Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 21
Daglegt líf 21ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 I Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og laugard. 11-16
ÞAÐ ER SJÚKRAÞJÁLFARI
Í VERSLUN OKKAR
alla fimmtudaga frá kl. 16 til 18
sem aðstoðar þig við val á dýnu.
Bónus
Gildir 30. ok.-2. nóv. verð nú verð
áður
mælie. verð
Ali ferskur heill kjúklingur ............ 598 698 598 kr. kg
Holta ferskar piri piri kjúklingabr. . 1.869 2.379 1.869 kr. kg
Ali ferskur grísabógur ................. 499 599 499 kr. kg
Ali reyktur grísabógur ................. 698 798 698 kr. kg
Ks frosinn lambabógur ............... 683 759 683 kr. kg
Ks lambasvið ............................ 194 299 194 kr. kg
Bónus lýsi, 500 ml .................... 359 398 718 kr. l
Pepsi max dósir, 10 stk. ............. 498 598 50 kr. stk.
Bónus spelt pitsudeig, 400 g...... 198 279 495 kr. kg
MY fjölkornabrauð, 375 g ........... 98 139 261 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 30. okt.-1. nóv. verð nú verð
áður
mælie. verð
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.498 1.778 1.498 kg
Lamba innralæri úr kjötborði....... 2.398 2.898 2.398 kg
Móa krydduð læri ...................... 597 865 597 kg
Fjallalambs blandað súpukjöt ..... 534 628 534 kg
Fjallalambs lifrarpylsa, ósoðin..... 558 797 558 kg
Fjallalambs blóðmör .................. 530 757 530 kg
FK bayonne skinka ..................... 998 1.175 998 kg
Hagkaup
Gildir 30. okt.-2. nóv. verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambalæri af nýsl. úr kjötborði .... 998 1.698 998 kr. kg
Grísakótilettur úr kjötborði .......... 998 1.482 998 kr. kg
HM kjúklingavængir ................... 419 599 419 kr. kg
Íslandsgrís svínalundir................ 1.439 2399 1.439 kr. kg
Íslandsgrís hnakkasneiðar, úrb.... 1.079 1.798 1.079 kr. kg
Íslandsgrís svínagúllas ............... 1.121 1.869 1.121 kr. kg
Íslandgrís svínasnitsel ................ 1.121 1.869 1.121 kr. kg
Kjúklingaleggir í texas mariner .... 506 779 506 kr. kg
Folaldasaltkjöt með beini ........... 561 748 561 kr. kg
Krónan
Gildir 30. okt.-2. nóv. verð nú verð
áður
mælie. verð
Ungnauta roastbeef ................... 2.159 3.095 2.159 kr. kg
Ungnauta piparsteik .................. 2.159 3.095 2.159 kr. kg
Grísahnakki, úrb. sneiðar............ 849 1.696 849 kr. kg
Goða grísabógur ........................ 498 498 498 kr. kg
Danskt beikon ........................... 198 498 198 kr. pk.
Danskur hamborgarhryggur, úrb. . 1.299 1.998 1.299 kr. kg
Super snittubrauð, frosin, 3 stk. .. 198 269 198 kr. pk.
Fiskibollur forsteiktar .................. 599 599 599 kr. kg
Krónusalat ................................ 229 249 229 kr. pk.
Tuborg grön léttöl ....................... 69 92 69 kr. stk.
Nóatún
Gildir 30. okt.-2. nóv. verð nú verð
áður
mælie. verð
Ungnautahakk........................... 798 1.398 798 kr. kg
Grísakótilettur............................ 998 1.498 998 kr. stk.
Grísafille með ostafyllingu .......... 2.198 2.798 2.198 kr. kg
Nóatúns ítalskar hakkbollur ........ 998 1.594 998 kr. kg
Ungnautaglóðaborgari, ca 120 g. 149 199 149 kr. stk.
Stórlúða í sneiðum..................... 1.698 2.298 1.698 kr. kg
Nóatúns kjúkl.bringur m/chilli..... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Speltbrauð................................ 199 369 199 kr. stk.
Maryland rauður/ blár/ fjólublár . 89 125 89 kr. pk.
Kea skyrdrykkir, 3 teg. ................ 129 147 129 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 30. okt.-5. nóv. verð nú verð
áður
mælie. verð
Toppur sítrónu, 2 l...................... 179 239 90 kr. l
Myllu speltbrauð, 500 g ............. 315 359 630 kr. kg
Myllu hvítlauksbr. fín/gróf, 2 stk.. 349 439 349 kr. pk.
Weetos heilhveitihringir, 375 g .... 469 545 1.251 kr. kg
Filippo Berio ólífuolía, 500 ml..... 598 698 1.196 kr. ltr
Orville örb.popp venjulegt, 281 g 229 319 815 kr. kg
Swiss Miss kakó pk., 284 g ........ 349 459 1.229 kr. kg
Swiss Miss kakó sykursk., 284 g . 369 489 1.300 kr. kg
Helgartilboðin
Speltbrauð og slátur
Morgunblaðið/Kristinn
Veisla Lambakjöt er víða á tilboði um helgina og því til-
valið að klæða það í sparibúning og bjóða í mat.
