Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.10.2008, Qupperneq 32
Bjarni Hansson frá Kirkjubóli í Langadal í Ísa- fjarðardjúpi er áttræður í dag, 30. október. Hann býður vin- um og vanda- mönnum að fagna með sér á Hilton-hóteli við Suðurlandsbraut í Reykjavík, annarri hæð, laugar- dagskvöldið 1. nóvember frá kl. 20 til 23. 80 ára 32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh. 15, 12.) Skiptar skoðanir eru um hvortvetur leggist óvenjusnemma að en Víkverji er í hópi þeirra sem finnst veturinn alveg á réttum tíma. Það var jú fyrsti vetrardagur á laug- ardaginn og byrjað að frysta nokkr- um dögum fyrr. Nú í fyrstu viku vetrar hefur verið snjór hér í borg- inni sem þó er varla til að tala um miðað við vetrarríkið úti á landi með tilheyrandi ófærð. Víkverji veltir því samt fyrir sér hvort hann sem höfuðborgarbúi myndi vilja skipta um veður við Ís- firðinga eða Akureyringa. Stað- reyndin er nefnilega sú að þegar Víkverji á erindi á þessa staði að vetrarlagi finnst honum allt veðurfar skyndilega vera orðið stöðugra og áreiðanlegra. Hér fyrir sunnan veit maður aldrei hvar maður hefur veðr- ið. Að lifa með sunnlenskum vetri er svipað og að ræða við mann sem get- ur varla klárað setningu án þess að frussa, hlæja eða hágrenja á sama tíma. En til dæmis á Akureyri væri viðmælandinn yfirvegaður, rökfast- ur og vel máli farinn. Auk þess væri hann með þunga í málflutningi sín- um og gæti fryst mótrökin hjá manni með feiknakrafti. Sá ísfirski væri ósköp svipaður, nema hvað hann gæti verið aðsópsmeiri þegar norðanáttin dettur í hann. x x x Víkverji er ekki frá því að sunn-lenska veðurfarið hafi þessa fyrstu viku vetrar aðeins reynt að taka sér höfðingjana fyrir norðan sér til fyrirmyndar enda hefur verðrið í borginni verið stöðugt að minnsta kosti tvo morgna í röð. En dæmigert er að það verði brostið á með útsynningi og þrýstingsfalli áð- ur en maður lýkur við þessa setn- ingu. Víkverji ætlar að fá sér nagladekk á hjólið sitt í vetur og prófa sig áfram með vetrarhjólreiðar – að því gefnu að svoleiðis dekk fáist í hjóla- búðum á þessum síðustu og verstu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ömurlegt, 8 sárs, 9 mergð, 10 elska, 11 angan, 13 aulann, 15 andvara, 18 karldýr, 21 forfeður, 22 fær af sér, 23 yndis, 24 vikudags. Lóðrétt | 2 bárum, 3 ýlfrar, 4 kranka, 5 koma að haldi, 6 eldur, 7 fall, 12 blóm, 14 blása, 15 gjálfur, 16 gerðu sam- komulag, 17 benin, 18 stúlka, 19 fáni, 20 gang- setja. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 vomar, 4 hlass, 7 lensu, 8 felds, 9 fes, 11 aðan, 13 fróa, 14 ældir, 15 gaur, 17 íman, 20 ári, 22 rytan, 23 gulls, 24 aflar, 25 akrar. Lóðrétt: 1 vilpa, 2 munda, 3 rauf, 4 hafs, 5 aular, 6 sessa, 10 endur, 12 nær, 13 frí, 15 garða, 16 umtal, 18 mylur, 19 nusar, 20 ánar, 21 igla. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Skipt um lit. Norður ♠64 ♥K ♦ÁK752 ♣D10974 Vestur Austur ♠G7 ♠10982 ♥DG1096 ♥8743 ♦D1064 ♦G ♣K2 ♣ÁG86 Suður ♠ÁKD53 ♥Á52 ♦983 ♣53 Suður spilar 3G. Með bestu spilamennsku og góðri vörn verður niðurstaðan sú að sagn- hafi fær fjóra slagi á spaða, tvo á hjarta og þrjá á tígul. Hvernig má það vera? Útspilið er hjartadrottning. Til að byrja með reynir sagnhafi að skapa sér fjóra tígulslagi, sem er auð- velt verk ef liturinn fellur 3-2 og ekki vonlaust í 4-1-legu eigi austur stakt mannspil. Fyrst er ♦Á lagður niður og áttan látin undir heima, síðan er smáum tígli spilað á níuna. Ef vestur drepur fást fjórir slagir á litinn með því að svína sjöunni næst, þannig að vestur gerir því best í því að dúkka. En sá krókur á móti bragði dugir vörninni ekki, því sagnhafi skiptir nú um líflit, snýr sér að spaðanum og tryggir sig gagnvart 4-2-legu með því að spila smáum spaða á undan ♠ÁKD. