Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 16
16 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
Meðal efnis er:
• Skemmtilegir og kósý hlutir fyrir
heimilið.
• Matarboð á veturna.
• Hvernig má verjast kvefi og öðrum
leiðindakvillum sem fylgja vetrinum.
• Bíllinn í vetrarbúning.
• Góð og hlý föt fyrir alla aldurshópa.
• Andleg heilsa.
• Utanlandsferðir yfir vetrartímann.
• Skemmtileg afþreying innanlands.
• Vetraríþróttir - góð hreyfing og útivera.
• Hvað má gera sér til skemmtunar í vetur,
leikhús fleira.
• Teppi, kerti, bækur og annað hlýlegt.
• Haustskreytingar.
Vertu viðbúin(n) vetrinum
Á morgun fylgir Morgunblaðinu
glæsilegt sérblað tileinkað vetrinum.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
BYKO hefur brugðist við samdrætti
með því að stytta afgreiðslutíma
verslana, fresta viðhaldi og einnig
hefur starfsmönnum verið sagt upp
störfum þótt ekki hafi komið til
hópuppsagna. Starfsmenn Húsa-
smiðjunnar og dótturfyrirtækja
hennar munu hætta að vinna yf-
irvinnu en hvorki á að segja upp
fólki um mánaðamótin né stytta
afgreiðslutíma.
Stærstu verslanir BYKO í Breidd,
Kauptúni og Garðabæ hafa verið
opnar til 18.30 en nú verður opið til
klukkan 18.00. Þá styttist af-
greiðslutími um helgar um eina
klukkustund. Rætt hafi verið við
starfsfólk um breytingar á vöktum.
Sigurður sagði þessar ráðstafanir
nauðsynlegar enda væru líkur á
verulegum samdrætti á næstu mán-
uðum. Fyrstu sparnaðarráðstaf-
anirnar hafi verið að því lækka laun
forstjóra og framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins. „Launadeildin hefur fyr-
ir þónokkru fengið fyrirmæli þar að
lútandi,“ sagði hann.
Eftirvinna endurskoðuð
Steinn Logi Björnsson, forstjóri
Húsasmiðjunnar, sagði að stjórn-
endur fyrirtækisins hefðu ákveðið, í
ljósi afar erfiðs ástands, að endur-
skoða ákvæði í samningum um eft-
irvinnu. Hér eftir myndu starfs-
menn Húsasmiðjunnar, Blómavals,
Ískrafts og H.G. Guðjónssonar ekki
vinna meira en sem nemur átta
klukkustundum á virkum dögum.
Ekki yrði gripið til uppsagna og af-
greiðslutími yrði að svo stöddu
óbreyttur. Í sumum tilvikum hent-
aði það starfsmönnum vel að fækka
vinnustundum. Þeir sem hefðu
áhuga gætu hugsanlega unnið upp
vinnustundamissinn með aukinni
helgarvinnu. Þetta væri mildasta
leiðin sem væri fær. Aðgerðirnar
hefðu verið unnar í samvinnu við
verkalýðsfélögin. runarp@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Minna Húsasmiðjan og Byko draga
saman seglin enda ekki vanþörf á.
Stytta
vinnutíma
starfsfólks
Þakklæti til Færeyja
Þingmenn eru ánægðir með velvild
Færeyinga í garð Íslands en þeir
fyrrnefndu vilja veita Íslandi lán upp
á 300 milljónir danskra króna. Í
upphafi þingfundar í gær lýstu
fulltrúar allra flokka yfir ánægju
með þetta vinabragð og var því
beint til forseta Alþingis að koma á
framfæri þökkum fyrir hönd þings-
ins.
Dómi áfrýjað
Dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar
sem jákvæður úrskurður umhverf-
isráðherra vegna lagningar Vest-
fjarðavegar milli
Bjarkalundar og
Eyrar í Reykhóla-
hreppi er felldur
úr gildi, verður
áfrýjað að því er
fram kom í svari
samgöngu-
ráðherra við fyr-
irspurn Álfheiðar
Ingadóttur, VG, á
Alþingi í gær.
Landeigendur,
Náttúrverndarsamök Íslands og
Fuglavernd höfðuðu málið en í um-
ræðum á þingi í gær voru nokkrir
þingmenn Norðvesturkjördæmis
mjög ósáttir og fannst stefnendur
vera að tefja löngu tímabærar fram-
kvæmdir. Guðbjartur Hannesson,
Samfylkingu, vildi meina að þarna
hefðu nokkrir einstaklingar farið of-
fari og væru jafnvel „bókstaflega að
reyna að sækjast eftir einhverjum
bótum sjálfum sér til handa.“ Þing-
menn VG mótmæltu þessu harð-
lega og sagði Árni Þór Sigurðsson
alvarlegt ef þingmenn gerðu at-
hugasemdir við að fólk nýtti sér lög-
formlegar leiðir og lýðræðislegan
rétt sinn.
