Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
ostahusid.is
Mokka og súkkulaði
Ostaterta
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
STARFSFÓLK Mæðrastyrksnefndar var í óðaönn að
útdeila mat og aðstoða fólk við að finna sér föt í gær.
Mikið var að gera enda leitaði fólk frá 263 mismun-
andi heimilum eftir aðstoð. Þetta er gríðarleg aukn-
ing frá því fyrir nokkrum vikum, en þá leituðu að
meðaltali 160-170 heimili aðstoðar í hverri viku, að
sögn Ragnhildar G. Guðmundsdóttur, formanns
nefndarinnar. Yfirleitt er þó mest að gera í síðustu
viku hvers mánaðar, en nú er töluvert um að fólk
sem nýverið hefur misst vinnuna sæki hjálp þangað.
„Við útbúum matarpakka hér á miðvikudögum,
fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Fólk kemur til okk-
ar og skráir sig. Við fáum að vita hvað fjölskyldan er
stór og reynum að miða matarpakkann við það
hversu margir eru í heimili,“ segir Ragnhildur.
Mæðrastyrksnefnd hefur opið einn dag í viku og
býður þar upp á matvörur sem uppfylla grunnþarfir
fólks, auk þess sem þar er hægt að fá föt. Mjólk,
brauð, kartöflur, fiskur og ávextir eru á meðal þess
sem þar er að fá. Úthlutað er einu sinni í viku, á milli
klukkan tvö og fimm á miðvikudögum, í húsnæði
Mæðrastyrksnefndar í Hátúni.
Þar sem nú er farið að harðna á dalnum hjá ís-
lenskum fyrirtækjum liggur við að spyrja hvernig
gangi að afla styrkja og matvæla. „Við kaupum mat-
inn fyrir söfnunarfé og tekst yfirleitt að fá hann með
mjög góðum kjörum. Það má segja að aðdrættirnir
gangi bara ljómandi vel,“ segir hún. Fé er mikið til
safnað á haustin. Þá er fólki og fyrirtækjum kynnt
starf nefndarinnar og leitað til vina og vandamanna.
„Við eigum víða hauk í horni,“ segir Ragnhildur.
Hátt í þrjú hundruð heimili fá
hjálp hjá Mæðrastyrksnefnd
Enn gengur ágætlega að safna styrkjum til nefndarinnar
Morgunblaðið/RAX
Hjálp Ragnhildur G. Guðmundsdóttir (t.v.) og aðrir sjálfboðaliðar hjá Mæðrastyrksnefnd standa í ströngu við
að aðstoða fólk sem ekki á til hnífs og skeiðar. Þær anna enn sem komið er eftirspurn, sem er mikil og vaxandi.
inn áfram í vinnu, að minnsta kosti
næstu mánuði.
BYGG var stofnað 1984 og hefur
komið víða við. Vinna við Norður-
turninn hófst í fyrra, en hún stöðvast
af fyrrgreindum ástæðum. „Ég geri
fastlega ráð fyrir því að stjórnvöld
fari að horfa á það sem er að gerast,“
segir Gunnar og vísar til fjölda-
uppsagna í byggingariðnaði og víð-
ar. „Þetta er grafalvarlegt ástand.“
Gunnar bendir á að fjöldi undir-
verktaka starfi fyrir BYGG, efnis-
salar og fleiri, og uppsagnir hafi alls
staðar áhrif.
Staðan var kynnt fyrir starfs-
mönnum BYGG á fundi í gær. „Ég
er gríðarlega ánægður með okkar
fólk,“ segir Gunnar. Hann bætir við
að það hafi sýnt málinu mikinn skiln-
ing, en ekki verði við neitt ráðið
nema bankarnir fari að vinna með
atvinnulífinu en stöðvi það ekki.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
VEGNA erfiðra rekstrarskilyrða
var um 160 manns sagt upp hjá
Byggingafélagi Gylfa og Gunnars,
BYGG, í gær. Um 200 manns starfa
hjá fyrirtækinu og var 27 þeirra sagt
upp fyrir um mánuði.
Grafalvarlegt mál
Gunnar Þorláksson, annar eig-
enda BYGG, segir að uppsagnar-
frestur sé allt að sex mánuðir og góð
verkefnastaða. Hins vegar hafi
bankinn ekki staðið við lánasamning
vegna byggingar Norðurturns
Smáralindar, 15 hæða verslunar- og
skrifstofuhúsnæðis með kjallara, og
því hafi orðið að taka þessa erfiðu
ákvörðun. Hann áréttar að þótt
flestum starfsmönnum fyrirtækisins
hafi verið sagt upp haldi meirihlut-
Annar eigenda BYGG segir að bank-
arnir verði að vinna með atvinnulífinu
Víða fjöldauppsagnir
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
VALTÝR Sig-
urðsson ríkissak-
sóknari og Bogi
Nilsson, fyrrver-
andi ríkissaksókn-
ari, álíta sig ekki
vanhæfa til að
sinna frumrann-
sókn á starfsemi
viðskiptabank-
anna þriggja, í að-
dragandanum að
falli þeirra. Valtýr
Sigurðsson sagði í
samtali við Morg-
unblaðið í gær-
kvöldi að starf
þeirra Boga nú
fælist í því að
safna gögnum.
