Morgunblaðið - 30.10.2008, Page 6

Morgunblaðið - 30.10.2008, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 VINNUHÓPUR Landssamtaka lífeyrissjóða skilar tillögum um úrræði vegna greiðslu- erfiðleika sjóð- félaga nú í lok vikunnar. Áhersla er lögð á að aðstoða þá einstaklinga sem eru eða kunna að verða í vand- ræðum með skil á afborgunum vegna sjóðfélagalána. Það er svo á valdi einstakra sjóða að ákveða hvernig þessu verður háttað. Örn Arnþórsson hjá Gildi, sem á sæti í hópnum, segir aðallega um að ræða möguleika á að fresta greiðslum vaxta og afborgana. „Það er það helsta sem við viljum geta boðið upp á.“ FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „ÞAÐ verða ekki neinar skerðingar á lífeyri á þessu ári og það kemur fyrst til álita á fyrstu mánuðum næsta árs,“ segir Arnar Sigur- mundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða. Hafa sjóðirnir verið beðnir að flýta tryggingafræðilegri úttekt á stöðu sjóðanna svo hún liggi fyrir ekki síðar en í febrúar. Þá standa menn frammi fyrir því hvort skerða þarf lífeyrisréttindi og hversu mikið. Engar upplýsingar liggja enn fyrir um hversu miklu tapi lífeyr- issjóðirnir verða fyrir eftir banka- hrunið. Að flestra mati er eign- arýrnunin mjög mismunandi eftir sjóðum. Samanlögð hlutabréfaeign sjóðanna í viðskiptabönkunum þremur var um 5% af eignasafni þeirra, sem nam um 1.800 millj- örðum í sumar. Margir óttast að eignarýrnun vegna fjármálafyrirtækjanna gæti því orðið nálægt 80 milljörðum, þó enginn vilji enn staðfesta þá tölu. Menn leggja nú nótt við dag að meta í hverjum sjóði fyrir sig hvert hugsanlegt tap verður og ráða í óvissuna. Þá hafa forsvarsmenn líf- eyrissjóðanna fundað með forsvars- mönnum skilanefnda bankanna. Kröfur lífeyrissjóðanna á banka vegna skuldabréfa banka, sem eru um 8% af heildareignum sjóðanna, voru settar aftar í forgangsröð en innistæður. Standa yfir viðræður við ríkisstjórnina um uppgjör vegna þeirra og gjaldmiðlasamninga. „Við búumst við því að okkar er- indi verði tekið fyrir hjá stjórnvöld- um í þessari viku,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Allir þeir sem fá greitt úr lífeyrissjóðunum fá óskertar greiðslur nú um mánaðamótin og hækka upphæðirnar til samræmis við hækkun vísitölu neysluverðs. Þegar tryggingafræðilegt uppgjör lífeyrissjóðanna fer fram, gera þeir ekki eingöngu upp áunnar skuld- bindingar, sem kunna að lækka, heldur einnig framtíðarskuldbind- ingarnar um leið, en það ætti að bæta stöðuna. Er að lágmarki mið- að við að sjóðirnir nái að meðaltali 3,5% raunávöxtun í framtíðinni. Engin skerðing á lífeyri á árinu  Óttast að tap sjóðanna af hlutafjár- eign í bönkunum verði um 80 milljarðar Morgunblaðið/Ómar Óvissa Lífeyrissjóðir launafólks meta nú eignarýrnun sjóðanna. Þá ætla þeir að aðstoða sjóðfélaga í vandræðum með skil á afborgunum lána. „VIÐ höfum ekki skipt um skoðun. Við erum algerlega andsnúnir því að gengið verði inn í Evrópusamband- ið,“ segir Sævar Gunnarsson, for- maður Sjómannasambands Íslands (SSÍ), um afstöðu sambandsins gagn- vart aðild að ESB. Á nýafstöðnum ársfundi ASÍ var samþykkt ályktun um aðgerðir til að endurheimta fjármálastöðugleika en þar eru stjórnvöld hvött til að fara í aðildarviðræður við ESB. Tillagan var lögð fyrir þingið af landssamböndum ASÍ en Sjómanna- sambandið er eitt þeirra. Af um 280 ársfundarfulltrúum sem greiddu at- kvæði um ályktunina voru sex á móti. Sat hjá við atkvæðagreiðsluna Sævar sat hjá við atkvæðagreiðslu um ályktunina á ársfundinum vegna málsgreinarinnar um að sækja beri um aðild að ESB. „Þetta plagg var í heild sinni mjög gott um ástandið í efnahagsmálun- um. Þar var þetta ákvæði um að sækja um aðild að Evrópusamband- inu, en Sjómannasambandið hefur ekkert breytt um