Áhyggjur arkítekta
Iðnaðarnefnd fékk Arkitektafélag
Íslands á sinn fund í gær og segir
Katrín Júlíusdóttir, formaður nefnd-
arinnar, að arkí-
tektar hafi lýst
þungum áhyggj-
um en einnig séð
tækifæri í stöð-
unni. „Það stefnir
í að um 45%
arkítekta missi
vinnuna núna og
félagið lagði fram
tillögur á fund-
inum um hvernig
mætti rétta þann kúrs af,“ segir
Katrín og nefnir þá tillögu að ekki
verði dregið úr opinberum fram-
kvæmdum.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10.30 og í dag
flytur forsætisráðherra þinginu
skýrslu um efnahagsmál.
Álfheiður
Ingadóttir
Katrín Júlíusdóttir
ÞETTA HELST …
TIL greina kemur að endurskoða
lög um fæðingarorlof þannig að
einhleypar konur sem fara í
tæknifrjóvgun geti fengið níu
mánaða orlof. Þetta kom fram í
svari Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra við fyrirspurn
Katrínar Jakobsdóttur, þing-
manns VG, á Alþingi í gær.
Á síðasta þingi voru samþykkt
lög um að einhleypar konur
mættu fara í tæknifrjóvgun. Katr-
ín benti á að lög um fæðingar-
orlof hefðu ekki verið endurskoð-
uð með tilliti til þess. Konurnar
sem um ræðir fá að hámarki sex
mánaða orlof og börn þeirra
njóta því samvista við foreldri sitt
þremur mánuðum skemur en
börn sem eiga tvö foreldri. Jó-
hanna sagði mikilvægt að koma
til móts við þessar sérstöku að-
stæður. halla@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Níu mán-
aða fæð-
ingarorlof
Sex mánuðir Einhleypar konur geta farið í tæknifrjóvgun en fá aðeins sex
mánaða fæðingarorlof í stað níu mánaða hjá tveimur foreldrum.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÞAÐ var ljóst þegar gengið var til
samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn (IMF) að hér myndi þurfa að
hækka stýrivexti. Þetta sagði Arn-
björg Sveinsdóttir, þingflokksfor-
maður Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í
gær, og áréttaði að allir flokkar nema
VG hefðu viljað samstarf við sjóðinn.
„Það kom hins vegar töluvert á óvart
að þessi hækkun þyrfti að vera svo
mikil sem raun bar vitni,“ sagði Arn-
björg.
Ósjálfstæður Seðlabanki?
Stjórnarandstöðuþingmenn vildu
vita hvort stjórnarflokkarnir stæðu
að baki stýrivaxtahækkuninni og hver
afstaða Samfylkingarinnar væri.
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður
Frjálslyndra, sagði ekki ganga að rík-
isstjórnin talaði tungum tveim. Á
meðan allir segðust styðja aðgerðina
kæmi menntamálaráðherra fram með
efasemdir.
Lúðvík Bergvinsson, þingflokks-
formaður Samfylkingar, áréttaði að
Seðlabankinn tæki ákvörðun um
stýrivaxtahækkun enda væri hann
sjálfstæð stofnun. Það þyrfti hins veg-
ar ekki að koma á óvart að þingmenn
væru hugsi þar sem Seðlabankinn
hefði kynnt hækkunina sem hún væri
gerð vegna samkomulags ríkisstjórn-
arinnar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Væri það rétt væri Seðlabankinn í
raun að lýsa því yfir að hann væri ekki
lengur sjálfstæður. „En á sama fundi
lýsti Seðlabankinn því yfir að hann
væri sjálfstæður,“ sagði Lúðvík.
Bjarni Harðarson, þingmaður
Framsóknarflokks, sagði þjóðina ráð-
villta varðandi hver færi með völd í
landinu. „Það að fulltrúar Samfylk-
ingarinnar skjóti sér á bak við hið svo-
kallaða sjálfstæði Seðlabankans þykir
mér ekki mjög stórmannlegt,“ sagði
Bjarni og bætti við að Seðlabankinn
fylgdi stefnu stjórnvalda.
Varla viðunandi skilyrði
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður
Vinstri grænna, sagði ríkisstjórnina
áður hafa haldið því fram að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hefði engin óvið-
unandi skilyrði sett fyrir aðstoð. Þessi
mikla hækkun væri hins vegar varla
viðunandi. „Réttilega er hægt að færa
hagfræðileg rök fyrir því að hún sé
sett fram til þess að styrkja gengi ís-
lensku krónunnar. En margar
ákvarðanir af þessum toga í gegnum
tíðina hafa haft þveröfug áhrif víða
um heim,“ sagði Árni Þór.
Samstarf við IMF þýddi
stýrivaxtahækkun
Hafi Seðlabankinn hækkað vexti vegna IMF er hann ekki
sjálfstæður, segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar
Í HNOTSKURN
»Stýrivextir voru hækkaðirí 18% í fyrradag.
»Óljóst virðist vera hvorthækkunin er hluti af sam-
komulaginu við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn eða ekki.
»Samkomulagið bíður ennsamþykktar framkvæmda-
stjórnar sjóðsins.