Morgunblaðið - 30.10.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 30.10.2008, Síða 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 AÐ undanförnu hef- ur orðið vart við mikla reiði í þjóðfélaginu, skiljanlega, en gæta verður þess að hengja ekki bakara fyrir smið. Í þessu tilviki almennt starfsfólk fjármálafyr- irtækja fyrir að hafa starfað undir stjórn- endum sem sumir hverjir misstu sig í dansi í kringum gullkálfinn. Í þessari grein langar mig til að rifja upp könnun um líðan, vinnu- umhverfi og heilsu starfsfólks á fjármálamörkuðum sem gerð var árið 2001. Með því er ég að vekja at- hygli á að þessi starfshópur, sem hefur það m.a. að markmiði að há- marka eignir skjólstæðinga sinna samkvæmt bestu sannfæringu, vinnur í mjög krefjandi vinnuum- hverfi, undir miklu álagi og streitu sem kemur niður á líðan fólksins og heilsufari, e.t.v. vegna þess að það tekur starf sitt alvarlega. Ekki er sanngjarnt að treysta starfsfólkinu fyllilega þegar vel gengur en hella sér yfir einstaka starfsmann þegar illa fer. Líðan, vinnuumhverfi og heilsufar kannað Árið er 2001 og verðbréfamark- aðir ung starfsgrein á Íslandi. Orð- ræðan í þjóðfélaginu er sú að innan þessa geira starfi fólk undir miklu andlegu álagi, þar sem í starfinu felst að vera ráðgefandi um ákvarðanir vegna fjár- magns viðskipavina sinna eða vera með eigur þeirra í fjár- vörslu og taka að ein- hverju leyti sjálf- stæðar ákvarðanir um hvernig best sé að ávaxta féð. Þá eins og nú höfðu ytri aðstæður, eins og þróun hlutabréfa- eða gjaldeyrismarkaða, þau áhrif að ekki var fyrirséð hvort ákvarð- anirnar voru réttar eða rangar fyrr en síðar. Orðræðan var einnig sú að starfsgreinin væri uppfull af ungu, vel menntuðu fólki, en vegna mikils álags væru líkur á því að það brynni fljótt út í starfi og að starfsmann- velta fjármálafyrirtækjanna væri þar af leiðandi há. Til að kanna líðan, vinnuumhverfi og heilsu þessa hóps, sem ekki hafði verið gert áður hér á landi, var spurningalisti lagður fyrir þá sem unnu annars vegar á mörkuðum/ viðskiptastofu og hins vegar við eignastýringu þriggja stærstu fjár- málafyrirtækjanna sem voru starf- andi í júní 2001. Svarhlutfall var 87%. Mánuðina áður en spurningalist- inn var lagður fyrir höfðu verið miklar sveiflur bæði á gjaldeyris- og hlutabréfamörkuðum og því mátti gera ráð fyrir að niðurstöðurnar endurspegluðu mikið álag. Niðurstöðurnar á sínum tíma voru sláandi bæði varðandi aldurs- skiptingu og andlega og líkamlega líðan starfsfólksins. Rétt tæp 60% starfsmanna voru á aldrinum 21-30 ára og einungis 4% voru 41 árs og eldri. Aðeins 6% höfðu unnið 6 ár eða lengur hjá því fyrirtæki sem þau störfuðu hjá þegar spurn- ingalistinn var lagður fyrir og tæp 60% höfðu einungis unnið samfellt í tæp tvö ár hjá verðbréfafyr- irtækjum. Fimmtungur starfsfólks hafði verki fyrir brjósti Þar sem gert er ráð fyrir því að störf fólks í fjármálafyrirtækjum séu fremur bundin við andlegt álag en líkamlegt voru nokkur sállík- amleg einkenni skoðuð sérstaklega. Athygli vakti að 21% starfsfólks (ath. að 96% voru undir fertugu) hafði fundið verk fyrir brjósti eða hjarta, sem gefur sterka vísbend- ingu um streitu. Karlar voru líklegri til að finna fyrir brjóst- eða hjarta- verk en konur og heldur fleiri yf- irmenn en sérfræðingar. Tæplega helmingur starfsmanna hafði fengið kvíðaköst á undanförnum 12 mán- uðum og