Morgunblaðið - 30.10.2008, Page 27

Morgunblaðið - 30.10.2008, Page 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 Elsku amma. Nú skiljast okkar leiðir og ég mun sakna þín ótrúlega mikið. Ég man allar yndislegu stund- irnar sem ég átti í sveitinni hjá ykkur afa þar sem ég lék mér úti allan dag- inn með bræðrum mínum og frænd- systkinum og að loknum leikjum dagsins bauðstu okkur alltaf upp á nóg að borða og enginn fór svangur í háttinn, þú sást til þess. Eftir því sem ég varð eldri eyddi ég meiri tíma í að spjalla við þig og mér þótti alltaf gaman að heyra gömlu sögurnar úr sveitinni og þegar þú varst að leggja mér línurnar. Ég man svo vel hvernig þú passaðir upp á alla, að þeim yrði ekki kalt og væru vel klæddir. Það lá við að maður kæmi alltaf í rúllukragabol og ullarsokkum í heimsókn. Þú byrjaðir snemma að ræða við mig um barneignir og spurðir mig í sífellu hvenær ég ætlaði að byrja að eignast börn. Þegar ég benti þér á að þú hefðir nú ekki eignast þitt fyrsta barn fyrr en 32 ára sagðist þú ekki vilja byrja 17 ára að eignast börn eins og mamma þín. Þú talaðir mikið um að ég ætti að eignast mikið af börnum og ætti helst að gera samning við hann Sævar um að eignast í það minnsta sjö börn. En ég held að á endanum höfum við komist að sam- komulagi um að fimm börn væru nú alveg nóg og vonandi náum við Sævar að standa við það. Svo 29. júní 2007, á afmælisdaginn hennar mömmu, eignaðist ég mitt fyrsta barn, hann Lúkas Blæ, og er ég svo ótrúlega þakklát fyrir það að þú náðir að sjá allavega eitt af mínum börnum. Þú varst svo ótrúlega glöð og ánægð þegar ég kom með Lúkas Blæ í heimsókn og það sást hversu stolt þú varst af langömmubarninu þínu og urðuð þið miklir vinir, enda var Lúkas Blær duglegur að kyssa þig og knúsa og bjóða þér cheerios. Auðvitað reyndir þú að bjóða honum Opal og varst að reyna að sannfæra mig um hversu gott það er fyrir börn að sjúga suðusúkkulaði. Ég veit að það verður tekið vel á móti þér og veit að þú munt fylgjast vel með okkur, vaka yfir Lúkas Blæ og öllum börnum sem við munum eignast. Við munum sakna þín mjög mikið. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Halla Björk og Lúkas Blær. Elsku mamma mín. Nú er komið að kveðjustund hjá okkur þar til við sjáumst aftur í ljósinu hinum megin eins og við ræddum stundum um. Hugurinn reikar og margs er að minnast. Aðfangadagskvöld og við erum að Elín Þórunn Bjarnadóttir ✝ Elín ÞórunnBjarnadóttir fæddist á bænum Þorkelsgerði í Sel- vogi í Árnessýslu 17. september 1923. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu í Víðinesi 14. október síðastliðinn og fór úför hennar fram frá Lágafells- kirkju 24. október. borða jólasteikina hennar mömmu sem hún hefur nostrað við í marga klukkutíma. Í útvarpinu hljómar jóla- messan og við krakk- arnir spariklædd með frið í hjarta og stemmn- ingin er þannig að há- tíðleikinn og friðurinn eru nánast áþreifanleg. Reyndar er mamma ekki ennþá komin í sparifötin en það gerir hún eftir matinn á með- an við krakkarnir sjáum um uppvaskið, á mettíma og pabbi klárar að pakka inn. Nú bíðum við eftir mömmu því ekki má taka upp pakkana fyrr en hún hefur fengið sinn tíma til að punta sig. Kvöldið yndislega líður hratt og allt of snemma eru mamma og pabbi farin að geispa. En við vissum ekki þá að mamma er