Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 18

Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008                                   !                                           !""" #    $%      $%                    & '$   ( )* $     $%        ++ $, -  . / 0 12  &  3  4 5  6 7 8     0 19  5 0:-   # ;; )< )+ != !+ !+ !" += +; +; +; $%& >*?>"">"< '   (  &$% $%   )*+,-. / +/01+.1 23+4-4516    $%  % $     @                   $%   $778 $777 &99: &99$ &9;; &9;8 &9;7 &9%: &9%$ &9:; +   #  #      A  A   BB  BB  9A  B0 / B0 /      ! "#$  ! %   !  $;: $%& <%9 <%7 8$: =$= 8;9 $9% =$7 <7& 9- 5  BC  7C  7  9A  & 78  DD( 5 $=& $:: &=9 &:; &&& &< 89 $87 &% &9& &'  ()* +, - #.2>?0#>?5-0 +2@22. &$% $%              '@ $%     $%           $     @  .    /*) 01 / E     / !       & $ < =< $ == 26730 &    -$%  =A=B  $% - F)G;;H I5  $77B F!G+H J'@ $%  &A8B   '@-  -K3&6B0J &$%    I5  <A;B F!G;)H +2-C.-45 2DE*6#44# J    $  $% %   @    %              $%   && 6B A== D3 07 = .L<8 6- -M:A6 N. = &7 0P = 3C 8 7.< 0C MC 0I 3 &7 70 &7 3 76 && : 7M : 9K 9 &= &K$% .0&& 3K $& 30 && 73 &% 02<& 4$& -2 0D 7 &$ B3 A. 09&= CI 7C&7 QCA 2 6D $7 P &< P P. 7I 0A&= MA 2     01 3011 ) ! /   !  ! 2DE*6#44#*F0-0 -$%      $       '      $$%     CA & @: 8<= E  : &77 CA < -9EB7I00 KKM =<; NÚ eftir helgi verður opnuð í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum ein stærsta versl- anamiðstöð í heimi en flatarmál hennar jafnast á við 50 fótboltavelli, 5,9 milljónir fermetra. Í henni verða í raun 10-15 sjálfstæðar versl- anamiðstöðvar og þar á meðal gífurlega stór sjávardýragarður. Þar geta viðskiptavinir versl- ananna leigt sér búning og heilsað upp á há- karla, fiska og aðra íbúa undirdjúpanna. Reuters Undraheimur hafdjúpanna í verslanamiðstöð MARGT bendir til, að jórdanskir fornleifafræðing- ar hafi fundið námur Salómons konungs í eyði- mörk í Jórdaníu. Þar var þó bara unninn kopar en ekki gull og gim- steinar eins og sagt er í sögum. Mikið orð fór af veldi og visku Sal- ómons konungs og í Gamla testa- mentinu segir, að hann hafi reist fyrsta musterið í Jerúsalem. Kolefnismælingar sýna, að unnið var í námunum á þeim tíma er Sal- ómon var konungur Ísraelsmanna, á níundu og tíundu öld f.Kr., en þær eru í Khirbat en-Nahas. Hafa þar fundist leifar 100 fornra bygginga og virkis og svo mikið er þar um málmgjall, að það má sjá á Google Earth. Bókin Námar Salómons konungs eftir breska rithöfundinn Sir H. Rid- er Haggard kom út undir aldamótin 1900 og varð strax mjög vinsæl, var meðal annars þýdd á íslensku. Í henni var allt með miklum ævin- týrablæ og námurnar niðurkomnar einhvers staðar í Afríku. svs@mbl.is Ekki gull, bara kopar Námur Salómons hugsanlega fundnar Síðari tíma mynd af Salómon. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BARACK Obama, forsetaefni demókrata, hefur verulegt forskot á repúblikanann John McCain í fjórum sambandsríkjum þar sem repúblikanar hafa sigrað í síðustu kosningum, ef marka má nýja könn- un fréttastofunnar Associated Press. Hún bendir til þess að lítill munur sé á fylgi forsetaefnanna í tveimur öðrum ríkjum. Könnunin náði til átta ríkja sem eru talin geta ráðið úrslitum í kosn- ingunum: Colorado, Flórída, Nevada, New Hampshire, Norður- Karólínu, Ohio, Pennsylvaníu og Virginíu. Obama hefur forskot í öll- um þessum ríkjum, þótt munurinn sé mismikill, frá tveimur prósentu- stigum til átján. „Ef menn trúa á kraftaverk, þá trúa þeir á McCain,“ hafði AP eftir einum af pólitískum ráðgjöfum repúblikana, Joe Gaylard. Þótt margir