voru konurnar þrisvar sinnum líklegri til að fá kvíðaköst en karlkyns samstarfsmenn þeirra. Þá höfðu um 65% starfsfólks fundið fyrir áhyggjum og dapurleika og helmingur átt við svefnleysi að stríða að einhverju marki (sjá töflu). Að horfa á tapið „tikka inn“ Síðar sama ár tók ég viðtöl við nokkra starfsmenn til að fá betri innsýn í líðan þeirra og vinnuskipu- lag og var hvort tveggja, könnunin og viðtölin, hluti af BA-verkefni mínu. Þegar ég spurði út í streitu og álag sagði einn starfsmannanna: „Ja, mesta álagið er þegar þú bara stendur fyrir framan skjáinn og horfir á tapið tikka inn […] Þegar verst er geta það verið einhverjir tugir milljóna.“ Annar sagði: „Þegar þú ert í þessum geira þarftu að vera að taka ákvarðanir allan daginn. Það er alltaf eitthvað að gerast og þú ert alltaf að ákveða hvað þú eigir að gera.“ Sá þriðji sagði: „… en allir fjárfestar á markaðnum eru nátt- úrlega brjálaðir … kenna okkur um auðvitað […] Í rauninni getur eng- inn sagt fyrir um þetta og sérfræð- ingar úti alveg eins og hér heima voru með stórar yfirlýsingar.“ Um það hvernig gengi að ráða við álagið lýsti einn starfsmanna því svona: „Svo eitt kvöldið þegar ég kom heim náði ég ekki andanum, sem er bara álag […] Líkaminn var náttúrlega búinn að gefa alls konar viðvaranir, sem maður hlustaði bara ekki á. Ég var oft búin að finna fyrir því að ég var stundum að springa, þannig að ég þurfti bara að fara út í bíl í hádeginu, bara keyra, bara sko til að springa ekki.“ Hafi líðanin verið slæm árið 2001 þá má gera ráð fyrir að hún sé mun verri nú þegar sveiflur eru ekki bara á mörkuðum heldur algjört hrun. Verum þess meðvituð að beina reiðinni ekki að einstökum þjónustufulltrúum eða þeim ein- staklingi á verðbréfamarkaði sem reyndi að gera sitt besta í umhverfi sem ég held að enginn einn hafi haft yfirsýn yfir. Andleg og líkamleg líðan fólks á fjármálamörkuðum Hildur Friðriks- dóttir skrifar um streitu »Ekki er sanngjarnt að treysta starfs- fólkinu fyllilega þegar vel gengur en hella sér yfir einstaka starfs- mann þegar illa fer. Hildur Friðriksdóttir Höfundur er félagsfræðingur og for- stöðumaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði. 21% 21% 26% 26% 36% 46% 50% 52% 59% 65% 66% 67% 72% 80% brjóst- eða hjartaverk lystarleysi óvenju andstutt(ur) svima þembu í maga kvíðaköstum svefnleysi magaverk vöðva- eða liðverkjum áhyggjum eða dapurleika bakverk þreytu eftir nætursvefn verk í hálsi höfuðverk ÍSLENDINGAR standa vel að vígi til að komast út úr ólgusjó al- þjóða fjármálakrepp- unnar. Íslensku útrás- arvíkingarnir sem gerðu Ísland að virkum aðila í alþjóðlega fjármálakerf- inu í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar unnu ein- stakt afrek. Þeir hafa sannað fyrir okkur og umheiminum hvað lítil þjóð getur náð langt með duglegum sölu- mönnum. Þetta hefði aldrei verið kleift nema með stjórnfarslegum að- gerðum sem veittu íslenskum at- hafnamönnum frelsi til að reyna krafta sína. Þessi þáttur í sögu okkar Íslend- inga er einstæður á heimsmæli- kvarða. Íslendingar voru um nokk- urra ára skeið samkeppnishæfasta þjóð Evrópu með hæstu lífskjör í heimi. Hvaðanæva í heiminum vakti útrásin bæði aðdáun og undrun en líka öfund og reiði. Það síðastnefnda vegna þess hversu margir í alþjóða- fjármálageiranum voru ósáttir við að hafa ekki sjálfir séð tækifærin sem víkingarnir okkar sáu og nýttu