Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
ÞINGFLOKKUR Frjálslynda
flokksins mótmælir hækkun stýri-
vaxta Seðlabanka Íslands og telur
hækkunina sýna að ekki sé um
markvissa stefnu að ræða í efna-
hagsmálum af hálfu stjórnvalda.
„Brýna nauðsyn bar til að lækka
stýrivexti til þess að vinna gegn at-
vinnuleysi og styrkja grundvöll
framleiðslufyrirtækjanna. Með
hækkun stýrivaxta er unnið gegn
framfarasókn og endurreisn ís-
lensks atvinnulífs. Þessi stýrivaxta-
hækkun stuðlar að fjöldaatvinnu-
leysi og vegur að hagsmunum
heimilanna. Þingflokkur Frjáls-
lynda flokksins lýsir ábyrgð á hend-
ur stjórnvöldum vegna háskalegrar
vaxtastefnu. Seðlabankar flestra
landa lækka nú stýrivexti til að efla
atvinnustarfsemi í löndum sínum,“
segir í tilkynningu.
Mótmæla
vaxtahækkun
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, telur að um mismunun sé
að ræða í úthlutunarreglum Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna. Mis-
mununin felist í því að íslenskir
skiptinemar sem sækja um fram-
færslulán neyðast til að taka á sig
gengistap sem fellur hins vegar
ekki á íslenska nema í föstu námi
erlendis. Félagið getur ekki séð að
um málefnalega mismunun sé að
ræða og krefst þess að úthlutunar-
reglunum verði strax breytt.
Námsmönnum
mismunað
STYRKTARFÉLAGIÐ Göngum
saman gaf í síðustu viku samtals
fjórar milljónir króna til rannsókna
á brjóstakrabbameini. Þeir sem
styrkina hlutu eru; Rósa Björk
Barkardóttir, Aðalgeir Arason,
Þórarinn Guðjónsson og Magnús
Karl Magnússon. Göngum saman er
grasrótafélag sem leggur áherslu á
hreyfingu bæði til heilsueflingar og
til að afla fjár til styrktar rann-
sókna á brjóstakrabbameini.
Gáfu styrki
til rannsókna
PRESTSVÍGSLA verður í Dóm-
kirkjunni á allra heilagra messu, 2.
nóvember nk., kl. 11. Biskup Ís-
lands, Karl Sigurbjörnsson, vígir
fjóra kandídata í guðfræði til prest-
þjónustu í þjóðkirkjunni.
Vígð verða Árni Svanur Daní-
elsson sem kallaður er til prestþjón-
ustu á Biskupsstofu að trúfærslu á
vefnum með sérstakar skyldur við
Dómkirkjuna í Reykjavík, Elína
Hrund Kristjánsdóttir sem sett hef-
ur verið sóknarprestur í Reykhóla-
prestakalli, Hjörtur Pálsson sem
ráðinn hefur verið sérþjónustu-
prestur á Biskupsstofu með sér-
stakar skyldur við Hóladómkirkju
og Steinunn Arnþrúður Björns-
dóttir sem kölluð er til prestsþjón-
ustu á Biskupsstofu að samkirkju-
málum með sérstakar skyldur við
Dómkirkjuna í Reykjavík.
Fjórir nýir prestar
verða vígðir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞAÐ er lífsnauðsynlegt að bretta
upp ermar og setja stóraukið fé í
markaðssetningu, vegna þess að það
eru gríðarlega mikil tækifæri í ferða-
þjónustunni. Hér eru allir innviður
styrkir og strax hægt að flytja heim
meiri gjaldeyri,“ segir Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustu (SAF).
Fulltrúi samtakanna mun ásamt
fleiri fulltrúum ferðaþjónustunnar
ganga á fund ráðherra iðnaðar- og
ferðamála í dag til þess að ræða stöðu
ferðaþjónustunnar og viðbrögð í
framhaldi af fjármálakrísunni hér-
lendis og neikvæðrar fjölmiðlaum-
fjöllun um Ísland að undanförnu.
