Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 20

Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 20
20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Á hrif hamfara á fólk geta verið margvísleg og þeirra getur gætt löngu eftir að atburðir áttu sér stað. Verkefnið gengur fyrst og fremst út á eftirfylgd og sál- rænan stuðning í kjölfar jarðskjálft- anna hér á Árborgarsvæðinu í vor, í Ölfusi og Hveragerði. Við förum í alla grunnskóla, alla leikskóla og líka í Fjölbrautaskólann. Með þessu erum við að skapa tækifæri fyrir börn og foreldra til að vinna úr reynslu sinni vegna hamfaranna,“ segja þau Elín Jónasdóttir og Jóhann Thoroddsen frá Rauða krossinum, sem mætt voru í Sunnulækjarskóla á Selfossi á fyrsta degi verkefnisins. Elín er verkefnis- stjóri þessa átaks en bæði eru þau sálfræðimenntuð. Verkefnið er unnið í samvinnu við bæjar- og skólayfir- völd á svæðinu sem og deildir Rauða krossins þar. „Við gerum þetta á já- kvæðan og uppbyggjandi hátt. Börn- in fá verkefni sem kennararnir leggja fyrir þau en við höfum unnið þessi verkefni í samvinnu við kennarana. Til dæmis fáum við krakkana til að tengja saman hugsun, tilfinningu og hegðun. Að endingu fáum við þau til að velta fyrir sér hvað þau geta lært af þessu og hvað þau geti gert til að hjálpa sér sjálf þegar þeim líður illa og líka þegar öðrum líður illa.“ Verkefnin eru að sjálfsögðu mis- jöfn eftir aldri og þroska nemenda. „Kennari yngstu barnanna les fyrir þau sögu um strák sem lendir í jarð- skjálfta en bjargast og allt fer vel. Kennarinn stoppar öðru hverju í sög- unni og spyr börnin hvernig þau haldi að drengnum líði og þá sýna þau myndir af andlitum sem þau hafa teiknað og lýsa ýmsum tilfinningum eins og reiði, hræðslu eða gleði. Verk- efni eldri krakkanna eru meira skrif- leg og elstu börnin í áttunda, níunda og tíunda bekk vinna þetta í hópvinnu en þau fá auk þess beina fræðslu frá okkur í upphafi, um áföll, afleiðingar þeirra, viðbrögð og hvernig hægt er að styðja sjálfan sig og aðra.“ Að finna sinn eigin styrkleika Hugmyndin að verkefninu kemur frá Rauða krossinum en þau segja að framkvæmdin hafi ekki verið mögu- leg nema vegna þess að Kiwanis- hreyfingin lagði verkefninu lið með því að leggja til eina milljón. „Kennarar og starfsfólk skólanna hafa tekið okkur mjög vel og sam- vinnan hefur gengið frábærlega, en það er mjög mikilvægt,“ segja þau El- ín og Jóhann sem eru búin að vera með undirbúningsfundi með öllum kennurum í öllum skólum á svæðinu. „Verkefnið nær til fimm grunnskóla á þessu svæði en við verðum líka með fræðslu fyrir allt starfsfólk leikskóla. Einnig verðum við með sérstaka fræðslu fyrir foreldra barnanna. Við ætlum líka að vera með fræðslu í lífsleikninámskeiði hjá framhalds- skólanemum í Fjölbrautaskóla Suður- lands. Verkefninu er meðal annars ætlað að hjálpa krökkunum við að finna sinn eigin styrkleika og hvernig þau geta nýtt hann í framtíðinni, því allir lenda einhvern tíma í erfiðum tímabilum í lífinu.“ Rauði krossinn hefur hug á að nýta módelið að þessu verkefni síðar meir við svipaðar að- stæður. Unnið úr jarð- skjálftareynslu Morgunblaðið/ÓmarSamverustund Guðbjörg Kristjánsdóttir, kennari í 3.-4. bekk, fer yfir verkefnið með nemendum sínum. Styrkveiting Marianne Brandsson Nielsen, formaður Rauða krossins í Árnesingadeild, tekur við einni milljón úr hendi Sigurðar Péturssonar, formanns styrktarsjóðs Kiwanis, til stuðnings verkefninu. Helga Halldórsdóttir, sviðs- stjóri RKÍ innanlands, stendur lengst til vinstri en hægra megin eru þau Eyrún Sigurðardóttir, formaður RKÍ í Hveragerði, og Matthías G. Pétursson, umdæmisstjóri Kiwanishreyfingar Ísland-Færeyjar. Á þriðjudag hóf Rauði krossinn fræðsluverkefni fyrir börn, ungmenni og forsjáraðila þeirra, í kjöl- far jarðskjálftanna á Suðurlandi í vor. „Ég var heima hjá mér með mömmu þegar jarðskjálftinn var og varð ekkert hrædd,“ segir Þóra Valdís og bætir við að ein frænka sín hafi aft- ur á móti orðið mjög hrædd. Stefán Freyr bar sig líka vel og sagðist hafa verið svo heppinn að vera ekki heima þegar ósköpin dundu yfir. „Ég var í Skaftafelli sem er í um tvö hundruð kílómetra fjarlægð frá Selfossi. Ég var þar í sundi og við urðum vör við skjálftann í vatninu. Amma mín var heima hjá mér og hún lét sér ekkert bregða. Það brotnaði nú ekki nema ein stytta hjá okkur.“ Vorum ekkert hrædd Andlit Þóra Valdís teiknaði andlit sem sýnir ánægju en Stefán Freyr teiknaði andlit sem sýnir reiði. Þau eru nemendur í Sunnulækjarskóla. Frá RKÍ Elín Jónasdóttir verkefn- isstjóri og Jóhann Thoroddsem sál- fræðingur voru ánægð með fyrsta daginn í Sunnulækjarskóla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.