Morgunblaðið - 30.10.2008, Page 23

Morgunblaðið - 30.10.2008, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 Að skipta um peru Það er betra að allar perur séu í lagi í götuvitunum. Til að allt gengi vel fyrir sig voru fjórir borgarstarfsmenn fengnir til verksins. Frikki Jakobína Ingunn Ólafsdóttir | 29. okt. Eignir og skuldir Nú er fólk að fá einhverja afganga af því sem það lagði í sparnað en sama fólk sér skuldir sínar þjóta upp í bönkunum vegna vaxtahækkana og verð- bólgu. Er ekkert undarlegt við það að nú er verið að hirða eignirnar af fólki og bæta þeim við skuldir þeirra? Ég er sprenglærður viðskiptafræðingur en get ekki skilið hvernig þetta getur verið réttlætanlegt. Ég held að þetta tengist viðskiptafræði götunnar og að við séum með götustráka við stjórnvölinn. Búum við ekki bara við einhvern nýfasisma. ... Meira: kreppan.blog.is Arnþór Helgason | 29. október Geta Kínverjar leyst krónubréfavandann? Almenningi er nú meira en nóg boðið. Stjórnvöld verða að upplýsa Alþingi og almenning um ýmis skilyrði sem eru uppi á borðinu vegna samning- anna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Stýri- vaxtahækkunin kom eins og rothögg og virðist vera ávísun á að framlengja það hættuástand sem krónubréfin sköpuðu. Fjölmargir efast um að hún hafi mikil áhrif á eftirspurn eftir íslenskum krónum. Lilja Mósesdóttir hefur lýst því að þessi aðgerð sé varasöm. Hvers vegna er hag- fræðingum eins og henni ekki gefið tæki- færi til þess að gera tillögur um nýja fjár- málastefnu? Ástandið er orðið svo grafalvarlegt að setja verður stjórnendur Seðlabankans frá hið fyrsta. ... Meira: arnthorhelgason.blog.is MISMUNANDI markmið hagsmunaaðila innan við- skiptabanka gera starfsemi þeirra í grundvallaratriðum frábrugðna hefðbundinni fyr- irtækjastarfsemi. Hagsmunir áhættufælinna innlánseig- enda ganga öndvert hags- munum áhættusækinna hlut- hafa sem aftur samræmast ekki hinum áhættuhlutlausu stjórnendum bankanna. Hluthafar hafa tæki í fórum sínum til að skikka stjórnendur til að sækja fram fyrir sína hönd og taka áhættu sem þeir ella hefðu ekki tekið. Þetta tæki er ár- angurstenging launa. Eftirlitsstofnanir svo sem seðlabanki og fjármálaeftirlit hafa það hlutverk að gæta hagsmuna innlánseigenda. Kerfislægur veikleiki hefur komið fjár- málakerfum í þann vanda sem hann nú finn- ur sig í. Þetta þýðir að löggjafinn vanrækti að setja fjármálakerfunum nægilega fastar skorður til þess að minnka líkur á óæski- legri hegðun. Þannig má segja að annars gott fólk hafi verið dregið áfram af fjárhags- legum hvötum sem að lokum leiddi til gjald- þrots banka og verðbréfasjóða með tilheyr- andi tapi sparifjáreigenda og hugsanlega skattborgara. Árangurstenging bankastjóralauna hefur verið á þann veg að stjórnendur banka hafa haft hag af því að lána fé til viðskiptavina, nýrra og gamalla, af miklum krafti; bæði mikið og hratt. Með mikilli lántöku, yfirtöku annarra banka og útlánaþenslu ná stjórn- endur að stækka efnahagsreikning og markaðshlutdeild bankanna sem aftur hækkar markaðsvirði hlutabréfa. Aukin ávöxtun hluthafanna skilaði sér í háum launagreiðslum og bónusum til bankastjóra. Þegar fjármálastormurinn, svokallaði, fór yfir landið 2006 þá fengu bankastjórar ís- lensku bankanna alvarlega aðvörun frá er- lendum kaupendum skuldabréfa íslensku bankanna um að of hratt væri farið; ginn- ungagapið eitt biði bankanna ef héldi áfram sem horfði. Tryggingaálög á skuldabréfaút- gáfu bankanna endurspegluðu og staðfestu þetta. Vegna þeirra launasamninga sem hluthafar höfðu gert við bankastjórana höfðu þeir hins vegar engan hvata til þess að draga saman seglin, selja eign- ir og minnka áhættu; launa- samningarnir umbunuðu þeim fyrir að taka meiri áhættu – ekki minni. Þar sem skulda- bréfaútgáfa reyndist erf- iðleikum bundin þá sóttust bankastjórarnir eftir annars konar fjármögnun með því að bjóða uppá hávaxtainnlán í milljónasamfélögum. Áhættan af innlánum var hins vegar ekki borin að fullu af bönkunum og innláns- eigendunum sjálfum heldur var henni deilt með skattborgurum. Þessi áhættusama fjármögnun var mjög í takt við þá hvata sem hluthafar bankanna höfðu lagt fyrir banka- stjórana sína; að taka meiri áhættu, halda útþenslustefnu sinni áfram og njóta þeirrar ávöxtunar sem hlaust af áhættu sem þeir báru ekki einu sinni sjálfir að öllu leyti. Seðlabankinn þjónar því hlutverki að vera lánveitandi til þrautavara og stuðla að fjármálastöðugleika, auk þess að ákvarða stýrivexti. Sem slíkur hefur hann aðstöðu til að taka ofurháa vexti fyrir lán sín til þrauta- vara og bestu hugsanleg veð þurfa að vera þeim til tryggingar – enda eru slík lán einkar