búin að vaka fram eftir nóttu síðustu nætur við jólaundirbún- ing og pabbi að hendast um allt í leit að jólagjöfum í Reykjavík með inn- kaupamiðann frá mömmu í vasanum. Þakka þér fyrir, elsku mamma. Þið pabbi kennduð okkur hvernig sönn jól eiga að vera. Með gleði og umfram allt með frið í hjarta. Mamma var alltaf að. Endalaus matseld, þvottar og þrif eins og var í þá daga á stórum heimilum og oft þurfti hún að sjá um gegningar í fjár- húsinu á kvöldin og ekki kunni hún mamma að hlífa sér, var hamhleypa til allra verka. Þegar gesti bara að garði þá svign- uðu borð undir kræsingum og þá átti hún til að afsaka þetta „lítilræði“. Mikið erum við búnar að spjalla saman um heima og geima í gegnum árin. Spá í bolla, hlæja og skemmta okkur. Það sem öðrum var hulið það sá mamma. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna, blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Mikið hlýtur að hafa verið tekið vel á móti þér, elsku mamma, í ljósinu hinum megin, hún Ella mín hefur verið þar í broddi fylkingar, einnig Þórdís systir ásamt Elínu og Myrru og eins Frikki bróðir og pabbi ásamt bræðrum og systrum þínum. Saknaðarkveðjur. Þín dóttir, Sigrún Bryndís Pétursdóttir. Á DÖGUM lausa- fjárvandræða, gjald- þrota bankanna og sparifjárrýrnunar er eðlilegt að fólk sé áhyggjufullt. Það er því enn mikilvægara en áður að huga að ljósu punktunum í tilver- unni. Þrátt fyrir að erf- itt geti verið að kaupa bíl, endur- innrétta heimilið eða fara til útlanda er margt annað sem við getum glaðst yfir. Enn höfum við fjölmörg tækifæri til að gleðjast og tímanum er svo sannarlega betur varið í gleði en áhyggjur sem ekkert uppskera. Góð leið til að gleðjast og gleðja aðra er að taka þátt í verkefninu Jól í skó- kassa sem nú fer af stað í fimmta sinn. Verkefnið snýst um að gefa munaðarlausum börnum í Úkraínu jólagjafir. Skókassa er pakkað inn í jólapappír og í hann settar marg- víslegar gjafir handa börnum sem annars fengju engar jólagjafir. Framkvæmdin er einföld og fjöl- margir Íslendingar hafa á liðnum ár- um tekið þátt í að gleðja fátæk úkra- ínsk börn með því að taka þátt í verkefninu. Fyrir síðustu jól fengu 5.000 börn gjöf frá íslenskum vinum sem þau höfðu aldrei hitt. Þau tóku gjöfunum fagnandi og fyrir þeim er Ísland gjafmild þjóð sem hugsar vel um þá sem minna mega sín. Þeir sem hafa tekið þátt í verkefninu þekkja þá tilfinningu að gefa og vita að verk- efnið er ekki eingöngu til þess gert að færa gleði inn á úkraínsk heimili, heldur einnig íslensk. Þrettán manna hóp- ur stendur að verkefn- inu í samstarfi við KFUM og KFUK og hefur séð um að safna saman gjöfunum og dreifa þeim í Úkraínu. Ekki er hægt að lýsa með orðum spennunni og ánægjunni í andlitum munaðarlausu barnanna þegar þau taka við gjöfunum. Þau eru himinlif- andi með tannbursta og tannkrem og gleðjast eins og um væri að ræða fínustu leikjatölvur! Þau taka upp handprjónaða vettlinga frá Íslandi og dást að þeim. Þegar þau sjá gam- alt, heilt leikfang frá íslensku barni hlaupa þau til vina sinna og sýna stolt það sem þau hafa fengið. Marg- ir sem gefið hafa gjafir á síðustu ár- um hafa jafnframt skrifað stutta kveðju á ensku til þess barns sem tekur við gjöfinni, jafnvel sett mynd af sér og upplýsingar um heim- ilisfang. Það gefur viðkomandi barni tækifæri til