Hins vegar væri
ekki verið að taka
neinar skýrslur af
fólki, rannsókn
beindist ekki að neinum ákveðnum og
enginn hefði stöðu sakbornings.
Kæmi til þess yrði það í höndum við-
komandi yfirvalds, efnahagsbrota-
deildar, skattayfirvalda eða annarra.
Synir starfa í útrásarfélögum
Sonur Valtýs, Sigurður, er forstjóri
Exista. Sonur Boga, Bernhard, er
framkvæmdastjóri lögfræðisviðs
Stoða. Hvort tveggja er útrásarfyr-
irtæki með tengsl við fallna banka,
Kaupþing og Glitni. Í október 2005
lýsti Bogi sig vanhæfan til að stýra at-
hugun á gögnum í Baugsmálinu, þar
sem óhlutdrægni hans var dregin í
efa. Það var vegna starfstengsla bróð-
ur hans og sona við ákærða endur-
skoðendur hjá KPMG Endurskoðun
hf., þar sem þeir störfuðu á þeim tíma.
„Ég held að hvergi sé hægt að finna
nokkurn mann [til að rannsaka þetta]
sem er ekki í tengslum við einhvern
sjóð, banka eða fyrirtæki. Ég held
það verði að stíga varlega til jarðar
áður en farið er að tala um vanhæfi á
þessu stigi,“ sagði Valtýr. Hann
minnir á að verið sé að vinna að því að
fá óháða erlenda aðila til að aðstoða
við rannsóknina. Aðspurður vísaði
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
á þá Valtý og Boga. Engum væru
reglur um vanhæfi betur kunnar en
þeim. „...þeir eiga sjálfir síðasta orðið
um hæfi sitt eða vanhæfi og treysti ég
dómgreind þeirra óskorað í því efni,“
sagði Björn.
Álíta sig
hæfa til að
rannsaka
Valtýr
Sigurðsson
Bogi
Nilsson
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
HVERJUM steini verður á næst-
unni velt í utanríkisráðuneytinu í því
skyni að spara, að sögn Ingibjargar
Sólrúnar Gísla-
dóttur utanríkis-
ráðherra. Sparn-
aðarnefnd hefur
tekið til starfa í
ráðuneytinu og
segir ráðherra að
hún skili væntan-
lega einhverju af
sér um miðjan
nóvember. Loft-
rýmiseftirlit er
meðal þess sem
kannað verður, en ákveðið var í
fyrra að slíkt yrði gert fjórum sinn-
um á ári. Bretar eiga að sinna eft-
irlitinu í desember.
„Við verðum að meta það út frá
okkar hagsmunum hvort við teljum
þörf á þessu eða ekki. Ég tel sjálf-
gefið að miðað við stöðu mála núna
og þá áherslu sem við hljótum að
leggja á efnhagslegar varnir, og þá
fjármuni sem við setjum í þær, þá
séu þessar hefðbundnu varnir eitt-
hvað sem við hljótum að skoða. Aðr-
ar varnir eru í forgangi núna.“
Eftirlitið kostar um 200 milljónir
króna ári. Því er sinnt þrjár vikur í
senn. Ný Varnarmálastofnun átti að
fá 1.439 milljónir króna á fjárlögum
næsta árs.
Sparað í sendiráðum
Rekstur utanríkisþjónustunnar á
að kosta rúma 11,4 milljarða á
næsta ári, samkvæmt fjárlögum.
Ingibjörg Sólrún segir ljóst að
víðar þurfi að skera niður í utanrík-
isþjónustunni, til að mynda þróun-
araðstoð. Aðstoðin sé raunar bundin
þjóðarframleiðslu. Haft var eftir
ráðherra í síðasta mánuði að hlut-
fallið yrði 0,3% í ár, en 0,35% á því
næsta. Verg þjóðarframleiðsla í
fyrra nam tæpum 1.300 ma. kr.
Ingibjörg segir að jafnframt verði
skoðað hvernig hægt verði að skera
niður í sendiráðum og sendiskrif-
stofum, en samkvæmt fjárlagafrum-
varpi ársins 2009 áttu rúmir 2,5
milljarðar að renna til sendiráða og
fastanefnda.
Áhersla á
efnahags-
varnir
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Íhugar að spara loft-
rýmiseftirlit Breta
Finnbjörn Hermannsson, for-
maður Samiðnar, sagði í byrjun
vikunnar að búast mætti við að
um 400 manns í byggingariðn-
aði myndu missa vinnuna um
þessi mánaðamót. Hann hefur
nú þegar reynst sannspár.
Íslenskir aðalverktakar til-
kynntu 151 uppsögn auk til-
færslu á 19 manns í starfi.
Byggingafélag Gylfa og Gunnars
sagði upp um 160 manns í gær,
Formaco sagði upp rúmlega 70
manns og Eykt hefur sagt upp
um 20 manns, þar af bauðst
helmingi önnur störf hjá fyrir-
tækinu. Verkalýðsfélag Akra-
ness hefur fengið upplýsingar
um 42 uppsagnir í vikunni, Bár-
an stéttarfélag á Selfossi veit af
um 20 uppsögnum og Atafl hf.
hefur sagt upp tugum manna.
Yfir 450 manns úti