Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 BJÖRGVIN G. Sigurðsson við- skiptaráðherra sótti í gær fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur utanríkisráðherra fyrsta ut- anríkisráðherrafund hinnar norð- lægu víddar Evrópusambandsins, sem haldinn er í St. Pétursborg í boði Rússlands. Norðlæga víddin er samvinnuvettvangur ESB og aðild- arríkja þess ásamt Rússlandi, Ís- landi og Noregi. Bandaríkin og Kanada eru áheyrnarfulltrúar. Á fundinum var m.a. rætt um mikilvægi þess að samhæfa sam- starf svæðisbundinna stofnana, að því er segir í fréttatilkynningu. Norðlæg vídd Eftir Láru Ómarsdóttur lom@mbl.is GEIR H. HAARDE, forsætisráð- herra segir fyrirhugaða lánsþörf Ís- lendinga vera 6 milljarða dollara eða sem nemur um 700 milljörðum króna miðað við gengi gærdagsins. Peningana þurfi Íslendingar til að koma á eðlilegum gjaldeyrismarkaði hér á landi. Á óformlegum blaða- mannafundi í ráðherrabústaðnum í gær fór forsætisráðherra yfir at- burði liðinna vikna og þær björg- unaraðgerðir sem áætlaðar eru. Geir er nýkominn heim af Norður- landaþingi þar sem hann átti meðal annars fundi með hinum norrænu forsætisráðherrunum. Niðurstaða þeirra funda var sú að sérstakur embættismannahópur mun fara yfir beiðni Íslendinga um lán. „Við leggj- um áherslu á að það verði unnið mjög hratt,“ segir Geir en vill ekki tala um sérstakar upphæðir í þeim efnum. Færeyingar fyrstir Geir segir Færeyinga hafa nokkuð óvænt óskað eftir fundi með íslensk- um stjórnvöldum í gær. Ekki hafi verið tekið fram fyrirfram um hvað fundurinn ætti að snúast en það hafi komið skemmtilega á óvart. Þeir hafi boðið fram aðstoð sína: „Sem er mjög höfðinglegt af þeim, 300 millj- ónir danskra króna eru ekkert smá- ræði miðað við stærð samfélagsins þarna. Þeir eru semsagt fyrstir til að koma með eitthvað öruggt.“ Geir segir Norðurlandabúa vilj- uga til að koma Íslendingum til að- stoðar:„Ég finn mikinn velvilja með- al kollega minna á Norðurlöndum, ekki síst hjá Norðmönnum. Það var mikill fjölmiðlaáhugi í Noregi, stjórnarandstaðan í Noregi og al- menningur eru mjög á því að þeir ættu að stíga fram og leggja okkur til lánsfé. Við erum ekki að biðja um gjafir heldur lánsfé, sem verður greitt til baka.“ Þurfum 700 milljarða króna Umsókn Íslands um lán hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum verður væntanlega tekið fyrir á þriðjudag. Umsóknin hljóðar uppá 2,1 milljarð dollara eða um 250 milljarða ís- lenskra króna. Geir segir það vera um þriðjung þess sem ríkið þarf til að koma gjaldeyrismarkaðnum af stað svo eðlilegt gengi myndist á krónunni. Hann segir peningana ekki eiga að fara í að borga skuldir né eigi að kaupa inn vörur fyrir þær því útflutningurinn fjármagni það: „Hann fer í að kaupa krónur á gjald- eyrismarkaðnum og svo fer hann í að byggja upp varnargarð sem hægt er að grípa til.“ Bretadeilan Ekki stendur til að nota lánin sem ríkið er nú að sækjast eftir til að borga Icesave reikninga Lands- bankans. Geir vildi ekki svara því hvort rétt væri að íslensk stjórnvöld væru að reyna að komast hjá því að borga þá reikninga. Hann sagði hins vegar ákveðin lög gilda á Íslandi og svo ákveðnar tilskipanir á Evrópska efnahagssvæðinu. Tryggingasjóður innistæðueigenda hefði verið stofn- aður í samræmi við það. „Síðan er deilt um það lögfræðilega hvort rík- inu sé skylt að bæta við sjóðinn svo hægt sé að borga hverjum og einum eða ekki,“ segir Geir. Hann segist hins vegar vona að eignir Lands- bankans dugi fyrir inneignunum. Efast um EES Geir segist ennfremur í fyrsta sinn hafa fundið fyrir efasemdum varðandi samninginn um EES. Glufa sé í honum þannig að íslensku bank- arnir gátu stofnað útibú erlendis á ábyrgð ríkisins. Í því hafi verið fólg- in áhætta fyrir Ísland sem deila megi um hvort menn hafi haft leyfi til að taka. „Upp úr þessu hefur komið einhver erfiðasta milliríkja- deila sem við höfum lent í á seinni ár- um.“ Vantar 700 milljarða Morgunblaðið/RAX Óformlegur Forsætisráðherra bauð blaðamönnum á óformlegan fund.  Nota á peningana til að koma á gjaldeyrisviðskiptum  Eiga ekki að fara í skuldir  Efasemdir um EES-samning Í HNOTSKURN »Lán Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins sem og önnur lán sem ríkið hyggst taka á næst- unni fer í að koma á eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum. »Ekki á að nota peninganatil að borga skuldir bank- anna né til að endurfjármagna Seðlabanka Íslands. iðunn tískuverslun Kringlunni, s. 588 1680 kvartbuxur 20% afsláttur VETRARLÍNAN 2008 ST. 42-54 KYNNINGARDAGAR 30. OKT. - 8. NÓV. MaxMara, HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 562 2862 Sængur og koddar margar stærðir GRENNINGARNUDD sem virkar hringdu strax og tryggðu þér flottan líkama núna sími 577 7007 Stórhöfða 17 TILBOÐ 24.900 kr. Skeifan 11d 108 Reykjavík sími 517 6460 www.belladonna.is Stærðir 42-56 Flottar úlpur frá Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.