Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 19
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
VAXANDI áhugi er á því í Dan-
mörku að efna til nýrrar atkvæða-
greiðslu um upptöku evrunnar. Er
ástæðan fjármálakreppan, sem nú
ríður húsum um allan heim, en í
henni hefur komið berlega í ljós hve
litlir gjaldmiðlar eru berskjaldaðir.
Fjármagnið flýr þá og leitar skjóls
hjá þeim stóru, evru og dollara. Í
Svíþjóð eru flestir sammála um, að
taki Danir upp evruna, sé röðin kom-
in að þeim og í öðrum löndum Evr-
ópusambandsins, sem standa enn ut-
an við myntbandalagið, er verið að
vinna áætlanir um skjóta aðild.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, gerði
evruna og fjármálakreppuna að um-
talsefni í „Go’ Morgen Danmark“ á
TV2 í fyrradag og sagði þá, að nú
fyndu Danir í alvöru fyrir afleið-
ingum þess að vera ekki með evruna.
„Þegar órói er á fjármálamörk-
uðum, svo ekki sé talað um kreppu,
þá sogast fjármagnið frá löndum
með lítinn, sjálfstæðan gjaldmiðil og
til þeirra stóru, t.d. evrunnar. Það
hefur einfaldlega í för með sér mik-
inn og stöðugan kostnað að vera
ekki með hana,“ sagði Rasmussen
og nefndi m.a., að þrýstingurinn á
dönsku krónuna birtist í verulegum
vaxtamun á milli hennar og evr-
unnar. Taldi hann líklegt, að vaxta-
munurinn myndi aukast á næstu
mánuðum og hafa þar með slæmar
afleiðingar fyrir almenning, ekki síst
húseigendur, einkum þá, sem eru
með lán á breytilegum vöxtum.
SF enn á móti og þó
Á danska þinginu er raunar góður
meirihluti fyrir því að efna til nýrrar
atkvæðagreiðslu um upptöku evr-
unnar en Rasmussen leggur áherslu
á, að vegna þess, að henni var hafnað
með 53% atkvæða árið 2000, verði að
vera nokkurn veginn alger samstaða
um nýja atkvæðagreiðslu meðal
þingflokkanna. Þar stendur hins
vegar upp á SF, Sósíalíska þjóðar-
flokkinn.
Afstaða SF vegur þungt og
þyngra en svarar til stærðar flokks-
ins því að hann hefur haft forystu
um að segja nei í öllum atkvæða-
greiðslum um Evrópumál í Dan-
mörku. Villy Søvndal, formaður SF,
ítrekaði eftir viðtalið við Rasmussen,
að afstaða SF til evrunnar væri
óbreytt en margt bendir þó til, að á
því geti orðið breyting. Anne Grete
Holmsgaard, talsmaður flokksins í
Evrópumálum, er hlynnt nýrri at-
kvæðagreiðslu og svo er einnig um
Margrete Auken, sem er efst á lista
SF í kosningum til Evrópuþingsins,
og þingkonuna Piu Olsen Dyhr.
Svíar fylgjast með
Í Svíþjóð er fylgst af áhuga með
evruumræðunni í Danmörku enda
augljóst, að taki Danir upp evru,
muni þrýstingurinn á Svía stórauk-
ast. Þeir eru líka með fljótandi gengi
á sinni krónu öfugt við Dani, sem
binda sína krónu evrugenginu með
ákveðnum vikmörkum. Hefur
sænska krónan veikst töluvert að
undanförnu en þess er þó ekki enn
farið að gæta fyrir alvöru í almennu
vöruverði. Aftur á móti hafa vextir
hækkað töluvert. Í Svíþjóð var upp-
taka evrunnar felld 2003 og þá var
talað um, að ekki yrði efnt til nýrrar
næstu tíu árin, í fyrsta lagi 2013. Af-
staða Dana kann þó að breyta því.
Í öðrum ESB-ríkjum, sem standa
utan við myntbandalagið, er nú unn-
ið hörðum höndum að því að fá aðild
sem fyrst. Þann lærdóm draga menn
af fjármálakreppunni. Það á við um
Eistland, Lettland og Litháen og nú
í vikunni lagði Donald Tusk, for-
sætisráðherra Póllands, fram áætl-
un um eins konar flýtimeðferð, þ.e.,
að Pólland fái aðild innan þriggja
ára. Slóvakía fær aðild að mynt-
bandalaginu um áramót og Ung-
verjaland og Tékkland eru næst. Í
Svíþjóð gera menn sér grein fyrir
því, að það gengur ekki upp, að land-
ið verði eins konar eyja umkringd
evruhafi.