áhættusöm. Seðlabankinn hefur auk þess vald til að hlutast til um rekstur þess banka sem þiggur lán til þrautavara og eftir atvikum t.d. að koma sínum manni í stjórn bankans. Þannig getur þrautavaralánveit- andi dregið úr völdum bankastjóra. Vegna hinna íþyngjandi úrræða sem seðlabankinn hefur gagnvart bankastjórnendum draga hinir síðarnefndu það í lengstu lög að leita á náðir þrautavaralánveitanda – miklu lengur en hagur heildarinnar kallar eftir. Svo aftur er það í takt við þá hvata sem hluthafar leggja fyrir bankastjóra sína að leita ekki á náðir þrautavaralánveitenda fyrr en það skiptir þá ekki máli hvort þeir missa völdin fyrir eigin handvömm eða hvort seðlabank- inn tekur þau af þeim. Ein kerfislæga villan til viðbótar lýtur svo að eftirlitsaðilunum. Seðlabankar hafa einn- ig sinn lánveitanda til þrautavara; enda komust menn að því eftir kreppuna miklu að smitáhrif eins veikburða kerfis (eða lands) eru fljót að fella annað á kné. Alþjóðagjald- eyrissjóðnum, einni af systurstofnunum Sameinuðu þjóðanna, var fengið þetta hlut- verk árið 1948. Rétt eins og bankastjórar viðskiptabanka vilja ekki lúta skilyrðum og láta völd sín í hendur seðlabankastjóra, þá vilja seðlabankastjórar ekki láta völd sín í hendur á alþjóðlegum lánveitanda til þrauta- vara. Þeir draga það líka í lengstu lög og miklu lengur en almannahagsmunir krefjast af þeim. Niðurstaðan í kerfi sem þessu getur að- eins orðið á einn veg ef lykil-leikendur í kerf- inu hafa ekki þeim mun meira innsæi og ábyrgðarkennd til að bera. Þessu má líkja við að þegar bát hvolfir fara allir í sína björg- unarhringi; vandamálið við þessar aðstæður er að hringirnir eru færri en farþegarnir og gagnast engum þegar of margir leggjast á þá. Öllum farþegum hefði verið borgið ef komið hefði verið í veg fyrir að bátnum hvolfdi. En hvatinn til að kasta aflanum (hinni góðu ávöxtun) fyrir borð og þiggja dælu að láni (aðstoð aðila eins og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins) var ekki til staðar fyrir þá sem stýrðu bátnum. Það er vandasamt verk að búa til reglu- verk sem slær á rétta hvatastrengi. Við upp- byggingu þá sem við stöndum frammi fyrir þarf að tryggja að kunnáttufólk komi þar að og hvatakerfi verði komið þannig fyrir að all- ir farþegar og áhöfn sjái hag sínum borgið með því að koma bátnum í var þegar blikur eru á lofti. Eftir Guðrúnu Johnsen » Þessu má líkja við að þegar bát hvolfir fara allir í sína björgunarhringi; vandamálið við þessar að- stæður er að hringirnir eru færri en farþegarnir og gagnast engum þegar of margir leggjast á þá. Höfundur er hagfræðingur og lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Þegar gott fólk bregst við röngum hvötum Guðrún Johnsen BLOG.IS ALLIR þeir lögfræðingar sem ég hef rætt við eru sammála um að ábyrgð ríkissjóðs Íslands nái ekki lengra en Tryggingasjóður innistæðueig- enda getur staðið undir. Það sé algjörlega skýrt í tilskipun Evrópusambandsins frá 1999 og Al- þingi innleiddi. Í því ljósi má segja að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hafi teygt sig fulllangt með bréfi sínu til breskra yfirvalda þar sem hann sagði að íslensk stjórnvöld myndu, ef á þyrfti að halda, styðja Tryggingasjóð innistæðu- eigenda til að afla nægra fjármuna þannig að sjóðurinn gæti staðið við lágmarksbætur færi svo að Landsbanki og útibú hans í Bretlandi féllu. Í kjölfar bréfsins segir fjármálaráðherra Árni M. Mathiesen svo í margumræddu símtali við Al- istair Darling fjármálaráðherra Bretlands að bankarnir hafi tryggingarsjóð sem íslenska ríkið muni styðja við. Með þetta tvennt í farteskinu hefði átt að vera útilokað fyrir Darling að segja að Íslendingar ætluðu ekki að borga og beita síðan hryðjuverka- lögunum og frysta eignir Landsbankans með öll- um þeim afleiðingum sem það hafði í för með sér. Í ljósi þeirrar valdbeitingar tel ég að yfirlýs- ingar viðskipta- og fjármálaráðherra séu úr gildi fallnar. Með aðgerðum sínum brenndu bresk stjórnvöld upp nánast allar eigur íslensku bank- anna og í raun allra Íslendinga. Með aðgerðum sínum hafa Bretar gert íslenska ríkinu ókleift að gangast við þeim skuldbindingum sem bresk stjórnvöld fara fram á. Þau verða að taka afleið- ingum eigin gjörða. Bresk stjórnvöld hafa fyr- irgert öllum rétti sínum á hendur íslenska rík- inu, bæði lagalegum og siðferðilegum. Uppgjör við Litla-Bretland vegna Icesave hef- ur farið fram. Það uppgjör átti sér stað þegar hryðjuverkalögunum var beitt gegn Íslendingum og eigur Landsbankans hirtar. Uppgjör að öðru leyti mun fara fram síðar. Ármann Kr. Ólafsson Uppgjör við Litla-Bretland hefur farið fram Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.