Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 Bókunarsími: 555‐3565 www.elding.is Tveggja tíma ferð með leiðsögn Friðarsúlan skoðuð frá sjó og landi Viðeyjarstofa opin með kaffiveitingar Sunnudaga til fimmtudaga kl 20:00 IMAGINE PEACE siglingar Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 8 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI Á STIGAGANGINN Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is GÍFURLEG áhætta fylgir því að sniffa gas, bæði vegna þess að líf- færi geta skaðast sökum súrefn- isskorts auk mikillar eldhættu sem skapast þegar gasi er hleypt út í rými innandyra. Talið er að á hverju ári slasist fólk í gassprengingu hér- lendis vegna sniffs þótt ekki séu af- leiðingarnar í líkingu við það fjölda- slys sem varð í vinnuskúrnum í Grundargerðisgarðinum á mánu- dagskvöld. Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á sjúkrahúsinu Vogi, er gas þeim eiginleikum gætt að það ryður frá sér súrefni og þegar ein- hver úðar gasinu ofan í lungun get- ur skapast súrefnisskortur í líf- færum með tilheyrandi krampa- hættu. Geta lent í líffærabilun „Við þessar aðstæður geta menn lent í líffærabilun,“ bendir hann á. Hjarta- og æðakerfi getur bilað auk þess sem heilinn verður fyrir súr- efnisskorti. „Síðan er það eldhættan sem skapar enn meiri ógn,“ bætir hann við og segir það nánast árleg- an viðburð hérlendis að sprenging verði við sniff á jarðgasi. Sniff sem aðferð til að komast í vímu varð áberandi hérlendis í byrj- un 9. áratugarins og ýmis efni hafa verið notuð, s.s. lím, þynnir, lakk og ýmsar gerðir af rokgjörnum efnum. Öll eru þessi efni stórhættuleg fyrir líffæri og þar er gasið engin undan- tekning. Gasið er afar fátítt meðal eldri notenda en helst hefur það verið tengt yngstu aldurshópunum og jafnframt er um mjög tíma- bundna neyslu að ræða. Mynstrið virðist vera þannig að unglingar í yngri kantinum fikta með gas, eink- um á haustin, þegar skólar eru að byrja. Nefnir Þórarinn að varla sé hægt að tala um meira en nokkurra vikna fikttímabil í þessu sambandi. Hvað snertir vímuáhrif gass á fólk virðist ekki sem gasið valdi vel- líðunarkennd, heldur rugli fremur skynfæri og valdi um leið töluverðri vanlíðan. Að áliti Þórarins er því fremur illskiljanlegt hvers vegna fólk leitar í að sniffa gas. Helstu ástæðurnar gætu verið þær að gasið er einfaldlega oft innan seilingar. „Það á eftir að rannsaka tengsl gassniffs við aðra vímugjafa,“ segir hann. „En yfirleitt er neyslan tengd ungum aldri og tímabundnum að- stæðum með því að fólk á ekki völ á öðrum efnum. Það eru því unglingar sem eru að prófa þetta í mjög stutt- an tíma.“ Þórarinn gerði eitt sinn könnun á gassniffi meðal vímuefnanotenda og leiddi hún í ljós að afar sjaldgæft var að fólk væri að nota gas lengur en í einn mánuð. „Þótt það séu undantekningar frá því er gassniff þó sem betur fer tímabundið fikt – en slysahættan er engu að síður rosaleg.“ „ÞETTA er mikill heiður og búið að vera mjög góð stund og gaman að upplifa þetta,“ segir Jón Ágúst Þor- steinsson, framkvæmdastjóri Mar- orku sem á þriðjudag hlaut nátt- úru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir orkuspar- andi tækni. Verðlaunaafhendingin fór fram í Helsinki í Finnlandi. „Þetta skiptir miklu máli fyrir Marorku, sérstaklega varðandi okkar viðskiptavini, tengslin við þá og trú þeirra á vörunni því þetta er mikil viðurkenning á því sem við höfum verið að gera og erum að gera,“ segir Jón Ágúst. „Þetta styrkir því tengsl okkar við við- skiptavinina sem eru flestir hér á Norðurlöndum svo það er virkilega gaman að þessu.