Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 34
Rithöfundur Ian McEwan. ÓPERA sem er byggð á texta eftir rithöfundinn og Booker-verðlauna- hafann Ian McEwan hefur verið frumsýnd í óperuhúsinu í Linbury í London. Óperan For You fjallar um hrokafullt tónskáld sem þráir spenning æskuáranna. McEwan segir að hann hafi verið hálfplataður til að vinna með tón- skáldinu og höfundi óperunnar, Michael Berkeley, sem er gamall vinur hans. Rithöfundurinn segir að hann hafi vísvitandi valið þemu með kynlífi, þráhyggju og hórdóm í verkið vegna þess að honum finnst þau tilheyra óperu. McEwan og Berkeley hafa unnið saman áður að óratoríunni Or Shall We Die? fyrir 25 árum. McEwan vann að texta For You á sama tíma og hann skrifaði skáld- söguna The Atonement sem færði honum Booker-tilnefningu. McEwan semur óperutexta 34 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 MÁLVERK eftir Pablo Picasso, sem átti að bjóða upp hjá Sotheby í New York í næstu viku, hefur verið dreg- ið til baka af uppboðinu. Búist var við því að verkið, sem ber heitið Arlequin, færi á yfir 30 milljónir dollarar. Mörg þekkt verk hafa ekki selst á eins háa upphæð og búist var við á uppboðum að undanförnu, og er efnahagskreppu heimsins kennt um. Í tilkynningu frá Sothebys segir að eigandi verksins hafi ákveðið að taka það af uppboðinu af persónu- legum ástæðum. Verkið var í eign súrrelíska málarans Enrico Donati sem lést fyrr á þessu ári, 99 ára að aldri. Hann keypti það í París á fimmta áratugnum fyrir 12.000 doll- ara. Arlequin hefur ekki komið fyrir sjónir almennings í 45 ár. Í seinasta mánuði sagði Emm- anuel Di-Donna hjá Sothebys að þetta væri eitt stórfenglegasta verk frá kúbisma-tímanum sem hefur komið á opinn markað. Menningaritstjóri The Art Newspaper segir að listamarkaður- inn í New York sé í meiri lægð um þessar mundir en í öðrum borgum en reyndar hafi haustuppboðin í London, Sydney og Hong Kong ekki staðið undir væntingum. Arlequin Verk eftir Picasso. Listaverka- sala í lægð Verk eftir Picasso tekið af uppboði HELGA Kress flytur fyrirlest- urinn „Sifjaspell á 15. öld: Hvassafellsmál í samtíð, sögu og bókmenntum“ hjá RIKK (Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum) í dag. Fjallað verður um svokölluð Hvassa- fellsmál á síðari hluta 15. aldar þar sem feðgin voru kærð fyrir sifjaspell. Gerður verður grein- armunur á hugtökunum sifja- spellum (skyldleika aðila) og pedofílíu (barna- girnd) sem geta fallið saman en merkja ekki það sama. Bæði eru þessi minni algeng í íslenskum bókmenntum. Fyrirlesturinn fer fram á Háskólatorgi HÍ, í stofu 104, milli kl. 12-13. Hugvísindi Hvassafellsmál í samtíð og sögu Helga Kress VÖKUDAGAR, menningar- hátíð Akraness, hefjast í dag og standa til 9. nóvember. Hátíðin er nú haldin í sjötta sinn og hefur aldrei verið eins umfangsmikil. Hún er borin uppi af listviðburðum heima- fólks með aðkomu listamanna annars staðar frá. Meðal dag- skrárliða má nefna Jass- og blúshátíð Akraness, Kirkjuviku og þá taka allir skólar bæjarins þátt. Rúmlega 20 listamenn sem rætur eiga á Akranesi opna sam- sýningu undir yfirskriftinni „Skagalist 08“. Á opn- unarhátíðinni í dag, í Hafbjargarhúsi á Breið kl. 16, verða sérstök menningarverðlaun Akraness veitt í fyrsta sinn. Menningarhátíð Vökudagar í sjötta sinn Frá Akranesi. Á HVERJU fimmtudagskvöldi fram að jólum stendur bóka- forlagið Salka fyrir fjölbreyttri og gefandi dagskrá í fallegu umhverfi í Gyllta salnum á Hótel Borg. Í kvöld hefst gamanið með hálfgerðu konukvöldi: Sigrún Baldvinsdóttir frá Tarotlest- ur.is spáir í spilin, Inga María Valdimarsdóttir leikkona les úr Síðasta fyrirlestrinum og Borða, biðja, elska, Heiða Dóra trúbatrixa er með tónlistaratriði og Þóra Sigurðardóttir kynnir bókina Japanskar konur hraustar og grannar. Þessi notalega kvöldstund hefst kl. 20 og er frítt inn. Bókmenntir Sölkukvöld á Hótel Borg Borða, biðja, elska. ÞAÐ er ekki á hverjum degi, ekki einu sinni á hverju ári, sem boðið er upp á brasstónlist í höfuðstað Norð- urlands. En í kvöld heldur Brass- sextett Norðurlands tónleika í Akur- eyrarkirkju ásamt Eyþóri Inga Jónssyni orgelleikara og Hjörleifi Jónssyni sem spilar á pákur. Sextettinn skipa trompetleikar- arnir Vilhjálmur Ingi Sigurðarson, Sveinn