Morgunblaðið - 30.10.2008, Síða 35
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
Jólablað Morgunblaðsins
Stórglæsilegt sérblað tileinkað jólunum
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn
28. nóvember.
Meðal efnis er:
• Jólafötin á alla fjölskylduna.
• Hátíðarförðun litir og ráðleggingar.
• Uppáhalds jólauppskriftirnar.
• Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á
aðventu og jólum.
• Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.
• Smákökur.
• Kökuuppskriftir
• Eftirréttir.
• Jólakonfekt.
• Jólauppskriftir frá kokkum.
• Vín með jólamatnum.
• Laufabrauð.
• Gjafapakkningar.
• Jólagjafir.
• Kertaskreytingar.
• Jól í útlöndum.
• Jólakort.
• Jólabækur og jólatónlist.
• Jólaundirbúningur með börnunum.
• Margar skemmtilegar greinar sem tengjast
þessari hátíð ljóss og friðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
föstudaginn 21. nóvember.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
Á SUNNUDAGINN kemur 180
manna kór fram í Skagafirði og með
þeim tveir píanóleikarar, slagverks-
sveit og fríður flokkur einsöngvara.
Verkefnið er líka ekki af minni gerð-
inni, Carmina Burana eftir Carl
Orff. „Það er mikil hefð fyrir söng
hérna og þetta er bara smá viðbót í
flotta flóru,“ segir Kristján F. Val-
garðsson söngkennari sem hefur
staðið í ströngu við undirbúning tón-
leikanna.
Hann segir verkið ekki hafa verið
flutt áður í Skagafirði og að þetta sé
stærsti kór sem hann viti til að hafi
komið þar saman. Reyndar er um
sex kóra að ræða sem sameinast á
sunnudaginn, Óperukór Reykjavík-
ur, Skagfirsku söngsveitina, kvenna-
kór úr Domus vox, kór Flensborg-
arskóla í Hafnarfirði, Landsvirkj-
unarkórinn og Carminuhópinn í
Skagafirði sem varð til fyrir um ári.
„Ég stofnaði þennan hóp í kringum
flutninginn á þessu verki og svo
kemur í ljós hvort hópurinn lifir.
Þetta er ekki stór hópur, en góður
og að hluta til eru þetta nemendur
mínir.“
Stjórnandi er Garðar Cortes og
einsöngvarar þau Þóra Einarsdóttir,
Bergþór Pálsson og Þorgeir J.
Andrésson.
Búin að syngja í Carnegie Hall
Svipaður hópur, að undanskildum
kór Flensborgarskóla, flutti verkið á
tónleikum í Langholtskirkju og
Carnegie Hall í New York í vor og
sumar. „Ég hef gengið með það í
maganum í mörg ár að koma þessu
verki á laggirnar hérna og var búinn
að koma mér í samband við Garðar
Cortes til þess að fá ráð,“ segir
Kristján sem er gamall nemandi
Garðars.
„Hann hafði svo samband við mig
síðasta haust og bauð mér að bland-
ast í hópinn hans með Carnegie Hall
í huga. Ég gerði samkomulag við
hann um að þetta yrði flutt í Skaga-
firði líka og þar með fór boltinn af
stað.“
Margir þekkja Carmina Burana
af þekktum hljóðupptökum með
hljómsveit og kór. Í Skagafirðinum
verður önnur útsetning eftir lærling
höfundarins notuð, sem Orff sjálfur
lagði blessun sína yfir. „Þetta er
minni útgáfan af verkinu. Hann
gerði stóru útgáfuna fyrst sem
krefst stórrar hljómsveitar. Ekki
allir hafa efni á henni, svo hann lét
gera þessa útgáfu til viðbótar.“
Kristján segir mikla stemningu
fyrir tónleikunum í Skagafirði.
„Þetta bara auðgar lífið hérna, það
er bara fyrst og fremst metnaður-
inn.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Risakór Garðar Cortes stjórnaði stórum hluta kórins þegar hann söng Carmina Burana á tvennum tónleikum í Lang-
holtskirkju í vor og í Carnegie Hall í New York í sumar, en þessi mynd var tekin við undirbúning þeirra tónleika.
Fimmtíu manna kór Flensborgarskóla hefur síðan bæst í hóp þeirra sem syngja verkið í Skagafirði um helgina.
180 manna kór
í Skagafirði
Carmina Burana eftir Carl Orff flutt á sunnudaginn í
íþróttahúsinu í Varmahlíð Sex kórar sem sameinast í einn
Í HNOTSKURN
»Slagverkssveit frá Sinfón-íuhljómsveit Norðurlands
leikur á tónleikunum og við
flyglana tvo verða Kristinn
Örn Kristinsson og Guðríður
Sigurðardóttir.
»Tónleikarnir fara fram ííþróttahúsinu í Varmahlíð
klukkan 17 á sunnudaginn.
Carmina Burana er kantata eftir þýska tónskáldið Carl Orff, sem samin
var á árunum 1935 og 1936. Hún er byggð á 24 ljóðum úr miðaldahandriti
með sama nafni sem fannst í þýsku klaustri snemma á 19. öld. Umfjöll-
unarefnin eru af veraldlegum toga, meðal annars fallvaltleiki auðs og
gæfu og þær hættur sem liggja í veraldlegum nautnum. Orff hlaut mjög
lofsamlega dóma eftir frumflutning verksins í Frankfurt árið 1937 og
sagði í bréfi til útgefenda síns: „Allt sem ég hef skrifað hingað til, og þú
hefur því miður gefið út á prenti, er nú hægt að brenna. Carmina Burana
markar upphafið á ferli mínum.“
Verkið hefur verið notað við ýmis tækifæri, til dæmis eru brot úr því
leikin í kvikmyndunum Excalibur, Natural Born Killers og The General’s
Daughter.
Carmina Burana
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050