Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 29

Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 ✝ Heiðrún SoffíaSteingríms- dóttir fæddist á bænum Myrkárdal í Hörgárdal 15. ágúst 1924. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Hlíð 18. októ- ber síðastliðinn. Heiðrún var dóttir hjónanna Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Steingríms Egg- ertssonar, sem þá voru búandi í Myrk- árdal ásamt for- eldrum Steingríms, en Jóhanna var ættuð frá Máskoti í Reykjadal. Í maímánuði 1927 fluttist fjöl- skyldan alfarið til Akureyrar og þar ólst Heiðrún síðan upp hjá foreldrum sínum, sem þar bjuggu til æviloka, og þar átti hún sitt heimili alla tíð. Eftir flutninginn til Akureyrar eignaðist hún tvö systkini, Karl Hróðmar, f. 25.9. 1927, og Cecelíu, f. 8.9. 1929. Heiðrún giftist 1. maí 1948 Þor- steini Jónatanssyni, f. 14.10. 1925, sem lengi var ritstjóri vikublaðs- ins Verkamaðurinn og síðar starfsmaður verkalýðsfélaganna ára í sambandsstjórn Lands- sambands Sjálfsbjargar og var fulltrúi þess á Norðurlandaþing- um. Við stofnun Endurhæfing- arráðs ríkisins 1970 tók hún sæti í ráðinu sem fulltrúi Alþýðu- sambands Íslands og átti þar sæti til ársloka 1983 eða allan þann tíma sem það ráð starfaði. Í for- mannstíð Heiðrúnar stofnaði Sjálfsbjörg á Akureyri m.a. Plastiðjuna Bjarg, sem veitir fötl- uðum atvinnu, og Endurhæfing- arstöð Sjálfsbjargar, sem þá tald- ist og væntanlega enn til fullkomnustu stöðva sinnar teg- undar í landinu. Hún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín að fé- lagsmálum 1985. Eftir að Heiðrún hætti for- mennsku og störfum hjá Sjálfs- björg starfaði hún um eins árs skeið hjá Félagsmálastofnun Ak- ureyrarbæjar og síðustu störf hennar utan heimilis voru sem leiðbeinandi við handavinnu á Dvalarheimilinu Hlíð 1983 og 1984, hluta úr ári. En þá voru starfskraftar hennar á þrotum. Næstu árin reyndi hún þó að sinna heimilisstörfum, en varð smám saman einnig að gefast upp við það. Hún dvaldi á hjúkr- unarheimilinu Hlíð frá 9. apríl 2002. Útför Heiðrúnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. á Akureyri. Þau eiga eina dóttur, Eddu Hanneyju, f. 8.6. 1944. Afkomendur hennar eru 10. Heiðrún stundaði nám við Gagnfræða- skóla Akureyrar í þrjá vetur og lauk gagnfræðaprófi vor- ið 1940. Eftir það tók við vinna á ýmsum vinnustöðum, einna lengst við af- greiðslustörf í versl- un, en einnig í Slát- urhúsi KEA á haustin, og svo við fiskflökun og síldarsöltun. Árin 1953 til 1963 sá hún ásamt föður sínum um rekstur Alþýðuhússins við Gránufélagsgötu á Akureyri, sem þá var í eigu verkalýðsfélag- anna í bænum og rekið sem al- hliða funda- og skemmtistaður. Heiðrún var í hópi þeirra sem unnu að stofnun Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra á Akureyri, 1958, og skrifaði fundargerð stofnfund- arins. Þar var hún kosin í stjórn hins nýja félags og átti þar sæti í samfellt 23 ár, þar af formaður í 15 ár, 1966-1981. Sat einnig fjölda Til þín, elsku amma. Í gleði lífsins kenndir mér, að gera ávallt betur. Því hver sinnar gæfusmiður er og hrós frá ömmu hvetur. Að eiga ömmu eins og þig, er besta gjöf í heimi. Þú hugsaðir alltaf svo vel um mig, og aldrei því ég gleymi. Elsku hjartans amma mín, nú tregi