Sigurbjörnsson og Hjálmar Sigurbjörnsson, Kjartan Ólafsson sem leikur á horn, Kaldo Kiis á bás- únu og Helgi Þorbjörn Svavarsson á túbu. „Þetta er endurreisnar- og barokktónlist; verk eftir Bach, Händel og Telemann, svo einhverjir séu nefndir,“ sagði Vilhjálmur Ingi í samtali við Morgunblaðið. Mörg þekkt verk hljóma í Akur- eyrarkirkju í kvöld og að minnsta kosti eitt þeirra þekkja allir; Euro- vision-stefið fræga. „Þetta er mjög spennandi verkefni, ekki síst að hafa páku- og orgelleikara með okkar. Tónlistin er í kirkjulegri kantinum, mjög hátíðleg og það á vel við að leika hana í kirkjunni,“ sagði Vil- hjálmur. Hann er nýfluttur heim, hinir höfðu starfað eitthvað saman sem kvintett en hann hafði áhuga á að vera með og úr varð sextett. Allir eru tónlistarmennirnir í Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands og stefna að því að leika saman undir merkjum sextettsins. „Við viljum festa okkur í sessi og koma reglulega fram; halda að minnsta kosti tvenna tónleika á ári. Ég geri ráð fyrir því að við verð- um næst með jólatónleika. Svo getur vel verið að við förum í eitthvað róm- antískara eða klassískara.“ Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr. en frítt fyrir nemendur Tónlistarskólans á Akureyri. skapti@mbl.is Brass í Akureyrarkirkju Trompetleikari flutti heim og kvintettinn varð að sextett Morgunblaðið/Sverrir Brass Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgelið í Akureyrarkirkju í kvöld. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is MAGNÚS Sigurðsson er 24 ára bók- menntafræðingur sem hefur undan- farið fengist við ljóðaþýðingar, ljóða- gerð og smásagnaskrif. Hann fékk í gær afhent bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Fiðrildi, mynta og spör- fuglar Lesbíu, sem meðal annars hefur að geyma þýðingar Magnúsar á fornbókmenntum. „Þessi bók hefst á þýðingum úr latínu á kvæðum Katúllusar og end- ar á þýðingum úr Eneasarkviðu eftir Virgil, en í miðjukaflanum eru frum- ort ljóð,“ segir Magnús. Það er ekki algengt að ungskáld séu svona niðursokkin í fornbók- menntir, en Magnús kynntist þeim eftir krókaleiðum. „Ég sæki mikið til módernista, Ezra Pounds og T.S. Elliots, sem voru á kafi í fornöldinni á sama tíma og þeir voru nýskap- andi. Þessi aðferð var þeim mjög eðl- islæg og náttúruleg, að leita þessara sammannlegu almennu gilda í hinni klassísku fornöld.“ Tvöþúsund ára hefð „Ljóð Katúllusar og Virgils eru þessi kunni ástarkveðskapur sem hefur verið gegnumgangandi í vest- rænni bókmenntahefð þessi tvöþús- und ár sem liðin eru síðan þau voru samin og ég máta þá hefð við eigin upplifanir. Ég byrjaði á því að þýða þessi ljóð eftir Katúllus svona af áhuga og persónulegri reynslu sem rímaði svo vel við það sem hann var að skrifa um.“ Lesbía, sem vísað er til í heiti bókarinnar var einmitt ást- kona Katúllusar. Magnús vakti fyrst athygli í fyrra Á kafi í fornöldinni Magnús Sigurðsson hlaut bókmennta- verðlaun Tómasar Guðmundssonar Morgunblaðið/Árni Sæberg Áhrif úr bókmenntasögunni „Ég sæki mikið til módernista, Ezra Pound og T.S. Elliot, sem voru á kafi í fornöldinni,“ segir Magnús Sigurðsson. fyrir þýðingar sínar á Söngvunum frá Pisa eftir Pound. Auk ljóðabók- arinnar er Magnús nýbúinn að senda frá sér smásagnasafnið Hálmstráin. Sögurnar gerast víða, í Barcelona, á Ísafirði og á Nýja- Íslandi. „Það er sagt að ljóðin séu vettvangur hinnar einlægu tján- ingar, en ég held að í mínu tilfelli séu það miklu frekar smásögurnar sem gegna því hlutverki. Ljóðin gera það að einhverju leyti líka, en það er meiri heildarhugsun á bakvið ljóða- bókina en smásögurnar. Smásög- urnar voru sem form betur til þess fallnar að fjalla um sjálfan mig.“ Í HNOTSKURN »Verð-launin hafa verið veitt frá því 1994 og síð- ustu þrjú ár- in hefur óút- gefið ljóða- handrit verið verðlaunað ár hvert. Alls bárust 28 handrit að þessu sinni. »Auk út-gáfu á handriti sínu hlýtur höfundurinn sem ber sigur úr býtum 600.000 krónur í verð- launafé. »Dómnefnd skipa þau Kol-brún Bergþórsdóttir, Þor- steinn Davíðsson og Ingibjörg Haraldsdóttir Tómas Guðmundsson „Ég skal játa að við fyrstu hlustun á þessa plötu vissi ég varla hvaðan á mig stóð veðrið.“ 40 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.