Utanveltu
Fredrik Reinfeldt, forsætisráð-
herra Svíþjóðar og leiðtogi Hægri-
flokksins, og Mona Sahlin, leiðtogi
jafnaðarmanna, hafa að undanförnu
hrósað mjög viðbrögðum Evrópu-
sambandsins við fjármálakreppunni
en þau hafa að sjálfsögðu gagnast
Svíum líka. Harma þau bæði, að Sví-
ar skuli ekkert hafa haft um þetta að
segja og minna nú á, hver voru
helstu rök evrusinna í kosningunum
2003. Þau voru „Stöðugur gjaldmið-
ill“ og „Aukin, pólitísk áhrif“.
Danir ræða evruna á ný
Lehtikuva
Í evruhugleiðingum Anders Fogh Rasmussen, Fredrik Reinfeldt og Matti
Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, á þingi Norðurlandaráðs í vikunni.
Fjármálakreppan hefur sýnt hve litlir, sjálfstæðir gjaldmiðlar eru berskjaldaðir á erfiðum tímum
Fjármagnið flýr þá og leitar skjóls hjá þeim stóru með alvarlegum afleiðingum fyrir efnahagslífið
Í HNOTSKURN
» Tíu ár eru nú liðin síðanevran, sameiginlegur
gjaldmiðill margra Evrópu-
landa, kom til og þykir hún
ekki síst hafa sannað sig í
fjármálakreppunni nú.
» Danir hafa verið í Evr-ópusambandinu frá 1973
en felldu upptöku evrunnar í
atkvæðagreiðslu árið 2000.
» Svíar hafa verið í ESBfrá 1995 en felldu upp-
töku evru 2003. Átti að bíða
með aðra atkvæðagreiðslu í
10 ár en það kann að breyt-
ast.
AÐ MINNSTA kosti 170 manns létu
lífið í hörðum jarðskjálfta sem reið
yfir Pakistan í gærmorgun.
Nær öll hús í a.m.k. átta þorpum í
grennd við borgina Quetta jöfnuðust
við jörðu í náttúruhamförunum. Yf-
irvöld sögðu að tala látinna kynni að
hækka þegar björgunarsveitir kæm-
ust til þorpa í afskekktu fjallahéraði
við landamærin að Afganistan.
Grátandi þorpsbúar grófu með
berum höndunum í rústum íbúðar-
húsa í örvæntingarfullri leit að ætt-
ingjum sínum í Wam, einu af þorp-
unum sem urðu verst úti í
hamförunum. Skólar og sjúkrahús
urðu einnig fyrir miklum skemmd-
um.
Jarðskjálftinn mældist 6,4 stig á
Richters-kvarða og olli skriðuföllum.
Honum fylgdu nokkrir eftirskjálftar
og sá stærsti var 6,2 stig.
Mannskæðir jarðskjálftar hafa
verið algengir á þessum slóðum. Um
74.000 manns létu lífið og 3,5 millj-
ónir manna misstu heimili sín í 7,6
stiga skjálfta sem reið yfir norðvest-
urhluta Pakistans og Kasmír fyrir
þremur árum. Um 30.000 manns fór-
ust í Quetta árið 1935. bogi@mbl.is
Jarðskjálfti lagði
átta þorp í rúst
Reuters
Örvænting Íbúar þorpsins Ziarat leita í rústum íbúðarhúsa sem hrundu í
mannskæðum landskjálfta í Pakistan í gærmorgun.
! "
!#
#
$
!
$
%
& ' (
"
'
#!
)'*
#%
+'
,# (
)""
30CK0C
-J0
! + %&03M. R -(./
!
7 ?<
B 8
$ $
?"
R Einars vaka Ben á Elliðavatni
laugardaginn 1. nóvember kl. 14-18
Einars vaka Ben
UnnurJökulsdóttir Skógræktarfélagi Reykjavíkur.
Ávarp
KristinnH.Þorsteinsson Orkuveitu Reykjavíkur.
Ávarp
GuðjónFriðriksson sagnfræðingur
Þættir úr sögu Elliðavatns, Benedikts Sveinssonar
og Einars Benediktssonar
SiljaAðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur
“Hugar míns þorsta var aldrei svalað”:
Ævisöguleg kvæði Einars Ben
BenediktErlingsson leikari
flytur Einræður Starkaðar og fleiri kvæði Einars
Kaffihlé
AndriSnærMagnason rithöfundur
Hvar ertu Einar?
SvalaArnardóttir afkomandi Einars
“Blóðið sama er í okkur”
- til fundar við nokkrar formæður “Svarta túlípanans”
Umræður
BergurogSnorriúrSprengjuhöllinniflytja lag
um Einar Ben
HalldórGuðmundsson rithöfundur kynnir
og stjórnar umræðum
Dagskrá
heidmork.is
Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Sjá kort
á heidmork.is