þess að senda þakk- arkort til baka. Þá hafa börnin jafn- framt sýnt þakklæti sitt með því að semja ljóð um Ísland, syngja lög eða segja „jakújú“ – takk á úkraínsku – eina úkraínska orðið sem Íslending- arnir sem dreifa gjöfunum muna eft- ir ferðina, þeir heyrðu það svo oft. Síðasti skiladagur gjafanna á höf- uðborgarsvæðinu í ár er 8. nóv- ember en tekið er við þeim í að- alstöðvum KFUM og KFUK að Holtavegi 28. Skiladagur á Akureyri er 1. nóvember á Glerártorgi. Nán- ari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðunni www.skokass- ar.net. Hópurinn sem stendur að verkefninu vill koma á framfæri þökkum til allra sem hafa lagt hönd á plóg undanfarin ár. Þeirra á meðal eru börn í leikskólum og grunn- skólum landsins, saumaklúbbar, vinnustaðir og ýmis félagasamtök. Einnig viljum við hvetja alla til að taka þátt í gleðinni í ár og nýta tæki- færið til að leiða hugann að öðru en fjárhagsvandræðum þjóðarinnar – þó ekki sé nema um stundarsakir. Gleðjumst í kreppunni! Björg Jónsdóttir biður fólk að leggja söfnuninni Jól í pakka lið » Fjallað er um verkefnið Jól í skókassa sem nú fer fram í fimmta sinn. Landsmenn eru hvattir til að búa til jólagjöf handa fátækum börnum í Úkraínu. Björg Jónsdóttir Höfundur er einn af skipuleggjendum verkefnisins Jól í skókassa HRINA gjaldþrota blasir við okkur. Lána- stofnanir munu þurfa að leysa til sín þúsundir heimila. Þetta mun leiða til algers verð- hruns fasteigna sem mun leiða af sér fleiri gjaldþrot. Almenningur gæti safnast saman í íþróttahúsum landsins þar sem bæjarfélög myndu veita fólki athvarf. Heimili landsins stæðu mannlaus. Þau væru minnisvarðar um þjóð sem eitt sinn var. Þetta er svört spá en minnist þess að fáir trúðu að bankarnir færu í þrot á einni viku. Það þarf strax að kasta líflínum til sökkvandi heimila landsins. Þó þarf að gæta sanngirni í því ferli. Við búum við verðtryggingu. Það eru settar leikreglur og það þarf helst að standa við þær. Ef verð- tryggingin yrði afnumin án fyr- irvara væri verið að beita fjárfesta óréttlæti. Hluti þessara fjárfesta er- um við öll í gegnum lífeyrissjóðina. Það yrði að bæta fjárfestum upp það tjón sem þeir yrðu fyrir og þær bæt- ur yrðu greiddar með skattfé. Það væri tilfærsla á skuldum sem gæti reynst bjarnargreiði til lengdar. Í dag standa yfir umdeildar björgunaraðgerðir. Þegar þeim er lokið og uppbygging hafin verður tímabært að afnema verðtrygg- inguna. Hvað er til ráða fyrir heimilin? Sveigjanleiki í innheimtu lána Jóhanna á þakkir skildar vegna aðkomu sinnar að skipulagningu að- gerða til að auðvelda heimilunum róðurinn. Hún ætlar að taka öll íbúðalán undir verndarvæng Íbúða- lánasjóðs. Til dæmis vill hún gefa fólki kost á að lengja lánin, sækja um greiðslustöðvun í allt að 3 ár og fleira sem kemur sér vel. Það verður bara að hafa hraðari hendur, á næst- unni er ekki nóg. Hver dagur sem líður kostar sjálfsagt nokkrar fjöl- skyldur heimilið sitt. Krafan er skýr, aðgerðir strax. Ríkisstjórnin hefur sýnt okkur að lagasetning þarf ekki að taka nema einn sól- arhring. Er ekki örugglega vilji á Al- þingi til að bjarga heimilunum? Fjárnám í heim- ilum verði bannað Að hjálpa fólki að leysa vandann sem fasteignalánin skapa er ekki nóg. Skjald- borg heimilanna þarf að ná allan hringinn ef fullnægjandi árangur á að nást. Það