Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 36

Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008  Kári Sturluson umboðsmaður hitti varaforseta Warner Music, Seymore Stein, á ráðstefnunni Musexpo í London í gær og var sá hugsi yfir efnahagsástandi þjóð- arinnar. Þetta ráðlagði hann okk- ur: „Búið til fleiri tónlistarmenn eins og Björk. Þá lagast allt.“ Varaforseti Warner ræður Íslandi heilt Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is JEFFREY er ungur Bandaríkjamaður á Íslandi sem tekur þátt í sjálfshjálparnámskeiði í þeirri von að vinna kærustu sína til baka. Námskeiðinu er stjórnað af Betu, sjálfmennt- uðum nýaldar þerapista sem notast við óhefðbundnar að- ferðir til að ná fram markmiðum sínum. Eftir því sem líður á námskeiðið á Jeffrey æ erfiðara með að átta sig á hvort Beta sé í raun að hjálpa honum að fá kærustu sína aftur eða ekki. Þannig hljómar söguþráður stuttmyndarinnar Jeffrey & Beta sem verður frumsýnd í Regnboganum á morgun. „Þetta  Hljómsveitin Jeff Who? hefur sent frá sér nýja smáskífu sem ber titilinn „Congratulations“. Lagið er fyrsta lag nýrrar plötu sem sveitin hefur tekið upp en erfiðlega gekk að koma plötunni í framleiðslu. Mun ástæðan hafa verið greiðslu- örðugleikar Smekkleysu, útgáfu- fyrirtækis Jeff Who? til handa upp- tökustjóranum Axel Árnasyni sem neitaði lengi vel að sleppa hendinni af frumupptökunum nema hann fengi að fullu greitt fyrir sína vinnu. Ef marka má gæði lagsins er von á að nýja platan seljist nokkuð vel fyrir jólin og því hlýtur það að vera bagalegt fyrir fjárhag útgáfu- fyrirtækisins að hafa ekki getað komið plötunni út í framleiðslu fyrr. Ný plata Jeff Who? loksins í framleiðslu  Heimildarmyndin Hér er draum- urinn eftir Jón Egil Bergþórsson verður frumsýnd í Háskólabíói á morgun og verður sýnd þar alla helgina. Myndin, sem er í fullri lengd, fjallar um stærstu sveita- ballasveit lýðveldisins, Sálina hans Jóns míns, sem fagnar 20 ára starfsafmæli í ár. Hún lengi lifi, húrra … Glæný heimildarmynd um Sálina frumsýnd Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HÚN er mikil stjarna hérna og á sér fjölmarga aðdáendur. Flestir þeirra aðdáenda eru auðvitað líka stuðnings- menn CSKA Sofia, liðsins sem mað- urinn hennar spilar með,“ segir Pavel Kolev, blaðamaður hjá búlgarska glanstímaritinu Max. Kolev tók viðtal við Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, fyr- irsætu og eiginkonu Garðars Gunn- laugssonar, knattspyrnumanns hjá CSKA Sofia, og birtist það í nýjasta tölublaði Max sem kom út í gær. Svo vinsæl virðist Ásdís vera orðin í Búlg- aríu að ákveðið var að setja hana á forsíðu tímaritsins. „Það er mjög stutt síðan hún varð þekkt andlit hérna í Búlgaríu, og þess vegna þótti okkur skemmtilegt að setja hana á forsíðuna, fólki finnst hún mjög áhugaverð. En svo er hún náttúrlega mjög falleg stúlka frá Ís- landi, og það hefur enginn íslenskur knattspyrnumaður spilað áður hérna í Búlgaríu,“ segir Kolev og bætir því við að eiginkonur tveggja annarra knattspyrnumanna hafi verið í við- tölum í blaðinu, en ákveðið hafi verið að setja Ásdísi á forsíðuna. Hún fetar þar með í fótspor stórstjarna á borð við Charlize Theron, Monicu Bellucci og Gisele Bündchen sem allar hafa prýtt forsíðu tímaritsins. Að sögn Kolevs sóttust fimm eða sex önnur búlgörsk tímarit eftir því að taka forsíðuviðtal við Ásdísi, en hún hafi ákveðið að velja Max. Líkt við Beckham Aðspurður segir Kolev að enginn vafi leiki á því að Ásdís sé mun fræg- ari í Búlgaríu en eiginmaður hennar. „Allavega enn sem komið er, en það er kannski vegna þess að Garðar hefur ekki enn spilað fyrir CSKA Sofia, þannig að það vita ekki allir hver hann er. En næsta vor, þegar hann fer að spila fyrir liðið, fer hann vonandi að skora mörk og verður þá mikil stjarna í borginni. En í augna- blikinu er Ásdís aðalstjarnan,“ segir Kolev og bætir því við að Ásdísi hafi oft verið líkt við Victoriu Beckham, eiginkonu knattspyrnukappans Dav- ids Beckhams. Það mun þó ekki vera nýmæli að eiginkonur knattspyrnumanna