Það var býsna kalt í höfuðborg
Norðurlands í gærmorgun. Suðaust-
anstrekkingur, ef ég man rétt. Ef-
laust ættaður frá London.
Ég er ekki hryðjuverkamaður þó
breska ríkisstjórnin haldi því fram.
Bara svo það sé á hreinu.
Geir setur mig vonandi ekki á svart-
an lista þó ég haldi áfram að horfa á
Liverpool í sjónvarpinu hér fyrir
norðan. En ég lofa auðvitað að fara
ekki á völlinn strax og ekki tala
ensku nema í laumi.
Eins og vænta mátti er kreppan
komin til Akureyrar. Því miður.
Ferðaskrifstofa Akureyrar hefur af-
lýst leiguflugi til London í nóv-
ember; á fréttavef Vikudags segir
Ragnheiðar Jakobsdóttir hjá FA að
tveimur mánuðum fyrir brottför hafi
110 verið búnir að bóka sig en í síð-
ustu viku einungis 40 verið eftir.
Stjórnendur og starfsmenn útvarps-
stöðvarinnar Voice á Akureyri hafa
ákveðið að ekki verði fjallað um
kreppuna á stöðinni.
„Með þessu erum við ekki að draga
úr alvarleika málsins, heldur lítum
við svo á að fólk sé komið með yf-
irdrifið nóg af þessari umræðu,“ seg-
ir í tilkynningu. Þeir sem vilja hvíla
sig á krepputali geta stillt á fm 98,7.
Eiginkona mín og vinnufélagar
hennar ákváðu að taka makana með
í helgarferð til Madrídar en útlenskt
flugfélag fór á hausinn um daginn
svo hætt var við. Ég hef líklega
grætt um 200 þúsund á því og finnst
það satt að segja góður árangur.
Kristján Jóhannsson var í banastuði
þegar hann söng á dögunum fyrir
móður sína og aðra íbúa dvalar-
heimilisins Hlíðar hér á Akureyri.
Hann kemur aftur heim í heiðardal-
inn eftir helgi og syngur með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands á tónleikum
í íþróttahúsi Síðuskóla.
Petri Sakari stjórnar Sinfó í Síðu-
skóla þar sem Kristján syngur ís-
lenskar söngperlur og frægar aríur
eftir Puccini og Leoncavallo. Á tón-
leikunum verður auk þess leikin
fimmta sinfónía Beethovens, karni-
valforleikur Dvoráks og tveir kaflar
úr hinni ástsælu tónlist Griegs við
Pétur Gaut. Og það kostar bara þús-
undkall inn.
Ung akureyrsk stúlka spurði föður
sinn um daginn hvort kreppan væri
honum að kenna. „Við eigum ekki
einu sinni flatskjá.“ Er einhver
möguleiki að svara þessu?
100 ár verða liðin á laugardaginn
síðan formlegt skólastarf hófst í
Glerárþorpi, sem þá var hluti Glæsi-
bæjarhrepps. Hann sameinaðist síð-
ar Akureyri og þess vegna höldum
við upp á daginn hér í höfuðstaðn-
um.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kalt Frostið bítur en er líka fallegt, eins og við Strandgötuna í gærmorgun.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Páll Bergþórsson yrkir limru ítilefni atburða síðustu vikna:
Er forsið úr Hólm-Steini fokið?
Er frjáls-æði úr Þor-Steini rokið?
Fellir íslensk þjóð
sitt stóriðjustóð?
Er Stein-öld á Hólmanum lokið?
Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd rakst á ljóðið „Handa Steini“
í Lesbókinni og skrifar um það:
„Burt með alla persónudýrkun!“:
Einatt sigla
út og suður
orð hjá Steini.
Er þar hrygla
og ófögnuður
oft að meini!
Beiskjan situr
svo í honum
sár að vana,
að hann flytur
veikum vonum
vísan bana.
Rúnar hefur nokkuð gaman af
kvikmyndum, einkum gömlum, sí-
gildum myndum. Hann orti nýlega:
Síst á tjaldi tel ég vonda,
títt þá fyrir sjónir ber,
Charlton Heston, Henry Fonda,
Hudson, Peck og Lancaster!
Góður oft er gamli Wayne,
gervilegri en John McCain.
Og spurning er það ekki nein
að Alan Ladd er fínn í Shane!
Sigurður Helgason á Keldum hjó
eftir því bankarnir voru gefnir og
teknir aftur, vextir lækkaðir og
hækkaðir aftur, og yrkir:
Kaupahéðna kreppan skók
kunnur er vandi slíkur;
Davíð gaf og Davíð tók
drottni sjálfum líkur.
Af steinöld á
Hólmanum
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Ekkert er nýtt undir sólinni en
vissulega vakti klæðnaður sá sem
boðinn var upp í uppboðshúsi
Christie’s í vikunni mikla athygli.
Það voru ekki eingöngu rauðir litir
og plastáferð sem fékk fólk til að
staldra við heldur ekki síður verðið
sem búist var við að fengist fyrir
„fatnaðinn“, lítil 6.000 pund. Höf-
undur þessa listræna klæðnaðar er
Pierre Cardi og kallar hann afurð
sína gervitunglakápuna.
Reuters
Framandi fatnaður