hjartað fyllir. Ljúfar stundir og hlýjan þín, sál og hjarta gyllir. Þú veitir styrk þó farin sért, til veraldar hæstu hæða. Því ávallt í hjarta hjá mér ert, og árin sár mun græða. Ég þakka fyrir okkar fund, og blómakrans ég sendi. Veit að þú munt hverja stund, halda í mína hendi. Gullabörnin þín, Heiðdís, Fanndís og Þórdís. Þegar vorar og blóm og gróður lifna er sá tími ársins sem allir hlakka til að upplifa. Þrátt fyrir það er haustið fallegt með sína fal- legu liti og tákn um að vorið muni koma á ný. Þessi samanburður á einnig við líf okkar allra. Það er vor og sumar þegar við erum við góða heilsu og okkur líður vel. Þegar heilsa og þróttur brestur kemur haust í lífi okkar. Nú hefur hetja kvatt sér hljóðs og sofnað eftir erfiða tíð, Heiðrún Stein- grímsdóttir sem við nú kveðjum. Missti heilsu á besta aldri en tókst að halda vori og sumri í hjarta sínu alla sína lífstíð. Hún er hetjan okkar og bros hennar og viðmót gladdi alla sem hana þekktu. Heiðrún og maður hennar Þor- steinn bjuggu alla sína tíð á Ak- ureyri. Þegar ég kynntist konu minni Fanndísi skynjaði ég hversu mikils virði þau voru henni. Þegar við fórum í fyrstu heimsókn okkar saman norður og ég hitti þau hjón- in varð ég þess áskynja hversu Fanndís var rík að eiga þau að. Heiðrún var þá komin á hjúkr- unarheimili og hafði hlotið mörg líkamleg áföll. Í veikburða líkama var kona sem var mjög opin og já- kvæð persóna. Fann ég strax hlýju hennar og viðmót í minn garð. Þar komu tengsl sem munu aldrei rofna. Að finna handtak hennar, hlýju og nærveru er í fjársjóði minninga minna. Þegar ég fór norður í eitt sinn með drengi mína tvo heimsóttum við hana. Hún tók mér og strákunum opnum örmum. Hinn 15. ágúst 2004 varð Heið- rún 80 ára og fórum við norður og var það yndislegt að sjá er Þor- steinn endurnýjaði hjúskap þeirra með því að þau settu upp nýja og fallega giftingarhringi. Má segja að hjörtu þeirra hafi slegið í takt og sú umhyggja sem Þorsteinn bar til hennar einstök og fögur. Edda tengdamóðir mín fór í öllum sínum fríum norður til að vera hjá móður sinni og Þorsteini. Hún er eina barn þeirra og þrátt fyrir að allir vissu hvert stefndi er erfitt að sjá á eftir Heiðrúnu Steingrímsdóttur. Nú er haustið komið og sigur í höfn. Gott er að fá hvíld eftir lang- an dag. Ég votta Þorsteini, Eddu, barnabörnum, barnabarnabörnum, öðru skyldfólki og vinum mínu dýpstu samúð. Guðmundur Ingi Ingason. Kveðja frá Sjálfsbjörg, félagi fatlaðra á Akureyri og nágrenni Hugurinn leitar aftur í tímann og til minna fyrstu kynna af Sjálfsbjörg. Ég var þá lítil stelpa að selja merki félagsins með Ingi- björgu systurdóttur Heiðrúnar. Ekki hvarflaði það að mér þá að ég ætti eftir að verða formaður fé- lagsins og þar með önnur konan sem gegnir starfinu í 50 ára sögu félagsins. Heiðrún var ein af stofnendum Sjálfsbjargar á Akureyri og ná- grenni og formaður félagsins frá árinu 1966 til 1981, lengst allra sem þar hafa komið við sögu. Við Sjálfsbjargarfélagarnir eigum henni mikið að þakka. Heiðrún var frumkvöðull, framsýn og hugdjörf. Þegar Plastiðjan Bjarg var stofnuð voru þau hjón Heiðrún og Þor- steinn þar aðalhvatamenn, jafn- framt við stofnun endurhæfingar- innar og byggingu Bjargs við Bugðusíðu. Fórnfýsi hennar var ótrúleg og ómæld sjálfboðavinna unnin. Ég heimsótti Heiðrúnu á Hlíð hinn 11. október sl. eftir 50 ára af- mælishóf félagsins. Þá var hún orðin mikið veik. Ekki er ég viss hvað hún meðtók af því sem ég sagði, en ég sá nokkrum sinnum blik í augum og bros á vör. Ég vil að lokum þakka Heiðrúnu fyrir það mikla og góða starf sem hún vann í þágu félagsins. Sjálfsbjarg- arfélagar senda fjölskyldu Heið- rúnar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. F.h. Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni, Herdís Ingvadóttir, formaður. Heiðrún Soffía Steingrímsdóttir Samúðarkerti/hólkar með huggunarorðum fást í blómabúðum. isdecor@isdecor.is Samúðarkerti ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR K. BERGSTEINSSON fyrrverandi forstjóri, Skúlagötu 20, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 31. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög. Brynja Þórarinsdóttir, Þórarinn Gunnarsson, Ragnhildur Gunnarsdóttir, Guðmundur Magnússon, Bergsteinn Gunnarsson, Anna S. Björnsdóttir, Theódóra Gunnarsdóttir, Garðar Þ. Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn, barnabarnabarn og frændi, BJARNI SALVAR SIGURÐSSON, til heimilis að Stuðlabergi 76, Hafnarfirði, andaðist á Barnaspítala Hringsins fimmtudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 31. október kl. 13.00. Rakel Hrund Matthíasdóttir, Sigurður Þór Björgvinsson, Þórunn Lea Sigurðardóttir, Elsa Bjarnadóttir, Matthías Eyjólfsson, Þórunn Ólafsdóttir, Daníel Magnús Jörundsson, Ragnheiður Reynisdóttir, Björgvin Helgi Halldórsson, Sigríður Þorleifsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Þökkum innilega alla þá vináttu og samúð sem okkur var sýnd við fráfall móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SVÖVU GUÐJÓNSDÓTTUR, áður til heimilis í Bakkahlíð 45, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Börn hinnar látnu. ✝ Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, KRISTJÁNS HÁLFDÁNSSONAR, Brimnesvegi 16, Flateyri. Guðmundur Helgi Kristjánsson, Bergþóra Ásgeirsdóttir, Hinrik Kristjánsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Hálfdán Kristjánsson, Hugborg Linda Gunnarsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir, Birgir Laxdal, Ragnar Hjörtur Kristjánsson, Þórunn Ísfeld Jónsdóttir, Guðríður Rúna Kristjánsdóttir, Gunnar Ævar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín og besti vinur, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona og amma, HERDÍS BJÖRG GUNNGEIRSDÓTTIR, Ársölum 3, Kópavogi, lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins 28. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Friðrik Björnsson, Gunngeir Friðriksson, Edda Björg Sigmarsdóttir, Ásgeir Friðriksson, Helga Lára Ólafsdóttir, Sigurrós Friðriksdóttir, Sigurrós Eyjólfsdóttir, Viðar Gunngeirsson, Halla Guðmundsdóttir og barnabörn. Elsku mamma, tengdamamma, amma og lang- amma, MARGRÉT GUÐNADÓTTIR, Herjólfsgötu 36, Hafnarfirði, sem lést föstudaginn 24. október, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 31. október kl. 15.00. Elín Gísladóttir, Gunnar Linnet, Guðni Gíslason, Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Halldór Jónas Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.