“ Verðlaun mikill heiður Ljósmynd/Magnus Fröderberg Verðlaun Jón Ágúst segir verðlaunin viðurkenningu á starfi Marorku sem framleiðir orkustjórnunarkerfi í skip. ÞAÐ þarf ekki nema einn lítinn neista í gasmettuðu herbergi til að valda gífurlegri sprengingu. Jafnvel þótt enginn neisti verði, getur fólk beðið bana þegar gas flæðir um því það ryður frá sér súrefni og veldur köfnun ef fólk kemur sér ekki út undir bert loft. Gaskútar í hundraða og þúsundatali eru geymdir í görðum við gasgrill hjá fólki víða um land og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur nokkrar áhyggjur af því að auðvelt sé fyrir fólk að hnupla litlum handhægum kút- um og bera þá á brott. Að sniffa gas hefur í för með sér vanlíðan og veldur truflun á sjón og heyrn en þar fyrir utan getur gas valdið súrefnisskorti í heila. Sjaldnast sniffar fullorðið fólk gas en sérfræðingar hafa helst áhyggjur af yngstu aldurshópunum sem fikta með gas og lenda í hrikalegum slysum við óvar- kára meðhöndlun. Þarf ekki nema einn neista HJÁ fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði var í gær verið að vinna síld sem Faxi RE kom með til hafn- ar í fyrradag. Faxi var með um 800 tonn af síld, sem endist vinnslunni í tæpa þrjá sólarhringa, er haft eftir Magnúsi Róbertssyni vinnslustjóra á heimasíðu fyrirtækisins. Þetta gefur um 400 tonn af frystum afurð- um. Síldin veiddist á Breiðafirði, það- an sem um 30 tíma sigling er til Vopnafjarðar. Magnús segir þessa síld vera ljómandi fínt hráefni. „Þessi síld er heldur smærri en norsk-íslenska síldin en mesti mun- urinn er hins vegar sá að hún er veidd í nót og því betra hráefni en sú síld sem veidd er í flottroll,“ er haft eftir Magnúsi á heimasíðu Granda. Nú stefnir í um 1.200 tonn af fryst- um síldarafurðum hjá fiskiðjuverinu á Vopnafirði, þegar vinnslu farmsins frá Faxa RE lýkur. onundur@mbl.is Góð síld úr Breiðafirði Morgunblaðið/Sverrir Stórhættulegt Gas ryður frá sér súrefni og við inntöku skapast hætta á líffærabilun og súrefnisskorti í heila. Mjög áhættusamt  Að sniffa gas getur valdið alvarlegum súrefnisskorti í heila, líffærabilun og krömpum  Gífurleg eldhætta fylgir gassniffi PILTURINN sem mest slasaðist í gassprengingunni í vinnuskúrnum í Grundargerðisgarðinum á mánudag hafði nokkru fyrir slysið lánað stúlku úr hópnum úlpuna sína og var því illa varinn gegn eldinum þegar hann blossaði upp síðar. Sami piltur brenndist sýnu mest að sögn föður hans, en auk þess jók það á bruna- áverka piltsins að hann opnaði brennandi dyrnar á skúrnum og opnaði hinum krökkunum leið út að sögn föður hans. Er ekki útséð um hvernig og hvort börnin hefðu kom- ist út að öðrum kosti. Faðirinn á tvö börn sem brennd- ust í slysinu. Sonur hans, 15 ára, er enn á gjörgæslu en dóttir hans, 14 ára, er á lýtalækningadeild. „Dóttur minni er mikið að skána og er farin að sjá, en það er ekki al- veg útséð með son minn,“ segir faðir barnanna. „Hann er illa brunninn á stórum hluta líkamans.“ Segir hann börnin hafa verið svo bólgin í andliti að þau hafi misst sjón. Faðir barnanna segir börn sín hafa verið í skúrnum í sitt fyrsta skipti og jafnframt segi þau og eitt barn til viðbótar að enginn hafi verið að sniffa gas. Gas hafi þó lekið út af einhverjum sökum og hafi spreng- ingin orðið við það þegar einhver kveikti sér í sígarettu, grunlaus um hættuna af því. „En lögreglan segir að um sniff hafi verið að ræða og ég trúi því alveg,“ bætir hann við. „Ég efast ekkert um að lögreglan hafi grandskoðað málið.“ Hann segir að þrjú börn sem hann hafi sjálfur talað við hafi borið um að gaskúturinn hafi verið í skúrnum þegar þau mættu þangað. Sex börn hafi verið innandyra en nokkur til viðbótar utan við vinnuskúrinn. Segir faðirinn að á næstu tveim dögum muni skýrast með batahorfur hjá syni sínum. „Börnin eru að end- urupplifa slysið ítrekað en það var þó mikill léttir þegar í ljós kom að bruninn hafði ekki náð niður í önd- unarveginn hjá syni mínum.“ „Eru að endurupp- lifa slysið ítrekað“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.