Erna bendir á að eftir hryðjuverka-
árásirnar í Bandaríkjunum 11. sept-
ember 2001 hafi íslensk stjórnvöld
sett allt að 300 milljónum króna í land-
kynningu sem skilaði hafi góðum ár-
angri. Að mati Ernu þyrfti ríkið nú að
setja a.m.k. 300-500 milljónir króna í
landkynningu til þess að vega upp á
móti þeirri neikvæðu fjölmiðlaum-
fjöllun sem Ísland hefur fengið í er-
lendum miðlum og til þess að leiðrétta
ranghugmyndir. „Það þarf gríðarlegt
átak til þess að snúa við þessari öm-
urlegu umfjöllun um Ísland, enda er
búið að skaða ímynd og orðstír lands-
ins,“ segir Erna.
Ranghugmyndir um Ísland
Fleiri viðmælendur Morgunblaðs-
ins í ferðaþjónustunni nefndu hættu af
því að fólk erlendis hefði fengið ranga
mynd af Íslandi og þyrði því ekki að
leggja leið sína hingað af ótta við vöru-
skort í búðum og að verða stranda-
glópar hér færu íslensku flugfélögin á
hausinn.
Hjá bæði Kristjáni Daníelssyni,
hótelstjóra Radisson SAS hótel Sögu,
og Ingólfi Haraldssyni, hótelstjóra
Hótel Nordica, fengust þær upplýs-
ingar að nokkuð hefði borið á fyrir-
spurnum erlendis frá að undanförnu
þar sem Ísland væri, í kjölfar geng-
isbreytinga, allt í einu orðið með ódýr-
ari áfangastöðum og gæti því orðið
vinsælla til t.d. ráðstefnuhalds. Nokk-
uð væri einnig um það að undanförnu
að ferðamenn væru að bóka ferðir og
gistingu með skömmum fyrirvara og
væri þá að koma hingað í helgarferðir
í þeim tilgangi að versla. „Hins vegar
er alveg ljóst að orðspor Íslands hefur
beðið hnekki og því þarf að svara
fljótt og örugglega,“ segir Kristján.
„Strax hægt að flytja
heim meiri gjaldeyri“
Morgunblaðið/RAX
Strokkur heillar Fjöldi erlendra ferðamanna leggur á ári hverju leið sína um hinn gullna hring með viðkomu á
Þingvöllum, við Gullfoss og ekki síst Geysi þar sem fylgjast má með Strokki gjósa með nokkurra mínútna millibili.
Aðstæður nú kalli á meiri landkynningu en í kjölfar hryðjuverkanna 11. september
Hversu margir erlendir ferða-
menn leggja leið sína hingað til
lands á ári hverju?
Samkvæmt tölum Ferðamálaráðs Ís-
lands er áætlað að 485 þúsund er-
lendir gestir hafi lagt leið sína til Ís-
lands árið 2007. Erlendum ferða-
mönnum fjölgaði að jafnaði um 11%
milli ára á tímabilinu 1995-2004.
Hvernig fá erlendir gestir
upplýsingar um Ísland?
Samkvæmt samantekt Ferða-
málaráðs er upplýsinga um Ísland
aflað með ýmsum hætti. Langflestir
eða rúm 50% fá upplýsingar í gegn-
um Netið, ríflega 30% fá upplýs-
ingar í bæklingum, ferðahandbókum
og á ferðaskrifstofum eða í gegnum
vini og ættingja.
Hversu umfangsmikil er ferða-
þjónustan á Íslandi?
Árið 2005 var ferðaþjónustan rúm
5% af landsframleiðslu og áætlað
að fjöldi starfa í greininni væri
6.800.
Hversu miklum tekjum skila
erlendir ferðamenn til þjóðar-
búsins?
Tekjur af erlendum gestum námu
tæpum 40 milljörðum króna árið
2004, sem var tæplega 30% aukn-
ing frá árinu 2000.
S&S
STUTT