afstöðu í því máli. Ég hef túlkað [þá afstöðu] inn í alla þessa vinnu,“ segir Sævar. Þing Sjómannasambandsins verð- ur haldið eftir rúman mánuð og segir Sævar að þar verði rætt hvort ein- hver ástæða sé til að breyta um af- stöðu í málinu en hún hefur verið al- veg skýr. Sambandið er andvígt aðild að ESB. „Ástæðan er sú að við treystum ekki Evrópusambandinu fyrir fiskveiðistjórnuninni,“ segir Sævar. „Sambandið hefur ekki skipt um stefnu í þessu máli og ég hef ekki skipt um skoðun hvað þetta varðar,“ segir hann. omfr@mbl.is Ekki skipt um skoðun Morgunblaðið/Jim Smart Engin stefnubreyting SSÍ treystir ekki ESB fyrir fiskveiðistjórnuninni. SSÍ styður ekki ESB-stefnu ASÍ SKRÁÐUM umferðaróhöppum á fyrstu níu mánuðum ársins fækkaði um 23% frá fyrra ári. Óhöppin voru líka 46% færri í september síðast- liðnum en í sama mánuði 2007. Þetta kemur fram í mánaðar- skýrslu umferðardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir september. Fækkunin er m.a. rakin til samkomulags tryggingafélaga og Neyðarlínu í júní um aðstoð á vettvangi til handa þeim er lenda í minniháttar óhöppum. Skráðum umferðarslysum fækk- ar um 37% frá fyrra ári. Slys eru 35% færri í september 2008 en í sama mánuði 2007. Þá fækkar kærum vegna umferð- arlagabrota um 22% frá því í fyrra, kærum vegna ölvunaraksturs þar af um 15% og hraðaksturs um 21%. Góð þróun í umferðinni SÚ trú ætlar að reynast lífseig að húðsjúkdóm- urinn psoriasis sé smitandi og að fólk sem hefur hann eigi ekki erindi á opinbera baðstaði. Þess vegna var efnt til göngu psoriasissjúklinga og aðstandenda þeirra í Reykjavík í gær. Gengið var frá Grand hóteli að Laugardalslaug þar sem göngufólkið skellti sér í laugina. Fordómar hafa hrakið psoriasissjúklinga frá sundiðkun í gegn- um tíðina og því eru margir þeirra illa syndir eða jafnvel ósyndir. Sundferðin var því táknræn fyrir sjúklinga og tilgangur hennar að efla vit- und almennings um sjúkdóminn. Í tilefni dagsins bauð Bláa lónið psoriasissjúklingum og aðstand- endum þeirra ókeypis aðgang. Alheimsdegi psoriasissjúklinga hefur verið fagnað síðan árið 2004 í yfir 50 löndum um heim allan. Engin lækning er til við sjúkdómnum og þurfa sumir ævilanga meðferð vegna hans. Húðsjúkdómurinn psoriasis er ekki smitandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Fóru í sund á alþjóðlegum baráttudegi Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ skoðar hvort innherjarviðskipti hafi átt sér stað í aðdraganda falls bankanna. Það á einnig við um viðskipti starfs- manna ráðuneyta sem geta búið yfir innherjaupplýsingum. Þetta segir Íris Björk Hreinsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins, FME. Íris svarar því ekki hvort viðskipti Baldurs Guðlaugssonar, ráðuneytisstjóra fjármálaráðu- neytisins, séu í rannsókn. Eftirlitið svari ekki til um einstök mál. Baldur seldi hlut sinn í Landsbanka hálfum mánuði eftir að hann sat fund með Björgvini G. Sigurðssyni viðskipta- ráðherra og Alistair Darling, fjár- málaráðherra Bretlands, í byrjun september. Baldur segir í tölvupósti að hann hafi ekki nýtt sér innherjaupplýsing- ar. Hann hafi tekið ákvörðun um að selja hlutabréf sín í Landsbankanum eftir að birst höfðu fréttir í íslensk- um blöðum um erfiða stöðu bankans, meðal annars vegna fyrirsjáanlegra stórra útlánatapa. FME skoðar innherja- viðskipti í bönkunum  Ráðuneytisstjóri seldi í Landsbanka eftir mikilvægan fund Í HNOTSKURN »Allir með innherjaupplýs-ingar eru innherjar. Þeim er óheimilt að eiga viðskipti og skulu fylgja reglum eftir því sem við getur átt. »Baldur segir Darling ekkihafa gert athugasemdir er Björgvin sagði á fundinum stöðu Landsbankans nokkuð góða í alþjóðlegum saman- burði. Frysta afborganir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.