyrrverandi Bond-leikarinn Pierce Brosnan sem hvatti hann til að taka hlutverkið að sér. Hann á sér eftir- lætis Bond, eins og margir aðrir. „Sean Connery er mitt uppáhald, það er engin spurning. Því er ekki beint gegn Pierce eða nokkrum öðr- um. Og eftirlætis Bond-myndin mín er From Russia With Love, vegna þess að Red Grant er besti vondi gaurinn. Maður finnur að Bond er í stórkostlegri hættu.“ Reuters Hetja Það reynir á Daniel Craig í hlutverki njósnarans James Bond. Craig finnst Connery bestur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.