myndi bjarga mörgum fjölskyldum frá þeim ömurlegu örlögum að vera kastað út úr sínu eigin húsi ef heim- ilið yrði griðastaður fyrir ágangi sið- blindra innheimtulögfræðinga. Það á ekki að heimila fjárnám í heimilum fólks. Heimilið á að vera heilagt og öruggt skjól fyrir börn og fullorðna, þó að þeir síðarnefndu kunni að misstíga sig stöku sinnum. Það hjálpar engum að rústa heim- ilum. Fyrir utan harmleikinn fylgir því mikill kostnaður sem allir þurfa að greiða með sköttum. Ábyrgðir þriðja aðila felldar úr gildi Ábyrgðarmenn eru eitt af okkar sérstöku fyrirbrigðum í fjármálum einstaklinga. Að hafa ábyrgðarmenn fyrir hverri einustu skitnu krónu sem fólk þarf eða hefur tekið að láni er fáránlegt. Þessar ábyrgðir þriðja aðila hafa eingöngu valdið fjölskyldu harmleikjum og öðrum ófögnuði. Lánadrottnar eiga að sýna ábyrgð til jafns við lántakandann og setjast niður með honum ef illa fer, semja og leysa málin. Ef skuldarinn er kominn í þrot þarf einfaldlega að af- skrifa skuldina. Í dag þurfa lánadrottnar ekki að hafa fyrir því að tala of mikið við fólk, þeir byrja bara að ganga á næsta heimili og setja fólkið þar líka á hausinn. Fáránlegt. Þak á innheimtukostnað Innheimtukostnaður er öfga- kenndur á Íslandi, oft margfaldur höfuðstóll skulda. Til dæmis má nefna að stofnanir sem veita grunn- þjónustu eins og leikskóla og hádeg- ismat í grunnskólum nýta þjónustu innheimtufyrirtækja. Ég hef leitað svara við því hvers vegna þessir að- ilar skipta við innheimtufyrirtæki sem gjarnan margfalda höfuðstól skulda. Þau svör hafa fengist að ár- angurinn hjá þeim sé svo góður. Það skal engan undra góðan árangur þegar innheimtuaðferðirnar eru ekkert annað en ofbeldi, fjárhags- legt ofbeldi. Þak á innheimtukostnað gæti fal- ist í því að kostnaðurinn megi aldrei vera hærri en 20% af höfuðstól skuldar, auk vaxta. Þá yrði til dæmis ekki hægt að rukka meira en 1000kr. fyrir að innheimta skuld sem væri 5000 kr., það er einfald- lega sanngjarnt. Þegar einstaklingar lenda á van- skilaskrá vegna skulda sinna lokast þeim allar dyr. Það skiptir gríð- arlegu máli að geta hagrætt við- skiptum sínum á sem bestan máta þegar glímt er við fjármálaerf- iðleika. Til dæmis það eitt að skipta um símafyrirtæki getur sparað tugi þúsunda á mánuði. Þeir sem eru á vanskilaskrá geta ekki stofnað til nýrra viðskipta við fyrirtæki þó svo að engin skuld sé til staðar hjá því eldra. Fólki er alltaf flett upp í van- skilaskrá við stofnun viðskipta og það vill enginn taka við þeim sem eru brennimerktir. Það er gríðarlega mikilvægt að heimila eingöngu fjármálafyr- irtækjum aðgang að vanskilaskrám á meðan unnið er að því að koma á jafnvægi, og jafnvel lengur. Hjólin mega ekki stöðvast Það verður að halda heimilunum á floti. Þau eru grunnurinn að þjóð- félaginu. Ef við höfum ekki fjármuni til að eiga viðskipti við hvert annað mun allt stöðvast. Ef það gerist munum við ekki að hugsa um upp- byggingu næstu árin. Þeir fáu sem verða eftir munu fyrst og fremst hugsa um að halda lífi. Líflínur til heimilanna Halldór Gunnar Halldórsson skrifar um efnahagsmál » Það verður að halda heimilunum á floti. Þau eru grunnurinn að þjóðfélaginu. Halldór Gunnar Halldórsson Höfundur starfar sem smiður.                         

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.