Morgunblaðið - 30.10.2008, Síða 1

Morgunblaðið - 30.10.2008, Síða 1
F I M M T U D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 297. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Ómissandi í veisluna! Leikhúsin í landinu >> 37 DAGLEGTLÍF UNNIÐ ÚR REYNSLU AF JARÐSKJÁLFTUNUM TÓNLISTINNLAGALISTINN Íslendingar eru sjúkir í Lay Low Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is ÞRJÚ stærstu tryggingafélögin eru nú til ná- kvæmrar skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, vegna þess að ekki þykir tryggt að bóta- sjóðir félaganna standi jafntraustum fótum og forstjórar félaganna sögðu að þeir gerðu hér í Morgunblaðinu sl. mánudag. Sömu heimildir herma að umtalsverða fjármuni vanti í bóta- sjóðina, sem eiga að nema um 48 milljörðum króna. Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, var í gær spurður um þá skoðun sem nú fer fram á starf- semi tryggingafélaganna hjá FME. „Það er ekki annað en eðlilegt þegar fjármálamarkaður verður fyrir jafnmiklu áfalli og nú að FME sé í nánu samstarfi við okkur. Mikilvægt er að til séu nægar eignir í bótasjóðum og undirliggj- andi rekstur í vátryggingafélögum sé góður. Við höfum ávallt verið í góðu samstarfi við FME og teljum mjög eðlilegt að eftirlitið sé eflt enn frekar á tímum sem þessum,“ sagði Þór. Hann sagði jafnframt að staða vátrygginga- félaga réðist af gæðum eigna á móti tjónaskuld og afkomu í vátryggingastarfseminni. „Við teljum að félagið eigi ágætar eignir á móti tjónaskuld. Við erum einnig dótturfélag sænska fjármála- og tryggingafyrirtækisins FME skoðar tryggingafélögin  „Eðlilegt þegar fjármálamarkaður verður fyrir jafnmiklu áfalli og nú að FME sé í nánu samstarfi við okkur,“ segir forstjóri Sjóvár  FME kannar hve mikið fé vantar í bótasjóði tryggingafélaganna Moderna í Svíþjóð en það félag stendur traust- um fótum. Við erum þess vegna með góðan bakhjarl.“ Ekki náðist í forstjóra TM og VÍS í gær. Vandi vegna fjárfestingarstefnu Samkvæmt upplýsingum úr Fjármálaeftir- litinu er þar talið að aðsteðjandi vandi trygg- ingafélaganna vegna fjárfestingarstefnu þeirra sé umtalsverður og því eru málefni fé- laganna nú í gagngerri skoðun hjá FME. Tvennt er sagt koma til: eigin fjárfestingar- stefna félaganna og hins vegar það að þau hafi lent í erfiðleikum vegna tengsla við önnur fjár- málafyrirtæki og fjárfestingar þeirra. Í HNOTSKURN »Þrjú stærstu tryggingafélögin eruSjóvá, Tryggingamiðstöðin og Vá- tryggingafélag Íslands. »Milestone, í eigu Karls Werners-sonar og fjölskyldu, er að baki Sjóvá, Stoðir að baki TM og Exista að baki VÍS. »Bótasjóðir tryggingafélaganna eruvátryggingaskuld, þ.e. skuld félag- anna við tjónþola. VART verður komist hjá því að sjá spaugilegu hliðina á því að í annað skipti í vetur leggja menn hart að sér við að skafa snjó af þjóðar- leikvangi Íslendinga, Laugardalsvellinum, en þar á að fara fram í dag seinni umspilsleikur Ís- lands og Írlands um sæti í Evrópukeppninni í knattspyrnu næsta sumar. Sumir létu sér fátt um finnast og sváfu værum svefni meðan fullorðna fólkið var sveitt að. | Íþróttir Morgunblaðið/Kristinn Skafa og vona það besta fyrir Íraleikinn Barnaleg barátta við vetur konung í Laugardalnum? GÚSTAF Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Ice Fresh Seafood, dótturfyrirtækis Samherja sem ann- ast meðal annars sölu á fiski á er- lendum mörkuðum, einkum í Bret- landi, segir að markaðsaðstæður hafi breyst hratt í Bretlandi til hins verra á undanförnum þremur mánuðum. „Við höfum fundið fyrir mikilli sölutregðu á þorski og ýsu,“ segir Gústaf. „Árferðið er erfitt og þessar dýrari afurðir hafa selst illa á öllum helstu mörkuðum.“ Gústaf segir almenna niðursveiflu í efnahagslífi Breta hafa mikil áhrif á sölu gæðavöru eins og fisks. Heildarverðmæti sjávarútvegsaf- urða, sem seldar hafa verið úr landi, hefur verið um 120 milljarðar króna að meðaltali á ári á undanförnum ár- um. Þar hefur þorskur vegið þyngst eða tæplega 40%. Með auknu aðhaldi almennings minnkar eftirspurn eftir dýrari vörum og þó meira fáist fyrir afurðirnar vegna stöðu krónunnar bætir það ekki upp slæma stöðu á mörkuðunum. magnush@mbl.is | 22 Sölutregða á þorski og ýsu ytra Breyttar markaðs- aðstæður í Bretlandi Nýtt eigið fé bankanna, sem ríkið þarf að leggja þeim til, verður hátt í 400 milljarðar króna. Endurfjár- mögnunarþörf ríkisins á næsta ári er um 700 milljarðar króna. 400 milljarðar settir í bankana Bretar telja að íslensku neyðar- lögin mismuni kröfuhöfum eftir þjóðerni. Þeir segja það ekki stand- ast alþjóðalög að íslensk innlán séu forgangskröfur í þrotabú banka. Bretar segja Ísland mismuna Þakklæti til viðskiptavina er ofar- lega í huga hjá hjónunum sem rekið hafa verslunina Þingholt undan- farin ár. „Maður á eftir að sakna fólksins sem kom til okkar.“ Hverfisverslun víkur fyrir Bónus VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.