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Einbeittu þér að grunnþáttunum: vinnu og ást. Ef þig skortir hvorugt vant- ar þig bara þakklæti í hjarta til að vera hamingjusöm. Ef ekki – er lífið fullkomið! (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er meira áríðandi að vita hvað þarf að gera en að gera það. Það er vit- urlegt að hefjast ekki handa við verkefni dagsins án þess að skipuleggja sig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert sleip í félagslífinu. Þú get- ur komið fólki saman án þess að það eigi nokkuð sameiginlegt. Í lok dags er heim- urinn vinalegri, þér að þakka. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert föst í rútínu þar til þú gerir þér grein fyrir að þú þarft ekki að vera það. Hvernig væri að gantast og dansa meira? Þú sérð ekki eftir því. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Verkið krefst þess að þú farir þér hægt og vandir þig. Að gera hlutina rétt tekur helmingi lengri tíma en að gera þá rangt – en svo þarftu að laga allt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Verkin hlaðast upp og þér líður sí- fellt verr. Hvernig væri að hefjast handa? Það tekur þig nokkra klukkutíma. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Undirmeðvitundin skemmtir þér all- an daginn. Myndirnar sem birtast í hausnum á þér eru oft sprenghlægilegar. Haltu upp á brjálað ímyndunarafl þitt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú stendur á tímamótum. Það sem var vinaleg samkeppni breytist í stríð. Taktu rökrétta ákvörðun: Er þess virði að reyna að vinna þetta stríð? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú hefur misst trúna á vissum aðila. Kannski er ekkert sem hann hefur gert rangt. Tiltrú er eins og vöðvi; ef þú notar hann ekki rýrnar hann. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Leyndar staðreyndir koma í ljós. Líklega tengdar vitneskju frá árum áður. Þú hefur getað gleymt þeim sjálf en það er ástæða fyrir því að þú manst þær. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Nú er ekki tíminn fyrir kænsku. Fólk skilur ekki það sem þú ýjar að. Talaðu hátt og snjallt, skrifaðu stóra stafi og biddu um einmitt það sem þú vilt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Allt mun enda vel, ef þú neitar að hafa áhyggjur. Þegar þú finnur að þú ert að keyra út af í huganum, beindu þá hugs- ununum aftur inn á beinu leiðina. Stjörnuspá Holiday Mathis 30. október 1796 Dómkirkjan í Reykjavík var vígð. Hún hafði verið átta ár í smíðum. Kirkjan var end- urbyggð árið 1848 en miklar endurbætur voru gerðar á henni rúmum þrjátíu árum síðar. 30. október 1952 Íslenskir tónar gáfu út „fyrstu íslensku dansplöturnar“, eins og það var orðað í Þjóðvilj- anum. Þetta voru þrjár tveggja laga plötur með söng Svavars Lárussonar. Meðal laganna voru Hreðavatnsvals- inn, Ég vildi ég væri og Fiski- mannaljóð frá Kaprí. 30. október 1981 Kvöldgestir, útvarpsþáttur Jónasar Jónassonar, hóf göngu sína. Hann hefur síðan verið á dagskrá Rásar 1 á föstudagskvöldum. 30. október 1998 Helmingshlutur ríkissjóðs í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins, FBA, var seldur fyrir 4,7 milljarða króna. Þetta var þá talin mesta einkavæðing á Íslandi. Bankinn var síðar sameinaður Íslandsbanka. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „ÞETTA eru ekki tímamót af neinu tagi,“ segir Mörður Árnason um afmælisdaginn í dag. „Ég ætla að vera í minni eigin vinnu við ýmis verkefni, s.s. að undirbúa kennslu og lesa yfir bókarhandrit. Síðan ætla ég að mæta á fund hjá Samfylkingunni um fjár- hagskreppuna.“ Sjálfur ætlar hann því ekki að gera sér sérstakan dagamun. „Ég þori ekki að segja hvað konan mín leggur til málanna en ég á ekki von á að það verði neitt stórkostlegt.“ Það má búast við líflegum umræðum á fundinum sem Mörður nefnir. „Þetta eru svo sannarlega sér- stakir tímar og það er smám saman að síast inn hversu afdrifaríkir þeir geta orðið fyrir fólkið og fyrirtækin. Fyrir okkur, sem höfum áhuga á pólitík, verður líka fróðlegt hvað gerist eftir þetta því nú hefur hug- myndafræði frjálshyggjunnar og græðginnar orðið fyrir áfalli. Eins á eftir að sjá hvernig spilast úr praktískum hlutum eins og ríkisstjórninni á Íslandi og útkomu fjárlaga. Framtíðin er óvissari en nokkru sinni fyrr.“ Mörður hlær þegar hann er beðinn að segja fyrir um ástandið að fimm árum liðnum, þegar hann verður sextugur. „Ég hef ekki hugmynd um það en ég vona að bæði heimurinn og ég verðum enn á róli.“ ben@mbl.is Mörður Árnason íslenskufræðingur er 55 ára Sannarlega sérstakir tímar Sudoku Frumstig 7 2 5 8 1 4 7 5 7 3 1 2 5 1 9 1 6 3 4 4 6 8 1 3 1 6 2 1 9 4 7 2 3 6 1 2 3 7 3 8 5 3 8 7 4 1 9 6 9 2 3 4 4 8 5 6 2 7 4 5 6 7 3 3 8 4 4 6 2 1 3 8 4 2 7 9 2 5 9 4 8 9 1 3 5 7 3 1 2 9 4 6 1 8 9 4 2 1 7 5 4 9 6 3 8 3 4 5 2 6 8 1 9 7 8 6 9 3 7 1 4 5 2 4 5 8 7 1 2 9 6 3 9 7 1 4 3 6 8 2 5 6 3 2 8 9 5 7 1 4 7 9 4 1 5 3 2 8 6 5 2 6 9 8 7 3 4 1 1 8 3 6 2 4 5 7 9 9 7 8 6 5 3 4 2 1 3 4 6 2 7 1 8 9 5 1 2 5 8 4 9 6 7 3 5 3 9 1 8 6 2 4 7 4 8 2 3 9 7 5 1 6 7 6 1 4 2 5 3 8 9 6 1 4 9 3 2 7 5 8 8 5 3 7 1 4 9 6 2 2 9 7 5 6 8 1 3 4 1 3 7 8 6 9 5 2 4 9 6 4 3 2 5 7 8 1 8 2 5 4 7 1 3 9 6 3 4 6 7 8 2 9 1 5 7 9 2 5 1 4 8 6 3 5 1 8 9 3 6 2 4 7 4 5 1 2 9 3 6 7 8 2 7 3 6 4 8 1 5 9 6 8 9 1 5 7 4 3 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist töl- urnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. dagbók Í dag er fimmtudagur 30. október, 304. dagur ársins 2008 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5. d3 Rh6 6. Bg5 f6 7. Bd2 d6 8. Dc1 Rf7 9. Rf3 Bd7 10. 0-0 Dc8 11. Rd5 0-0 12. h4 Bh3 13. Kh2 Bxg2 14. Kxg2 b5 15. Hh1 Hb8 16. Rh2 b4 17. f4 f5 18. h5 e6 19. hxg6 hxg6 20. Re3 Db7 21. exf5 Rd4+ 22. Kf2 exf5 23. Df1 Hfe8 24. Dh3 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Halkidiki í Grikklandi. Kristján Eð- varðsson (2.245) sem tefldi fyrir Tafl- félagið Helli hafði svart gegn Rudi Mauquoi (2.032) frá Lúxemborg. 24. … Hxe3! 25. Bxe3 Rxc2 26. Rf3 Rh6 27. Re5 dxe5 28. fxe5 Rg4+ 29. Ke2 Rcxe3 30. Dh7+ Kf8 31. Hag1 Rxe5 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Nýirborgarar Keflavík Vilborg Anna fæddist 4. mars kl. 6.39. Hún vó 2.735 g og var 45 sm löng. Foreldrar henn- ar eru Þórður Þór Sig- urjónsson og Karen Ingi- mundardóttir. Reykjavík Adrían Daði fæddist 30. júlí kl. 13.01. Hann vó 3.450 g og var 50 sm langur. Foreldrar hans eru Kristín Ósk Högna- dóttir og Aron Daníel Arnarson. Selfoss Kristján Rúnar fæddist 27. júní á Selfossi. Hann vigtaðist 4.005 g og var 53 sm langur. For- eldrar hans eru Sturla Bergsson og Sveinbjörg Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.