sér. Þessi nýja atvinnugrein hefur bæði skapað fjölda manns atvinnu, ekki einungis á Íslandi heldur einnig í fjölmörgum öðrum löndum. Þegar núverandi fjármagnskreppa skellur á bitnar hún hvað harðast á Íslend- ingum sem upplifa í fyrsta sinn fjár- magnskreppu sem virkir þátttak- endur í greininni. Það verður vonandi mikið hægt að læra af þessari reynslu fyrir útrásir framtíðarinnar. Stjórnvöld hafa einnig talað um að láta gera úttekt og skilgreiningu þeg- ar storminn lægi, til þess að finna út hvað lagfæra megi til að standa enn betur að vígi í framtíðinni. Við sem búum erlendis erum ekki óvön fjármálasveiflum, ég minnist niðursveifl- unnar 1992 þegar fast- eignamat hrundi 50% í Svíþjóð og Götabank- inn varð gjaldþrota. Litlu munaði að Skandinaviska Ensk- ilda bankinn og aðrir sænskir stórbankar færu sömu leið. Ástæðan þá var m.a. að bankarnir höfðu stofnað fjármálafélög til að komast fram hjá takmörkunum í útlánum vegna húsakaupa (90% af húsaverðinu). Um tíma gátu menn fengið lánsfé sem dugði til að kaupa nýtt hús, nýjan bíl og að auki 200 þús. sænskar kr í vasapening gegn veði í keyptum eignum. Þegar bólan sprakk tók ríkið yfir banka og fjár- málafélög, stofnaði félög til að reka veðhæfar skuldir (eignir sem síðar voru seldar) og félög til að vinna að uppgjörum ótraustra skulda. Margir hér fóru illa út úr þessu en Svíar sem þjóð náðu sér fljótt á strik aftur. Næsta niðursveifla – „IT kreppan“ – kom upp úr aldamótunum. Munurinn á núverandi niðursveiflu og þeim fyrri er að nú eru upptökin í stærstu fjármálavél heimsins, Bandaríkj- unum. Starfsmaður eins bílafyr- irtækis sem verður að loka, sagði í sjónvarpsviðtali hér, að húsnæðis- málastefna demókrata væri ástæðan fyrir fjármagnsleysi dagsins. Í tíð Clintons var lánastofnunum gert skylt að lána gegn lægri tryggingu svo allir gætu eignast eigið húsnæði. Minnst 10% bílasala í USA fara í þrot og hætta rekstri um þessar mundir. Sumar spár eru um að samanlagðar aðgerðir stjórnvalda og annarra nú dugi fyrir tæpum þriðjung vandans og tvo þriðju hluta vanti enn til að fullnægjandi lausn fáist. Þótt þessi niðursveifla fái víðtæk- ari áhrif en þær fyrri vegna umfangs síns vitum við að Bandaríkjamenn kalla ekki allt ömmu sína. Líkt og hjá okkur eru þeir mjög sveigj- anlegir og laga sig fljótt að nýjum aðstæðum. Það er aðdáunarvert að sjá hvernig stjórnvöld Íslands hafa tekið á málunum og stýra skútunni með styrkri hendi gegnum versta sjóinn. Önnur stjórnvöld, t.d. þau bresku, hafa með sínum aðgerðum gert illt verra og aukið á vanda landsmanna sinna. Sem Íslendingurí Svíþjóð líður ekki sá dagur að ekki sé verið að ræða um Ísland. Svíum er hugleikið að vita hvernig Íslend- ingum reiðir af og ég vildi að sendi- ráðið okkar hefði meiri tök á að mæta þessum gífurlega áhuga. Það er alfarið út í hött að kenna Davíð Oddssyni seðlabankastjóra um ástandið núna. Hans á eftir að verða minnst sem stærsta stjórn- málamanns Íslands gegnum tíðina á eftir Jóni Sigurðssyni. Davíð leiddi þjóðina og lagði grundvöllinn að stærsta þróunar- og blómaskeiði í sögu Íslands. Það er einnig vara- samt að einblína á evruna sem alls- herjarlausn. Hvorki Svíar, Bretar né Danir hafa orðið því myrkri að bráð sem spáð var í upphafi, þegar þjóð- irnar ákváðu að viðhalda gjald- miðlum sínum. Sannleikurinn er sá, að þessar þjóðir hafa klárað sig mjög vel, vegna eigin sveigjanleika