kom- ist í fréttirnar í Búlgaríu, hinar svo- kölluðu „footballers’ wives“ séu mjög vinsælar í landinu – og þá sérstaklega eiginkonur leikmanna CSKA Sofia. „Sem dæmi má nefna Vladimir Manchev, sem spilaði meðal annars á Spáni og í Frakklandi, en er núna kominn heim til Búlgaríu til að spila fyrir CSKA Sofia. Konan hans heitir Eleonora Mancheva og var krýnd ungfrú alheimur árið 2007. Fólk fylg- ist rosalega mikið með þeim, en svo eru einhverjir þrír eða fjórir leik- menn í liðinu til viðbótar sem eiga svona fallegar eiginkonur,“ segir Kolev og hlær. Í Slavi Show Dagurinn í gær var annars stór hjá Ásdísi, því það var ekki nóg með að hún prýddi forsíðu Max, heldur kom hún fram í einum vinsælasta sjón- varpsþættinum í Búlgaríu – Slavi Show. „Hann er sýndur á stærstu sjón- varpsstöðinni í Búlgaríu þannig að það má alveg segja að það gangi allt í haginn hjá Ásdísi um þessar mundir,“ segir Kolev. Ásdís frægari en Garðar  Ásdís Rán Gunnarsdóttir er í forsíðuviðtali í búlgarska tímaritinu Max sem kom út í gær  Kom einnig fram í einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins Forsíðan Ásdís Rán tekur sig vel út á forsíðu búlgarska tímaritsins. Fimm eða sex búlgörsk tímarit til viðbótar óskuðu eftir forsíðuviðtali við hana. Garðar Gunnlaugsson Spilar ekki með liði sínu fyrr en næsta vor. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞAÐ hafa verið alveg gríðarleg viðbrögð, allt frá Grikklandi til Japans,“ segir Einar Örn Bene- diktsson, einn af aðstandendum Náttura.info, þegar hann er spurð- ur um viðbrögð við grein sem Björk birti í breska dagblaðinu The Times á þriðjudag. Í greininni seg- ir Björk meðal annars að Íslend- ingar ættu að nota tækifærið sem nú gefst til þess að hafna efnahags- legum yfirráðum erlendra stórfyr- irtækja og styðja í staðinn við um- hverfisvæn grasrótarfyrirtæki. „Það hefur áður sýnt sig að það er of áhættusamt fyrir okkur að geyma öll eggin í sömu körfunni, eins og við rákum okkur t.d. á þeg- ar 70% af innkomu okkar voru háð fiskveiðum. Nú horfum við fram á hörmulegar afleiðingar þess að veðja öllu okkar á viðskiptageirann. Ef við reisum tvö álver í viðbót verður Ísland ekki þekkt fyrir neitt annað en að vera stærsti álbræð- andi í heimi. Það yrði lítið rými eft- ir fyrir nokkuð annað. Ef álverð fellur svo – eins og það er þegar byrjað að gera – myndi það valda öðru hörmungarskeiði,“ segir Björk meðal annars í grein sinni. Einar Örn segir að Björk ætli ekki í frekari viðtöl vegna grein- arinnar. „Hún fór í sjónvarpsviðtal fyrir ITN og það fer inn á ein- hverjar 50 sjónvarpsstöðvar. Þann- ig að það eru bæði mikil og jákvæð viðbrögð við þessu öllu saman.“ Gríðarleg viðbrögð við grein Bjarkar í The Times Morgunblaðið/G.Rúnar Björk Vakti gríðarlega athygli fyrir grein sína í The Times. Blaðamenn frá öllum heimshornum óska eftir viðtali Sjá má grein Bjarkar í heild sinni á vefsíðunni nattura.info. Fer á námskeið til að ná kærustunni aftur byrjaði sem lítið verkefni þegar ég var að læra myndlist í LHÍ árið 2006,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, leik- stjóri og handritshöfundur myndarinnar. „Þá stofnaði ég leikfélag með leikurunum sem eru í þessari mynd. Við ákváðum að gera smálokaverkefni í þessu leikfélagi. Þannig að ég fékk þau til að þróa sína karaktera og ég spann svo söguþráð upp frá því. Ég notaði þá mynd sem lokaverkefni upp úr LHÍ, og ári seinna ákváðum við að taka þessa karaktera og búa til nýja mynd.“ Jeffrey & Beta er 25 mínútna löng. Um er að ræða aðra mynd Guðmundar sem var tilnefndur til Edduverðlaunanna árið 2005 fyrir teiknimyndina Þröng sýn. Stefnt er að því að Jeffrey & Beta verði sýnd á kvikmyndahátíðum hér á landi á næsta ári, en áður en að því kemur verður hún væntanlega sýnd á hátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Frumsýningin á morgun hefst kl. 17 og eru áhugasamir velkomnir.Sjálfshjálp Bandaríski leikarinn og söngvarinnSeth Sharp í aðalhlutverkinu í Jeffrey & Beta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.