repúblikanar séu farnir að spá því að McCain bíði ósigur segja aðstoðarmenn hans að kannanir þeirra bendi til þess að hann eigi enn möguleika á sigri. Þeir viðurkenna þó að sigurlíkurnar séu litlar. Könnun AP bendir til þess að for- skot Obama sé 7 prósentustig í Ohio, 12 í Nevada, 9 í Colorado og 7 í Virg- iníu – fjórum ríkjum þar sem George W. Bush sigraði í forsetakosning- unum árin 2000 og 2004. Kjörmenn þessara fjögurra ríkja eru alls 47. Sigri Obama í öllum þessum ríkj- um, eða í tveimur eða þremur þeirra, er hann nánast öruggur um að ná kjöri. Obama þarf að fá a.m.k. 270 kjör- menn og hann getur tryggt sér 252 þeirra með því að sigra í öllum ríkj- unum þar sem John Kerry, forseta- efni demókrata, sigraði fyrir fjórum árum. McCain er aðeins talinn eiga möguleika á sigri í Pennsylvaníu (með 21 kjörmann) og New Hamp- shire (fjóra kjörmenn). Forskot Obama er þó mikið í Pennsylvaníu, eða 12 prósentustig. Jöfn barátta í Arizona Munurinn er innan skekkju- marka, eða 2 prósentustig, í tveimur ríkjum, Norður-Karólínu (15 kjör- menn) og Flórída (27 kjörmenn). Bush sigraði í báðum ríkjunum í kosningunum fyrir fjórum og átta árum. McCain hefur þurft að verjast í ríkjum þar sem hann var áður talinn vera öruggur um sigur. Jafnvel heimaríki hans, Arizona, er dæmi um þetta, því ný könnun bendir til þess að forskot hans þar sé aðeins tvö prósentustig. Obama vonast til þess að hafa styrkt sig í sessi með hálfrar klukku- stundar langri sjónvarpsauglýsingu sem sýnd var á besta tíma í gær- kvöldi. Auglýsingin var sýnd í CBS, NBC og Fox fyrir milljón dollara á hverri stöð, auk sjónvarpsstöðvanna Univision (spænskumælandi), BET (kapalstöð sem nýtur vinsælda með- al blökkumanna), MSNBC og TV One. Í vörn á öllum vígstöðvum McCain talinn eiga á brattann að sækja í átta ríkjum sem gætu ráðið úrslitum Reuters Í mótbyr McCain leggur áherslu á efnahagsmál á lokasprettinum. ÞAÐ hefur þótt allt að því tilkomu- mikið að sjá venjulegan Bandaríkja- mann taka upp veskið sitt og blaða í öllum kreditkortunum. Þau hafa jafnvel skipt nokkrum tugum enda hafa lánamöguleikarnir verið í sam- ræmi við það á síðustu árum. Nú er þessari veislu lokið með alvarlegum afleiðingum fyrir korthafana og bankana. Bankarnir eru hættir að troða kreditkortum upp á fólk enda skil- yrðin og kjörin allt önnur en áður. Á fyrsta misseri þessa árs máttu þeir afskrifa 21 milljarð dollara vegna kreditkortaskulda og því er spáð, að afskriftirnar næsta hálfa annað árið verði 55 milljarðar dollara. Telja margir, að þrengingar bandarísks almennings hafi ekki verið meiri í 50 til 70 ár. svs@mbl.is Kortaveisl- unni lokið Bankarnir afskrifa tugmilljarða dollara Viswanathan An- and frá Indlandi varði heimsmeist- aratitil sinn í skák þegar hann gerði jafntefli við Rúss- ann Vladímír Kramník í 11. ein- vígisskák þeirra í Bonn í Þýska- landi gær. Anand hafði hvítt í síðustu skákinni og var samið um jafntefli eftir 24 leiki. Anand hafði þá tryggt sér 6½ vinning og sigur í einvíginu þannig að ekki þarf að tefla 12. og síðustu skákina. Verð- launaféð var 1,5 milljónir evra og skiptist það jafnt á milli skákmann- anna tveggja. Anand er 38 ára gamall, hann hef- ur tekið þátt mótum hér á landi. Hann vann heimsmeistaratitil Al- þjóðaskáksambandsins, FIDE, árið 2000 en um það leyti var klofningur í skákheiminum. Hann hefur hins vegar verið óumdeildur heimsmeist- ari frá 2007 og er með 2783 Elo-stig. kjon@mbl.is Anand hélt titlinum Viswanathan Anand

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.