í fjár- málum. Íslendingar eru þeirrar gæfu að- njótandi að hafa svo stóra meiri- hlutastjórn sem nú fer með völd. Engan gat grunað, hvílíkt próf rík- isstjórn okkar og allir landsmenn þurftu að gangast undir, þegar kosið var. Förum vel með mannkosti okk- ar og snúum bökum saman í þessu mikla verkefni. Þegar í gegnum þetta verður komist skín sólin björt á ný og við verðum í undir það búin til að takast á við enn viðameiri verk- efni. Ísland og alþjóða fjármálakreppan Gústaf Adolf Skúla- son skrifar um efna- hagsmál hérlendis og erlendis » Förum vel með mannkosti okkar og snúum bökum saman í þessu mikla verkefni núna. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er ritari Evrópska smáfyr- irtækjabandalagsins og formaður Sænska smáfyrirtækjabandalagsins VALDAGRÆÐGI ýmissa ráðamanna sem birtist í því að vilja viðhalda krónunni sem gjaldmiðli Íslands er orsök þess að Ísland stendur nú í ljósum logum. Sinnuleysi þeirra gagnvart lán- astöðu íbúðaeigenda og fyrirtækja í landinu er þeim ekki sæmandi. Græðgi þeirra í að halda í völdin sem fylgja því að vera með eig- in krónu sem gjaldmiðil er orsökin fyrir því að ekki er búið að sækja um aðild að ESB og upptöku evrunnar fyrir löngu. En krónan er steindauð, þeir eiga bara eftir að átta sig á því. Margra ára óstjórn þeirra í peningamálum hér á landi drap hana. Á meðan þessu fer fram er kominn á kreik draugur sem fer eins og eldibrandur um land- ið. Draugur sá er gráðugur og nefnist verðbólga. Erfitt er að slökkva í hon- um þrátt fyrir margar og misheppn- aðar tilraunir ríkisrekna brunaliðs- ins. Standa þeir nú ráðþrota og bálið brennur sem aldrei fyrr. Ef þetta er ekki nóg er annar illskeyttur púki kominn á kreik, klónaður af þessum sömu mönnum og kallast sá verð- trygging. Hann étur jafnt og þétt upp eignir landsmanna og það sem eftir er lendir í gini hávaxtastefnunnar. Eignir fólksins í landinu eru á brunaútsölu, bálið brennur og það logar skært. Lántaka á vegum Al- þjóða gjaldeyr- isvarasjóðsins mun bæta stöðu þjóðarinnar í ein- hvern tíma en hætta er á því að gengi krónunnar muni á endanum lækka þegar upp er staðið. Sú ákvörðun ráðamanna að viðhalda krónunni sem gjaldmiðli landsins mun á endanum reynast okkur dýr- keypt, eins og ekki sé komið nóg. Fólk er að flýja landið í stórum stíl og ástand á vinnumarkaðnum fer sífellt versnandi. Algjört hrun og eignaupp- taka blasir við ef þetta heldur áfram. Fólkið stendur gleymt og ráðþrota á meðan lánin hækka stöðugt. Þeir sem komu verðtryggingunni á á sínum tíma bera hér mikla ábyrgð. Nú ríður á að grípa þær útréttu hendur sem okkur eru réttar, láta gamalt sigla sinn sjó og losa okkur við afdankaða og úrbrædda pólitíkusa. Unga og framsækna fólkið í Sjálf- stæðisflokknum verður að ganga fram fyrir skjöldu og taka af skarið hvað varðar málefni ESB og upptöku evrunnar því annars er hætta á að flokkurinn klofni í tvennt. Tvö og hálft ár er stuttur tími í kosningar og málin verða að fara að skýrast tafarlaust. Úlfarnir eru komnir á kreik, látum þá ekki éta okkur út á gaddinn. Brunaútsala hvað? Sigurjón Gunn- arsson fjallar um efnahagsástandið almennt Sigurjón Gunnarsson » Á meðan þessu fer fram er kominn á kreik draugur sem fer eins og eldibrandur um landið. Draugur sá er gráðugur og nefnist verðbólga. Höfundur er matreiðslumeistari.Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.